Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Qupperneq 28
ANDVARALAUS
EN SAKLAUS
n Afsökunarbeiðni Björgólfs Thors
Björgólfssonar, eins af lykilmönnum
bankahrunsins,
hefur fengið mis-
jöfn viðbrögð. Í
yfirlýsingu sinni
ítrekar hann af-
sökunarbeiðni til
þjóðarinnar og
lofar að vinna um
ókomin ár í þágu
lánardrottna.
Hann játar þó aðeins á sig andvara-
leysi en staðhæfir að hann hafi hvergi
brotið lög. Nú velta menn fyrir sér
hvort hann hyggist opna allar sínar
bækur og leggja fram skýrslu um fjár-
muni sína nær og fjær.
ÞAKKLÁTUR
ÚTRÁSARVÍKINGUR
n Landsbankinn var á sínum tíma
að stórum hluta í eigu Björgólfs
Thors Björgólfssonar. Fræg veisla
var haldin í Mílanó þar sem bankinn
tók á leigu nokkrar breiðþotur til að
ferja gesti sína frá Íslandi til Ítalíu.
Hápunkturinn var þegar gestirnir
átu gull sem sáldrað var yfir risotto.
Björgólfur Thor var þar mættur fyrir
hönd eigendanna. Athygli vakti þá að
Bjarni Gunnarsson, einn af eigendum
Nordic Partners sem var umsvifamik-
ið í Lettlandi, hélt ræðu þar sem hann
þakkaði aðstandendum Landsbank-
ans fyrir rausnarlegar lánveitingar.
Nú er komið á daginn að bankinn var
blekktur og tapaði stórt á því rugli.
ÍMYNDARSKELLUR
FORSETA
n Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, fær hroðalega útreið í
skýrslu sannleiksnefndarinnar. Þar
er sérstaklega fjallað um auðmanna-
dekur hans og það hvernig hann
dansaði í kringum útrásarvíkingana.
Ólafur Ragnar
var meðal ann-
ars tíður gestur í
einkaþotu Jóns
Ásgeirs Jóhann-
essonar. Hann
náði að rétta af
ímynd sína fyrir
áramót þegar
hann synjaði
Icesave-lögunum samþykktar og
vísaði þeim til þjóðarinnar. Nú velta
menn fyrir sér hvort sú inneign hjá
þjóðinni dugi til að hann standi af
sér stóradóm nefndarinnar þar sem
honum er líkt við nakinn keisarann í
ævintýrinu.
HEYRNARLAUS
ÓLAFUR
n Ólafi Ragnari Grímssyni var
snemma annt um virðingu sína.
Sem ungur drengur krafðist hann
þess að sér væri sýnd tilheyrileg
virðing. Saga þessu tengd er sögð
í nýju bindi í f lokknum Þjóðsög-
ur og gamanmál að vestan. Því var
lýst þegar amma Ólafs, Sigríður
Egilsdóttir á Þingeyri, var að kalla
hann í háttinn. Í fyrstu kallaði hún
nokkrum sinnum „Óli“ en án ár-
angurs. Þá reyndi hún „Ólafur“ en
fékk engin viðbrögð frá drengn-
um. Þá reyndi gamla konan „Ólafur
Ragnar“ en þögnin ein mætti henni.
Það var ekki fyrr en hún kallaði
„Ólafur Ragnar Grímsson“ að eyru
hans opnuðust og hann skilaði sér í
háttinn.
Mistökin eru gerð til þess að læra af þeim. Svo virð-ist sem Íslendingar hafi hins vegar ekki lært neitt
af hruninu eða rannsóknarskýrsl-
unni.
Heimspekingurinn Vil-hjálmur Árnason, einn höfunda siðfræðihluta rannsóknarskýrslunnar,
útskýrði í viðtali við DV í gær hvernig
siðferði þjóðarinnar hjálpaði siðlaus-
um útrásarvíkingum að þrífast. Þjóð-
in ól þá nefnilega sér við brjóst, stolt
eins og nýbökuð móðir með skilgetið
afsprengi sitt. Vilhjálmur kallar orð-
ræðuna á Íslandi í góðærinu „ógagn-
rýna sjálfsánægju“. Hún sótti efnivið
sinn í víkingaarfinn, svo eitthvað sé
nefnt.
Útrásarvíkingarnir voru jafnsiðlausir og þjóðin leyfði þeim að vera. Okkur fannst það í lagi á með-
an við græddum á því. Svo fannst
okkur það ekki lengur í lagi þegar
við fórum að tapa á því. Óánægja
þjóðarinnar tengist enn sem komið
er siðferði ekki baun. Hún snýst ekki
um prinsipp, siðareglur eða annað,
bara fjárhagsstöðu. Að því leytinu til
er þjóðin enn þá alveg eins og útrás-
arvíkingarnir.
Sama fólkið og ól útrásar-víkinga sér við brjóst er nú yfir sig hneykslað á því að enginn stjórnmálamaður
axli almennilega ábyrgð á hruninu.
Hver bendir á annan, þótt allir séu
sekir. Það er athyglisvert að stjórn-
málamennirnir gera nákvæmlega
það sama og þjóðin sjálf gerir núna.
Enginn stendur upp og segir: Ég var
heimskur að kjósa Davíð og taka stórt
erlent bílalán og mótmæla aldrei þeg-
ar gagnrýnendur voru kæfðir, rægðir
og hafðir að háði og spotti! Engin
ástæða er til að ætla að stjórnmála-
menn eða auðjöfrar í ákveðnu landi
öðlist skyndilega miklu hærri siðferð-
isvitund en þjóðin
sem fóstrar
þá.
Nú er komið að því að hver og einn Íslendingur líti í eigin barm og geri upp mis-tök sín í góðærinu. Annars
erum við engu betri en siðlausu, van-
hæfu og gráðugu ómennin sem voru
hetjur okkar og leiðtogar.
Fyrirgefðu, Davíð, að þú varst dýrkaður brjálaður! Hafðu mig afsakaðan, Hannes Smárason, fyrir að halda þig
snilling! Sorrí, Sigurjón Árnason, að
ég leit upp til þín! Sýknaðu mig, Sig-
urður Einarsson, af því að samþykkja
kaupréttarsamninginn! Berðu af mér
blak, Bjarni Ármannsson, fyrir að
telja þig verðskulda starfslokasamn-
inginn! Láttu liggja á milli hluta,
Lárus Welding, að ég horfði upp
á þjóðina kaupa af þér peninga-
markaðssjóðina!
Afsakaðu, Björgólf-ur, að ég sagði
bravó þegar þú
skiptir á bjór-
verksmiðju og
Landsbank-
anum!
SORRÍ, BJÖRGÓLFUR! „Ég vænti
þess að sjá
minnst 2.000
manns í Krik-
anum í fyrsta leik, annað
væri skandall.“
n Logi Geirsson sem skrifaði undir við FH í
vikunni vill fullan Krika í fyrsta leik á næsta
tímabili. - DV
„Ég held að
þetta komi til
með að hafa
áhrif á alla
uppbyggingu í
FH.“
n Faðir Loga, Geir Hallsteinsson handbolta-
hetja, er ánægður með að fá soninn heim. - DV
„I hate Iceland!“
n Drukkinn og reiður Skoti
var ekki sáttur við að
eldgosið í Eyjafjallajökli
eyðilegði fyrir honum
flugferðina. - Sky News
„Þetta er mjög
dularfullt
verkefni og ég
má ekki segja
mikið um það.“
n Dilana Robichaux sem Íslendingar kynntust
í gegnum Rock Star: Supernova vill lítið tjá sig
um íslenska rokkóperu sem hún mun syngja í.
- Fréttablaðið
Ákærum þá alla
Skýrsla rannsóknarnefndar Al-þingis varpar skýru ljósi á þá sið-blindu sem ríkti á Íslandi og varð þess valdandi að hrunið átti sér
stað. Starf þeirra sem stóðu að skýrslunni
er ómetanlegt. Það er þó framvinda mála
sem ræður því hvort þjóðin hefur það gagn
af skýrslunni sem efni standa til. Þegar
eru uppi vísbendingar um að dólgar á sviði
viðskipta, stjórnmála og eftirlits eigi að
sleppa við formlega rannsókn. Til dæmis
er ekki farvegur til þess að koma málum
seðlabankastjóranna og forstöðumanns
Fjármálaeftirlits í framhaldsmeðferð fyrir
dómstólum. Þá er enn óljóst hvort ráðherr-
ar sem uppvísir eru að vanrækslu, sem nú
kostar hvern einasta Íslending skert lífs-
kjör, fari fyrir landsdóm. Augljóst er að inn-
an Alþingis er ekki eindreginn vilji til þess
að lögsækja fyrrverandi ráðherra. Ástæða
er þó til að fagna því að Björgvin G. Sig-
urðsson, fyrrverandi bankamálaráðherra,
hefur vikið af Alþingi og sett fram ósk um
að landsdómur fjalli um hans mál. Aðrir
ráðherrar vanrækslunn-
ar hafa brugðist við með
því að lýsa sig saklausa.
Það er mannsbragur á
afstöðu hans. Þegar hafa
komið fram þær skoðan-
ir félaga sökudólganna
að þjóðin eigi að horfa
fram á veginn. Þjóðinni
er ætlað að slá striki yfir
það liðna. Engin leið er til
þess að hrunamönnum
verði fyrirgefið án þess að
lögum verði komið yfir þá.
Þetta á við um alla þá sem
eiga hlut í hruninu. Útrás-
arvíkingar, bankamenn
og aðrir sem svínuðu á
kerfinu eða sváfu verða að
mæta fyrir dóm þar sem
skorið verður úr um sekt
eða sýknu. Á næstu dögum
og vikum verður að liggja fyrir að allir sem
greindir hafa verið af rannsóknarnefnd-
inni sem dólgar fái
framhaldsmeðferð.
Þegar einstaklingur
hótar öðrum lífláti er
lagaskylda að ákæra
hann. Það sama verð-
ur að gerast í máli
þeirra sem framköll-
uðu hrunið eða létu
það verða með van-
rækslu. Það verður
að ákæra allt þetta
fólk og bera mál þess
undir dómstóla. Í því
liggur syndakvittun-
in. Það er frumskil-
yrði þess að þjóð-
in nái að gera upp
hrunið og hefja nýtt
líf undir allt öðrum
siðferðisviðmiðum.
Ef hálfkák tekur nú
við af skýrslunni er ljóst að upp úr mun
sjóða í samfélaginu.
REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR. Engin leið er til þess að hrunamönnum verði fyrirgefið ...
28 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 UMRÆÐA
SANDKORN
LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK
ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf.
STJÓRNARFORMAÐUR:
Lilja Skaftadóttir
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Bogi Örn Emilsson
RITSTJÓRAR:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
FRÉTTASTJÓRI:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
DV Á NETINU: DV.IS
AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010,
ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050.
SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
LEIÐARI
SVARTHÖFÐI
BÓKSTAFLEGA
Björgum Björgólfi
Mikið titraði ég þegar ég las afsökun-
arbeiðni Björgólfs Thors í Fréttablað-
inu nú á dögunum. Þetta var svo sorg-
legt – svo innilega einlægt og beiðnin
var nánast einsog biblíutilvitnun eða
tilvitnun í bók Styrmis Gunnarsson-
ar, þagnarmeistara, tilvitnun í bókina
sem var svo uppskrúfuð og dæma-
laust útblásin að manni verður flök-
urt þegar minnst er á gripinn. Já, ég
er að meina bókina sem átti að verða
játning en varð aldrei meira en setn-
ingar sem byrjuðu á hástemmdu
þrugli og enduðu á innantómu bulli.
Björgólfur Thor og pabbi hans
skulduðu Landsbankanum meira en
sem nam því sem kallað er eigið fé
bankans. Og svo segir stráksi: Afsakið.
Fyrst ég var að minna á hinn innmúr-
aða Styrmi Gunnarsson, þá er það
ekkert merkilegt að Styrmir skuli í
skýrslu um aðdraganda bankahruns
segja að íslenskt samfélag sé ógeðs-
legt. Hann talar af reynslu og þekk-
ingu. Styrmir hefur kynnst vinum sín-
um og flokkssystkinum svo náið að
hann veit fullkomlega um hverskon-
ar lýð hann er að tala. Styrmir Gunn-
arsson veit að vinkona hans Sólveig
Pétursdóttir skuldar 3.635 milljónir,
honum er ljóst að Þorgerður Katrín
og eiginmaður hennar skulda 1.683
milljónir, hann veit að Herdís Þórð-
ardóttir, mamma eins útrásardelans
og systir Ingu Jónu, fékk 1.020 millj-
ónir, hann veit að Ármann Kr. Ólafs-
son fékk 248 milljónir, Bjarni Bene-
diktsson 174 milljónir, Ásta Möller
140 milljónir, Ólöf Nordal 113 millj-
ónir. Og Styrmir veit meira að segja
að hann sjálfur, eins innmúraður og
hann nú er, skuldar u.þ.b. 100 millj-
ónir.
Þarna erum við að tala um sjálf-
stæðismenn sem seldu öðrum sjálf-
stæðismönnum Landsbankann á
slikk. Hér nefni ég nokkra útvalda
og innmúraða einkavini ríkisbubba
allra ríkisbubba. Hérna birtist okkur
í hnotskurn hin yndislega íslenska
spilling. Sjálfstæðisflokkurinn er þar
fremstur. Já, jafnvel þótt líkja megi
systurflokki hans, Framsóknarflokki,
við útbíaða svínastíu þá stendur Sjálf-
stæðisflokkurinn uppúr einsog aur-
spúandi saurfjall í miðjum viðbjóði
þess sem Styrmir Gunnarsson kallar
réttilega ógeðslegt samfélag.
Já, auðvitað verðum við að fyr-
irgefa Björgólfi Thor, hann hefur
ekki gert neitt af sér. Hann tileinkaði
sér einungis það, sem í stjórnsýslu
Sjálfstæðisflokksins þykja sjálfsögð,
óheiðarleg og siðlaus vinnubrögð.
Ekki berja Björgólf Thor,
blessað litla skinnið,
hann er orðinn alltof sljór
og ekki batnar minnið.
KRISTJÁN HREINSSON
skáld skrifar
„Hérna birtist
okkur í hnotskurn
hin yndislega
íslenska spilling.“
SKÁLDIÐ SKRIFAR
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 14. – 1
5. APRÍL 2010
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 42. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
Lágmúli 5 |108 Reykjavík
S: 590 9200 | www. laekning.is
LÆKNISFRÆÐILEG
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA
LOKSINS!
GEIR H.
HAARDE
ÁRNI M.
MATHIESEN
BJÖRGVIN G.
SIGURÐSSON
JÓNAS FR.
JÓNSSON
DAVÍÐ
ODDSSON
INGIMUNDUR
FRIÐRIKSSON
EIRÍKUR
GUÐNASON
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON
BJÖRGÓLFUR
GUÐMUNDSSON
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
SÖKUDÓLGARNIR AFHJÚPAÐIR
AUÐMENN
FLÝJA LAND
Pálmi í Fons, Ingibjörg Pálmadóttir,
Lýður Guðmundsson, Ólafur Ólafsson
SIÐLEYSIÐ
OG HRUNIÐ
n „ÞYRMDI YFIR MIG“
BJARNI TÓK
ÞÁTT Í BROTI
n FORDÆMIR ÞAÐ SAMA
OG HANN GERÐI SJÁLFUR
FRÉTTIR
FRÉTTIR