Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Qupperneq 29
„Nei, ekki fyrr en eftir sumardaginn
fyrsta.“
JAKOB HILMARSSON
50 ÁRA LAGERSTJÓRI
„Nei, mér finnst enn þá vera vetur.“
ANNA STEFANÍA JÓHANNESDÓTTIR
17 STARFSMAÐUR KRÓNUNNAR
„Hvað sýnist þér [lyftir upp golfkylfum
sem hann heldur á]?“
GUÐJÓN BRAGASON
45 ÁRA MÁLARI
„Já, já.“
GUNNAR JÓNSSON
49 ÁRA HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
„Já, já, vorið er löngu komið. Þú sérð
það bara!“
SKÚLI SKÚLASON
42 ÁRA SJÓMAÐUR
OG HÖRÐUR SKÚLASON
10 ÁRA [ALVEG AÐ VERÐA]
ER VORIÐ KOMIÐ?
HLYNUR SKÚLI SKÚLASON er
fjórtán ára drengur sem tók sig til og
stofnaði Facebook-síðu í þeim tilgangi
að koma drykknum Rí-Mix í fram-
leiðslu á ný. Það styttist óðum í að
honum takist ætlunarverkið.
EKKI HVORT
HELDUR HVENÆR
Það leikrit sem góðærið var hófst
líklega með valdatöku Davíðs Odds-
sonar árið 1991 og lauk með látum
haustið 2008. Þá tók við annað leik-
rit, ekki í þeirri merkingu að það
hafi verið sviðsett, heldur í þeirri
merkingu að nú væri nýtt tímabil
hafið. Fyrsti þáttur þess leikrits stóð
frá hruni og fram að byltingu, síðan
tók við hinn langi millikafli sem ein-
kenndist kannski einna helst af Ice-
save-málinu.
Nú er hins vegar komið að loka-
þætti þessa tímabils. Uppgjörsþátt-
urinn hófst með birtingu skýrsl-
unnar, og í næstu atriðum munum
við sjá ákærur sérstaks saksóknara.
Hvernig næsta tímabil verður ræðst
af því sem nú gerist. Svo virðist sem
rannsóknarnefndin hafi skoðað í
þaula svo til alla þætti sem höfðu
áhrif á bankahrunið mikla. En ein-
mitt í því liggur vandamál skýrsl-
unnar.
Alveg frá því bankahrunið varð
hafa menn verið duglegir að benda
hver á annan. Sjálfstæðismenn
benda á auðmenn og auðmenn á
sjálfstæðismenn. Raunar er aðdrag-
anda þeirrar deilu að finna í góð-
ærinu sjálfu, í deilum Jóns Ásgeirs
og Davíðs. Verið var að eiga við tvö
álíka ill öfl, en fólk skiptist í fylking-
ar á milli þeirra og flestir misstu af
stóru myndinni.
Nóg skotfæri fyrir alla
Því miður á rannsóknarskýrslan, þar
sem stóra myndin kemur óskekkt
í ljós, ekki eftir að breyta þessu. Í
henni eru nóg skotfæri fyrir alla að-
ila til að halda áfram að skjóta hver
á annan og reyna þannig að leiða
athyglina frá sjálfum sér. Skýrslan
segir að öll þau fyrirtæki sem rann-
sökuð voru hafi verið rekin á svip-
aðan hátt. Í raun var íslenskt sam-
félag orðið ein stór svikamylla þar
sem forsetinn veitti blessun sína og
fjölmiðlar kóuðu með. Ef einhverj-
ir góðir menn leyndust þarna fyrir
innan hafa þeir annaðhvort spillst
eða verið ýtt til hliðar.
Vafalaust lýsir Styrmir Gunn-
arsson þessu best: „[É]g er búinn
að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta
er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt
ógeðslegt. Það eru engin prins-
ipp, það eru engar hugsjónir, það
er ekki neitt. Það er bara tækifæris-
mennska, valdabarátta.“
Hvað er hægt að læra?
Hvað er hægt að gera í slíku samfé-
lagi? Einn möguleikinn er að gera
það sama og Sigmundur Davíð
gerði í alþingisræðu sinni á mánu-
dag, að einfaldlega afneita öllum
staðreyndum og kenna vondum út-
lendingum um. Þetta er þægileg leið
að fara þegar staðreyndirnar eru
svona óþægilegar. Þetta er einnig
sú leið sem hefur verið farin undan-
farna mánuði, þegar efnahagshruni
Íslands var snúið upp í milliríkja-
deilu um Icesave. Nú hefur komið í
ljós að það var eðlilegt að Bretarnir
væru fúlir. Þeir voru margoft búnir
að vara okkur við, en voru hunsaðir.
Því er ekki skrýtið að þeir þráist við
að gefa okkur eftir skuldina.
Rannsóknarskýrslan er, rétt eins
og hrunið sjálft, tækifæri til að gera
hreint fyrir okkar dyrum. Ef íslenska
þjóðin hefur áhuga á að bæta ráð
sitt verða aðeins tveir flokkar eft-
ir á Alþingi eftir næstu kosningar,
Vinstri-grænir og (Borgara-) Hreyf-
ingin, í bland við ótal minni og jafn-
vel stærri grasrótarflokka frá vinstri
og hægri. Ef Íslendingar eru reiðu-
búnir að læra eitthvað af hruninu,
hljóta þeir að hafna hrunaflokkun-
um þremur, að minnsta kosti þang-
að til þeir hreinsa út og taka upp
nýrri og betri stefnu.
Nokkur ónýt mannorð
Þetta virðist þó harla ólík-
legt. Einstaka stjórnmála-
menn munu falla, lík-
lega Þorgerður Katrín og
jafnvel Bjarni Ben sjálfur.
Mannorð Geirs Haarde og
Árna Mathiesen er í rúst.
Sjálfstæðismenn geta
fyrirgefið það að
vera spilltur,
en ekki
það að
virð-
ast
veikgeðja. Af þessum ástæðum er
enn óljóst hvað verður um Davíð.
Ekki er þó óhugsandi að hann verði
látinn víkja úr núverandi embætti.
Hvað auðmennina varðar mun einn
og einn falla. Hvort það verða þessir
stóru eða þessir litlu á eftir að koma
í ljós.
Ef kjósendur gera kröfu um smá-
vægilegar breytingar verður þetta
fólk látið víkja, en verði ekki beð-
ið um neinar breytingar yfir höfuð
mun það sitja áfram.
Ég fagna litlum breytingum frek-
ar en engum. Ég er þó ansi hræddur
um að þegar upp verði staðið muni
það þjóðfélag sem Styrmir
lýsir standa í 50 ár í við-
bót. Nema að kom-
ið verði í veg fyrir
slíkt með róttækum
breytingum. Núna
er tækifæri til slíkra
breytinga. Við mun-
um ekki fá annað í
bráð.
Lífið eftir skýrslu
UMRÆÐA 16. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 29
MYNDIN
Hver er maðurinn? „Ég heiti Hlynur
Skúli Skúlason.“
Hvar ertu uppalinn? „Í höfuðborginni.“
Hvaða þrjú orð lýsa þér best? „Lítill,
hress brettamaður.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? „Mér finnst skemmtilegast að vera
á hjólabretti og snjóbretti með vinum
mínum.“
Hvar vildirðu helst búa, ef ekki á
Íslandi? „Ég myndi vilja prófa að búa í
Ameríku.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Pítsa er í uppáhaldi.“
Hvaða bíómynd sástu síðast?
„Síðasta myndin sem ég sá er TV The
movie.“
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
„Hægar tölvur.“
Hvað varð til þess að þú stofnaðir
Facebook-síðuna „Við viljum Rí-Mix
drykkinn aftur“? „Ég fann gamla
mynd af mér í tölvunni með Rí-Mix og
mundi hversu gott mér fannst það og
stofnaði síðuna en ég hélt að enginn
myndi „joina“.“
Hvað er svona gott við drykkinn?
„Drykkurinn er mjög ferskur og góður.
Hann er eins og Mix exotic ef einhverjir
muna eftir þeim drykk.“
Hvernig tók Ölgerðin þessu
framtaki þínu? „Pabbi lét Ölgerðina
vita og svo höfðu þeir samband við
mig og voru mjög jákvæðir og ánægðir
með þetta. Þeir sögðu mér að ef ég
næði 10.000 manns á síðuna yrði Rí-Mix
framleitt aftur.“
Ertu bjartsýnn á að 10.000 manns
gerist aðdáendur síðunnar og að
drykkurinn verði framleiddur á ný?
„Já, ég er mjög bjartsýnn. Í gær fóru
aðdáendur síðunnar úr sjö þúsund í átta
þúsund svo þetta gengur framar vonum.
Þetta er ekki spurning hvort heldur
hvenær.“
Er eitthvað annað fram undan hjá
þér? „Spennandi sumar með vinunum á
hjólabretti og að drekka Rí-Mix.“
MAÐUR DAGSINS
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
KJALLARI
VALUR GUNNARSSON
rithöfundur skrifar
„Þetta er ógeðslegt
þjóðfélag, þetta er
allt ógeðslegt.“
Silfurtríóið Guðmundur Þórður Guðmundsson, Óskar Bjarni Óskarsson og Gunnar Magnússon leggja á ráðin fyrir tvo erfiða æfingaleiki gegn heims-, ólympíu- og Evrópu-
meisturum Frakka. Þremenningarnir hafa stýrt handknattleikslandsliðinu til silfurverðlauna á síðustu tveimur stórmótum. Frakkar hafa haft gott tak á Íslendingum en með
góðum stuðningi á heimavelli vonast þjálfararnir til að geta strítt franska liðinu. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON