Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Qupperneq 37
VIÐTAL 16. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 37
Ísland hefur verið alveg ótrú-lega spillt, lítið land,“ segir fjölmiðlamaðurinn og þjóð-félagsrýnirinn Egill Helga-son um niðurstöður skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis. Egill
er einn þeirra fjölmiðlamanna sem
hvað mest hafa fjallað um hrunið hér
á landi. Aðdraganda þess og afleið-
ingar. Egill segir skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar vera virkilega vel unna
og ótrúlega dýrmæta greiningu á ís-
lensku samfélagi.
Egill segir þörfina á uppstokk-
un á íslensku stjórnkerfi og stjórn-
arskrárbreytingum æpandi. Hann
hefur þó ekki mikla trú á því að nú-
verandi stjórnmálamenn muni gera
það sem til þarf og það hafi sýnt sig
í umræðu leiðtoga flokkanna eftir að
skýrslan kom út hversu langt þeir séu
frá raunveruleika íslenskra kjósenda.
Egill telur þjóðina þó ekki án
ábyrgðar. Að landsmenn verði allir
að líta í eigin barm í leiðinni því að
öll höfum við verið „bullandi með-
virk í ruglinu“. Egill segist ekki hafa
skuldsett sig í góðærinu og hafi það
því ekki slæmt í dag þótt hann eigi lít-
ið eftir í húsinu líkt og flestir Íslend-
ingar. Hann keyrir um á bíl af árgerð
1993 og er stoltur af fyrirtækjarekstri
eiginkonunnar og segir fyrirtækið án
lána og rekið af dugnaði.
ÞREYTTUR Á FÚSKINU
„Ég fór á blaðamannafundinn þeg-
ar skýrslan var kynnt og fljótlega eftir
að maður hafði fengið hana í hend-
urnar fann maður að þetta væri al-
vöru. Það gladdi mig mjög mikið
því maður er vanur svo miklu fúski í
öllu hérna. Það gaf manni von um að
kannski gætum við loksins náð okk-
ur út úr þessu fúsksamfélagi sem við
virðumst vera föst í,“ segir Egill um
skýrsluna sem hann telur vera vel
unnið verk.
„Hún er eflaust ekki gallalaus en
hún er geysilega vel unnin og hún
kemur með mjög merkilega gagn-
rýni, ekki bara á bankamennina,
heldur á stjórnmála- og embættis-
mennina líka sem hægt er nota til
þess að berja í hausinn á þeim sem
bera ábyrgð á þessu. Ég er hræddur
um að það séu margir sem eigi sér
ekki viðreisnar von eftir þetta.“
Egill segir erfitt að nefna eitthvað
eitt sem helst standi upp úr í því sem
komi fram í skýrslunni sem sé áfellis-
dómur yfir stjórn- og fjármálakerfinu
í heild og í raun hugsunarhætti heils
þjóðfélags. „Það er samt ótrúlega
sérkennilegt hvað bankarnir voru
að lána mikið til eigenda sinna. Það
hljóta allir stjórnendur bankanna og
eigendur þeirra líka að verða dregn-
ir fyrir dóm. Annað getur bara ekki
verið.
Svo líka þessi harði dómur sem
stjórnsýslan fær. Þetta lélega kunn-
ingjakerfi sem hefur fengið að þróast
hérna í gegnum árin og lýsir sér svo-
lítið í því að landinu sé alltaf stjórn-
að af einhverju tvíeyki úr stjórnar-
flokkunum. Halldór og Davíð, Geir
og Ingibjörg og Jóhanna og Stein-
grímur. Þetta á sér enga stoð í stjórn-
arskrá, lögum eða neinum reglum.
Þetta bara varð svona og fyrir neð-
an sitja ráðherrar sem eru stundum
í náðinni og stundum ekki og emb-
ættismannakerfi sem virðist að allt
of miklu leyti vera samansett af lítil-
þægum flokksmönnum.“
Egill telur þessa niðurstöðu kalla
á algjöra uppstokkun. „Hún beinlín-
is æpir á stjórnarskrárbreytingar.“
DÝPTIN Á ÓGEÐINU
Eftir að hafa fylgst með umræðunni
síðustu daga og eftir umræðu stjórn-
málaleiðtoga flokkanna í sjónvarps-
sal á miðvikudagskvöld segist Egill
ekki vongóður um að breytinga sé að
vænta. „Manni sýnist að þeir flokkar
sem nú eru á Alþingi séu algjörlega
vanhæfir til þess. Annað líka sem er
mjög merkilegt er að maður skynjar
dýptina á ógeðinu sem fólk er með á
stjórnmálaflokkum. Vantraustið og
ógeðið á stjórnmálaflokkum og þess-
um hefðbundnu flokkastjórnmálum
sem eru stunduð á Íslandi. Ég held
hreinlega að stjórnmálamenn geri
sér ekki grein fyrir því.
Þegar formenn flokkanna voru
saman komnir að ræða þessi mál
mátti sjá hversu víðs fjarri raunveru-
leika íslenskra kjósenda þeir eru.
Þau vonast kannski til að eldgosið
bjargi þeim. Fyrra gosið gerði það
að sumu leyti, kom á þeim tíma sem
hvað mest reyndi á núverandi stjórn.
Minni kjósenda og því miður fjöl-
miðla er stutt.“
Fjölmiðlar eru einnig í hópi þeirra
sem teknir eru fyrir í skýrslunni og
segir þar að flestir ef ekki allir hafi
sofið á verðinum. Egill telur mikil-
vægt að mistökin endurtaki sig ekki
og hann er viss um að mikil vakn-
ing hafi orðið hjá flestu fjölmiðla-
fólki. „Við verðum að passa að þessi
skýrsla og allt það bitastæða sem er í
henni deyi ekki bara út. Við verðum
að halda áfram að vinna úr því fyrir
landsmenn.“
ALLT ÞAÐ VERSTA STAÐFEST
Eftir að skýrslan kom út segir Eg-
ill að tónninn í umræðunni hafi al-
mennt breyst. Nú sé það staðfest í
opinberri skýrslu að stjórnkerfið hafi
brugðist og að öllum líkindum hafi
verið framdir glæpir inni í bönkun-
um. „Nú er þetta bara staðfest. Allt
sem er búið að vera að skrifa og fjalla
um, allt það versta sem fólk óttaðist,
hefur verið staðfest. Fólk leyfði sér
ekki að tala svona strax eftir hrun.
Ég man að ég þótti ofsalega djarfur
þegar ég fór að tala um að hugsan-
lega hefðu glæpir og það stóralvar-
legir verið framdir. Ég lít bara til baka
á bloggið mitt og get nánast sagt að
allt sem hafi komið þar fram sé stað-
fest núna.“
Egill segir samt hættu á því að
leiði þjóðarinnar á pólitík og mál-
efnum tengdum hruninu sé hrein-
lega orðinn svo mikill að stjórnmála-
menn sleppi léttar en þeir ættu að
gera. „Það er hætt við því að leiðinn
sé orðinn svo mikill að stjórnmála-
menn nái svona að humma þetta
fram af sér. Í ljósi þessara hluta voru
líka kosningarnar þannig séð á vit-
lausum tíma. Þær hefðu eiginlega
þurft að vera núna í vor eða í haust,
þá hefði kannski verið meiri von um
uppstokkun.“
Egill er einnig spenntur fyrir því
að sjá hvaða áhrif þetta mun hafa á
komandi sveitarstjórnarkosningar.
„Mun fólk almennt hafa geð til þess
að kjósa gömlu flokkana? Það eina
sem stjórnmálamenn óttast í raun-
inni er að missa vinnuna. Verður
þeim refsað þar eða fær bara Besti
flokkurinn 50 prósenta fylgi?“ seg-
ir hann og hlær. „Nei, svona án alls
gríns er það bara orðið góð og gild
spurning.“
AUGLÝSINGASTOFA
ÚTRÁSARINNAR
Enginn stjórnmálamaður hefur enn
viljað taka neina ábyrgð á því sem
fram kemur í skýrslunni. Það virðist
hafa áhrif að fordæmi fyrir pólitískri
ábyrgð er sama og ekkert á Íslandi.
Sem sýnir sig ekki síst í því að aldrei
hafi í raun reynt á lög um ráðherra-
ábyrgð.
„Fólki virðist hreinlega vera fyrir-
munað að taka nokkra ábyrgð. Hug-
takið er hreinlega ekki til í íslenskum
stjórnmálum.“ Egill segir stjórnmála-
menn þó ekki ekki eina um það að
flýja ábyrgð heldur hafi forseti Ís-
lands, Ólafur Ragnar Grímsson,
einnig gert það í fjölmiðlum í vik-
unni. „Hann segir í rauninni að það
sé allt rétt sem er í skýrslunni nema
það sem snýr að honum. Mér fannst
mjög alvarlegt að forsetinn væri sá
fyrsti til þess að gera lítið úr þessari
vinnu. Það er ekki í hans verkahring.“
Egill segir Ólaf hafa sérkenniega
sýn á sjálfan sig:. „Hann talar eins
og hann sé bara búinn að leysa Ice-
save-deiluna og lítur á sjálfan sig
sem þjóðhetju. Ég er ekki svo viss um
að almenningur sé sammála honum
um það. Þegar Ólafur var að rakka
niður úttektina á sér hengdi hann sig
aðallega í tvær villur. En hvað með
allt hitt? Hvað með allar hinar flug-
ferðirnar og öll hin bréfin sem er tal-
að þar um?
Málið með Ólaf er að hann var
ekki bara klappstýra útrásarinnar,
hann var auglýsingastofa hennar.
Hann gaf henni mál og andlit með
því að vera sífellt að mæra hana og
Íslendinga yfir höfuð. Sem einhver
mikilmenni sem vinni hvað eftir
annað stórsigra úti um allan heim.
Hann bjó að sumu leyti til orðræðu
útrásarinnar.“
Agli finnst forsetinn hafa komið
sér undan því að svara mikilvægustu
spurningunum þótt hann hafi vissu-
lega haft mikið til síns máls í öðru.
„Stjórnmálafræðingurinn Ólafur
Ragnar tók yfir og kom með mjög ít-
arlega greiningu á stjórnkerfinu og
þeim breytingum sem þar þurfa að
gerast. Greining hans á því var alveg
rétt en við þurfum hann ekki til þess
að segja okkur það. Það er fjöldinn
allur af öðrum fræðimönnum sem
á mikið frekar að sinna þeim skyld-
um.“
Egill kallar þó ekki bara eftir breyt-
ingum í stjórnkerfinu. Það eru fleiri
staðir sem þarf að taka til á. „Hversu
lengi á Mogginn að halda áfram að
vera afsökunarplagg fyrir einn aðal-
leikenda hrunsins, Davíð Oddsson?
Hvað með sögurnar um að Ólafur
Ólafsson sé einn af aðaleigendum
Arion banka á bak við tjöldin? Sú
saga gengur fjöllum hærra. Og með
aðra útrásarvíkinga sem eru sagð-
ir vera að lauma sér bakdyramegin
inn í atvinnulífið. Og á virkilega að
byggja bankakerfið, sem nú er allt of
stórt, á húsnæðisskuldum almenn-
ings? Ef það verða ekki gerðar mjög
róttækar breytingar á hlutunum
endar þetta allt á sama stað aftur. Þá
sitjum við bara aftur uppi með klíku-
skapinn, fúskið og spillinguna.“
ENDEMIS LÖMUN
Eftir að skýrslan kom út hefur um-
ræðan oft á tíðum farið út í það hver
beri mesta ábyrgð. Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, sagði
meðal annars í viðtali að fyrst og
fremst bæru bankarnir ábyrgð á
hruninu. Morgunblaðið tók í sama
streng á forsíðu sinni daginn eftir að
skýrslan kom út. Er hægt að benda á
einn frekar en annan að mati Egils?
„Þetta er auðvitað samspil ákveð-
inna þátta. Það er einhver sem opnar
dyrnar. Það er einhver sem býr til þetta
umhverfi,“ segir Egill og tekur fram að
syndir bankakerfisins dragi ekki úr
syndum stjórnsýslunnar eða öfugt.
„Bankarnir voru auðvitað byggðir á
mjög undarlegum grunni. Til dæmis
Kaupþing sem býr eiginlega til þessi
félög sem það er að lána peningana
í. Eins og Exista og Baug og fleiri þar
sem þessum félögum er bara haldið
uppi á lánsfé. Þetta eru mjög óeðli-
leg tengsl banka við eigendur sína og
fyrirtæki. Síðan gerðist það á síðustu
metrunum að öllu, sem var hrein-
lega ekki neglt niður, var bara stolið
úr bönkunum. Bara öllu steini léttara
og eigendurnir fóru að lána sjálfum
sér gífurlega fjármuni. Þetta virkar á
mann eins og stórfelld afbrot.
Á sama tíma má ekki gleyma hlut
stjórnkerfis sem situr og horfir upp
á þetta og aðhefst ekki neitt. Ekki á
nokkurn hátt. Mér finnst til dæm-
is stórmerkilegt bréfið frá Mervyn
King, bankastjóra Englandsbanka,
sem í apríl býður fram aðstoð er-
lendra seðlabanka til þess að vinda
ofan af íslenska bankakerfinu. Þetta
er rosalega merkilegt boð frá einum
voldugasta bankamanni heims og
þessu var ekki svarað. Svo sátu menn
á samráðsfundum og gerðu sér grein
fyrir því að þetta væri allt að hrynja
í kringum þá. Hvílík endemis lömun
sem greip kerfið hérna.“
ÞREYTTUR á f skinu
FRAMHALD
Á NÆSTU
SÍÐU
Það er reynt að troða öllum í
þessa blessuðu flokka.
Skynsamur í góðærinu Egill missti sig ekki í góðærinu og nýtur góðs af því í dag.