Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Qupperneq 40
„Nú er komið að mér að segja takk,“
segir Ásbjörn Morthens, betur þekkt-
ur sem Bubbi, um fyrirhugaða tón-
leikaferð sína um landið. Bubbi
hyggst nota listamannalaun, sem
hann fær nú í fyrsta skipti, til þess að
fjármagna tónleikaferð um landið þar
sem verður frítt inn í tilefni af 30 ára
starfsafmæli hans. Bubbi segir um-
ræðuna um listamannalaun undan-
farið hafa verið sorglega en hann tel-
ur þau bráðnauðsynleg listsköpun í
landinu.
Bubbi er sorgmæddur frekar en
reiður eftir að hafa kynnt sér niður-
stöður skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis og að enn neiti ráðamenn
þjóðarinnar að horfast í augu við
ábyrgð sína og lifi í sjálfsblekkingu.
Sjálfur skilji hann blekkinguna eft-
ir baráttu sína við alkóhólisma og að
það geti reynst erfitt en nauðsynlegt
að taka ábyrgð á sjálfum sér.
Bubbi telur framgöngu Davíðs
hneykslanlega og að ferð hans til út-
landa rétt fyrir birtingu skýrslunnar
sé „epísk gunguganga“ af verstu gerð.
Gefur listamannalaunin til baka
„Í 30 ár er ég búinn að ferðast um
landið. Almenningur hefur alltaf
komið á tónleika hjá mér og lands-
byggðin hefur alltaf verið sérstak-
lega velviljuð gagnvart mér,“ segir
Bubbi sem er nú þegar byrjaður
að fagna 30 ára starfsafmæli sínu.
„Menn voru fyrst að pæla í því að
fara í Laugardalshöllina, Egilshöll
eða eitthvað álíka en ákváðum svo
frekar að fara þá leiðina að spila
frítt í flestum framhalds-, fjöl-
brauta- og menntaskólum í há-
deginu.“
Bubbi hefur nú haldið fjölmarga
slíka tónleika en að hann hafi viljað
taka hugtakið skrefinu lengra. „Síðan
fórum við að skoða þann möguleika
að fá styrktaraðila svo að við gætum
ferðast allan hringinn og haldið tón-
leika fyrir almenning þar sem væri
frítt inn. Þetta var ekki að ganga upp.
Það tókst ekki að finna styrktaraðila
en þá fékk ég listamannalaunin. Þá
var þetta komið. Ég ákvað því að nota
þau í þetta. Það er komið að mér að
segja takk. Takk fyrir að styrkja mig í
öll þessi ár. Nú langar mig á afmælis-
árinu að gefa ykkur afmælisgjöf.“
Aldrei meiri þörf fyrir
list
Töluvert hefur verið rætt
um listamannalaun-
in eftir úthlutun
þeirra nýverið
en samkvæmt
niðurstöðu
könnunar
MMR voru rúmlega 60 prósent þátt-
takenda andvígir því að ríkið greiði
slík laun. „Mér finnst þetta helst bara
sorgleg umræða því listamannalaun-
in eru það mikilvæg menningu okkar.
Það vill enginn vera án bókmennta,
það vill enginn vera án myndlistar
eða tónlistar. Sumir listamenn geta
lifað af listinni. Aðrir geta það ekki en
eru að gera alveg jafnmikilvæga hluti.
Hluti sem eru mikilvægir fyrir tung-
una, menninguna og þankaganginn
í þjóðfélaginu. Hluti sem eru alveg
ómetanlegar perlur.“
Bubbi er nokkuð viss um að tíð-
arandinn og umræðan í þjóðfélag-
inu hafi líka haft áhrif á niðurstöður
könnunar MMR. „Ég held að lista-
mannalaun séu kannski þeir styrkir
sem eru hvað dýrmætastir í íslensku
samfélagi og þegar 60% manna í ein-
hverri könnun segir „nei, við erum
á móti listamannalaunum“ þá held
ég að það sé út af því að
Þráinn
Bertelsson lét út úr sér í einhverju
útvarpsviðtali að 5% manna væru
heimsk. Hann hafði alveg eins geta
sagt að 100% væru heimsk. Þetta var
slysalega sagt hjá manni sem er á
heiðurslaunum og tekur önnur laun
annars staðar í leiðinni.“
Einmitt nú, þegar harðnar á daln-
um, telur Bubbi að listamannalaunin
og arfleifð þeirra séu hvað mikilvæg-
ust. „Þörfin fyrir listina er aldrei meiri
en á svona stundu.“
Heimilin númer 1, 2 og 3
Bubbi hefur talað opinskátt um fjár-
mál sín í viðtölum. Þar sem hann hef-
ur meðal annars rætt hvernig hann
tapaði miklum fjármunum á hluta-
bréfakaupum og öðrum viðskiptum.
Hann hafi glímt við stökkbreytt hús-
næðislán eins og svo margir lands-
menn og hafi barist í bökkum við
að halda sínu. Í viðtali við Mannlíf
lýsti Bubbi sjálfum sér sem þræl. En
hvernig líður Bubba og hvaða áhrif
hafa þessir hlutir á hann?
„Ég er góður. Ég stjórna líð-
an minni. Maður er ekki að
láta utanaðkomandi þætti
stjórna lífi sínu. Ég er bara í
mínu ferli með bank-
anum. Svo er ég að
vinna og er dug-
legur þar. Ég tel
ástandið samt
ekkert gott þegar
24 þúsund heim-
ili ramba á barmi
gjaldþrots sam-
kvæmt skýrslu
Seðlabankans.
Það gætu ver-
ið í kringum
80 til 90 þús-
und manns sem standa frammi fyrir
þeim hryllingi.“
Bubbi segir að þrátt fyrir það
fjaðrafok sem fylgi skýrslu rannsókn-
arnefndarinnar skipti mestu máli að
missa ekki sjónar á stærsta verkefn-
inu. „Nú er skýrslan komin út, látum
dómstóla um rest og snúum bökum
saman. Brýnasta verkefnið er auð-
vitað að bjarga öllum þessum heim-
ilum. Ríkisstjórnin þarf að leggja alla
áherslu á það.“
Spilling og afneitun dyggðir
Bubbi skilur þó vel að fólk sé upptekið
af skýrslunni og öllu því sem þar kem-
ur fram. „Maður hefur lengi vonast til
þess að stjórnmálamenn myndu sjá
gjörðir sínar í réttu ljósi en svo virð-
ist ekki ætla að verða. Þetta hefur ver-
ið þyngra en tárum tekur að hlusta
á viðtöl við þá sem voru í eldlínunni
fyrir og eftir hrun. Til dæmis við fyrr-
verandi forsætisráðherra. Þessu fólki
er gjörsamlega fyrirmunað að sjá
gjörðir sínar í réttu ljósi. Það er bara
rosalegt að verða vitni að þessu. 147
einstaklingar sem neita allir að gang-
ast við nokkurri ábyrgð.“
Bubbi segir þetta þó ekkert nýtt í
íslenskum stjórnmálum að fólk taki
ekki ábyrgð á gjörðum sínum. „Svona
hefur íslensk pólitík verið allt frá tím-
um Hannesar Hafstein. Að spilling og
afneitun séu taldar dyggðir. Og eitt
æðsta markmiðið er að koma sínu
fólki í allar hugsanlegar stöður í emb-
ættismannakerfinu og stjórna þannig
landinu.“
Bubbi segir þó öllu verra hvaða
skilaboð þetta sendi út í samfélagið.
„Þessir menn mega eiga það að þeir
koma þó fram fyrir alþjóð en þeir
gangast ekki við neinni ábyrgð og
þetta eru hrikaleg skilaboð sem þeir
eru að senda út í samfélagið. Ef þetta
eru leiðbeiningar þeirra um hvern-
ig við eigum að takast á við hlutina
erum við á beinni leið til helvítis og
okkur er ekki viðbjargandi. Við verð-
um að fara að gangast við ábyrgð okk-
ar. Ég meina, ég hefði aldrei getað
orðið edrú nema að viðurkenna að ég
væri kókaín- og kannabisfíkill. Gang-
ast þannig við ábyrgð minni og taka á
hlutunum.“
Bubbi segir bæði þjóðfélagið og
ástandið vera sjúkt og bera
sterk merki alkó-
hólisma.
„Hvort sem
það eru
ráða-
menn
eða
auðjöfrar. Fíkninni er bara snúið yfir á
völd og peninga. Það blasir við að það
er eitthvað gat innra með mönnum
sem þeir reyna að fylla til dæmis með
peningum. En það skiptir ekki máli
hversu miklu þú treður í þetta gat af
peningum, þú öðlast ekki frið og ró.
Þú vilt bara meira og meira.“
Gunguganga Davíðs
Bubbi segir Davíð Oddsson vera
þann aðila sem hvað mest flýr undan
ábyrgð sinni. „Hann kemst upp með
það sem einn aðalhandritshöfundur
hrunsins að fara til útlanda í felur rétt
áður en skýrslan kemur út. Ef við setj-
um þetta í samhengi við Íslendinga-
sögurnar þá er þetta ekkert annað en
epísk gunguganga út úr erfiðum að-
stæðum.“
Bubbi býst þó við því að Davíð snúi
aftur innan skamms. „Eflaust kemur
Davíð aftur heim á mánudaginn og
á þriðjudag, miðvikudag fá einhverj-
ir vel valdir menn viðtöl við hann. Þá
byrjar hann að skjóta menn niður,
koma með smjörklípur og hnyttin til-
svör. Þetta eru vinnubrögð hans.“
Bubbi segir vinnubrögð Davíðs
auðsjáanleg á Morgunblaðinu eft-
ir að skýrslan kom út. „Afneitunin er
svo mikil. Eigum við að lifa við það
næstu vikur að forsíða Morgunblaðs-
ins sé þannig að þar segi að Jón Ásgeir
sé meiri glæpamaður en Davíð Odds-
son? Þá leið virðist umræðan vera að
fara og mjög líklega mun Mogginn
reyna eftir fremstu getu að sannfæra
fólk um að þetta sé allt bara bönkun-
um að kenna og þeir eru byrjaðir á
því. Geir H. Haarde er þegar byrjað-
ur á því og forsíða Morgunblaðsins
fylgdi í kjölfarið.
Það sem við þyrftum að sjá er að
Sjálfstæðisflokkurinn bæðist afsök-
unar á Davíð Oddssyni og gjörðum
sínum. Gerði þetta bara upp á heiðar-
legan hátt. Alveg eins og Samfylking-
in þyrfti líka að gera. Ingibjörg Sólrún
getur ekkert skotið sér undan sinni
ábyrgð. Hún hélt viðskiptaráðherra
vísvitandi utan við ákvarðanatöku
tengda bönkunum. Það voru haldnir
leynifundir og haldið frá honum upp-
lýsingum. Það er grafalvarlegt mál.“
Nýja Ísland
En sama hversu misboðið Bubba
er og fólkinu í landinu undirstrikar
hann enn og aftur að nú verði fólk að
treysta á að dómskerfið standi undir
sér og sæki það fólk til saka sem ber
ábyrgð. „Nú liggur þetta ljóst fyrir
með tilkomu skýrslunnar en við þurf-
um sem þjóð að horfa fram á veginn.
Við verðum að snúa bökum saman
og einbeita okkur að því að byrja að
byggja upp landið. Byggja það upp án
þessara pólitíkusa sem hafa stýrt
landinu í þrot.“
Bubbi ætlar að ræða
þessi mál á tónleikaferð
sinni en hann segir þó
tónlistina í fyrirrúmi.
„Ég mun spila göm-
ul lög og ný og bara
halda skemmti-
lega tónleika.
Það er nú að-
almarkmiðið
með þessu.“
asgeir@dv.is
40 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 VIÐTAL
Bubbi Morthens ætlar að nota listamannalaun sín til þess að
halda fría tónleika um allt land. Hann vill gefa fólkinu til baka sem
hefur stutt hann í 30 ár. Bubbi segir sorglegt að horfa upp á blekk-
ingarleik íslenskra stjórnmála- og embættismanna. Ekki síst Dav-
íðs Oddssonar en hann kallar utanlandsför hans „gungugöngu“.
BUBBI ÞAKKAR
ÞJÓÐINNI
Bubbi Spilar frítt fyrir landsmenn.
Við verðum að fara að gangast við ábyrgð okkar. Ég meina, ég hefði
aldrei getað orðið edrú nema að viðurkenna
að ég væri kókaín- og kannabisfíkill.