Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 52
VILTU HITTA WINTOUR? Fyrir þær sem eiga sæg af seðlum
og áhuga á að kaupa sig inn í tískuheiminn er tækifærið núna.
Með því að bjóða dágóða upphæð er möguleiki á að næla í
vikustarf hjá tímaritinu Vogue. Nokkrir moldríkir og heppnir ein-
staklingar fá að auki að spjalla við hina frægu Önnu Wintour, tvo
miða á tískuvikuna í New York, kvikmyndina The September Iss-
ue á DVD, bækur og blöð. Uppboðið endar 29. apríl en ágóðinn
mun renna til góðgerðarmála.
Samkvæmt nýrri rannsókn New York-
háskóla eiga unglingsstrákar í jafn-
innilegum vinasamböndum sín á
milli og stúlkur en prófessorinn Ni-
obe Way hefur varið síðustu 15 árum
í að spjalla við drengi fyrir rannsókn-
ina. Way segir hugmyndir samfé-
lagsins hingað til um vináttu ungl-
ingsstráka þá að þeir spili tölvuleiki
saman og finni sér þannig stað í gogg-
unarröðinni en að þeir tali ekki um
sín hugðarefni sín á milli. Way við-
urkennir að falleg vináttan hafi kom-
ið henni á óvart. „Stundum var eins
og um rómantískt samband væri að
ræða,“ segir hún en drengirnir lýstu
vináttu sinni á þann veg að „... vinur
myndi ekki hlæja þegar þeir þyrftu
að ræða alvarlega hluti“ og „hann er
sá sem ég treyst fyrir leyndarmálum
mínum“.
Way segir vináttusambönd
drengja breytast um 16, 17 ára aldur-
inn. „Þá draga þeir sig frá vinum sín-
um og loka sér tilfinningalega því þeir
geta ekki lengur staðist hugmynda-
fræðina að vera karlmaður. Þeir
hugsa um James Bond og hinar hetj-
urnar sínar sem eru karlmannlegir
einfarar sem þafnast einskis nema
íþrótta og kynlífs.“ Þessi þróun,
segir Way, er stórhættuleg.
„Ungir menn án vina eru í
áhættuhópi vegna sjálfs-
víga, þunglyndis, van-
rækslu á námi og fíkni-
efnamisnotkunar.“
Way segir mikilvægt
fyrir þroska ungra drengja að for-
eldrar þeirra forðist setningar eins og:
„stórir strákar gráta ekki.“ Hún vill
enn fremur að foreldrar útskýri fyr-
ir sonum sínum að þeir öðlist meiri
virðingu innan hópsins ef þeir taka
upp hanskann fyrir fórnarlömb ein-
eltis en að taka þátt í eineltinu.
Ný rannsókn sýnir hvernig ungir karlmenn loka sér tilfinningalega í kringum 17 ára aldur:
STRÁKAR DEILA FALLEGRI VINÁTTU
UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is
MINNKAÐU
MITTISMÁLIÐ
Hreyfðu þig
Þú getur ekki ákveðið að grenna
ákveðinn líkamshluta en ef þú
eykur hreyfinguna á hverjum
degi muntu sjá árangur. Margar
konur losna fyrst við fituna á
maganum sem gæti verið ein-
hvers konar leið líkamans til að
losa sig við það óhollasta. Maga-
æfingar gera magann stinnari en
þú losnar ekki við fituna nema
brenna henni. Farðu út að hjóla,
ganga eða hlaupa eða í sund.
Hugsaðu um það hvað þú
borðar
Sumir vísindamenn telja að kon-
ur geti valið ákveðnar matar-
tegundir sem valda því að fitan
safnist frekar á mjaðmir en mittið.
Vertu vakandi yfir því sem þú set-
ur ofan í þig.
Sofðu vel
Of lítill svefn (minna en sex
tímar á nóttu) eða of mikill
svefn (meira en átta tímar) auka
framleiðslu stresshormóns sem
veldur því að fitan sest á mag-
ann. Líkleg skýring er sú að þeg-
ar líkaminn finnur fyrir stressi
komi hann fitunni fyrir á góðum
geymslustað til að geta gengið að
henni vísri.
Forðastu álag
Með örlítilli afslöppun á hverjum
degi lækkar magn stresshormóna
í líkamanum og þú losnar fyrr
við fituna á maganum fyrir vikið.
Andaðu djúpt, farðu út að ganga,
njóttu náttúrunnar eða skelltu
þér í yndislegt freyðibað.
NÖRTUM
VEGNA ÞREYTU
Síðan prevention.com býð-
ur upp á allavega fróðleik sem
snýr að heilsu og heilbrigðum
lífstíl. Ritstjóri síðunnar hefur
t.d. fundið þau fimm atriði sem
valda því að við borðum milli
mála. Í fyrsta lagi, segir ritstjór-
inn, sleppum við morgunmat
og/eða hádegismat og freistumst
því þegar við ökum fram hjá
veganesti. Önnur ástæðan fyrir
því að „rusla“ sé sú staðreynd að
orka okkar falli síðdegis og enn
önnur ástæða sé að við vitum
að kvöldmaturinn verði seint
borinn á borð en þurfum mat
á stundinni. Í síðasta lagi, segir
ritstjóri Prevention, þá erum við
að narta vegna þreytu og ættum
frekar að leggja okkur.
Íslandsmeistaramótið í polefitness var haldið í annað skiptið hér á landi fyrir stuttu. Íþrótta-
greinin er tiltölulega ung á Íslandi en fjöldi stúlkna tók þátt. DV ræddi við sigurvegarann
Dagnýju Ólöfu Jónsdóttur sem segir fordóma gagnvart íþróttinni byggða á misskilningi.
52 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 LÍFSSTÍLL
„Mig langaði alltaf að prufa og ákvað
loksins að kýla á þetta,“ segir Dagný
Ólöf Jónsdóttir, nýkrýndur Íslands-
meistari í polefitness, en hin 23 ára
Nanna Yngvarsdóttir var um leið
krýnd polefreestyle-dansari ársins
2010.
Frábær líkamsrækt
Dagný, sem hafði æft íþróttina í sex
mánuði áður en hún keppti á Íslands-
meistaramótinu, segist hafa prufað af
einskærum áhuga en ekki til að reyna
að léttast eða komast í betra form. „Ég
hef engan grunn í íþróttum og hef
ekkert æft, nema fótbolta þegar ég var
lítil,“ segir hún en Dagný kemur frá
Bolungarvík. „Fyrir utan hvað þetta er
skemmtilegt er þetta líka frábær lík-
amsrækt og ég hef aldrei verið í betra
formi,“ segir Dagný sem hefur fjárfest
í súlu til að hafa heima við þótt hún sé
ekki búin að koma henni upp.
Fordómar gagnvart íþróttinni
Dagný segir ákveðna fordóma í sam-
félaginu gagnvart polefitness en að
þeir
séu byggðir á misskilningi. „Fólk
tengir þetta við nektardans og nekt-
arstaði en þetta er alls ekki súludans
og við erum ekki að fækka fötum.
Minn áhugi er að læra ný trikk og geta
framkvæmt þau vel en ég er mikið að
skoða trikkin á netinu og læri þau hjá
þjálfaranum mínum og æfi mig þar til
ég get þau,“ segir hún og bætir við að
hún stefni á að fara til annarra landa
og keppa. Aðspurð segir hún dugn-
að þurfa til að ná langt í íþróttinni.
„Til að vinna svona keppni þarf að
mæta á æfingar og sinna þessu af al-
vöru. Þetta er frábær íþrótt og ég er al-
sæl. Enda Íslandsmeistari í polefitn-
ess,“ segir hún hlæjandi og bætir við
að lokum að áhugasamir geti fengið
nánari upplýsingar á www.polefree-
style.is
indiana@dv.is
EKKERT SKYLT
STRIPPINU
Dagný Ólöf Jónsdóttir Dagný hafði aðeins æft
knattspyrnu þegar hún var lítil en fann sig í polefitness
og hefur aldrei verið í jafn góðu formi.
MYND KRISTINN MAGNÚSSON
Flott trikk Dagný Ólöf segir polefitness
ekkert tengd nektardansi. Polefitness sn
úist
um erfið trikk.
MYND ÚR EINKASAFNI
Polefreestyle dansari ársins 2010 Nanna Yngvarsdóttir er flottur dansari sem var krýnd Polefreestyle-dansari ársins 2010.
MYND ÚR EINKASAFN
Þetta er frábær íþrótt og ég er
alsæl. Enda Íslands-
meistari í polefitness.“
Góðir vinir Way segir unglingsstráka lýsa
fallegri vináttu sín á milli. Þegar nær dregur
tvítugsaldrinum fari hlutirnir að breytast.
MYND: PHOTOS.COM