Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Page 56
WIKIHOW.COM LEIÐBEINIR ÞÉR Wiki-síður njóta mikilla vin-
sælda meðal vefrápara, bæði má þar auðveldlega fletta upp ýmsum
almennum staðreyndum en að auki hefur það færst í vöxt að ýmsar
vefsíður hafi meðfylgjandi sérstaka wiki-síðu sem einskonar ítarefni fyr-
ir notendur. Wiki-síðan Wikihow.com nýtur nú sífellt meiri vinsælda en
þar má finna leiðbeiningar og leiðarvísa af ýmsu tagi um allt milli him-
ins og jarðar. Gildir þá einu hvort bæta eigi samskiptin við makann eða
skipta um pústkerfi á bílnum, wikihow er líklegt til að hafa svarið.
GOOGLE-PAD
Í AUGSÝN?
Fréttamiðlar vestanhafs, meðal
annars New York Times, eru nú með
vangaveltur um að Google-fyrirtæk-
ið sé að vinna að nýrri smátölvu í
líkingu við iPad-tölvuna frá Apple.
Orðrómurinn komst á kreik eftir að
annar stofnandi Google, Eric
Schmidt, var staddur í veislu á
dögunum og á að hafa látið þetta út
sér í samtali við einn veislugestanna.
Ef rétt reynist er hugmyndin ekki
byggð á neinum brauðfótum því
Google hefur þegar Android-stýri-
kerfið til að keyra á slíkri tölvu og
stærstu vefbókaverslun í heiminum
sem að sjálfsögðu þarfnast
einhverskonar lestölvu sem væri
samhæfð kerfinu.
FORMULA 1
Á SJÚKRAHÚSI
Þeim miklu fjármunum sem varið er
í tækniþróun meðal liðanna sem
keppa í Formúlu 1-kappakstrinum
skila sér ekki eingöngu í keppnina
sjálfa heldur rata þaðan ýmsar
uppfinningar til annarra staða í
þjóðfélaginu. Þannig er sem dæmi
tækni frá Mclaren-liðinu sem var
ætlað að lágmarka þann tíma sem
hver bíll væri í „pit-stop“ nú notuð
við flugumferðarstjórn á Heathrow-
flugvelli við gerð spálíkana fyrir
flugumferð. Hluti þessarar tækni er
nú einnig nýttur á sjúkrahúsi í
Lundúnum þegar sjúklingar eru
færðir frá skurðstofum yfir á
gjörgæslu.
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ
Á FACEBOOK
Samskiptavefurinn Facebook hefur
sett á laggirnar sérstaka upplýsinga-
miðstöð sem tekur á helstu þáttum
er varða öryggi notenda og þá
sérstaklega barna og unglinga. Á
síðu upplýsingamiðstöðvarinnar má
finna svör við öllum helstu
spurningum sem geta vaknað um
öryggisþætti hjá almennum
notendum en sérstakir kaflar eru
ætlaðir foreldrum, skólastofnunum
og löggæsluaðilum. Sem dæmi eru
veittar skilmerkilegar leiðbeiningar
um hvað skuli taka til bragðs
varðandi einelti og kynferðisafbrota-
menn.
UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is
Stórfyrirtækið Microsoft hefur verið þátttakandi á far- og snjallsímamark-
aðnum í heilan áratug en aldrei tekist að skara jafnmikinn eld að sinni köku
þar eins og á tölvumarkaðnum.
Microsoft hefur nú lyft hulunni af
nýjum snjallsíma sem á að koma á
markað á næstu vikum vestanhafs en
með þessu útspili vonast fyrirtækið
til að geta sótt inn á þann markað þar
sem keppinautarnir Google og Apple
virðast nú ráða lögum og lofum.
Höfðað til yngri hóps
Snjallsími Microsoft kallast Kin og mun verða
fáanlegur til að byrja með í tveimur útfærslum
sem báðar eiga það sameiginlegt að vera hann-
aðar með sérstakri áherslu á vefsamskipti. Þar
sem rannsóknir sýna að næsta kynslóð vefnot-
enda mun að mestu nota snjallsíma og smátölv-
ur í stað hefðbundinna borðtölva til að tengjast
samskiptavefjum og spjallkerfum hefur það orðið æ
mikilvægara fyrir Microsoft að geta komið snjallsíma
á markað sem uppfyllir slíkar væntingar almennings.
Tvær útgáfur
Til að byrja með verður síminn seldur í tveimur útgáfum,
Kin One sem er minni útgáfan með fimm megapixla mynda-
vél og 4GB flash-minni og síðan Kin Two sem er með átta mega-
pixla myndavél, 8GB flash-minni og möguleika á að taka 720p há-
skerpumyndskeið. Báðar útgáfur símans eru búnar snertiskjám og
QWERTY lyklaborði sem er rennt fram eins og skúffu.
Kin Loop
Stýrikerfi símans er byggt á nýjasta símastýrikerfi Microsoft, Windows Phone
7, en hefur eina mikilvæga viðbót sem kallast Kin Loop. Loop eða hringrásin
eins og hún gæti kallast á íslensku er samfellt og uppfært streymi upplýsinga
frá vinahóp notandans. Þar er að finna skilaboð frá spjallforritum, mynd-
skeið, ljósmyndir, uppfærslur af Facebook og Twitter auk annarra skilaboða
sem notandinn getur skilgreint að eigi að birtast. Stýrikerfið gerir einnig auð-
velt fyrir notandann að deila eigin efni til vinahópsins, hægt er að draga efni,
hvort sem um er að ræða myndir, myndskeið eða vefsíður, yfir á sérstakan
stað á skjánum sem kallast Kin Spot og sendist það þá sjálfkrafa yfir til
vinahópsins.
Samstillt við Zune
Að sjálfsögðu býr Kin einnig yfir eiginleikum hefðbundins
snjallsíma eins og IM, SMS, MMS, póstforriti, netvafra og
tónlistarspilara. Hægt er að samstilla Kin við Zune tónlist-
arhugbúnaðinn frá Microsoft en að auki er FM móttak-
ari í símanum til að geta hlustað á útvarp.
Kemur í haust
Vodafone í Evrópu hefur gert sérstakan samning
við Microsoft um sölu á símanum í eitt ár áður
en sala hefst hjá öðrum aðilum en áætlað
er að síminn komi fyrst á markað innan
Evrópu í Bretlandi, Þýskalandi, Ítalíu
og Spáni á síðari hluta ársins. Ekki
er enn ljóst hvenær síminn fer
að sjást í hillum verslana hér á
landi.
palli@dv.is
56 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 HELGARBLAÐ
Hlutdeild tölvurisans Microsoft á snjallsímamarkaði í Bandaríkjunum hefur dalað síð-
asta árið meðan keppinautarnir Apple og Google hafa samanlagt rakað til sín þriðjungi
af kökunni. Fyrirtækið reynir nú að spyrna við fótum og höfða til yngri kynslóðar með
nýjum snjallsíma sem væntanlegur er á Evrópumarkað síðar á árinu.
Smærri útgáfa símans Minnir
en margt á Palm Pre. Nettur sími
þetta.
KIN-SNJALLSÍMINN
FYRIR SAMSKIPTIN
Stærri útgáfa símans Getur
tekið upp myndskeið í 720p
HD og skartar 8 megapixla
myndavél.