Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Page 58
Eftir þrjár fyrstu keppnirnar í For-
múlu 1 hefur Michael Schumacher,
sjöfaldur heimsmeistari í grein-
inni, aðeins níu stig. Endurkoma
hans hefur ekki verið jafnglæst og
hann sjálfur ásamt mörgum öðr-
um vonuðust til. Mercedes-bíll-
inn hefur þó haft sitt að segja en
hann er ekki nægilega hraður eins
og staðan er. Keppt verður í Sjang-
hæ í Kína á sunnudaginn en á
þeirri braut fyrir fjórum árum vann
Schumacher sína síðustu keppni.
Það þykir mjög ólíklegt að Schum-
acher vinni sína 92. keppni á ferl-
inum um helgina. Kastljósið bein-
ist að landa hans, Sebastian Vettel,
en Sjanghæ er Red Bull-liði hans
minnistæð braut. Í fyrra vann Vett-
el keppnina sem var fyrsti sigur
Red Bull í Formúlu 1.
Ekki nógu hraðir
Schumacher endaði fyrstu keppn-
ina í Barein í sjötta sæti sem þótti
lofa góðu. Tíunda sætið í Ástralíu
voru vonbrigði en verra var í Mal-
asíu í síðustu keppni þegar hann
kláraði ekki vegna bilunar. „Ég við-
urkenni fúslega að þessar keppnir
hafa ekki verið mér góðar en það
eru ástæður fyrir því. Ég þekki
Form úluna inn og út og þegar ég
fór ítarlega yfir síðustu keppnir sé
ég að það er allt að ganga eðlilega.
Það er bara hægt að taka eitt skref
í einu og ég er viss um að við erum
að því,“ segir Schumacher.
Mercedes-liðið er undir stjórn
Ross Brawn sem gerði Jenson
Button að heimsmeistara í fyrra.
Hann segir Mercedes ekki til-
búið í toppbaráttuna eins
og staðan er. „Kringum-
stæður í fyrstu keppn-
unum hafa haft sitt að
segja hvað varðar fram-
göngu Schumachers.
Ég er samt mjög ánægð-
ur með ökumennina
okkar. Við erum búnir
að gera ágætlega miðað
við hversu hratt bíllinn kemst
núna. Við verðum að líta raunsætt
á málið, við erum ekki nægilega
hraðir til að keppa við þá
bestu akkúrat núna.
Þetta er nokkuð
sem við erum
alls ekki
sátt-
ir við
og
erum að reyna laga hið snarasata.
Það besta fyrir Schumacher væri
að fá eina keppni þar sem hann
lendir ekki í neinum ryskingum í
brautinni til að sýna hversu langt
bíllinn er kominn á veg með það
sem við viljum að hann sé,“ segir
Ross Brawn.
Metin tryggð
Fernando Alonso, ökumaður Ferr-
ari, var maðurinn sem hafði titil-
inn af Schumacher árið 2005 þeg-
ar hann vann tvö ár í röð á Renault.
Hann segir Þjóðverjann vera
sama mann og alltaf og að
metin hans, sjö heims-
meistaratitla og sigur í
níutíu og einni keppni,
vera tryggð. „Hann er
sami Schumi og hann
hefur alltaf verið. Ég
virði hann mikið
og veit alveg að
gæðin hjá honum
eru til staðar og
þau munu
sjást
þegar Mercedes-bíllinn verður
betri,“ segir Alonso um Schumach-
er.
Hann segir að fyrrum heims-
meistarinn geti farið alla leið á
tímabilinu, þrátt fyrir slæma byrjun
á því. „Ég trúi því innilega að Mich-
ael geti unnið í ár. Í það minnsta
eru metin hans tryggð því reglurn-
ar eru svo strangar núna. Það er
enginn bíll sem er miklu betri en
sá næsti eins og Ferrari var á sín-
um tíma. Ef þú spyrð mig er ég al-
veg klár á því að metin hans verða
ekki bætt.“
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
58 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010
LEE SHARPE Partípinninn Lee Sharpe var af alvin-
sælustu knattspyrnumönnum Englands á sínum tíma. Hann lék með Manchester United frá 1988-1996
þegar hann skrifaði undir við erkifjendurnar í Leeds. Eftir viðkomu í Sampdoria, Bradford, Portsmouth
og Exeter endaði hann á Íslandi, nánar til tekið í Grindavík þar sem hann lék sjö leiki tímabilið 2003. Það
var hans næstsíðasta félag en hann endaði ferilinn hjá utandeildarliðinu Garforth Town. Dökkur endir á
ferli annars góðs fótboltamanns. Hann hætti knattspyrnuiðkun 2004 og fór þá að einbeita sér að sjónvarp-
inu. Bæði tók hann þátt í raunveruleikaþáttum, lék í sápuóperum ásamt því að mæta í hina og þessa
fótboltaþætti. Á milli þess sem hann stundar nú golf af krafti er hann reglulega gestaræðu-
maður yfir matarborðum stuðningsmanna Manchester United fyrir heimaleiki þess.
SCHUMI Í BAKKGÍR
Endurkoma sjöfalda heimsmeistarans, Michaels Schumach-
er, í Formúlu 1 hefur ekki verið glæst enn sem komið er. Í
fyrstu þremur keppnum ársins hefur hann best náð sjötta
sæti. Hann vonast til að gera betur þegar keppt verður í Sjang-
hæ í Kína um helgina en skiptar skoðanir eru um hvort hann
eigi eftir að gera atlögu að titlinum.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
n Úrslit 2009
1. Sebastian Vette, Red Bull
2. Mark Webber, Red Bull
3. Jenson Button, Brawn GP
4. Rubens Barrichello, Brawn Gp
5. Heikki Kovalainen, McLaren
n Ráspóll 2009
Sebastian Vettel, Red Bull - 1:36:184
n Fljótasti hringur
Rubens Barrichello, Brawn GP -
1:32:592
n Brautarmet
Michael Schumacher, Ferrari - 1:32:238
n Fyrri sigurvegarar
2009: Sebastian Vettel - Red Bull
2008: Lewis Hamilton - McLaren
2007: Kimi Raikkonen - Ferrari
2006: Michael Schumacher - Ferrari
2005: Fernando Alonso - Renault
(HEIMILD: KAPPAKSTUR.IS)
Sjanghæ-brautin
Ekki nógu hraður Mercedes-
bíll Schumachers er ekki nógu
fljótur til að berjast við þá bestu.
Ósáttur Sjöfaldi
heimsmeistarinn vill
gera betur en níu stig.
Á flugi Felipe Massa varð fyrir
alvarlegu slysi í fyrra en leiðir
nú stigakeppni ökumanna.
HVAR ER HANN Í DAG?
UM HELGINA