Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Blaðsíða 72
n Samskiptasíðan Facebook ætti að
vera öllum landsmönnum að góðu
kunn enda fjölmargir sem nota
hana til samskipta dag frá degi.
Meðal þeirra sem skráðir eru á síð-
una er Jón Ásgeir Jóhannesson,
fyrrverandi aðaleigandi
Baugs. Athygli
vekur að Jón Ás-
geir á aðeins fjóra
vini á síðunni en
meðal þeirra er
eiginkona hans,
Ingibjörg Stefan-
ía Pálmadóttir
og sonur hans.
Ingibjörg virðist
hafa verið dug-
legri að sanka
að sér vinum
en eiginmað-
ur sinn því hún
á hvorki fleiri
né færri en 150
vini.
Verður Þorgerður
afskrifuð um helgina?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
og fyrrverandi menntamálaráðherra,
var í verslunarferð í Bandaríkjun-
um daginn sem skýrsla rannsóknar-
nefndar Alþingis kom út.
Samkvæmt heimildum DV fór
Þorgerður í ferðina með þremur vin-
konum sínum en þær komu aftur til
landsins á fimmtudagsmorgun með
flugi frá Orlando.
Heimildir DV herma að Þorgerð-
ur og vinkonur hennar hafi verið
búnar að skipuleggja ferðina með
töluverðum fyrirvara og það hafi hitt
þannig á að skýrslan kom út á meðan
hún var úti.
Þó að Þorgerður hafi haft það náð-
ugt á meðan umfjöllun um skýrsluna
bar sem hæst í fjölmiðlum á Íslandi
má ætla að næstu dagar verði anna-
samir hjá henni. Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
sagði í Kastljósi á miðvikudagskvöld
að lán sem Þorgerður Katrín og eig-
inmaður hennar, Kristján Arason,
fengu í aðdraganda hrunsins hafi
verið óeðlileg. Sagðist Bjarni ætla að
gefa Þorgerði tækifæri til að svara því
betur frammi fyrir trúnaðarmönn-
um flokksins eftir helgi. Í samtali við
DV vildi Þorgerður Katrín ekkert tjá
sig um ferðina og sagði hana vera sitt
einkamál.
einar@dv.is
FJÓRIR VINIR
JÓNS ÁSGEIRS
pantanir@austursteikhus.is | Austurstræti 7 | 101 Reykjavík | sími 568 1907 | austursteikhus.is
Opið alla virka daga frá 11.30 og 18.00 um helgar. Hægt
er að skoða matseðilinn á Austursteikhús.is. Borðapantanir
í síma 5681907 eða á pantanir@austursteikhus.is
Höfum opnað hágæða fushion
steikhús í miðbæ Reykjavíkur.
Þorgerður Katrín hafði það náðugt þegar hrunskýrslan kom út:
Í VERSLUNARFERÐ Í BANDARÍKJUNUM
n Eins og greint var frá í vikunni
skrifaði handboltakappinn Logi
Geirsson undir samning við upp-
eldisfélag sitt FH og leikur hann því
á klakanum á næsta tímabili. Logi
er yfirlýsingaglaður maður og þegar
hann skrifaði undir samning við
FH lofaði hann flugeldasýningu í
FH-treyjunni. Þó að Logi hafi ekki
enn spilað leik fyrir FH síðan hann
skrifaði undir er Logi
búinn að standa við
stóru orðin. „Mað-
ur skrifar undir og
Eyjafjallajökull og co
taka svona hraustlega
á móti manni. Þetta
hljóta að vera ein-
hver skilaboð í
þessu ;) ég var
nú bara búinn
að lofa flug-
eldasýningu,“
segir Logi á
Facebook-
síðu sinni.
LOGI STÓÐ
VIÐ STÓRU ORÐIN
n Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkar-
dóttir sem mikið hefur verið í fréttun-
um fyrir samband sitt við fyrrverandi
knattspyrnumanninn Dwight Yorke
hefur sett upp vef þar sem hægt er að
spyrja hana nafnlausra spurninga.
Þeir sem fyrstir sendu inn spurning-
ar vildu vita hitt og þetta um sam-
band hennar við Yorke. Til dæmis
hvort hún væri á launum hjá honum
og hvort hún gæti farið út úr húsi
í Manchester án lífvarða.
Aðrar spurningar eru
um daginn og veginn,
hvernig er veðrið?,
viltu koma í bíó? en
einn nafnlaus spyr
hvað hún hefur farið
í margar fóstureyð-
ingar. Hún svarar
engri. Aðspurð
hvort henni
finnist hún
vera með
flottan rass
svarar Krist-
rún: „Já, en er
að vinna í hon-
um.“
SPURÐU
KRISTRÚNU ÖSP
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
FRÉTTASKOT 512 70 70
SÓLARUPPRÁS
5:53
SÓLSETUR
21:04
Fór til Bandaríkjanna Þorgerður
Katrín var í Bandaríkjunum daginn sem
skýrslan kom út.