Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 46
NafN og aldur?
„Þórdís Nadia Óskarsdóttir“
atviNNa?
„Magadanskennari, barþjónn og uppistandari.“
Hjúskaparstaða?
„Einhleyp. En mjög eftirsótt.“
fjöldi barNa?
„Engin börn, svo ég viti um.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Átti einu sinni kött sem hét Mjallhvít, hún var víst
með geðhvarfasýki og hljóp fyrir bíl.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Ég fór á Spaðaball um verslunarmannahelgina í
Flatey.“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Nei.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„BDSM-latexbúningurinn minn. Af því mér finnst svo
kósí að slappa af í honum fyrir framan sjónvarpið.“
Hefur þú farið í megruN?
„Já, aðallega þegar ég var unglingur. Lifði einu sinni á
bláberjaskyri og hrökkbrauði og varð geðveikt mjó.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já, þegar ég var í FB. Mótmælti því að það væri ekki
gefið frí á sumardaginn fyrsta. Ég var rosalega mikil
hugsjónamanneskja þá.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Já, ég held það bara.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„Ekkert. Allt sem ég hlusta á er snilld.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Rico Suave með Gerardo. Mæli með að horft sé á
myndbandið á YouTube.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Að hitta manninn sem sagðist elska mig í gær.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
„Mulholland Drive. Vegna þess að í hvert skipti sem
að ég horfi á hana uppgötva ég eitthvað nýtt sem
veldur því að ég held að ég skilji myndina aðeins bet-
ur. En það er ekki hægt að skilja hana.“
afrek vikuNNar?
„Þegar ég stökk fram af bryggjunni í sjóinn í Flatey.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei. Mig langar samt til þess.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Ég spilaði eitt sinn á selló.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Veit það ekki.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Rolex-úr.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Æi, ef það væri einhver þá myndi það örugglega
verða leiðinlegasta trúnó sem maður færi á. Ég væri
miklu frekar til að hella Beyoncé fulla og fara á trúnó
með henni og tala um dularfulla sambandið hennar
við Jay-Z.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst vilja
Hitta og af Hverju?
„Rachid Taha. Því hann er fylliraftur sem gerir frá-
bæra tónlist.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, ég samdi ljóð um Johnny Depp þegar ég var 10
ára.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Það var einhver sem spurði mig af hverju ég héti
Nadia og sagði að það væri vegna þess að ég væri
hálfrússnesk.“
Hvaða fræga eiNstakliNg líkist þú mest?
„Ég hef heyrt Michelle Rodriguez og Lily Allen.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Ég kann dansinn við Single Ladies lagið með Bey-
oncé.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Nei.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Ísafjörður.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Tek tvöfalt afturábak flikk.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Ha? Er kreppa?“
Þórdís Nadia Óskarsdóttir er hluti af uppistandshópunum
Uppistöðufélagið og Upp mín sál. Hún er nýkomin frá Flatey,
elskar Ísafjörð og er með frábæran tónlistarsmekk.
Heljarstökk
fyrir svefNiNN
46 hin hliðin 6. ágúst 2010 föstudagur
m
yN
d
ir
h
ö
rð
u
r
sv
ei
N
ss
o
N
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað