Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 4
Svört Sál EiðS n Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra, á ekki von á góðu. Ás- gerður Jóna Flosadóttir, umsjónar- maður þáttarins Á flugi með Iceland Express hótar að kæra hann og nafnleysingja Eyjunnar fyrir meiðyrði. Þetta gerist í framhaldi þess að Eiður lýsti „auglýsingahór- eríi“ á Útvarpi Sögu og tilgreindi sérstaklega Ásgerði og samvinnu hennar við flugfélagið. Í samtali við Pressuna segir Ásgerður að Eiður Guðnason sé „bara ljótur maður í sál- inni“. Þá er spurning hvort Eiður hafi ekki ástæðu til að fara í mál líka. sandkorn 4 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur Í frétt DV sagði ranglega að arður fyrir 2007 hefði verið greiddur til hluthafa: Þorsteinn beðinn afsökunar Í frétt í DV miðvikudaginn 4. ágúst var sagt frá því að Þorsteinn Jónsson, kenndur við Vífilfell eða kók, hefði greitt sér rúmlega 320 milljóna króna arð árið 2008 út úr eignarhaldsfélagi sínu, Sólstöfum, vegna rekstrarársins 2007. Félagið tapaði nærri 6 milljörð- um króna árið 2008. Þetta er ekki rétt. Upplýsingarnar um hina meintu arð- greiðslu voru í fréttinni sagðar teknar upp úr ársreikningi Sólstafa fyrir 2008. Umræddur arður var ekki greiddur út til hluthafa Sólstafa, en Þorsteinn Jónsson er eini eigandi félagsins. Rétt er að umræddur arður hafi komið inn í félagið úr þeim fjárfestingum sem Sólstafir höfðu átt í, meðal annars fjárfestingum í Vífilfelli, Kaupþingi og sparisjóðnum Byr. Arðurinn af fjár- festingum Sólstafa var því áfram inni í félaginu en rann ekki til Þorsteins, líkt og haldið var fram í frétt DV. Misskilningur DV stafaði með- al annars af því að í skýrslu stjórnar Sólstafa í ársreikningnum árið 2008 er ekki rætt um arðgreiðslur út úr fé- laginu. DV mat ársreikninginn því sem svo, vegna þess að arðgreiðslan er færð til bókar í tekjuhluta ársreikn- ingsins og ekki er tekið fram að stjórn félagsins hafi tekið ákvörðun um að greiða arðinn ekki út, að arðurinn hefði runnið til hluthafa Sólstafa, Þor- steins M. Jónssonar. Þetta var rangt mat hjá DV. DV biður Þorstein Jónsson, og les- endur blaðsins, afsökunar á þessari rangfærslu um útgreiðslu arðsins út úr Sólstöfum. Afsökunarbeiðni DV biður Þorstein Jónsson afsökunar á rangri frétt um arðgreiðslu út úr einkahlutafélagi hans. MatthíaS í Skotlínu n Það sem fer líklega mest fyrir brjóstið á Ásgerði Jónu Flosadóttur í málflutningi Eiðs Guðnasonar er að hann bendir á að Matthías Imsland er bæði forstjóri Ice- land Express og stjórnarformaður Fjölskylduhjálpar Íslands sem Ás- gerður stjórnar af festu og mann- úð. Eiður gefur til kynna að ástæðu þess að Iceland Express styrkir þátt Ásgerðar á Sögu megi einmitt rekja til þessa. Sjálf er hún á allt öðru máli og vill Eið fyrir dómstóla. launagæðingur vEStfjarða Einn helsti launagæðingur Vest- fjarða er Þorsteinn Jóhannesson, yfirlæknir á Ísafirði. Greinilegt er að ekki væsir um hann því lánin eru hátt í þrjár milljónir króna á mánuði. Fæstir hafa skýringar á því óskaplega vinnuframlagi sem hlýtur að vera að baki. Undanfarin ár hefur heimilislæknum á Vest- fjörðum verið fækkað. Ofurlaun yfirlæknisins eins myndu duga til að standa undir þremur venjuleg- um læknum. Sultarlaun drottninga n Sjónvarpsdrottningarnar Friðrika Geirsdóttir og Inga Lind Karlsdóttir eru illa haldnar ef litið er til launa þeirra. Inga Lind er með aðeins 110 þúsund krónur í mánaðarlaun samkvæmt tekju- blaði DV. Friðrika er með ívið meira, eða 185 þúsund krónur. Hún var áberandi á síðasta ári með matreiðsluþátt sinn og í lykil- hlutverki í Wipeout-þáttum Stöðvar 2. Greinilegt er að launum hennar hefur verið haldið rækilega niðri af Ara Ed- wald vinnuveitanda hennar og Stef- áni Hilmarssyni framkvæmdastjóra sem einnig er eiginmaður hennar. Formaður LÍÚ telur raunsætt að fylgja aðildarumsókn að ESB til enda úr því sem komið er. Það sé þó ekki til marks um breytta stefnu útvegsmanna enda sé vonlítið að ná ásættanlegum samningum við ESB um sjávarútvegsmál. Ákaft er tekist á um aðildarumsóknina á hægri væng stjórnmálanna. Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir að úr því sem komið er sé best að ljúka aðildarumsókn að Evrópusambandinu með áherslu á að ná sem bestum samningi. Orð í þessa veru lét Adolf falla í Síðdegisútvarpi Rásar 2 fyrr í vikunni og vöktu þau spurningar um það hvort LÍÚ hefði breytt um stefnu varð- andi aðild að ESB. Adolf segir það ekki vera. „Útvegs- menn eru andvígir aðild. Afstaða LÍÚ er óbreytt. Ég horfi einungis til þess að ríkisstjórnin ætlar ekki að hætta við í miðjum klíðum og draga umsóknina til baka. Þess vegna er ekki um ann- að að ræða en að reyna að ná ásætt- anlegum samningum. Miðað við þau gögn sem við höfum farið yfir, meðal annars um reglugerðirnar 900, tel ég útilokað að ná viðunandi samningum fyrir íslenskan sjávarútveg.“ Viljum sjálf setja lög Adolf tekur sem dæmi að útilokað sé að Íslendingar fái áfram að hafa lög- gjafarvald yfir fiskveiðilögsögu Ís- lands. „Við viljum hafa samningsrétt um svokallaða deilistofna eins og makríl. Allir fjölþjóðlegir samningar verða á forræði ESB í Brussel ef við göngum í ESB, þannig að mér virðist útilokað að viðunandi samningur ná- ist.“ Adolf bætir við að langskynsam- legast hefði verið að hefja ekki við- ræðurnar en slíkt sé ekki á dagskrá stjórnvalda. „Við vitum hvað við vilj- um en enginn veit raunverulega hver vilji stjórnvalda er, því samnings- markmiðin eru ekki skýr.“ Adolf bend- ir á mismunandi afstöðu ráðherra í ríkisstjórninni og andstöðu innan VG við aðildarumsókn. „Þessi mál hafa ekki verið rædd í nefnd Jóns Bjarna- sonar, sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra, sem hefur endurskoðun kvótakerfisins með höndum, en það hefði ef til vill verið eðlilegt og rök- rétt ef menn vissu hvert ferðinni væri heitið. Ég endurtek að ekki er um neina stefnubreytingu LÍÚ að ræða, samtökin eru á móti aðild að ESB og telja fullvíst að engir ásættanlegir samningar náist,“ segir Adolf. Niðurstaða viðræðna liggur hvergi nærri fyrir. Ljóst er því að nokkur skoðanamunur er kominn upp um framhald málsins milli formanns LÍÚ og forystu Sjálfstæðisflokksins sem nú þarf að framfylgja harðri ályktun landsfundarins í júní síðastliðnum um að slíta aðildarviðræðunum með tillöguflutningi á Alþingi. Hörð af- staða landsfundarins vakti litla hrifn- ingu Evrópusinna innan Sjálfstæðis- flokksins og bar nokkuð á úrsögnum úr flokknum eftir fundinn auk þess sem samtökin Sjálfstæðir Evrópu- menn lýstu miklum vonbrigðum og blésu til fundarhalda. Harðnandi átök á hægri væng Athygli vekur að tekist er á um Evr- ópumálin af mikilli hörku á síðum Morgunblaðsins sem hefur sig mjög í frammi gegn aðildarumsókninni, meðal annars í leiðara um síðastliðin mánaðamót. Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur, ritar grein í Morg- unblaðið 5. ágúst, en hann er einn þeirra sem sagði sig úr Sjálfstæðis- flokknum eftir landsfundinn vegna samþykktarinnar gegn aðildarum- sókninni. Í greininni segir hann að sér lítist illa á óvænta samstöðu Jóns Bjarnasonar og Morgunblaðsins um harða andstöðu við aðildarumsókn- ina. Þórir segir mörg dæmi þess að ESB breyti stefnu sinni til samræm- is við mikilvæga hagsmuni einstakra ríkja. „Ég nefni einnig að í 349. grein Lissabonsáttmálans er tekið fram, að Asoreyingar, Kanaríeyingar og önnur fjarlæg eyjasamfélög hafi sinn land- búnað og sjávarútveg fyrir sig með miklum stuðning frá ESB.“ Þórir bætir við að hann líti á aðild- arviðræðurnar sem áskorun og tæki- færi. „Ég vil því láta reyna til þrautar á það, hvort við getum náð framan- greindum samningsmarkmiðum.“ Merki eru um að deilurnar innan Sjálfstæðisflokksins um afstöðuna til ESB og aðildarumsóknarinnar fari harðnandi. „Þeir verða nú æ fleiri sem undrast ritstjórnarstefnu Mbl., sem einkennist af einelti við þá menn, sem eru á öndverðum meiði við það. Persónulegt hnútukast er þar snöggt um sterkari þáttur en málefnaleg um- ræða,“ segir Þórir í grein sinni. Formaður LÍÚ veLdur titringi JóHAnn HAuKSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þess vegna er ekki um annað að ræða en að reyna að ná ásætt- anlegum samningum. Ljær máls á því að halda áfram Adolf Guðmundsson telur útilokað að ná viðunandi samningum en leggst ekki gegn aðildarviðræðunum. Sagði sig úr flokknum Séra Þórir Stephensen sendir Jóni Bjarnasyni og Morgunblaðsritstjóra tóninn. ÓviSSa uM SpaugStofuna n Algjör óvissa virðist ríkja um það hvort Spaugstofan verði áfram á dag- skrá Sjónvarpsins næsta vetur. Pálmi Gestsson segir í samtali við Bæjarins besta á Ísafirði að „Spaugstofan hætti aldrei sem fyrirbæri“ en það kæmi honum ekkert á óvart þó hún yrði lögð niður. „Það virðist komið að þeim tímapunkti að eigendur stofn- unarinnar þurfa að ákveða hvort þeir ætla að leggja hana niður alfarið,“ segir Pálmi. Ef marka má nýleg um- mæli Páls Magnússonar útvarps- stjóra um hugsanlegan niðurskurð eru líkurnar á að dagar Spaugstof- unnar séu taldir meiri en minni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.