Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 31
... leikritinu Hallveig ehf. Skemmtilegt og fræðandi leikrit í öðruvísi rými. ... leiksýningunni Hetja Gleðilegt þegar íbúarnir standa svona vel að því að halda sinni eigin menningu á lofti og taka svo myndarlega á móti gestum sínum. ... myndinni A Nightmare on Elm Street Martröð af leiðindum. föStudAgur n Ghozt á Jacobsen Skífusnillingurinn Ghozt þeytir plötunum í allar áttir á Jacobsen í kvöld. Um að gera að henda sér í það og dansa frá sér allt vit. n Plastic Gods á Factory Rokksveitin Plastic Gods heldur veislu á Factory. Ásamt DLX ATX, The Heavy Experience, Hylur. n Gay Pride á Barböru Landlegudansleikur á Barböru. Aðgangs- eyrir 1.000 kr. lAugArdAgur n Reggí á Hemma og Valda Mánaðarlegur reggíviðburður Rvk Soundsystem fer fram á Hemma og Valda. n Hinsegin hátíðardansleikur: NASA við Austurvöll DJ Páll Óskar. Þeir sem vilja kynna sér dagskrá Gay Pride frekar er bent á heimasíðuna gaypride.is n Danni Deluxxx á Prikinu Snillingurinn Daníel Deluxxx fær sér sveittan snúning á Prikinu í kvöld. Hvað er að GERAST? Búferlaflutningar, einelti og kúngfú í keisarans Kína: Jackie Chan buffar 12 ára bekk Dre litli (Jaden Smith) og einstæð móðir hans Sherry Parker (Taraji P. Henson) eru um það bil að flytjast bú- ferlum. Bílaiðnaðurinn er að færast frá Detroit til Kína og þau fljóta með. Þar nýtur Sherry sín en Dre er ekki hrifinn af umbreytingunni. Hann þarf að læra kínverska tungu og siði og kemst fljót- lega upp á kant við strákagengi nokk- urt sem er leitt áfram af kúngfú-meist- aranum Cheng (Zhenwei Wang). Ef ekki væri fyrir litla sæta fiðluspilandi Kínastelpu, Meiying (Wenwen Han), gæti hann alveg eins gefið skít í allt. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst og að þessu sinni í formi aldr- aðs meistara í austurlenskum slags- málafræðum. Hr. Han (Jackie Chan) tekur að sér að hjálpa Dre að yfirvinna hræðsluna og endurheimta líf sitt úr höndum eineltiskúkalabbanna. Eins og fólk gerir sér fljótlega grein fyr- ir er um frekar nákvæma endurgerð af gömlu Karate Kid-myndinni. Arf- taki Hr. Miyagi er með beinagrindur í skápnum og nýja útfærslu á „wax on, wax off“, ástarsagan er til staðar, einelt- ishrekkjusvínin eru svæsin, áherslu- punktur myndarinnar er eins og áður stórmót í kúngfú og boðskapurinn er hinn sami. Þá er spurningin sem ýms- ir hafa velt fyrir sér hvort þessi endur- gerð eyðileggi ekki minninguna um upprunalegu myndina eins og oft vill verða? Þrátt fyrir að fylgja vandlega eftir innihaldi upprunalega handrits- ins er heildarútlitið allt annað. Mynd- in fer fram í Kína sem gerir myndina mun meira spennandi í útliti. Mynd- in skartar mörgum flottum senum af Kínamúrnum, Forboðnu borginni, hofum, borgarmyndinni í Beijing og eins úti í náttúrunni. Það er kímið á köflum að sjá Dre litla venjast Kína sem hann leikur alveg ágætlega enda kominn af skemmtikröftum í báða ættliði. Lærifaðirinn úr upprunalegu myndinni, Hr. Miyagi, var Japani sem af einhverjum undarlegum ástæðum barðist með Bandaríkjaher í seinni heimsstyrjöld. Það og fleira við hann var ekkert sérstaklega sannfærandi og fáir geta neitað að hann standi Jack- ie Chan langt að baki í slagsmálum. Chan á hér góða spretti og fer á kost- um þar sem hann buffar heilan tólf ára bekk einn síns liðs. Kínapían hans Dre er sæt og sniðug en Sherry Parker er á hinn bóginn ýkt og frekar kjána- leg. Auðvitað eru síðan kjánahrolls- augnablik eins og þegar þeir Dre og Han teyga á kúngfú-vatni og lokabar- dagamót myndarinnar er út í hött. Þar er um að ræða „full contact“-barna- slagsmálamót með beinbrotum og öðru tilheyrandi sem minnir meira á ólöglegan slagsmálaklúbb í Úkraínu. En í grunninn má segja að þessi mynd geri betur en hin upprunalega. Menn eru oft að ofmeta upprunalegu mynd- irnar og gildi þeirra „í minningunni“. Horfðu á Gremlins, Goonies, E.T. og gömlu Karate Kid til að fá staðfest að þær eru fyrst og fremst góðar „í minn- ingunni“. ... myndinni Inception Lagskipt snilld, sem talar til manns á ótal sviðum. ... myndinni Boðberi Mislukkað þrekvirki. föstudagur 6. ágúst 2010 fókus 31 28 vErk SýNd á ArtfArt í ár spennandi verk á artfart VAkt HöFuNDuR: HAllDóR ARmAND áSGeiRSSoN leikARAR: HeRA HilmARSDóttiR oG eiNAR AðAlSteiNSSoN tRue loVe ANNA mARíA tómASDóttiR HNoð Tveir læknar standa frammi fyrir vandamáli sem engin Wikipedia-grein um siðferði getur hjálpað þeim að leysa og allar hugmyndir um rétt og rangt virðast sveipaðar móðu.  Hann er harður eins og Bruce Willis. Hann er skoskur eins og Ewan McGregor. Hann grætur eins og Johnny Depp. Hann er hetja eins og James Bond. Hann er draumaprinsinn. Læknadrama í fyrsta skipti á íslensku leiksviði. „Singalong“ væntanlegt. Sviðs- listahópurinn HNOÐ sérhæfir sig í íslenskum dansi. Stúlkurnar stunda nám við dansdeild LHÍ og P.A.R.T.S. í Brussel. FJölteNGi Homo luDeNS eR SýNiNGiN ByRJuð? leikStJóRi: HlyNuR Páll PálSSoN FlytJeNDuR: áSRúN mAGNúSDóttiR, AuDe mAiNA ANNe BuSSoN, iNGiBJöRG HulD HARAlDSDóttiR, mARíA ÞóRDíS ólAFSDóttiR, oDDuR JúlíuSSoN, ólöF HARAlDSDóttiR, RAGNHeiðuR HARPA leiFSDóttiR, ÆVAR ÞóR BeNeDiktSSoN Karate Kid leikstjóri: Harald Zwart Aðalhlutverk: Jaden Smith, Taraji P. Henson og Jackie Chan kvikmyndir ... heimildarmynd- inni Babies Skemmti- leg heimild- armynd hér á ferð. karate kid Hægt að hafa gaman af henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.