Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 30
EndurrEisn í skálholti Laugardaginn og sunnudag- inn 7. og 8. ágúst verður sérstök ítölsk helgi þar sem kammerkórinn Libera Cantoria Pisani frá Lonigo á Ítalíu, undir stjórn Filippo Furlan, flytur annars vegar ítalska endurreisnartónlist og hins vegar íslenska og ítalska nútíma- tónlist. Meðal þess sem er á dagskrá er erindi í Skálholtsskóla um ítalska endurreisnartónlist í umsjón Filippo Furlan, verk eftir Bruno Bettinelli, Gaetano Lorandi, Gigi Sella, Sigurð Sævarsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Úlfar Inga Haraldsson. Flytjendur eru Gigi Sella sópran sax og klarinetta, Libera Cantoria Pisani kammerkórinn, stjórnandi er Filippo Furlan. Pönk á Patró Laugardaginn 7. ágúst verður Pönk á Patró haldið í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í annað sinn í sumar. Dagskráin er glæsileg en það er Amiina sem fetar í fótspor hljómsveitarinnar Pollapönks sem gerði góða ferð til Patreksfjarð- ar 26. júní. Amiina mun stjórna tónlistarsmiðju á sinn einstaka hátt en svo flytur hljómsveitin frumsamda tónlist sína við sígildar hreyfiklippimyndir Lotte Reiniger um þau Þyrnirós, Öskubusku og Aladdín. Kvikmyndunum verður varpað á tjald og tónlistin leikin undir. Hátíðin Extreme Chill Festival er haldin um helgina: rafmögnuð stemning „Það er allt í fullri keyrslu, við erum á leiðinni upp eftir,“ segir Andri Már Arnlaugsson sem skipulegg- ur raftónlistarhátíðina Extreme Chill Festival ásamt Pan Thoraren- sen en hún fer fram á Hellissandi á Snæfellsnesi um helgina. Um er að ræða fyrstu raftónlistarhátíð Ís- landssögunnar þar sem átján inn- lendir raftónlistarmenn koma fram ásamt tveimur þekktum erlendum tónlistarmönnum. „Hugmyndin að þessu kviknaði í fyrra þegar við vor- um með tónleika á sama stað. Þetta er ótrúlegur staður, alveg við jökul- inn,“ segir Andri. Hugmyndin er svo sú að halda hátíðina árlega hér eftir og færa út kvíarnar jafnóðum. „Það eru strax komnar hugmyndir um að flytja inn bönd á borð við Boards of Canada og Biosphere á næsta ári.“ Þeir erlendu tónlistarmenn sem spila í ár eru Frakkinn Moonlight Sonata og Norðmaðurinn Xerxes. „Þeir eru alveg að deyja úr spenn- ingi, af því að þetta er þarna en ekki í Reykjavík,“ segir Andri. Búist er við að það seljist upp á hátíðina en hægt er að kaupa armbönd á 2.500 krón- ur í 12 Tónum og Smekkleysu en þau gilda á tónleikana og inn á tjald- stæðið. Einnig verða seld armbönd við félagsheimilið á staðnum. 30 fókus 6. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR lEiðsögn um Eirík smith Sunnudaginn 8. ágúst kl. 15, verður leiðsögn um sýninguna Formlegt að- hald þar sem sýnd eru verk listmálar- ans Eiríks Smith frá 1951–1957. Leiðsögnin er í umsjón aðstoð- arsýningarstjórans Heiðars Kára Rannverssonar. Heiðar er listfræð- ingur og hefur undanfarna mánuði unnið rannsóknarvinnu á verkum Eiríks í Hafnarborg. Á sýningunni eru verk frá fyrstu árunum eftir að Eiríkur sneri heim frá námi í Kaupmanna- höfn og París, síðari hluta árs 1951. Þá var mikill umbrotatími í íslenskri myndlist og var hann þátttakandi í þeirri formbyltingu sem átti sér stað. Sýningin stendur til 22. ágúst 2010. Í Hafnarborg er opið alla daga 12 – 17 nema þriðjudaga og vakin er athygli á því að opið er á fimmtudögum klukk- an 12.00 -21.00. hljóðaklEttar mEð tónlEika Hljóðaklettar kynna tón- og listviðburð í Venue við Tryggva- götu. Hljóðaklettar er útgáfa sem einbeitir sér að tilraunakenndri tónlist og annarri list. Þegar hafa komið út USB-lykill með tón og mynd efni og útgáfa Jakka/hljóð- snældu. Í burðarliðnum er meðal annars útgáfa á röð 10“ hljóm- platna með tónlistarfólki eins og Jóhanni Jóhannssyni, Sigtryggi Berg Sigmarssyni, Pétri Eyvinds- syni, Rúnari Magnússyni, Evil Madness og fleirum. Tónleika- kvöldið sem um ræðir verður 12.ágúst og þar koma fram Rept- ilicus, Evil Madness, Vindva Mei, Pétur Eyvindsson, The Crying Cowboy og Dj Musician. Tónleik- arnir hefjast kl 21.30 og kostar 500 krónur inn. BrEiða á akurEyri Breiða, sýning Arnþrúðar Dagsdótt- ur, verður opnuð laugardaginn 7. ágúst kl. 15.00 á Café Karolínu. Sýn- ingin stendur til 3. september. Breiða samanstendur af ljós- myndum sem spyrja spurninga um mörk hins almenna og hins einstaka og um tímann í efnislegum hlutum. Arnþrúður Dagsdóttir lauk mast- ersnámi í myndlist frá Sandberg Instituut í Amsterdam haustið 2007. Hún útskrifaðist 2003 frá myndlist- arskólanum AKI, Academie voor Beeldende Kunst en Vormgeving, Enschede, í Hollandi. Algeng þemu í verkum hennar eru samskipti manns við náttúruna og náttúruna í sér, sjálfsmyndin, kynja- og kyn- ímyndir. Café Karolína er opið frá kl. 17.00 og fram eftir nóttu alla daga nema laugardaga þá er opið frá kl. 15.00. 28 vErk sýnd á artFart í ár Sviðslistahátíðin artFart hófst í gær með pompi og prakt. Um er að ræða eina veg- legustu sviðlistahátíð landsins, sem fagn- ar fimm ára afmæli um þessar mundir. DV talaði við Örnu Ýri Sævarsdóttur einn skipuleggjenda hátíðarinnar, sem segir dagskrána aldrei hafa verið glæsilegri. „Þetta er fimmta árið sem hátíðin er haldin, við eigum því fimm ára afmæli og af því tilefni er dagskrá- in extra vegleg í ár,“ segir Arna Ýr Sævarsdóttir einn skipuleggjenda artFart hátíðarinnar sem fer fram í Reykjavík 5.-22. ágúst. Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og hef- ur vaxið með hverju árinu. Í fyrra tók hún sinn stærsta vaxtakipp þegar 24 verk voru sýnd í heild- ina. „Þetta er sviðslistahátið sem snýst um unga listamenn. Þarna gefum við ungum sviðslistamönn- um tækifæri til að sýna verk sín á opinberum vettvangi,“ segir Arna, en hátíðin er nú sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi. Nemar í aðalhlutverki Arna segir að þáttakendur á art- Fart séu að stærstum hluta nem- ar. „Þetta eru annaðhvort nemar í sviðslist eða fólk sem er tiltölu- lega nýútskrifað. Mikið af fólki kemur úr Listaháskóla Íslands, Rose Brusford í Bretlandi og Royal Scottish Academy. En annars eru það skólar sem eru dreifðir um Evrópu.“ Í ár verða 28 verk sýnd og á meðal þeirra má finna út- skriftarverkefni þeirra Snædísar Lilju og Smára Gunnarssonar úr Rose Brusford, en í kjölfar sýning- ar verkanna á artFart halda þau á hina margrómuðu Edinborgar- leiklistarhátið með þau. List alls staðar Yfirþema hátíðarinnar í ár er list í almenningsrými, en af því til- efni var sett á laggirnar sérstakt prógram, Reykjavik Public Space Programme, en í því felast ýms- ar vinnustofur og málfundir. „Er- lendir listamenn leiða þessar vinnustofur og málþing. Nú er til dæmis breski sviðslistamaðurinn Richard DeDominici með „works- hop“ í fullum gangi og afrakstur- inn verður sýndur í vikunni,“ seg- ir Arna. Að halda utan um hátíð eins og artFart er bæði tímafrekt og kostnaðarsamt, en hátíðin er styrkt af bæði Reykjavíkurborg, mennta-og menningarmálaráðu- neytinu, Kultur Kontakt Nord, Vodafone og fleiri fyrirtækjum, en án þeirra væri ómögulegt að bjóða upp á jafn margþætta dagskrá. „Við kunnum þeim bestu þakkir.“ Norskur sirkus á leiðinni Aðspurð um atriði á hátíðinni sem enginn má láta framhjá sér fara segir Arna að af ýmsu sé að taka. „Til dæmis erum við að flytja inn norskan sviðslistahóp, Stella Pol- aris. Hann kemur til landsins í samstarfi við Vodafone og Menn- ingarnótt. Þetta er ofboðslega sjónrænn sirkus sem sýnir verk sitt á Menningarnótt, kl 22.00, í Hljómskálagarðinum, rétt fyrir flugeldasýninguna. Af íslenskum verkum er afar erfitt að velja. Þau eru mörg svo spennandi.“ Allar nánari upplýsingar um artFart má finna á heimasíðunni artfart.is, en þar er hægt að kynna sér dagskrá, miðaverð og fleira í þeim dúr. dori@dv.is Arna Ýr Sævarsdóttir Segir artFart vaxa á hverju ári. Andri Már Arnlaugsson Heldur raftónlistarveislu undir jökli um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.