Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 6
SjaldSéður borgarStjóri n Lítið hefur farið fyrir Jóni Gnarr borgarstjóra síðan hann tók við starfinu í byrjun sumars. Helstu fregn- irnar sem hafa verið sagðar af honum snú- ast um heim- sókn hans til Múmínálfanna í Finnlandi og annað slíkt sprell. Hann reynir þó að halda lesendum sín- um upplýstum í gegnum Face- book-síðu sína en færslurnar eru hinsvegar tiltölulega innihalds- rýrar þó þær veki jafnan mikla athygli lesenda hans. Eins og er lítur borgarstjóratíð Jóns Gnarr út eins og autt blað – enn sem komið er veit enginn hvað Jón hefur gert, né hvað hann ætlar að gera og enn síður fyrir hvað hann stend- ur pólitískt séð. Borgarastjóra- tíð aumingja Jóns Gnarr lítur því út eins og einn stór brandari. En kannski var það eini, og aðeins eini, tilgangurinn til að byrja með, enda nokkuð ljóst að til eru hæfari menn í starfið. Sigur dagS n Sá sem hefur grætt hvað mest á borgarstjóratíð Jóns Gnarr er tvímælalaust Dagur B. Eggerts- son, oddviti Samfylking- arinnar, sem myndar meiri- hluta ásamt Besta flokkn- um. Öfugt við Jón Gnarr og Besta flokkinn biðu Dagur B. og Samfylkingin afhroð í borg- arstjórnarkosningunum. Afhroð Dags var svo mikið að framá- menn innan Samfylkingarinnar kölluðu eftir því að hann viki til hliðar sem oddviti. Dagur gerði þetta ekki heldur hóf þess í stað samstarf við Besta flokkinn og er nú formaður borgarráðs. Vegna reynsluleysis Jóns Gnarr í stjórn- málum má segja að Dagur sé og verði því „de facto“ borgarstjóri jafnvel þó hann gegni ekki starf- inu formlega séð. Dagur getur því ráðið nokkurnveginn því sem hann vill. Sjaldan hefur íslenskur stjórnmálamaður því tapað jafn stórt í kosningum og Dagur en samt sem áður unnið svo stóran sigur í kjölfar þeirra. Dagur er með pálmann, og stjórnartauma Reykjavíkurborgar, í höndunum. Haraldur er brúin n Einn af þeim sem brúar bilið á milli Samfylkingarinnar og Besta flokksins er Haraldur Flosi Tryggvason, lögfræðingur og núverandi stjórnarfor- maður Orku- veitunnar. Haraldur Flosi mun hafa verið lykilmaður í því að tryggja samstarf f lokkanna. Haraldur sat fundi með forráðamönnum flokkanna tveggja áður en sam- starf þeirra var innsiglað og vakti það þó nokkra athygli aðstand- enda Besta flokksins. Ástæðan er meðal annars sú að Haraldur Flosi hefur í gegnum tíðina verið yfirlýstur Samfylkingarmaður og var meðal annars varamað- ur í stjórn flokksins í Reykjavík og hefur verið stuðningsmaður margra þekktra samfylkingar- manna í gegnum tíðina. Har- aldur varð hins vegar stjórnar- formaður Orkuveitunnar vegna tengsla sinna við Besta flokkinn. Annar ótvíræður sigurvegari í borgarstjórnarkosningunum er því Haraldur Flosi því hann átti þátt í að sameina flokkanna tvo og fékk svo eitt besta starfið í borgarkerfinu. sandkorn 6 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur Undirbúningur að stofnun Sparibankans langt á veg kominn: Nýr banki í burðarliðnum „Um þetta leyti á næsta ári getum við vonandi fagnað nýjum banka,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson, fjár- málaráðgjafi og einn af eigendum Sparnaðar. Undirbúningur að stofn- un nýs viðskiptabanka er langt á veg kominn og segist Ingólfur vonast til þess að hann muni hefja starfsemi á næsta ári. Ingólfur fer fyrir hópi einstakl- inga sem hafa unnið að undirbún- ingnum að undanförnu og er nú verið að vinna að útboðsgögnum. „Fjármálaeftirlitið þarf að sam- þykkja þau útboðsgögn. Síðan verð- ur farið í hlutafjárútboð á einhverj- um tímapunkti,“ segir Ingólfur, en til að stofna banka þarf að hafa fimm milljónir evra, jafngildi um átta hundruð milljóna króna, í hlutafé. „Síðan þarf að uppfylla skilyrði laga um fjármálastofnanir. Fjár- málaeftirlitið fylgist með að svo sé og að uppfylltum þessum skilyrð- um munum við væntanlega fá leyfi og hefja bankareksturinn. Við áætl- um það geti tekið um tólf mánuði að fá leyfið,“ segir hann. Aðspurður hvort bankinn verði frábrugðinn viðskiptabönkunum sem þegar eru á íslenskum markaði segir Ingólfur: „Þetta verður banki sem verður leiðbeinandi. Bank- inn er með ákveðna sérfræðiþekk- ingu á meðferð fjármuna og þess- ari fjárþekkingu ætlum við að miðla bæði til heimila og fyrirtækja,“ seg- ir Ingólfur og bætir við að bank- inn, sem hlotið hefur vinnuheitið Sparibankinn, muni leiðbeina fólki um hvernig best sé að nýta pen- ingana til að láta draumana rætast og ná markmiðum í lífinu. „Þetta snýst um skynsamlega nýtingu fjár- muna.“ einar@dv.is Stofnar nýjan banka Ingólfur segir að bankinn muni leiðbeina fólki um hvernig best sé að nýta peningana til að láta draumana rætast. MynD RakEl ÓSk SiGuRðaRDÓTTiR Fjöldaferð er framundan hjá með- limum MC Iceland-mótorhjóla- samtakanna íslensku til Englands þar sem þeir sækja ráðstefnu Evr- ópudeilda Hells Angels-mótor- hjólasamtakanna. Samkvæmt heimildum DV eru nokkrar líkur á því að á ráðstefnunni verði klúbb- urinn lýstur fullgildur meðlimur í alþjóðlegu samtökunum. Tæpt ár er liðið frá því að MC Iceland náði því skrefi að verða svokallaður „prospect“-klúbbur Vítisengla en það er í raun síðasta skrefið sem taka þarf áður en mót- orhjólaklúbburinn verður fullgild- ur meðlimur Hells Angels. Fast- lega er búist við því að fullgildingin gangi nú í gegn þar sem venjan sé að ári eftir að síðasta skrefið er tek- ið falli síðasti þröskuldurinn. Nú þegar hafa samtök Vítisengla verið stofnuð hérlendis, HA Iceland, og ráðstefnan sem framundan er hefst 28. ágúst næstkomandi, nákvæm- lega upp á dag ári eftir að MC Ice- land hlaut „prospect“-nafnbótina. Fjölmenna til leiks Ráðstefna Evrópudeilda Vítis- engla fer fram á Englandi síðla ágústmánaðar, nánar tiltekið í hinni heimsfrægu knattspyrnu- borg Manchester. Eftir því sem DV kemst næst stefna flestir meðlim- ir MC Iceland að því að fara á ráð- stefnuna með það í huga að vera til staðar ef fullgildingin gengur í gegn. Vandi meðlimanna er sá að fyrirfram er þeim ekki tilkynnt um hvort það gerist eður ei og mæta þeir því til leiks upp á von eða óvon. Áður gekk mótorhjólaklúbbur- inn undir nafninu Fáfnir og und- ir því heiti hlaut hann nafnbótina „hangaround“, sem þýðir að með- limir klúbbsins máttu sækja við- burði hjá alþjóðasamtökunum. Eftir því sem DV kemst næst tók það mörg ár fyrir Fáfni að hljóta þessa stöðu innan Hells Angels. Það var svo síðastliðið haust, í lok ágústmánaðar, sem næsta skref var tekið og klúbburinn, sem þá hét ekki lengur Fáfnir heldur MC Ice- land, hlaut nafnbótina „prospect“. House of Pain Samkvæmt heimildum DV und- irbúa hinir væntanlegu Vítisengl- ar hérlendis opnun nýrrar húðflúr- stofu í höfuðborginni sem tilheyrir mun alþjóðlegri keðju húðflúrstofa tengdum Hells Angels-mótor- hjólasamtökunum. Sú keðja heitir House of Pain. Á hinni íslensku House of Pain- húðflúrstofu mun almenningi gefast kostur á að fá húðflúr og húðgötun ýmiskonar. Heimildir DV herma að þar verði einnig boðið upp á skart- gripi af ýmsum toga ásamt minja- gripum tengdum keðjunni og al- þjóðlegu mótorhjólasamtökunum. Ágóði af minjagripasölunni kemur til með að renna í styrktarsjóð fyrir meðlimi íslensku Hells Angels-sam- takanna sem koma skulu. Við þröskuldinn Í samtali við DV á dögunum full- yrti formaður MC Iceland, Einar Ingi Marteinsson, að mótorhjóla- klúbburinn væri í raun orðinn hluti af Vítisenglum og að þeir verði ekki stöðvaðir á leið sinni inn í samtökin. Hann vísaði þá þeim fullyrðingum lögreglu á bug að klúbburinn væri glæpasamtök og lagði á það áherslu að mótorhjólaksamtökin væru fjöl- skylduklúbbur. Ljóst er því að MC Iceland er á þröskuldi þess að gerast fullgildur meðlimur Vítisengla og að íslensk yfirvöld vinna hörðum höndum að því að koma í veg fyrir það. Nákvæmlega einu ári eftir að íslenski mótorhjólaklúbburinn MC Iceland tók síð- asta skrefið í átt að fullgildingu sem Hells Angels-klúbbur halda meðlimir hans á ráðstefnu samtakanna á Englandi 28. ágúst næstkomandi. Búist er við því að á ráðstefnunni verði íslensku mótorhjólakapparnir gerðir fullgildir Vítisenglar. verða brátt vítisenglar TRauSTi HaFSTEinSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglu- stjóri á Suðurnesjum, segir lögreglu vita af fyrirhugaðri ráðstefnu á Englandi og ferð íslensku mótorhjólamannanna þangað. Aðspurð telur hún það ekki ólíklegt að MC Iceland-meðlimir verði þá skipaðir fullgildir Vítisenglar. Að öðru leyti vill hún ekki tjá sig um aðgerðir lögreglunnar á þessu stigi. „Við höfum nú búist við því í ákveðinn tíma að þeir fengju inngöngu og hefur það verið í samræmi við allar spár. Það gekk ekki eftir á síðasta fundi og kannski ekki ósennilegt að það gerist núna. Biðtíminn er í kringum ár og þetta stemmir við þær upplýsingar sem lögreglan hefur. Meira tjái ég mig ekki að svo stöddu,“ segir Sigríður Björk. PaSSar við Heimildir lögreglu Á leið til Englands Samkvæmt heimildum DV eru Einar og félagar á leið til Manchester þar sem líkur eru á að MC Iceland verði fullgildur meðlimur Hells Angels.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.