Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 14
14 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur Jonathan Rowland, núverandi forstjóri Havilland-bankans í Lúxemborg, neitar því að fyrirtækið Consolium vinni eða hafi nokkurn tímann unnið fyrir bankann. Consolium er félag í eigu Hreiðars Más Sigurðssonar og Ingólfs Helgasonar. Rowland segir að það hafi verið jákvætt fyrir Havilland að Magnús Guðmundsson hafi látið af störfum. HANDTAKA MAGNÚSAR GÓÐ FYRIR HAVILLAND „Ég get staðfest það að Consolium vinnur ekki fyrir Havilland-bank- ann í Lúxemborg. Fyrirtækið hefur aldrei unnið fyrir bankann,“ svarar Jonathan Rowland, núverandi for- stjóri Havilland-bankans, fyrirspurn DV um tengls bankans við Consoli- um. Rowland tók við forstjórastarf- inu þegar Magnús Guðmundsson var rekinn í maí eftir að hann var dæmdur í gæsluvarðhald á Íslandi. Lengi hefur verið orðrómur að fyrirtækið Consolium, sem er með- al annars í eigu þeirra Hreiðars Más Sigurðsson og Ingólfs Helgasonar, starfi að mestu við að þjónusta Ha- villand-bankann í Lúxemborg. Eins og kunnugt er fluttu þeir Hreið- ar Már og Ingólfur til Lúxemborg- ar sumarið 2009 stuttu eftir að úti- búi Kaupþings þar í landi var breytt í Havilland-banka sem nú er í eigu bresku Rowland-fjölskyldunnar. DV sagði frá því í maí að bæði Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðs- son væru að starfa fyrir Havilland- bankann en þess væri vel gætt að nöfn þeirra kæmu hvergi fram í op- inberum skjölum. Fáir Íslendingar eftir í Havilland „Þeir eru færri en fimm,“ segir Jona- than Rowland aðspurður um hversu margir Íslendingar vinni enn fyrir Havilland-bankann. Vísir sagði frá því í maí að íslenskir starfsmenn bankans hefðu verið sendir í leyfi í kjölfar gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir Magnúsi Guðmundssyni. Sam- kvæmt heimildum DV er Eggert Hilmarsson, fyrrverandi yfirmað- ur lögfræðisviðs Kaupþings í Lúx- emborg, enn starfandi hjá Havill- and-bankanum. Fáir Íslendingar hafa eins mikla þekkingu og Eggert í stofnun fyrirtækja á aflandseyjum eins og Tortóla og Bresku Jómfrúa- eyjunum. Eftir að útibúi Kaupþings í Lúx- emborg var breytt í Havilland-banka sumarið 2009 fóru 14 Íslendingar að vinna fyrir hinn nýja banka en áður en Kaupþing fór í þrot höfðu 19 Ís- lendingar unnið hjá útibúi Kaup- þings í Lúxemborg. DV birti nöfn þeirra 14 starfsmanna sem hófu störf hjá Havilland í febrúar 2010. Handtaka Magnúsar jákvæð fyrir bankann „Handtaka Magnúsar hafði eng- in slæm áhrif á orðspor Havilland- bankans. Ég myndi frekar segja að hún hafi haft jákvæð áhrif. Fólk sá þetta frekar sem endalok á stjórn- arháttum gamla Kaupþings,“ segir Jonathan Rowland aðspurður hvort handtaka Magnúsar Guðmunds- sonar í maí hafi ekki haft slæm áhrif á orðspor bankans. Eins og áður var nefnt þá var Magnúsi vikið frá bankanum og í kjölfarið tók Jonat- han Rowland við stjórnartaumun- um. Magnús starfaði sem banka- stjóri Kaupþings í Lúxemborg allt frá því að bankinn stofnaði útibú þar í landi árið 1998 og þar til nafni hans var breytt í Havilland-banka árið 2009. Frá þeim tíma starfaði hann áfram hjá hinum nýja banka þar til hann var rekinn í maí 2010. Það að Rowland-fjölskyldan hafi ekki vik- ið Magnúsi frá störfum strax þegar hún tók yfir bankann árið 2009 þótti renna stoðum undir að Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson færu enn með völdin bak við tjöldin. Skrif Sigrúnar Davíðsdótt- ur um tengsl Consolium og Havil- land-bankans í pistli í maí 2010 gefa til kynna að þau séu meiri en forsvarsmenn Havilland vilja vera láta. Þannig sagði Sigrún frá því að Magnús Guðmundsson hefði kynnt Ítalann Umberto Ronsisvalle fyrir forsvarsmönnum Consolium. Rons- isvalle hafi síðan komið til Íslands og fundað á skrifstofum Consoli- um um kaup sín á fasteignafélaginu Immo Croissance sem áður var í eigu Baugs, FL Group, Landic Property og síðar Skúla Þorvaldssonar. Immo Croissance var þá í eigu Kaupþings í Lúxemborg og seldi Magnús Rons- isvalle félagið þrátt fyrir að tvö önn- ur fyrirtæki hafi átt hærra tilboð það. Ronsisvalle gat síðar ekki staðið skil á lánum og fór þá Immo Croissance í þrot. Kaupþingsklíkan hefur það gott DV birti í júlí myndir af húsum og bíl- um þeirra Hreiðars Más Sigurðsson- ar og Ingólfs Helgasonar en þeir eiga og reka fyrirtækið Consolium bæði á Íslandi og í Lúxemborg. Fjögurra hæða hús Hreiðars Más er vart met- ið á minna en eina milljón evra eða sem nemur 160 milljónum íslenskra króna. Ingólfur býr líka í fjögurra hæða húsi sem er metið á sama verði og hús Hreiðars Más. Hreiðar Már á síðan Audi S8-glæsibifreið, Land Cruiser 200-jeppa og BMW-jeppa. Verðmæti bílaflota hans er vart und- ir 40 milljónum króna. Ingólfur ekur um á Audi-bifreið sem metin er á 15 milljónir króna. Ekki slæmt hjá þessum fyrrver- andi starfsmönnum Kaupþings sem fengu nærri tíu milljarða kúlulán hjá Kaupþingi til hlutabréfakaupa í bankanum – lán sem slitastjórn Kaupþings hefur nú stefnt Hreiðari Má og Ingólfi til að greiða. Slitastjórn- in hefur líka stefnt öllum öðrum fyrr- verandi starfsmönnum Kaupþings sem fengu lán til hlutabréfakaupa til þess að greiða þau. Heildarlán allra starfsmanna Kaupþings stóðu í 60 milljörðum króna við fall bankans í október 2008, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. DV sagði frá því fyrir tveimur vik- um að þeir Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur Helgason og Magnús Guð- mundsson hefðu verið við laxveiðar í Kjarrá í Borgarfirði í þrjá daga um miðjan júlí. Er talið að hver stöng þeirra félaga hafi kostað um 600 þús- und krónur fyrir þriggja daga veiði. annaS SIGMundSSon blaðamaður skrifar: as@dv.is Litlar upplýsingar um Consolium n Skrifstofur Consolium eru við Grand Rue í miðbæ Lúxemborgar, eina dýrustu götu þar í landi. Auk þeirra Hreiðars Más og Ingólfs þá starfa Steingrímur P. Kárson, fyrrverandi yfirmaður áhættustýr- ingar Kaupþings hjá Consolium, Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi fjármálastjóri Kaupþings, og Guð- mundur Þór Gunnarsson, fyrrverandi viðskiptastjóri á útlánasviði Kaup- þings. Athygli vekur að samkvæmt fyrirtækjaskrá í Lúxemborg eru makar Guðnýjar Örnu og Guðmundar Þórs skráðir sem eigendur að Consolium. Auk þess að eiga Consolium eiga Hreiðar Már og Ingólfur líka fyrirtæk- ið Vinson Capital en litlar upplýsingar liggja fyrir um fyrirtækið. Sem dæmi um það var vefsíðu Vinson Capital lokað fyrir stuttu eftir að DV hafði fjallað um það. Consolium Þeir eru færri en fimm Færri en fimm Forstjóri Havilland- bankans segir að færri en fimm Íslend- ingar vinni nú fyrir Havilland. Hann hafnar tengslum við ráðgjafarfyrirtæki Hreiðars Más Sigurðssonar, Consolium. Frekar jákvæð Forstjóri Havilland- bankans segir að handtaka Magn- úsar Guðmundssonar, fyrrverandi forstjóra Havilland-bankans, hafi verið frekar jákvæð fyrir bankann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.