Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 6. ágúst 2010 VIÐTAL 33 BILAÐIST VIÐ AÐ KOMA ÚT ÚR SKÁPNUM Páll segist hafa farið í ákveðið hlutverk þegar hann kom loksins út úr skápnum fyrir fjölskyldu og vinum. „Ég fer að fá athygli frá karlmönnum, allt öðruvísi athygli en ég hafði upplifað áður. Ég hafði verið svo mikið nörd alla ævi, nördið í bekknum sem hafði engan áhuga á fótbolta, bara Öskubusku og Walt Disney-myndum. Ég lék mér aðallega við stelpurnar og var manna klárastur í sippó og snúsnú. En þarna fer ég að stunda skemmtistaði eins og 22 grimmt. Ég fer að fá kynferðislega athygli frá mönnum í fyrsta sinn á ævinni og ég bilað- ist hreinlega. Allir vinir mínir geta borið vitni um það. Ég fór í hommahlutverk.“ Palli er með kenningu um það hvers vegna ungt samkynhneigt fólk virðist oft fara á flug þegar það kemur út úr skápnum. „Margir hommar sem koma út seint, jafn- vel eftir tvítugt, fara að upplifa unglingsárin, kannski sjö eða átta árum á eftir jafnöldrum sín- um. Þessu er oft líkt saman við krakkann í nam- mibúðinni að þegar þú kemur út úr skápnum þá ertu eins og krakki sem er sleppt lausum í sæl- gætisbúð og sú kenning er ekkert algalin. Það er eins og menn séu að vinna upp tímann sem þeir misstu af. Þessu fylgir ákveðið tilfinninga- legt frelsi og þessi frelsistilfinning er mjög sterk. Bæði er gaman og brjálað stuð og fólk fyllist af lífsgleði sem diskómússíkin endurspeglar mjög vel. En síðan eru margir hommar og lesbíur sem hafa alist upp við mikið mótlæti og mikið andstreymi og eru þess vegna kannski svolítið sködduð á sálinni eftir það. Eftir ævilöng hróp, köll, aðdróttanir og aðfinnslur, bæði í vinn- unni og einkalífinu. Þegar þetta fólk kemur út úr skápnum og á ennþá eftir að gera upp þessi gömlu sár. Þá blandast saman stolt yfir því að koma út úr skápnum og skömm úr fortíðinni. Ég er með kenningu um ákveðna stærðfræðifor- múlu: Stolt + skömm = hroki,” segir Páll og rekur nefið upp í loft með leikrænum tilburðum. „Þetta eru drottningarnar sem eru stoltar af sér á sama tíma og þær eiga margt eftir óupp- gert. Þetta fólk setur sig oft á háan hest og finnur öðrum allt til foráttu, er með stæla og er dóm- hart. Þær ganga svona um [rigsar um á gólfinu með dramatískum mjaðmahnykkjum] og sýna falskt stolt. Ég tók þennan pakka með trompi. Þetta er líka varnarmerki, þú ert að skrapa saman sjálfs- mynd þinni með því að fá alls konar stæla að láni frá fólki sem þú lítur kannski svolítið upp til og notar hana sem skjöld til þess að verja þig. Ég er ekki hissa á því að þessar drottningar séu í vörn, því hver vill labba í gegnum lífið og koðna niður af því að það er alltaf verið að særa þig? Það tekur flesta þessa stráka nokkur ár að jafna sig og ná jafnvægi eftir að þeir koma út úr skápnum. Ég tek eftir þessu hjá mörgum ung- um drottningum en ég fyrirgef þeim hrokann á staðnum því ég veit að þetta á eftir að eldast af þeim og þær eiga eftir að ná jafnvægi.“ ÓSKAR ENGUM ÞESS AÐ VERA HÚMORS- LAUS HOMMI Palli segir húmorinn sem svífur yfir vötnum í samfélagi samkynhneigðra lífsnauðsynlegan og í raun hluta af ástæðu þess hve árangurinn í bar- áttu þeirra fyrir réttindum sínum á Íslandi hefur verið skjóturi. „Ég fékk minn skammt af skömm, aðfinnsl- um og aðdróttunum sem krakki og ég gerði mikið í því að slá um mig með bröndurum um sjálfan mig. Ég var með versta munnsöfnuðinn af öllum og gerði grín að sjálfum mér og særði sjálfan mig óspart áður en aðrir gátu fengið tækifæri til að gera það. Þetta er ákveðin varnar- tækni og það tók mig mörg ár að ná jafnvægi og læra að halda því. Það er mjög mikilvægt fyrir samkynhneigða að bera virðingu fyrir allri þessari sköpunargáfu sem mörgum okkar er gefin en besta gjöfin sem mörgu samkynhneigðu fólki er gefin er húmor. Húmorslaus samkynhneigð manneskja er mjög fátæk manneskja. Ég óska engum þess að vera húmorslaus hommi. Þegar þú hefur þennan húmor og þjálfar hann upp með þér þá nærðu að hugsa abstrakt. Flestir húmoristar ná að hugsa abstrakt og sjá lausnir í stærra samhengi en hinir. Ég get lofað þér því að öll þessi réttinda- barátta hefur unnist á skapgerð okkar og þessari virðingu hvort fyrir öðru.“ Ennfremur segir Páll að sýnileiki samkyn- hneigðra hafi verið gífurlega mikilvægur í gegn- um árin. „Ég vil meina að upp úr 1990 fari að mæta á svæðið opinber andlit, ekki bara mitt, held- ur gáfu margir hommar og lesbíur andlit sitt og persónu í baráttuna og lögðu þannig hönd á plóg í réttindabaráttunni. ” FÓLK ÞORÐI EKKI AÐ ÞVO SÉR UM HENDURNAR Að mati Páls er hið ógnvekjandi tímabil frétta af alnæmi sem var nýr sjúkdómur á þeim tíma órjúfanlegur þáttur í sögu samkynhneigðra sem hafði ekki bara neikvæð áhrif á baráttu þeirra á Íslandi. „Já, eins hræðileg hryllingssaga og það er. Árið 1987 þegar ég er að koma út þá þorði fólk ekki að þvo sér um hendurnar á almennings- salernum af ótta við að smitast. Það vissi enginn hvað þetta var. Ég kem út undir þessum kring- umstæðum og það var jákvætt við þá umræðu að samkynhneigðir fóru að fá ábyrgar upplýs- ingar, eins og til dæmis frá landlækni sem opn- aði á sér munninn og fór að tala um samkyn- hneigð opinberlega í fyrsta sinn. Þarna gerði ég mér líka grein fyrir að ég er ekki einn í heimin- um. Þetta er grunnástæða þess að við förum í Gay Pride-gönguna – sýnileiki, til að sýna fólki að það er ekki eitt í heiminum. Ég var svo heppinn að lenda á ábyrgum manni, minn fyrsti kærasti kenndi mér ábyrgt kynlíf og þannig þurfti ég ekki að óttast veiruna,“ segir Palli og bætir við: „Fyrir utan það hvað hann var sætur!” Hann hefur áhyggjur af þróun samskipta ungra samkynhneigðra karla í dag og segir fyrstu reynslu homma í dag oft ekki vera eins já- kvæða og eðlilega og hann sjálfur upplifði. „Ég þurfti ekki að upplifa það að vera á net- inu á einhverju spjalli, sautján ára og vera plat- aður í rúmið af einhverjum snarrugluðum sex- tíu ára gömlum giftum gaur. Það er ekki mín saga, en eitthvað sem ég hef miklar áhyggjur af. Það sem kallað var að krúsa, finna sér elsk- huga, átti sér stað í gamla daga í görðum og á öðrum opinberum stöðum er nú allt komið á netið. Ég hef áhyggjur af þessu og mér stend- ur ekki á sama. Ef þetta er kynning ungs fólks á samfélagi samkynhneigðra er ég ansi hræddur um að sjálfsvirðing þeirra gæti beðið einhverja hnekki. Ég set stórt spurningarmerki við það hvert virðing samkynhneigðra fyrir sjálfum sér er komin þegar þeir girða niður um sig og sýna á sér afturendann eða kynfærin á netinu. Ég lærði það af eigin reynslu að þegar maður girðir niður um sig, þá er frekar erfitt að ætlast til þess að fá virðingu fólks á móti. Ég er alveg bú- inn að prufa að vera í rasslausu buxunum,“ segir hann og hlær. ENN FORDÓMAR Á ÍSLANDI „Það tala voðalega margir um Ísland sem ein- hverja paradís fyrir samkynhneigða. Fólk sem talar þannig hlýtur að vera með bleik sólgler- augu á nefinu alla daga vegna þetta er ekki það sem ég upplifi. Vissulega erum við komin með öll réttindi, en lög og reglur eru ekki neitt nema stafir á A4-blaði, einskis virði fyrr en samfélagið fer að virða reglurnar og fara eftir lögunum. Við megum heldur ekki gleyma því að enn er síðasti hálfvitinn ófæddur og það verða alltaf einhverjir svartir sauðir þarna inni á milli sem eiga eftir að finna samkynhneigðum allt til foráttu það sem eftir er. Vissulega er allt annað líf að búa á Íslandi en fyrir tíu eða fimmtán árum síðan. Við megum bara ekki sofna á verðinum. Frelsið er það fyrsta sem er hægt að taka frá manni,“ segir Páll og ít- rekar að enn finnist fordómar á Íslandi, sérstak- lega með tilkomu veraldarvefsins. „Ennþá grassera hér á Íslandi fordómar, að- finnslur og mjög ljót skot sem er oftar en ekki að finna á netinu undir nafnleynd. Í gamla daga var fólk einfaldlega kallað öllum illum nöfn- um á Laugavegi. Ég þekki fólk persónulega sem var rekið úr íbúðum, sagt upp störfum, rekið af skemmtistöðum og beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi á götum úti. Lögreglan horfði stundum upp á ofbeldið aðgerðalaus eða tók sjálf þátt í því. Þetta var raunveruleiki margra þeirra sem eru eldri en ég sem ég þekki persónulega. Unga kynslóðin í dag þarf að díla við þessa sömu for- dóma á internetinu. Mjög hommafóbísk komm- ent eru á youtube, facebook, einkamal.is, blogg- um og spjallsíðum. Svo ekki sé talað um sjálfshatrið sem ein- kennir fjölskyldufeður, gifta menn sem lifa tvö- földu lífi, heima með fjölskyldunni og svo á int- ernetinu að pikka upp unga stráka,“ segir hann. HEFUR SKIPT UM NÓG AF KÚKABLEYJUM Páll segist vera hamingjusamur, einhleypur og önnum kafinn eins og vanalega, en það kemur reglulega fram í fjölmiðlum að hann sé bókaður marga mánuði og jafnvel ár fram í tímann. „Ég er á laflausu og hef engar áhyggjur af því. Mér finnst gott að vera singúl og hef í raun bara nóg að gera. Ég skil það mætavel þegar ég les í slúðurblöðum um Hollywood-pör sem hætta saman vegna þess að þau hafa ekki tíma hvort fyrir annað.“ Fjölskyldulífið sem er ekki besta blandan við skemmtibransann hefur aldrei heillað Pál. „Nei, það hefur bara aldrei blundað í mér. Mig hefur aldrei langað í barn. Ég er yngstur af sjö systkinum og þegar ég var krakki þá hrúguð- ust barnabörnin inn og ég var látinn passa þau öll. Ég hef skipt á sirka 3.000 kúkableyjum um ævina og fékk bara nægju mína á sínum tíma. Svo eru plöturnar mínar líka börnin mín. Það þurfti að sýna þeim sömu nærgætni og natni og maður sýnir litlu barni. Þær vaka á nóttunni, eru stöðugt að krefjast athygli frá mér og alltaf með tannpínu.“ KVENNABARÁTTAN NÆST Á DAGSKRÁ Palli kemst á flug þegar kvenréttindabaráttuna ber á góma og er þeirrar skoðunar að stelpurnar eigi enn langt í land. „Mér finnst stelpur hafa svolítið sofnað á verðinum og ég vil kasta boltanum yfir til þeirra. Stelpur, þið sofnuðuð á verðinum þegar Hólm- fríður Karlsdóttir var kjörin fegurðardrottning alheims 1985. Eftir það héldu stelpur kjafti og fóru að taka þessum útlitsfasisma gagnrýnis- laust. Upp spruttu tímarit, slúðurblöð og ákveð- inn kúltúr sem gengur út á það að finna konum allt til foráttu og hjakka á útliti þeirra. Öll ork- an fór af réttindabaráttunni yfir í það hvort þær væru með appelsínuhúð eða ekki. Tímaritin sögðu þeim að svelta sig og þær hlýddu. Það er engu líkara en allur snyrtivörubrans- inn eins og hann leggur sig hafi það að mark- miði að halda öllum konum í heiminum pínulít- ið óhamingjusömum. Því ef þær væru ánægðar með það hvernig þær litu út myndi þessi útlits- bransi allur hrynja til grunna. Vaknaðu Þyrnirós og stelpur farið þið í göngu niður Laugaveginn! Það eru droparnir sem hola steininn. Það er ennþá launamisrétti, karllæg og kvenlæg störf og mikið ójafnvægi inni á heim- ilunum sjálfum. Ég vildi að konur stæðu meira saman, því þegar þær standa saman er við ofur- efli að etja,“ segir hann ákveðinn. Þegar blaðamaður gengur út af kaffihús- inu hljómar dúndrandi diskótaktur í lagi Páls Óskars, International, í hátölurunum og setur stemninguna fyrir helgina. Flauelsmjúk rödd Palla fyllir eyrun: „Y te quiro, mein Liebe, my love, Je’ t’aime, mi amora, þú finnur að ástin er international.“ Það er ekki hægt að enda samtal við Pál Óskar um stolt samkynhneigðra á meira viðeigandi hátt. brynja.bjork@dv.is HÆTTANleið ekki hjá Ég þekki fólk persónu-lega sem var rekið úr íbúðum, sagt upp störfum, rekið af skemmtistöðum og beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi á götum úti. Lögreglan horfði stundum upp á ofbeldið aðgerðalaus eða tók sjálf þátt í því. Bilaðist Páll Óskar segist hafa gengið í gegnum skrýtið tímabil þegar hann kom út úr skápnum. Fordómar finnast enn „Það tala voðalega margir um Ísland sem einhverja paradís fyrir samkynhneigða. Fólk sem talar þannig hlýtur að vera með bleik sólgleraugu á nefinu alla daga.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.