Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 38
60 ára á föstudag 38 ÆttfrÆði umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 6. ágúst 2010 föstudagur Kristján Sigurður Elíasson stýrimaður á Venusi Kristján fæddist á Siglufirði og ólst þar upp á Brekkunni. Hann var í Grunnskóla Siglufjarðar, stund- aði nám við Stýrimannaskólann í Reykjavík og lauk þaðan fiskimanna- prófi hinu meira 1986. Kristján hefur stundað sjóinn frá unga aldri en hann hóf sjómanns- ferilinn á Hafliða SI 2 um sextán ára aldur. Hann var m.a. á Stálvík SI-1 og Siglfirðingi SI-150. Kristján var skipstjóri á Ögmundi RE-94 og fyrsti stýrimaður á Sigli SI-250 og er nú fyrsti stýrimaður á Venusi HF-51. Fjölskylda Kristján kvæntist í Siglufjarðarkirkju 16.9. 1973 Lilju Eiðsdóttur, f. 8.9. 1955, húsmóður. Foreldrar Lilju voru Ágústa Fanney Lúðvíksdóttir hús- móðir og Eiður Jóhannesson skip- stjóri. Börn Kristjáns og Lilju eru Gott- skálk Hávarður Kristjánsson f. 22.7. 1973, verkefnastjóri hjá Eimskip, bú- settur í Reykjavík en kona hans er Ragnheiður Kristín Vignisdóttir, f. 16.5. 1979 og er sonur hennar Auð- unn Berg Haraldsson, f. 25.5. 2004 en sonur Gottskálks er Kristján Elmar Gottskálksson, f. 26.7. 1998 auk þess sem dóttir Gottskálks og Ragnheiðar Kristínar er Gabríela Von Gottskálks- dóttir, f. 27.5. 2010; Brynhildur Þöll Kristjánsdóttir, f . 17.6. 1975, fyrrv. viðskiptastjóri, búsett í Reykjavík en maður hennar er Skarphéðinn Jónas Karlsson, f. 7.7. 1974 en dóttir Bryn- hildar er Telma Dögg Björnsdóttir, f. 1.12. 1996; Eiður Ágúst Kristjánsson, f. 23.9. 1982, lagermaður hjá ÁTVR, búsettur í Reykjavík en kona hans er Fjóla Guðbjörg Traustadóttir, f. 13.12. 1985 og er dóttir þeirra Lilja Þöll Eiðsdóttir, f. 17.3. 2008. Systkini Kristjáns eru Árni Þor- kelsson, f. 20.9.1945 , búsettur á Siglufirði; Jóna Þorkelsdóttir, f. 1.7.1947, búsett í Grindavík; Þor- steinn Elíasson, f. 23.8. 1951, bú- settur í Reykjanesbæ; Rafn El- íasson, f. 29.7. 1953, búsettur á Akureyri; Gísli Jón Elíasson, f. 20.2.1956, búsettur á Siglufirði; Dagmar Elíasdóttir, f. 11.6.1957, búsett í Hafnarfirði; Heiðar Elías- son, f. 17.4. 1959, búsettur á Akur- eyri; Sólrún Elíasdóttir, f. 9.5. 1960, búsett á Siglufirði; Sigurbjörg Elías- dóttir, f. 19.12. 1961, d. 12.7. 2008, var búsett á Siglufirði; Sverrir Gísla- son, f. 8.2. 1963, búsettur á Siglu- firði. Foreldrar Kristjáns voru Aðal- heiður Þorsteinsdóttir húsmóðir og Elías Ísfjörð sjómaður. 60 ára á laugardag Hanna María fæddist í Reykjavík og ólst þar upp, á Sólvallagötunni og á Austurbrún. Hún varð stúd- ent frá máladeild MH 1970 og nátt- úrufræðideild 1971. Hún stundaði nám í lyfjafræði við HÍ 1971-73, nam síðan lyfjafræði við Dan- marks Farmaceutiske Højskole og lauk þaðan kandidatsprófi 1978. Hanna María var lyfjafræðing- ur í Norðurbæjarapóteki og síðan deildarlyfjafræðingur töfludeild- ar Lyfjaverslunar ríkisins 1979-83. Hún var lyfjafræðingur í Holts Ap- óteki 1983-86, stundaði kennslu við Lyfjatæknaskóla Íslands 1982- 86, var stundakennari í lyfjafræði við Hjúkrunarskóla Íslands 1978- 1981 og kenndi verklega lyfjagerð- arfræði við Háskóla Íslands haust- ið 1985. Hanna María var lyfsali í Stykk- ishólms Apóteki 1986-95, með lyfjaforða í Grundarfirði og lyfsali í Apóteki Vestmannaeyja 1995- 2006. Þá varð hún apótekari í Laugarnesapóteki og er enn sjálf- stætt starfandi apótekari þar. Hanna María var gjaldkeri Lyfjafræðingafélags Íslands 1984- 86. Hún hefur setið í heilbrigðis- ráði Vesturlands frá 1990 og gegnt stöðu formanns Apótekarafélags Íslands frá 1999. Hún var formað- ur stjórnar Kertaverksmiðjunnar Heimaey í Vestmannaeyjum 1997- 2006. Hún hefur starfað í ýmsum nefndum fyrir FKA (Félag kvenna í atvinnurekstri) og verið rótarýfé- lagi síðan 1996 og félagi í Zonta- klúbbnum Emblu, Reykjavík frá 2006. Fjölskylda Hanna María giftist 15.6. 1981 Er- lendi Jónssyni, f. 26.4. 1948, próf- essor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hann er sonur Jóns Júlíus- sonar og Signýjar Sen. Börn Hönnu Maríu og Erlends eru Jón Helgi Erlendsson, f. 28.2. 1982 en sambýliskona hans er Martina Vigdís Nardini; Guðberg- ur Geir Erlendsson, f. 22.3.1986. Systkini Hönnu Maríu eru Vil- hjálmur Siggeirsson, f. 8.9. 1951, viðskiptafræðingur; Jóna Sigg- eirsdóttir, f. 10.6.1953, hjúkrunar- fræðingur; Siggeir Siggeirsson, f. 30.9.1959, rafeindavirki. Foreldrar Hönnu Maríu voru Siggeir Vilhjálmsson, f. 15.6.1912, d. 29.9. 1998, stórkaupmaður, og Sigríður Hansdóttir, f. 6.7. 1916, d. 17.3.2003, húsmóðir Hanna María Siggeirsdóttir lyfsali 30 ára á föstudag Kristinn fæddist í Reykjavík og en ólst upp í Kópavogin- um. Hann var í Þingholts- skóla og Kársnesskóla, lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Kópavogi árið 2000, stundaði nám í lækn- isfræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan embættis- prófi í læknisfræði 2007, og hefur síðan verið í framhaldsnámi hérlendis. Kristinn hefur verið læknir við Landspítalann frá 2007. Kristinn æfði og keppti í knatt- spyrnu og handbolta með Breiða- blik í flestum aldursflokkum, er mikill hlaupari og harður Bliki. Fjölskylda Eiginkona Kristins er Sara Hlín Sigurðar- dóttir, f. 16. 1981, flug- maður og lögfræðing- ur. Sonur Kristins og Söru Hlínar er Grímur Logi, f. 9.11. 2006. Systkini Kristins eru Björn Þór Hallgrímsson, f. 21.9. 1987, veitingamaður, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Kristins eru Ágústa Björnsdóttir, f. 22.6. 1955, bú- sett í Hafnarfirði, og Hallgrímur Kristinsson, f. 8.7. 1951, d. 1.6. 1994, rennismiður. Kristinn Logi Hallgrímsson læknir í reykjaVík 30 ára á föstudag Arnar fæddist á Akureyri og ólst þar upp í Þorpinu. Hann var í Síðu- skóla og lauk þaðan samræmdum prófum. Arnar Þór starfaði hjá Toyota á Akureyri 1998-2003, vann hjá Ljós- gjafanum á Akureyri 2003-2006, starfaði hjá SP-Fjármögnun um skeið en hefur starfað hjá Verði frá 2009. Arnar er mikill áhugamaður um akstur vélsleða og fjórhjóla. Fjölskylda Kona Arnars er Arna Arnardótt- ir, f. 12.4. 1983, starfsmaður Arion banka. Sonur Arnars og Örnu er Örn Kató Arnarsson, f. 14.12. 2005. Bræður Arn- ars eru Rún- ar Þór Sigur- steinsson, f. 26.1. 1974, við- skiptastjóri Ís- landsbanka á Akureyri; Hrannar Örn Sigursteinsson, f. 23.3. 1979, vélamaður á Akureyri; Sigursteinn Unnar Sigursteinsson, f. 21.8. 1986, húsasmiður á Akur- eyri. Foreldrar Arnars eru Sigur- steinn Þórsson, f. 7.11. 1954, bíl- virki og rafvirki á Akukreyri, og Margrét Sveinbjörnsdóttir, f. 14.3. 1960, sjúkraliði í Reykjavík. Arnar Þór Sigursteinsson Viðskiptaráðgjafi hjá Verði - tryggingum Þröstur Sverrisson húsasmíðameistari og kennari Þröstur fæddist á Selfossi en ólst upp í Hafnarfirði til átta ára aldurs og í Borgarfirði til sextán ára aldurs. Hann gekk í Lækjarskóla í Hafn- arfirði, í Kleppjárnsreykjaskóla, stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti 1975-76 og lauk þaðan landsprófi, var á námssamningi hjá Gunnari Dagbjartssyni húsasmíða- meistara frá 1981, lauk sveinsprófi í húsasmíði frá Iðnskólanum í Hafn- arfirði 1985 og lauk meistaranámi og öðlaðist meistararéttindi frá Iðnskól- anum í Hafnarfirði í árslok 1988. Þröstur hóf síðar nám við KHÍ og lauk námi sem grunnskólakennari auk þess sem hann öðlaðist kennslu- réttindi fyrir framhaldsskóla í tréiðn- greinum árið 2004. Þröstur vann að mestu við bús- törf á unglingsárunum, til dæmis í Brautartungu í Lundarreykjadal, sumrin 1973 og 1974 hjá þeim hjón- um Eðvarð Torfasyni bónda og Guð- finnu Guðnadóttur og á Skálpastöð- um í Lundarreykjadal, sumrin 1975 og 1976, hjá hjónunum Guðmundi Þorsteinssyni og Helgu Bjarnadóttur. Þröstur vann hjá Trésmiðju Björns Ólafssonar 1976-77, hjá Útihurðum hf. 1977-78, hjá Sævari Gunnlaugs- syni húsasmíðameistara 1978-81, var á samingi hjá Gunnari Dagbjarts- syni húsasmíðameistara og starfaði hjá fyrirtæki hans, Þrídrangi hf., til 1984, vann síðan um tíma hjá tveim- ur aðilum, fyrst Kristjáni Finnssyni húsasmiðameistara og svo hjá Virki sf., starfaði hjá verktakafyrirtækinu Byggðaverki 1985-89. Vorið 1989 tók Þröstur við starfi mælingafulltrúa hjá Félagi bygg- ingariðnaðarmanna í Hafnarfirði og gegndi því starfi til hausts 1994, ásamt því að gegna hinum ýmsu trúnaðarstörfum fyrir félagið. Hann var sjálfstætt starfandi sem húsasmíðameistari 1994-96, var sölumaður og síðan sölustjóri hjá glerverksmiðjunni Öspan ehf. í Kópavogi 1996-2002, kenndi hönn- un og smíði við Víkurskóla 2003- 2006 og við Engidalsskóla í Hafnar- firði 2006-2007 en hóf þá störf hjá Verksýn, fyrirtæki sem sérhæfir sig í umsjón, eftirliti og ráðgjöf varðandi viðhald húsnæðis, og hefur starfað þar síðan. Þá hefur Þröstur kennt í Meistara- skólanum við Tækniskóla Íslands sl. tvö ár. Fjölskylda Þröstur hóf sambúð 1980 með Sigríði Maríu Jónsdóttur, f. 9.4.1963, skóla- liða. Þau giftu sig á gamlársdag 1988. Sigríður María er dóttir Jóns Egils Sigurjónssonar járniðnaðarmanns og Jóhönnu Gísladóttur, starfsstúlku á Hrafnistu. Börn Þrastar og Sigríðar eru Mar- ín Þrastardóttir, f. 2.1. 1982, grunn- skólakennari í Svíþjóð en maður hennar er Christian Vilppola; Fjöln- ir Þrastarson, f. 29.5. 1990, nemi í húsasmíði en unnusta hans er Ingi- björg Sigurðardóttir; Sverrir Þrast- arson, f. 11.3.1998, grunnskóla- nemi. Systkini Þrastar eru Fjölnir Sverr- isson, f. 26.11.1961, garðyrkjumaður í Svíþjóð; Dagný Sverrisdóttir, f. 14.6. 1964, röntgentæknir í Hafnarfirði; Alvar Sverrisson f. 18.9. 1971, starfs- maður Icelandair, búsettur í Hafnar- firði. Foreldrar Þrastar eru Sverrir Val- garður Guðmundsson og Hulda Þórðardóttir. Þau eru bæði kenn- arar. Þau hófu búskap á Selfossi og hafa síðan verið búsett í Hafnarfirði, Borgarfirði, Kjós og nú síðast aftur í Hafnarfirði. Ætt Sverrir Valgarður er sonur Guð- mundar Ágústs Jóhannessonar og Þuríðar Sigurðardóttur. Hulda er dóttir Þórðar Runólfs- sonar, bónda í Kvíarholti í Holta- hreppi, og Margrétar Filippíu Kristj- ánsdóttur húsfreyju. 50 ára á föstudag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.