Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 50
50 lífsstíll umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 6. ágúst 2010 föstudagur sólbruna- smyrsl Ekkert er verra en að brenna í sterkri sumarsólinni. Hér er uppskrift að einföldu og áhrifaríku smyrsli sem auðvelt er að gera. n 5 msk. Aloe Vera-safi n 1 egg n 1/2 tsk. sítrónusafi n 3 tsk. sykur n 1 1/2 tsk. hrein jógúrt n smávegis maizenamjöl (ef þarf að þykkja blönduna) Byrjað er á þeyta saman Aloe Vera-saf- anum og eggi með gaffli þar til blandan er jöfn. Blandið síðan sykrinum saman við og hrærið þar til hann er uppleystur. notið aðra skál til að hræra jógúrt í þar til hún þynnist og bæta henni svo saman við blönduna. Ef blandan er ekki nógu þykk til að haldast á húðinni þá er tilvalið að bæta smá maizenamjöli út í hana. Kælið blönd- una í ísskáp. smyrjið svo á sólbrennda húð og látið liggja á eftir þörfum. Þvoið af með volgu vatni og mjúkum klút. Kartafla við baugum Erfitt getur ver- ið að losna við dökka bauga og þrútin augu. Svefn er oft talin góð lausn en stundum nægir hann ekki einn og sér. Mörg rándýr krem eru til sem eiga að draga úr baugunum en sjaldnast virka þau að viti. Leitið ekki langt yfir skammt því kartöflur munu vera góðar í baráttunni við baug- ana. Gott er að skera kartöfluna í þunnar sneiðar og leggja yfir aug- un. Einnig er hægt að skera hana niður með rifjárni og setja í grisju yfir augun. Kartöflur eru sagðar lýsa húðina undir augunum og minnka þrotann. Hvort það virk- ar skal ósagt en það sakar ekki að prófa! Eldhús- sKápa- sKrúbbur Það þarf ekki alltaf rándýrar snyrtimeðferðir til að gera húð- ina fína. Stundum er nóg að kíkja í eldhússkápana því þar er ýmis- legt að finna sem hægt er að nota til að búa til góðan andlitsskrúbb. Þessi skrúbbur er einfaldur, fljót- gerður og virkar vel. n 1 msk. matarsódi n 1 msk. hunang n 1 msk. ólífuolía Blandið hráefnunum saman í þykkni. makið yfir hreint andlit. Ef blandan dreifist illa þá má bæta smá vatni út í þykknið. Þegar blandan er skoluð af andlitinu byrja agnirnar í matarsódanum að virka. Klárið að skola af og njótið þess að hafa mjúka og slétta húð. Inni á vefsíðunni cosmeticsdata- base.com er hægt að slá inn nafn á snyrtivörum til að sjá hversu örugg- ar þær eru. Það kemur á óvart hversu mikið af eiturefnum leynast í snyrti- vörunum okkar. Í flestum snyrtivör- um eru nefnilega ótal mörg efni sem ekki eru í öllum tilvikum talin góð fyrir okkur. Mikið hefur verið fjall- að um efnið paraben sem leynist í flestum snyrtivörum. Efnið er tal- ið geta valdið krabbameini og hefur meðal annars verið tengt við fjölg- un á brjóstakrabbameinstilvikum á undanförnum árum. Er það þá tal- ið tengjast því að paraben er yfirleitt að finna í svitalyktareyði. Paraben og önnur efni sem eru talin hættuleg og leynast í snyrtivörum hafa verið tengd við hina ýmsu kvilla nútíma- mannsins. Það hafa þó ekki komið fram neinar beinar sannanir ennþá en margar vísbendingar benda til skaðsemi þessara efna. Það er alla- vega áhugavert að athuga málið. Hægt er að fá paraben-lausar vörur á Íslandi, meðal annars í Body Shop. viktoria@dv.is Hversu öruggar eru snyrtivörurnar þínar? Úrval snyrtivara snyrtivörur innahlda ýmis efni og ekki öll góð. poppaðu upp Við könnumst flestar við að vilja líta vel út þegar við förum út á lífið eða í fínni boð. Það getur kostað skildinginn að kaupa nýtt dress í hvert skipti og ekki allir sem hafa efni á því. Hér eru nokkur góð ráð um hvernig má gefa gömlu fötunum nýtt líf með nokkrum einföldum aukahlutum. gamla dressið 1. Næla Oft þarf ekki meira til en eina litla nælu til að fríska upp á gaml- an kjól. Hægt er að festa hana hjá brjóstmálinu eða hvar sem er. Stundum leynast svona gaml- ar fallegar nælur hjá mömmum, ömmum eða frænkum. Annars er líka hægt að fá flottar nælur í skartgripabúðum eða jafnvel á mörkuðum. Einnig er fallegt að nota nælurnar í klúta eða trefla. 2. Sokkabuxur Fallegar sokkabuxur gera heilmikið fyrir gamla kjólinn. Alls konar litir, mynstur, bara hvað sem er. Blómasokka- buxur hafa verið vinsælar í sumar og gera auðveldlega nýtt dress úr gamla kjóln- um. Sokkabuxur kosta mun minna en nýtt dress og hægt er að leika sér með mismun- andi liti. 3. Flottir skór Hælaháir skór gera hvaða dress sem er miklu fínna. Ef þú ætlar að fara beint eft- ir vinnu að fá þér drykk þá er sniðugt að geyma par af háhæluðum skóm í vinnunni og þannig geturðu poppað vinnufötin upp á auðveldan hátt. Maður virkar hærri og flott- ari í háum skóm en það eru þó ekki allir sem geta gengið á hælum. Þá er gott að tryggja sér par af skóm með fylltum botni sem hafa ver- ið mikið í tísku undanfarið, það er þægilegra að ganga í þeim en þeir gefa manni samt aukna hæð og reisn í leiðinni. 4. Rauður varalitur Hljómar kannski ekki sannfærandi en rauður varalitur getur gert kraftaverk fyrir útlitið á stuttum tíma. Maður verður svo sannarlega meira „eleg- ant“ með rauðan varalit. Allar helstu dívur fyrri áratuga notuðu rauða varaliti við svörtu kjólana sína. Það þarf oft ekki mikið til, rétti varaliturinn gerir heilmikið til að tryggja manni nýtt útlit. 5. Hárskraut Auðveld og falleg leið. Finndu fallega hárspöng með skrauti eða skreyttan kamb og gerðu eitthvað nýtt við hárið á þér. Fallegt er til dæmis að setja hárið upp og festa kambinn til hliðar – þar sem hann sést. Ef þú ert handlagin þá er auð- velt að búa til svona hárskraut sjálf. Þá er bara að kaupa spöng, kamb eða spennu og festa á skraut. Ef þú ert ekki handlag- in þá er hægt að fá hárskraut í mörgum tískubúðum. 6. Fallegir skartgripir Nýir eyrnalokkar, fallegt hálsmen eða armband geta gert mikið fyrir gamla dressið. Litríkir skartgripir gera heild- arútlitið glaðlegra. Fallegir eyrnalokk- ar og hárið tekið upp gefa fallegt sígilt útlit og síðir eyrnalokkar og slegið hár gefa frjálslegra útlit. Þó gildir það hér að minna er meira, það er ekki fallegt að hlaða of mörgum skartgripum á sig og líta út eins og illa skreytt jólatré. 7. Hárgreiðsla Láttu gera eitthvað nýtt við hárið á þér. Önnur skipt- ing, greiðsla eða blást- ur getur breytt útlitinu heil mikið og forðað þer frá kjólakaupum. Fléttu- greiðslur hafa verið mjög vinsælar undanfarið. Auð- veld og ódýr aðferð til að öðlast algjörlega nýtt útlit á stuttum tíma. 8. Belti Fallegt belti við gamla kjólinn getur gert mikið. Falleg belti fást í flestum búðum og oft er hægt að fá skemmtileg gamaldags belti í búðum sem selja notuð föt. Rétta beltið getur poppað upp gamla kjólinn á mettíma. Ef þú ert að fara eitthvað fínt þá er betra að nota belti sem er mjótt og jafnvel gyllt eða silfrað. Það gefur fínna útlit.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.