Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 4
BISKUP FÉKK GÓÐ RÁÐ n Ólafur Skúlason biskup virðist hafa verið vinsæll meðal valda- manna í samfélaginu og sann- ast þar ákveð- in samtrygging hvítra, mið- aldra yfirstétt- arkarla. Hann sagði sjálfur frá því að forsæt- isráðherrann Davíð Odds- son hefði gefið honum góð ráð. Auk þess segir Þór Jónsson, blaðamaður á Pressunni, frá því að Jón Ólafsson, þá eigandi Stöðvar 2, hefði gefið biskupi góð ráð um hvernig bregðast mætti við „almannatengslavandanum“. Miðað við viðbrögð Ólafs í fjölmiðl- um fékk hann þær ráðleggingar að þræta fyrir allt og bíða gleymsku fjölmiðla og þjóðar. Það virkaði mjög vel. NÍUTÍU ORÐUR Á EINU ÁRI n Vigdís Finnbogadóttir forseti veitti Ólafi Skúlasyni biskupi fálka- orðuna eigi sjaldnar en fjórum sinnum á árun- um 1982 til 1992. Þetta kann að þykja merkilegt, en einungis ef horft er fram hjá því að enginn kvóti er á veit- ingu fálkaorð- unnar. Þannig fengu yfir níutíu manns fálkaorðu árið 1996, árið sem ásakanirnar gegn Ólafi fóru hæst. Grínið í síð- asta áramótaskaupi um að fálka- orður fengjust með Cheerios-pökk- um var ekki svo fjarri lagi. BÍÐA SPENNTIR EFTIR SJÓVÁ n Áhugamenn um viðskipti og efnahagsmál bíða nú spenntir eft- ir því að greint verði frá því hver fái að kaupa tryggingafélagið Sjóvá af Glitni, Íslandsbanka og íslenska ríkinu. Eins og kom- ið hefur fram í fjölmiðlum á fjárfestahópur í tengslum við Heiðar Má Guðjónsson, fjárfesti og fyrrverandi samstarfsmann Björgólfs Thors Björgólfssonar, í viðræðum við Íslandsbanka en bankinn sér um söluna á trygg- ingafélaginu. Heiðar Már mun vera eini aðilinn sem starfsmenn bank- ans ræða nú við. Ekki liggur fyrir hvenær gengið verður frá sölunni á tryggingafélaginu fræga en ætla má að það verði fyrir lok þessa árs. SANDKORN 4 FRÉTTIR 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR LAGERSALA www.xena.is Mikið af fínum skóm í leikfiminano1 - st. 28-35 verð kr. 3995.- no2 - st. 41-47 verð kr. 7995.- no3 - st. 36-41 verð kr. 7495.- Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 Félag spennusagnahöfundarins greiddi 7 milljónir í arð: Tapaði rúmri milljón Eignarhaldsfélag Yrsu Sigurðar- dóttur, spennusagnahöfundar og verkfræðings, skilaði tapi upp á rúmlega 1,2 milljónir árið 2008. Þetta kemur fram í ársreikningi fé- lags Yrsu fyrir það ár. Yrsa, sem er einn af þekktari spennusagnahöf- undum þjóðarinnar, er því ansi langt frá því að hafa náð sams kon- ar fjárhagslegri velgengni og Arn- aldur Indriðason, þekktasti glæpa- sagnahöfundur þjóðarinnar. Félag Arnaldar skilaði tæplega 80 millj- óna hagnaði árið 2008. Félag Yrsu heitir Yrsa Sigurðar- dóttir ehf. og er tilgangur þess bók- ritun, útgáfa og fjárfestingar er- lendis. Yrsa hefur orðið þekkt hér á landi á liðnum árum fyrir bæk- ur eins og Sér grefur gröf, Ösku og Auðnina og nýtur hún nokk- urrar hylli erlendis þar sem bæk- ur hennar hafa verið gefnar út á fjölda tungumála. Þó að félag Yrsu hafi skilað tapi árið 2008 skilaði félagið hins vegar nærri 1,5 milljónum í hagnað árið 2007. Þá var eiginfjárstaða félags- ins jákvæð um nærri níu milljón- ir króna. Þessi staða félagsins árið 2007 gerði Yrsu kleift að greiða sér nærri 7 milljónir króna í arð árið 2008 en þá var eiginfjárstaðan já- kvæð um nærri 7,5 milljónir króna. Ársreikningur Yrsu sýnir því að hún er annar spennusagnahöf- undur sem hefur ágætlega upp úr því að skrifa og selja bækur, jafnvel þó félag hennar hafi skilað tapi á árinu 2008. ingi@dv.is 6,8 milljónir í arð Yrsa greiddi sér 6,8 milljónir króna í arð árið 2008 vegna rekstrarársins 2007, þá skilaði félagið hagnaði. Náin samskipti voru milli forsvarsmanna Geysis Green Energy og Magma Energy annars vegar og iðnaðarráðuneytisins hins vegar um uppkaup Magma á HS Orku. Tölvupóstar sem DV hefur undir höndum leiða í ljós þessi samskipti sem snérust fyrst og fremst um lagalegar hliðar málsins. „Sæll félagi Össur og til hamingju með úrslit kosninganna,“ skrifar Ás- geir Margeirsson, forstjóri Geysir Green Energy, í tölvupósti til Össurar Skarphéðinssonar, þáverandi iðnað- arráðherra, þann 27. apríl í fyrra. Tölvupóstar sem DV hefur undir höndum gefa mynd af samskiptum embættismanna í iðnaðarráðuneyt- inu og ráðherra við Ásgeir og aðra um sölu HS Orku til Magma Energy. Ásgeir segir jafnframt í umrædd- um tölvupósti að viðræður standi yfir við Magma Energy. „Við erum á kafi í viðræðum við Magma Energy og Reykjanesbæ um framtíðarmunst- ur orkumálanna á Suðurnesjum. Það væri mjög gott ef hægt væri að fá stund með þér næstu daga til að gera grein fyrir stöðunni. Ég þarf vart að taka fram að hluti málsins er sala auðlindanna til sveitarfélaga.“ Ásgeir gerir Össuri síðar grein fyr- ir því að Magma-menn verði á land- inu innan tíðar og gott væri að geta gert honum grein fyrir stöðunni. Degi síðar svarar Kristján Skarp- héðinsson, ráðuneytisstjóri í iðnað- arráðuneytinu, að Pétur Örn Sverr- isson og Guðjón Axel Guðjónsson ráðuneytismenn muni hitta Magma- menn við komuna til landsins. Viljayfirlýsing Ásgeir Margeirsson þakkar góð við- brögð í svarpósti sínum og kveðst vera að vinna að samkomulagi Mag- ma, GGE og Reykjanesbæjar um fjár- festingar í HS Orku „sem miða að því að Reykjanesbær selji mest allan sinn hlut og Geysir og Magma kaupi, þannig að Geysir verður meirihluta- eigandi. Geysir selur ennfremur hlut sinn í HS-Veitum til Reykjanesbæj- ar. Auðlindir HS Orku verða auk þess seldar Reykjanesbæ.“ Ásgeir lýkur bréfi sínu með því að segja að hugmyndin með fundinum sé að fræða gestina (Magma Energy) um lagalegt umhverfi orkumarkaðar hér á landi. Kristján ráðuneytisstjóri lét í það skína að ráðherranum þætti best að fá menn í sófann til sín. Niðurstaðan varð sú að Ásgeir, Ross Beaty og Eyjólfur Árni Rafns- son, stjórnarformaður GGE á þess- um tíma, boðuðu komu sína til Öss- urar iðnaðarráðherra. Viku efir fundinn sendi Ásgeir Margeirsson Össuri tölvupóst og þakkaði góðan fund. „Vinna þessa viðfangsefnis gengur vel og það verð- ur vonandi hægt að segja frá eftir ca. 2 mánuði eða rúmlega það. Það þarf að klára nokkur mál í millitíðinni.“ Þann 15. maí í fyrra sendir Ásgeir svo tölvupóst til iðnaðarráðuneyt- isins ásamt uppkasti að viljayfirlýs- ingu. Í viljayfirlýsingunni er gert ráð fyrir að viðsemjandi iðnaðarráðu- neytisins sé Magma Energy Sweden AB, það er að segja Magma í Svíþjóð. Gert er ráð fyrir að samningurinn feli í sér að Magma festi kaup á meiri- hlutanum í HS Orku. Jafnframt er tekið fram að Magma tryggi raforku- sölu til álvers í Helguvík. Snúum ofan af vitleysunni Málinu vindur fram og fjallað var um það í fjölmiðlum á þessm tíma. Þann 8. júní í fyrra sendir Ásgeir tölvupóst til Kristjáns Skarphéðinssonar ráðu- neytisstjóra. „Já þetta gæti farið í loft- ið á fimmtudag í tengslum við bæjar- ráðsfund í Reykjanesbæ. Mér finnst mjög gott ef ég fæ tækifæri til að upp- lýsa ráðherra en það hugsanlega ger- ist,“ segir í póstinum. Fjölmiðlaumfjöllun heldur áfram um málið og þann 3. júlí í fyrra virð- ist Ásgeir orðinn áhyggjufullur og skrifar Össuri og Kristjáni ráðuneyt- isstjóra eftifarandi: „Sælir kapp- ar. Nú er suðið komið fram sem við áttum von á. Við erum að undirbúa svör um málið og það er virkilega þörf á að það komi fram frá yfirvöld- um að gjörningar okkar séu í takt við og vegna þeirrar löggjafar sem við búum við. Getið þið ekki komið fram skýringum á málinu til að „snúa ofan af vitleysunni“?“ Í kjölfar þessa eru allir fullvissað- ir um að sala á viðbótarhlutum í HS Orku til Magma Energy séu í sam- ræmi við landslög. Kemur það með- al annars fram í béfi sem Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, sendi Júlíusi Jónassyni, forstjóra HS Orku. Allt í eigu Magma Salan á HS Orku fór fram í áföngum eins og margir muna. Frá síðasta ári er þannig gert ráð fyrir að hlutur Magma í Svíþjóð aukist úr liðlega 40 prósent- um í HS Orku yfir í nær 99 prósent. Athygli vekur tölvupóstur Ásgeirs til ráðuneytismanna þann 11. júlí. Þar er vísað í frétt RÚV sem benti til þess að fulltrúar iðnaðarráðuneyt- isins hefðu gefið Magma-mönnum leiðbeiningar um stofnun félags í Sví- þjóð. „Ég skýrði út að á fundi í ráðu- neytinu höfðum við fengið skýringar á lögum og regluverki um erlendar fjár- festingar aðila á EES svæðinu. Magma hafi tekið ákvörðun um stofnun félags í Svíþjóð að fengnum ráðum sinna ráðgjafa, ekki ráðuneytisins.“ Síðan afsakar Ásgeir ef mátt hafi skilja hann á þann veg að ráðuneytið hafi gefið einhverjar leiðbeiningar um stofnun Magma í Svíþjóð. Um þetta atriði var síðan gefin út sérstök fréttatilkynning af hálfu iðnað- arráðuneytisins. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Kristján ráðu-neytisstjóri lét í það skína að ráðherr- anum þætti best að fá menn í sófann til sín. „SÆLL FÉLAGI ÖSSUR“ Ráðherrann Össuri Skarp- héðinssyni þótti betra að fá mennina í sófann til sín til þess að tala við þá. Slagurinn um orkuna Eignarhaldið á HS Orku færðist í þrepum til Magma Energy í Svíþjóð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.