Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 45
föstudagur 27. ágúst 2010 umsjón: helgi hrafn guðmundsson helgihrafn@dv.is krýtið 45
Hann er síðasti eftirlifandi með-limur indjánaættbálks í Ama-són-frumskóginum í Brasilíu. Hann býr aleinn innan um dýr-in í frumskóginum – baneitrað-
ar köngulær, kattliðuga apa og hrínandi villi-
svín. Fæstir myndu koma auga á hann þó þeir
römbuðu fyrir slysni á svefnstað hans, því hann
fellur inn í landslagið líkt og marfló á svartri
fjöru. Hann er einangraðasti maður veraldar.
Brasilísk yfirvöld fengu fyrst veður af mann-
inum fyrir um fimmtán árum. Menn kom-
ust að því að hann væri síðasti meðlimur ætt-
bálks sem menn vissu sárfátt um, annað en
það sem nokkrir frumskógarfarar höfðu vitn-
að um í stuttu máli áratugum fyrr. Næstu árin
eftir að maðurinn uppgötvaðist gerðu yfirvöld
út nokkra leiðangra, sem farnir voru til þess að
kanna lifnaðarhætti hans, hvort hann væri við
heilsu og vanhagaði um eitthvað. Þá kom í ljós
að skelfilegir atburðir höfðu gerst í frumskógin-
um.
Árið 2007, þegar skógarhögg var hafið víða
í nágrenni við manninn, ákváðu stjórnvöld að
helga manninum verndarsvæði. Bannað er
að ferðast – eða gera nokkuð annað – á land-
svæðinu, í fimmtíu kílómetra radíus í kringum
manninn. Og hann er ennþá í frumskóginum,
aleinn.
stjórnvöld aðstoða manninn
Eins og bandaríski blaðamaðurinn Monte Reel
segir frá í nýrri bók sinni um manninn, Last of
the Tribe (ísl. Sá síðasti af ættflokknum) hef-
ur það áður gerst í sögunni að fólk hafi lifað
óáreitt á afskekktum stöðum og hvergi komist
í tæri við samfélag manna í þjóðríkjunum þar
sem þeir búa. En Monte Reel skrifar að maður-
inn í Brasilíu sé þó einstakur, ekki fyrir það eitt
hversu öfgakennd einsemd hans er, né að bras-
ilísk stjórnvöld viti af honum, heldur hvern-
ig þau hafi brugðist við – og komið honum til
hjálpar. Blaðamaðurinn rekur í bókinni að Bras-
ilíustjórn prófi nú nýjar leiðir til verndunar við-
kvæmum og einangruðum ættflokkum. Í tilviki
einangraða mannsins miða þær að því að hann
fái sjálfur að velja hvort hann vilji hafa samskipti
við umheiminn. Hann verði látinn óáreittur vilji
hann ekki hafa samneyti við nútímaþjóðfélagið.
Það hefur ítrekað gerst á síðustu áratugum að
meðlimir ættflokka á afskekktum stöðum hafi
lent í miklum vanda og óhamingju þegar þeir
neyddust til að aðlagast „nútímanum“. Hin nýja
stefna stjórnvalda miðar að því þveröfuga – að
varðveita menningu ættflokkanna með því að
láta þá afskiptalausa og verja landsvæði þeirra
fyrir ágangi samfélagsins.
vopnaður boga
Umheimurinn uppgötvaði manninn árið 1996
þegar ferðalangar í frumskóginum sögðu frá
honum. Útsendarar yfirvalda, sérfræðingar í
einangruðum ættbálkum, fóru inn í skóginn og
fundu lítinn yfirgefinn laufkofa með dularfullri
holu í miðjunni. Þeir komust að því að maður-
inn var á flótta – hljóp frá einum kofa í annan og
var stöðugt í felum.
Útsendararnir fundu hann loksins. Hann var
nakinn, virtist vera á fertugsaldri (hann er því
að nálgast fimmtugt í dag), og var ávallt vopn-
aður boga og örvum. Það var ekki auðvelt að
nálgast manninn, hann brást illa við truflun-
inni og skaut ör í brjóstið á einum komumann-
anna. En útsendararnir komust að því að mað-
urinn hafði upplifað hræðilega atburði. Þeir
fundu kofarústir og fundu út að það hafði verið
þorpið hans, sem gráðugir landnemar og skóg-
arhöggsmenn höfðu brennt skömmu áður og
líklega drepið alla meðlimi ættbálksins – fyr-
ir utan hann. Skömmu áður hafði komið í ljós
að grimmir menn höfðu myrt meðlimi annarra
ættbálka í grenndinni.
grimmir skógarhöggsmenn
Í þessum hluta Amasón-frumskógarins, í Rond-
onia-fylki í vesturhluta Brasilíu, við landamæri
Bólivíu – og víðar – hafa menn stundað eitt
mesta skógarhögg sögunnar á stuttum tíma, þar
sem þúsundum hektara af skóglendi hefur ver-
ið rutt í burtu, á kostnað plantna, dýra og ætt-
bálkanna sem hafa búið í frumskóginum í þús-
undir ára.
Manninum hefur, eins og áður segir, nú ver-
ið helgað verndarsvæði og hann getur enn ráfað
einn í frumskóginum sínum. Hann býr til eigin
vopn, veiðir sér til matar, safnar ávöxtum. Hann
ræktar dálítið af maís og kassava og safnar hun-
angi úr býflugnabúum í trjábolum. Hann er líkt
og síðasti íbúi veraldar sem nú mun líða und-
ir lok.
hversu lengi?
Monte Reel spyr hversu lengi maðurinn geti
enst, aleinn í frumskóginum, á öld tækninýj-
unga sem færa mennina stöðugt nær hver öðr-
um. „Ég sé á Facebook hvað fólk í öðrum heims-
álfum fær sér í morgunmat. Stórfyrirtæki og
stjórnvöld seilast nú sem aldrei fyrr lengra í leit
sinni að auðlindum. Hvernig getur það verið að
enginn hafi sturtað þessum manni niður enn-
þá?“
En Reel bendir á að margir Brasilíumenn
telji að tækniþróun muni þvert á móti hjálpa
fólki á borð við umræddan indjána. Sérfræðing-
ar stjórnvalda, sem hafa hjálpað indjánunum,
segja að eftir því sem fleiri heyri af örlögum ein-
angraða mannsins – sem er alltaf að verða auð-
veldara, og gerist til dæmis með þessari blaða-
grein – því öruggari verði hann fyrir árásum
ónefndra landnema í frumskóginum. „Google
Earth og önnur kortaforrit geta aðstoðað við að
vakta svæðið hans. Í stað þess að leggja af stað
í truflandi leiðangra inn í frumskóginn til ætt-
bálkanna, til að athuga hvort þeir séu við heilsu,
hafa brasilísk stjórnvöld lýst því yfir að þau ætli
að gera tilraunir með hitasæknum mælum sem
verði notaðir í flugvélum sem fljúga nógu hátt
til að valda engri truflun á landi,“ skrifar Monte
Reel, sem hefur þó miklar áhyggjur af velferð
einangraðasta manns í heimi – og allra hinna
indjánanna sem eru í svipuðum sporum.
helgihrafn@dv.is
Hvernig getur það verið að
enginn hafi sturtað
þessum manni niður
enn þá?
Í nýútkominni bók eftir bandarískan blaðamann er
einum einangraðasta manni jarðar lýst. Hann er síðasti
eftirlifandi meðlimur ættbálks í amasón-frumskógin-
um í Brasilíu. Hættur steðja að honum úr öllum áttum
vegna gráðugra landnema og skógarhöggsmanna
sem ráðast á frumskóginn og tortíma hinni ævafornu
veröld sem indjánarnir hafa byggt í þúsundir ára.
Einangraðasti
maður veraldar
gengið á skóginn Gríðarlegt skógarhögg er
stundað í Amasón og hefur valdið lífríkinu – og
mönnum – miklum skaða. mynd reuters
lítill laufkofi maðurinn hafði reist sér
marga kofa á ólíkum stöðum í frumskógin-
um, þegar menn fundu hann fyrst.
mynd altair algayer, vincent carelli og fred alves
felur sig Á þessari ljósmynd sem brasilískir
sérfræðingar tóku við vettvangsferð í frumskóg-
inum, sést einangraði maðurinn í kofa sínum.
mynd altair algayer, vincent carelli og fred alves