Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 45
föstudagur 27. ágúst 2010 umsjón: helgi hrafn guðmundsson helgihrafn@dv.is krýtið 45 Hann er síðasti eftirlifandi með-limur indjánaættbálks í Ama-són-frumskóginum í Brasilíu. Hann býr aleinn innan um dýr-in í frumskóginum – baneitrað- ar köngulær, kattliðuga apa og hrínandi villi- svín. Fæstir myndu koma auga á hann þó þeir römbuðu fyrir slysni á svefnstað hans, því hann fellur inn í landslagið líkt og marfló á svartri fjöru. Hann er einangraðasti maður veraldar. Brasilísk yfirvöld fengu fyrst veður af mann- inum fyrir um fimmtán árum. Menn kom- ust að því að hann væri síðasti meðlimur ætt- bálks sem menn vissu sárfátt um, annað en það sem nokkrir frumskógarfarar höfðu vitn- að um í stuttu máli áratugum fyrr. Næstu árin eftir að maðurinn uppgötvaðist gerðu yfirvöld út nokkra leiðangra, sem farnir voru til þess að kanna lifnaðarhætti hans, hvort hann væri við heilsu og vanhagaði um eitthvað. Þá kom í ljós að skelfilegir atburðir höfðu gerst í frumskógin- um. Árið 2007, þegar skógarhögg var hafið víða í nágrenni við manninn, ákváðu stjórnvöld að helga manninum verndarsvæði. Bannað er að ferðast – eða gera nokkuð annað – á land- svæðinu, í fimmtíu kílómetra radíus í kringum manninn. Og hann er ennþá í frumskóginum, aleinn. stjórnvöld aðstoða manninn Eins og bandaríski blaðamaðurinn Monte Reel segir frá í nýrri bók sinni um manninn, Last of the Tribe (ísl. Sá síðasti af ættflokknum) hef- ur það áður gerst í sögunni að fólk hafi lifað óáreitt á afskekktum stöðum og hvergi komist í tæri við samfélag manna í þjóðríkjunum þar sem þeir búa. En Monte Reel skrifar að maður- inn í Brasilíu sé þó einstakur, ekki fyrir það eitt hversu öfgakennd einsemd hans er, né að bras- ilísk stjórnvöld viti af honum, heldur hvern- ig þau hafi brugðist við – og komið honum til hjálpar. Blaðamaðurinn rekur í bókinni að Bras- ilíustjórn prófi nú nýjar leiðir til verndunar við- kvæmum og einangruðum ættflokkum. Í tilviki einangraða mannsins miða þær að því að hann fái sjálfur að velja hvort hann vilji hafa samskipti við umheiminn. Hann verði látinn óáreittur vilji hann ekki hafa samneyti við nútímaþjóðfélagið. Það hefur ítrekað gerst á síðustu áratugum að meðlimir ættflokka á afskekktum stöðum hafi lent í miklum vanda og óhamingju þegar þeir neyddust til að aðlagast „nútímanum“. Hin nýja stefna stjórnvalda miðar að því þveröfuga – að varðveita menningu ættflokkanna með því að láta þá afskiptalausa og verja landsvæði þeirra fyrir ágangi samfélagsins. vopnaður boga Umheimurinn uppgötvaði manninn árið 1996 þegar ferðalangar í frumskóginum sögðu frá honum. Útsendarar yfirvalda, sérfræðingar í einangruðum ættbálkum, fóru inn í skóginn og fundu lítinn yfirgefinn laufkofa með dularfullri holu í miðjunni. Þeir komust að því að maður- inn var á flótta – hljóp frá einum kofa í annan og var stöðugt í felum. Útsendararnir fundu hann loksins. Hann var nakinn, virtist vera á fertugsaldri (hann er því að nálgast fimmtugt í dag), og var ávallt vopn- aður boga og örvum. Það var ekki auðvelt að nálgast manninn, hann brást illa við truflun- inni og skaut ör í brjóstið á einum komumann- anna. En útsendararnir komust að því að mað- urinn hafði upplifað hræðilega atburði. Þeir fundu kofarústir og fundu út að það hafði verið þorpið hans, sem gráðugir landnemar og skóg- arhöggsmenn höfðu brennt skömmu áður og líklega drepið alla meðlimi ættbálksins – fyr- ir utan hann. Skömmu áður hafði komið í ljós að grimmir menn höfðu myrt meðlimi annarra ættbálka í grenndinni. grimmir skógarhöggsmenn Í þessum hluta Amasón-frumskógarins, í Rond- onia-fylki í vesturhluta Brasilíu, við landamæri Bólivíu – og víðar – hafa menn stundað eitt mesta skógarhögg sögunnar á stuttum tíma, þar sem þúsundum hektara af skóglendi hefur ver- ið rutt í burtu, á kostnað plantna, dýra og ætt- bálkanna sem hafa búið í frumskóginum í þús- undir ára. Manninum hefur, eins og áður segir, nú ver- ið helgað verndarsvæði og hann getur enn ráfað einn í frumskóginum sínum. Hann býr til eigin vopn, veiðir sér til matar, safnar ávöxtum. Hann ræktar dálítið af maís og kassava og safnar hun- angi úr býflugnabúum í trjábolum. Hann er líkt og síðasti íbúi veraldar sem nú mun líða und- ir lok. hversu lengi? Monte Reel spyr hversu lengi maðurinn geti enst, aleinn í frumskóginum, á öld tækninýj- unga sem færa mennina stöðugt nær hver öðr- um. „Ég sé á Facebook hvað fólk í öðrum heims- álfum fær sér í morgunmat. Stórfyrirtæki og stjórnvöld seilast nú sem aldrei fyrr lengra í leit sinni að auðlindum. Hvernig getur það verið að enginn hafi sturtað þessum manni niður enn- þá?“ En Reel bendir á að margir Brasilíumenn telji að tækniþróun muni þvert á móti hjálpa fólki á borð við umræddan indjána. Sérfræðing- ar stjórnvalda, sem hafa hjálpað indjánunum, segja að eftir því sem fleiri heyri af örlögum ein- angraða mannsins – sem er alltaf að verða auð- veldara, og gerist til dæmis með þessari blaða- grein – því öruggari verði hann fyrir árásum ónefndra landnema í frumskóginum. „Google Earth og önnur kortaforrit geta aðstoðað við að vakta svæðið hans. Í stað þess að leggja af stað í truflandi leiðangra inn í frumskóginn til ætt- bálkanna, til að athuga hvort þeir séu við heilsu, hafa brasilísk stjórnvöld lýst því yfir að þau ætli að gera tilraunir með hitasæknum mælum sem verði notaðir í flugvélum sem fljúga nógu hátt til að valda engri truflun á landi,“ skrifar Monte Reel, sem hefur þó miklar áhyggjur af velferð einangraðasta manns í heimi – og allra hinna indjánanna sem eru í svipuðum sporum. helgihrafn@dv.is Hvernig getur það verið að enginn hafi sturtað þessum manni niður enn þá? Í nýútkominni bók eftir bandarískan blaðamann er einum einangraðasta manni jarðar lýst. Hann er síðasti eftirlifandi meðlimur ættbálks í amasón-frumskógin- um í Brasilíu. Hættur steðja að honum úr öllum áttum vegna gráðugra landnema og skógarhöggsmanna sem ráðast á frumskóginn og tortíma hinni ævafornu veröld sem indjánarnir hafa byggt í þúsundir ára. Einangraðasti maður veraldar gengið á skóginn Gríðarlegt skógarhögg er stundað í Amasón og hefur valdið lífríkinu – og mönnum – miklum skaða. mynd reuters lítill laufkofi maðurinn hafði reist sér marga kofa á ólíkum stöðum í frumskógin- um, þegar menn fundu hann fyrst. mynd altair algayer, vincent carelli og fred alves felur sig Á þessari ljósmynd sem brasilískir sérfræðingar tóku við vettvangsferð í frumskóg- inum, sést einangraði maðurinn í kofa sínum. mynd altair algayer, vincent carelli og fred alves
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.