Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
25% afsláttur
af hvítum háglans innréttingum
Sérhæfum okkur
í innréttingum
fyrir heimili á
lágmarksverði
Straumur-Burðarás þarf að fá greiðslustöðvun sína og nauðasamning samþykktan fyrir dómstóli á Cay-
man-eyjum og í Kanada til að samningarnir öðlist gildi. Mál Straums verður tekið fyrir á Cayman-eyjum í
byrjun september. Talsmaður Straums segir að eignir Straums á Cayman séu fyrst og fremst ýmiss konar
sjóðir. Hann segir að málareksturinn á Cayman sé formsatriði.
Fjárfestingabankinn Straumur-
Burðarás á töluverðar eignir í skatta-
skjólinu Cayman-eyjum. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu til kröfuhafa
bankans sem hefur verið send til
þeirra í tengslum við dómþing sem
fram fer á vegum bankans á Cay-
man-eyjum í byrjun september. Til-
kynningin um dómþingið var birt á
vef Straums-Burðaráss og á heima-
síðu Lögbirtingablaðsins á fimmtu-
dag.
Dómþingið er háð á Cayman-eyj-
um vegna þess að Straumur á „um-
talsverðar eignir“ þar eins og það
er orðað í tilkynningunni til kröfu-
hafa bankans. Á dómþinginu verð-
ur leitað eftir staðfestingu kröfu-
hafa á nauðasamningi Straums en
hann var staðfestur hér á landi fyrir
skömmu. Með staðfestingu nauða-
samningsins hér á landi öðlaðist
hann einnig staðfestingu í öðrum
löndum Evrópska efnahagssvæðis-
ins (EES). Cayman-eyjar eru, eins
og liggur í augum uppi miðað við
legu þeirra í Karíbahafinu, ekki hluti
af Evrópska efnhagssvæðinu og því
þarf að heyja dómþing vegna nauða-
samningsins á Cayman-eyjum sem
og í Kanada svo hann öðlist gildi þar
í landi.
Formsatriði segir talsmaður
Straums
Stefán Broddi Guðjónsson, sem
sér um samskipti við fjölmiðla hjá
Straumi, segir að einungis sé um
formsatriði að ræða. Hann segir að
Straumur þurfi að fá staðfestingu
á samningnum á Cayman-eyjum
og í Kanada til þess að hann öðlist
gildi þar í landi. Í tilkynningunni frá
Straumi um málaferlin í Kanada var
tilgangur málaferlanna orðaður á
eftirfarandi hátt: „Greiðslustöðvun-
ar- og nauðasamningsferlið á Íslandi
fær sjálfkrafa staðfestingu í öllum
löndum á Evrópska efnhagssvæðinu
en ekki utan þess. Þar sem fyrirtæk-
ið á umtalsverðar eignir í Kanada,
Bandaríkjunum og á Cayman-eyjum
var tekin ákvörðun um að leita eftir
staðfestingu á bæði greiðslustöðv-
uninni og nauðasamningi bank-
ans í báðum þessum löndum. Lög
í Kanada og Cayman-eyjum kveða
á um að senda beri tilkynningar í
tölvupósti til allra kröfuhafa og að
birta beri þær á heimasíðu bankans.
Bandaríkin gera ekki sambærilega
kröfu.“
Stefán Broddi segir að hann telji
þó ekki að í þessu felist að kröfuhafar
bankans í þessum löndum geti hafn-
að greiðslustöðvun og nauðasamn-
ingi Straums og að því sé einungis
um formsatriði að ræða. „Við þurf-
um einfaldlega að fá greiðslustöðv-
unina og nauðasamningana stað-
festa utan EES svo fyrir liggi að þetta
ferli hafi átt sér stað.“
Eiga sjóði á Cayman
Stefán Broddi segir, aðspurður um
hvaða eignir Straumur eigi á Caym-
an, að um sé að ræða sjóði sem
skráðir eru þar í landi. „ Þetta eru
eignir í sjóðum sem Straumur á,“
segir Stefán Broddi.
Því liggur ekki fyrir hversu miklar
eignir er um að ræða sem Straumur
á þar í landi né af hverju bankinn á
eignir þar.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
STÓREIGNIR Á CAYMAN
Tikynningin um dómþingið í Lögbirt-
ingablaðinu:
„Hér með tilkynnist að dómþing
verður háð fyrir dómstóli Cayman
Eyja 8. september 2010 klukkan
9:30 árdegis. Tekin verður fyrir krafa
Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka
hf. (félagsins), sett fram í nafni
aðstoðarmanns félagsins á greiðslu-
stöðvunartíma, um dómsúrskurð
þess efnis að kröfuhöfum félagsins
við verði óheimilt að höfða mál gegn
félaginu.
Kröfuhafar félagsins eiga kost á að
mæta á dómþingið. Hyggist kröfuhafi
félagsins, einn eða fleiri, mæta á dóm-
þingið, skal viðkomandi, eigi síðar en
við lok viðskiptadags föstudagsins 3.
september 2010, tilkynna það Barnaby
Gowrie of Walkers, sem fer með málið
fyrir hönd félagsins.“
TILKYNNINGIN Við þurfum ein-faldlega að fá
greiðslustöðvunina og
nauðasamningana stað-
festa utan EES svo fyrir
liggi að þetta ferli hafi
átt sér stað.
Málaferli á Cayman Straumur-Burðarás þarf
að fá staðfestingu á greiðslustöðvun bankans og
nauðasamningi fyrir dómstóli á Cayman-eyjum
í Karíbahafinu. Ástæðan er sú að bankinn á
umtalsverðar eignir á Cayman-eyjum.