Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 39
föstudagur 27. ágúst 2010 viðtal 39 en mér fannst mjög erfitt að taka við þessum upplýsingum og varð oft bara reið,“ segir Arna hugsandi og bætir svo við: „Auðvitað hugs- ar maður margt eftir á en ég gerði allt sem ég gat fyrir hana. Dyr mínar stóðu alltaf opnar fyr- ir hana þegar hún var edrú. Það erfiðasta sem ég hef gert var að þurfa að reka hana í burtu en í fyrrasumar, þegar hún hafði verið í burtu í tíu mánuði, birtist hún hérna í neyslu. Ég fékk áfall því ég hafði aldrei séð hana svona illa útlítandi. Sonur hennar var hér heima og ég gat ekki leyft honum að sjá hana og sagði henni að fara. Ég hef ekki jafnað mig á því. Sem betur fer komst hún inn á geðdeild en þetta var í síðasta skiptið sem hún kom hingað.“ Vonleysi í augum Síðustu jól munu líklega aldrei renna Örnu úr minni en fjölskyldan eyddi jólunum saman fyrir sunnan. „Ég þrýsti á öll systkinin að koma og við fengum þann litla í heimsókn til okkar á jóla- dag. Sigrún fékk bæjarleyfi og átti að skila sér á meðferðarstofnun á jóladagskvöld. Ég gleymi aldrei hvað hún leit vel út en ég sá vonleysið í augum hennar. Ég þurfti hreinlega að loka mig af til að gráta og ég sagði við pabba hennar að ég hefði aldrei séð hana svona og að ég héldi að þetta væri að verða búið hjá henni. Það hafði alltaf verið svo gaman hjá systkinunum þegar þau hittust en þarna haggaðist hún ekki. Fíknin togaði í hana. Á jóladag brotnaði hún niður. Ég held að hún hafi skynjað að hún hafi verið búin að missa öll tengsl við litla strákinn sinn. Henni leið svo illa og sagðist ekki geta þetta lengur. Eftir á að hyggja var kannski ekki sniðugt fyrir hana að hitta okkur þarna en þessi tími var okk- ur ómetanlegur,“ segir Arna sem kvaddi dóttur sína á jóladag með þeim orðum að nú yrði hún að standa sig. „Ég sagði við hana að hún mætti ekki gefast upp. Hún yrði að klára meðferðina því ef hún færi út núna myndi hún deyja. Ég sagði að þetta væri hennar síðasti möguleiki. Tveimur dögum síðar var hún farin út.“ Veit ekki hVort hún dó ein Sigrún var aftur komin á götuna milli jóla og ný- árs. Í það skiptið heyrði Arna lítið í henni. „Hún hafði alltaf haft samband við mig eða mömmu og pabba og látið okkur vita af sér. Hún var mjög náin afa sínum og ömmu. Þegar ég heyrði ekkert af henni í nokkra daga hafði ég miklar áhyggjur enda skelfilegt að fara að sofa á kvöld- in vitandi af barninu sínu á götunni. Barnsfaðir hennar var alltaf mjög góður við hana og þegar ég hafði ekkert heyrt lengi gat ég leitað til hans og hann gat spurst fyrir og látið mig vita,“ segir Arna. „Auðvitað er maður aldrei tilbúinn til að taka á móti svona fréttum, þegar einhver deyr, en ég var búin að finna á mér að eitthvað væri að ger- ast,“ segir Arna en Sigrún lést þann 13. febrúar síðastliðinn. „Ég veit ekki hvort hún var ein þeg- ar hún dó eða hvort hún var dáin þegar sjúkra- bíllinn kom. Ég er búin að reyna að fá þessar upplýsingar en hef ekkert fengið að vita. Ég fór suður til að ræða við lögregluna en það var mik- ið um að vera á lögreglustöðinni þennan dag- inn enda verið að handtaka einhvern mann fyr- ir efnahagsbrot og mér fannst eins og þeir hefðu engan tíma fyrir mig. Ég upplifði það þannig. Ég veit að hún dó inni á einhverjum gististað en ég vil fá að vita meira. Þótt það hjálpi ekkert myndi mér líða betur að vita að einhver hafi verið hjá henni þegar hún dó,“ segir hún og sársaukinn leynir sér ekki í rödd hennar. afmælisdagurinn fram undan „Ég veit ekki hvernig foreldri kemst yfir að missa barnið sitt en þetta verður að hafast. Fyrir strák- ana hennar og hin börnin mín. Mesta sjokkið fyrir mig var þegar hún féll aftur. Ég hef aldrei náð mér eftir það. Þetta er ekki bara búið að vera erfitt síðan í febrúar. Aðdragandinn er búinn að vera svo langur,“ segir Arna sem kvíðir fyrir 20. september en þá hefði Sigrún orðið þrítug. „Ég er búin að vera lasin meira og minna í allt sumar sem ég tel að séu hreinlega eftirköst og álag. Ég verð að reyna að byggja mig upp en það er erfitt. Ég bara verð, ef ég ætla að halda heilsu. Ég kvíði mikið fyrir afmælisdeginum hennar svo það er erfiður tími fram undan. Sonur okkar sem býr í Noregi hefur boðið okkur til sín og ferðalagið hittir einmitt á afmælisdaginn hennar. Ég var nú ekki hrifin af því en við fjölskyldan ætlum að halda afmæli í vikunni á undan þótt það verði ekki einmitt á afmælisdaginn hennar.“ Vogur gafst upp Arna og eiginmaður hennar, Viðar Gunnarsson, sem kom inn í líf Sigrúnar strax á fyrsta ári og hefur verið henni sem faðir síðan, eiga þrjú önn- ur börn. Arna segir öll systkinin hafa verið náin og að Sigrúnu hafi tekist að halda sambandi við þau öll þrátt fyrir óreglu. „Þetta hefur reynst börnunum mjög erfitt en hún og sonur okkar, sem var næstur henni í aldri, voru mjög náin. Þegar hann og kærasta hans eignuðust barn hjálpaði hún þeim mikið og hélt sér edrú í mán- uð. Eldri dóttir okkar býr í Reykjavík og var allt- af í sambandi við Sigrúnu þegar henni gekk vel og hún tekur missinn mjög nærri sér. Hún hefur ekki unnið úr þessari reynslu og getur varla tal- að um hana,“ segir Arna og bætir við að yngsta dóttirin búi á Akureyri og hafi verið í mjög miklu sambandi þegar Sigrún eignaðist yngri strákinn. „Þær voru mjög góðar vinkonur. Hún saknar hennar mikið en er samt ótrúlega dugleg og fer reglulega og heimsækir leiðið hennar.“ Sigrún átti margar meðferðir að baki en hún hafði einnig setið tvisvar inni í Kvennafangels- inu í Kópavogi. Mamma hennar segir starfsfólk- ið á geðdeild Landspítalans hafa reynst henni best en að hennar mati hafi Vogur brugðist dóttur hennar. „Það var enginn möguleiki á að koma henni þar inn. Þeir höfðu hreinlega gefist upp á henni. Fyrir okkur foreldrana var það ekki hægt. Í hvert skipti sem hún varð edrú varð ég að hafa von um að nú tækist þetta. Pabbi henn- ar var alltaf bjartsýnni en ég og sagði mér að halda í vonina því ef við hefðum ekki von ætt- um við ekkert.“ sjálfri sér Verst Sigrún var jarðsungin frá Glerárkirkju. Mamma hennar segir útförina hafa verið fallega og fjöl- menna. „Ég man lítið eftir þessum degi, þetta var allt svo óraunverulegt. Það var ekki fyrr en löngu seinna að raunveruleikinn skall á mér. Ég hef átt mjög erfitt frá því í vor. Stundum gleymi ég að hún sé dáin og ætla að fara segja henni eitthvað en þá man ég að ég á aldrei eftir að sjá hana aftur. Ég hef hvorki getað lesið minning- argreinarnar né farið yfir dótið hennar. Hún átti ekki mikið dót og það eina sem kom að sunn- an voru myndirnar hennar af strákunum. Hún var alltaf með þær á sér, sama hvað gekk á. Það er ótrúlegt að hún hafi ekki verið búin að týna þeim.“ Arna segir sögu dóttur sinnar sanna að eng- inn sé óhultur þegar kemur að fíkniefnum. „Það hefði enginn getað trúað því að þessi mann- eskja hefði endaði svona, því ljúfari mennskja var ekki til eins og sést á minningargreinunum. Hún talaði aldrei illa um neinn og hefði látið sinn síðasta aur ef systur hennar vantaði pen- ing. Hún var líka alltaf svo fín og mátti ekki vera með rót í hárinu, jafnvel þegar hún var nýkom- in af götunni. Sigrún var góð manneskja en var sjálfri sér verst.“ indiana@dv.is Fíknin öllu yFirsterka i saknar mömmu sinnar Eldri sonur Sigrúnar saknar bæði mömmu sinnar og litla bróður. mynd Bjarni eiríksson átta ára martröð Allt breyttist þegar Sigrún fór að heiman frá tveggja ára syni sínum og fór á kaf í neyslu. Eftir að hafa átt þrjú góð ár féll hún aftur og kom ekki heim aftur. mynd Bjarni eiríksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.