Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 8
BISKUPINN
OG BÖLVUNIN
n Umræðan um meint kynferð-
isbrot Ólafs Skúlasonar biskups
hefur tröllriðið íslensku samfélagi
síðustu daga eft-
ir að DV opnaði
málið upp á gátt
með viðtali við
Guðrúnu Ebbu
dóttur hans þar
sem hún sagði að
gera þyrfti málið
upp. Núverandi
biskup Íslands,
Karl Sigurbjörnsson, er kominn í
nokkuð erfiða stöðu vegna málsins
og spurning hvort honum sé áfram
sætt í embætti. Í ljósi þessarar um-
ræðu barst DV eftirfarandi vísa frá
skáldmæltum manni:
„Í tafli fáir treysta á Guð,
tilgangsleysið alltaf vex
og bölvun drepur bænasuð
ef biskup fer á einar sex.“
HLEGIÐ AÐ BJÖRGÓLFI
n Þau tíðindi berast úr íslensku
bönkunum að margir starfsmenn
þeirra hafi hlegið að tíðindunum
um meint skuldauppgjör Björ-
gólfs Thors Björgólfssonar fyrir
skömmu. Þá gaf fjárfestirinn það
út að hann ætlaði að gera upp allar
skuldir sínar, þ.e.a.s. greiða þær.
Sannleikurinn mun hins vegar vera
sá að íslenskir kröfuhafar Björgólfs
munu afskrifa megnið af skuldum
Björgólfs og félaga hans við bank-
ana. Í staðinn munu bankarnir fá
einhvern hluta af söluverðmæti
hlutar Björgólfs Thors í Actavis þeg-
ar hann verður seldur. Því er spurn-
ing hvort kalla beri uppgjör Björg-
ólfs Thors skuldauppgjör þar sem
lykilatriðið í því snýst um stórfelld-
ar afskriftir en ekki endurgreiðslu.
UMDEILD RÁÐNING
n Ráðning Ástu Bjargar Pálmadótt-
ur í starf sveitarstjóra Skagafjarð-
ar hefur vakið ótvíræða athygli.
Ásta starfaði áður sem útibússtjóri
Landsbanka Íslands í Skagafirði og
er ritari í stjórn Kaupfélags Skaga-
fjarðar. Sautján umsóknir bárust
um stöðu sveitarstjóra en þeim var
öllum hafnað af hálfu meirihluta
Framsóknar og Vinstri grænna.
Stefán Vagn Stefánsson, oddviti
Framsóknar, sagði við það tilefni
að nafn þess sem leitað var að væri
ekki á þeim lista. Var því leitað til
Ástu Bjargar og hugsa menn nú um
þau ítök sem Kaupfélagið hefur í
sveitarfélaginu, en það rekur einn
stærsta vinnustaðinn í Skagafirði.
EKKI BARA YFIR-
HEYRSLUR
n Fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um
komu Sigurðar Einarssonar hæstráð-
anda Kaupþings forðum og yfirheyrsl-
ur yfir honum hjá embætti sérstaks
saksóknara. Hljótt er hins vegar um
viðræður Sigurðar við menn inn-
an viðskiptalífsins, en sagan segir
að hann leggi ríka áherslu á að fá að
kaupa tiltekið fyrirtæki hér á landi.
Jafnframt hafi hann menn til þess
að fara fyrir slíkum fjárfestingum án
þess að nafn hans komi þar nærri.
Glöggur maður í viðskiptalífinu telur
að Sigurður sækist eftir kaupum á fjár-
málafyrirtæki og ekki sé skortur á fé
til kaupanna. Eitthvað verða menn að
hafa að gera þegar hamförunum lýkur.
SANDKORN
8 FRÉTTIR 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
FU
RS
TY
NJ
AN
Söfnunarstell 13 teg. á lager - Pöntum inn í enn fleiri stell
Hnífaparatöskur
f/12m. 72 hlutir
margar
gerðir
Hitaföt - margar gerðir
Líttu á www.tk.is
ÍTALSKUR KRISTALL
K r i n g l u n n i - S í m i : 5 6 8 9 9 5 5
40
ára
Vörur á verði fyrir þig
Ótrúlegt glasaúrval á frábæru verði
Verum vinir á
- mikið úrval
RÚMFÖT
afsláttur
Fallegar
gjafir
Fjárfestarnir Björgólfur Thor Björg-
ólfsson og Róbert Wessmann áttu
saman félagið Mainsee 516 sem
skuldaði Glitni rúma 11 milljarða
króna um haustið 2008. Þetta kem-
ur fram í lánayfirliti frá Glitni banka
sem DV hefur undir höndum fyrir
tilstilli heimasíðunnar Wikileaks.
Mainsee var lyfjafyrirtæki í Þýska-
landi sem fjárfestarnir tveir keyptu
saman á meðan Róbert var forstjóri
íslenska samheitalyfjafyrirtækisins
Actavis og Björgólfur Thor var einn
stærsti hluthafi fyrirtækisins.
Eignarhald þeirra Björgólfs
Thors og Róberts á félaginu er
áhugavert í því ljósi að engir kær-
leikar hafa verið á milli þeirra um
nokkurra ára skeið eða síðan Ró-
bert hætti hjá Actavis og Björgólf-
ur fjármagnaði yfirtöku á félaginu
með láni frá Deutsche Bank. Meðal
annars hefur Róbert stefnt Björg-
ólfi Thor út af viðskiptum sem þeir
áttu sín á milli og í síðustu viku var
greint frá deilum þeirra tveggja um
starfslok Róberts hjá Actavis – Björ-
gólfur sagðist hafa rekið Róbert út
af slælegri frammistöðu en þessu
hafnaði sá síðarnefndi.
Ábyrgðirnar fyrir láninu frá
Glitni voru meira en 19 milljarðar
króna. Íslenska eignarhaldsfélag-
ið Mainsee Holding ehf. hélt utan
um eign þeirra Björgólfs Thors og
Róberts í þýska félaginu en félög í
þeirra eigu, sem skráð eru í Lúx-
emborg, eiga 50 prósent í því, sam-
kvæmt ársreikningi ársins 2008.
Keypt eftir að Actavis
var tekið af markaði
Róbert Wessmann segir aðspurð-
ur að ástæðan fyrir sameiginleg-
um kaupum þeirra á Mainsee
árið 2007 hafi verið sú að Actavis
sjálft hafi ekki verið í aðstöðu til að
kaupa félagið og því hafi þeir keypt
það í sameiningu. Hann segir að
ástæðan fyrir þessu hafi meðal
annars verið sú að búið hafi verið
að taka Actavis af markaði á þess-
um tíma. „Þetta félag er keypt eft-
ir að Actavis var tekið af markaði.
Actavis var á þeim tíma ekki í stöðu
til að kaupa þetta félag þannig að
við keyptum þetta saman. Actavis
er í dag búið að kaupa þetta félag
af okkur.“
Skuldirnar hvíla
á Björgólfi og Róberti
Aðspurður hvort þetta þýði að
Actavis sé búið að yfirtaka skuld-
ir Mainsee segir Róbert að svo sé
að mestu leyti en að hluti skuld-
anna hvíli þó ennþá á honum
og Björgólfi. „Þeir yfirtóku hluta
skuldanna en ekki þær allar,“ seg-
ir Róbert, en þeir voru báðir í per-
sónulegum ábyrgðum fyrir hluta
skuldanna sem enn hvíla á þeim.
Því má reikna með að skuldir
Mainsee séu hluti af skuldaupp-
gjörum þeirra Björgólfs Thors og
Róberts við íslensku bankana.
Í svari Ragnhildar Sverrisdóttur,
talskonu Björgólfs Thors, um mál-
ið kemur fram að Mainsee-skuldin
hafi verið hluti af skuldauppgjöri
hans sem greint var frá í júlí. „BTB
gerði að fullu upp sinn hluta þeirr-
ar skuldar við Glitni við skulda-
uppgjör sitt, sem skýrt var frá nú
í júlí.“ Aðspurð hvort þetta þýði
að Björgólfur hafi gert þessa skuld
upp í beinhörðum peningum seg-
ir Raghildur að það verði ekki gefið
upp. „Eins og fram kom við skulda-
uppgjörið gerði BTB allar skuld-
bindingar sínar við íslenska banka
og fjölda erlendra banka upp að
fullu. Það persónulega uppgjör
verður ekki útlistað nánar en svo,
enda hlýtur þetta að vera megin-
málið: Fullt uppgjör skulda.“ Því
liggur ekki fyrir hvernig Björgólfur
gerði upp Mainsee-skuldina eða
aðrar skuldir sínar í uppgjörinu.
Björgólfur Thor Björgólfsson og Róbert Wessmann skulduðu Glitni rúma 11 millj-
arða króna um haustið 2008 vegna þýsks lyfjafyrirtækis sem þeir keyptu. Actavis hefur
keypt félagið af þeim og tekið yfir hluta skuldanna. Hluti skulda Mainsee hvílir enn þá
á Björgólfi Thor og Róberti. Skuldir Mainsee voru hluti af skuldauppgjöri Björgólfs.
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Skuldirnar yfir á Actavis 11 milljarða
króna skuldir Mainsee, félags Björg ólfs
Thors og Róberts, fóru að mestu yfir
á Actavis þegar lyfjafyrirtækið keypti
Mainsee af tvímenningunum.
Keyptu félagið saman Róbert segir
að þeir Björgólfur hafi keypt Mainsee
vegna þess að Actavis hafi ekki verið
í aðstöðu til að kaupa félagið þar sem
búið hafi verið að taka það af markaði.
SKULDUÐU GLITNI
11 MILLJARÐA Actavis er í dag búið að kaupa þetta félag af okkur.