Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 15
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 FRÉTTIR 15
dagana 27., 28. og 29. ágúst
· Föstudagur ·
Rökkurró í Lystigarðinum - Draugaslóð Minjasafnsins í Innbænum
Hljómsveitin Myrká í Rýminu - Laylow og eyfirskt tónlistarfólk í Menningarhúsinu Hofi
· Laugardagur ·
Aríur Heimis í Samkomuhúsinu - Hljóðverkið Tómslög í Íþróttahúsinu við Laugargötu - Rabbabari í Ketilhúsinu - Aðalnámskrá grunnskólanna, gjörningur í Brekkuskóla
Uppskeruhátíð ræktunar og myndlistar í gömlu gróðrarstöðinni
TAUMLAUST KARNIVAL og eyfirskir hönnuðir í ListaGilinu
· Sunnudagur ·
Pönkhljómsveitin Buxnaskjónar í Sundlaug Akureyrar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Víkingur Heiðar í Menningarhúsinu Hofi
Sjá dagskrána á visitakureyri.is
Ekkert að gerast Lítið hefur gerst á Motopark svæðinu síðan Jarðvélar ehf. fóru á hausinn.
Farið á svig við sveitarstjórnarlög
Eins og fram hefur komið var byggingarlóðin að stórum hluta í eigu
ríkisins og hafði Reykjanesbær heimild til þess að leigja lóðirnar.
Óljóst er þó hvort sveitarfélagið hafi haft heimild til þess að sam-
þykkja veðsetningu á byggingarlandinu. Í 73. gr. laga um Trygging-
ar og ábyrgðir kemur eftirfarandi fram: „Heildareignir sveitarfélags
standa til tryggingar skuldbindingum þess. Eigi má sveitarfélag veð-
setja öðrum tekjur sínar né heldur fasteignir sem nauðsynlegar eru
til þess að sveitarfélagið geti rækt lögskyld verkefni sín. Aðrar eignir
getur sveitarfélag veðsett í þágu sveitarsjóðs, stofnana sveitarfélags-
ins og fyrirtækja þess.“ Toppurinn, innflutningur er einkahlutafélag
og því ekki eitt af fyrirtækjum Reykjanesbæjar, samkvæmt heim-
ildum DV er því óljóst hvort farið hafi verið eftir sveitarstjórnarlög-
um þegar veðsetningin var heimiluð. Samkvæmt upplýsingum frá
lögfræðingi innan samgönguráðuneytis ber mönnum að bera allar
meiriháttar skuldbindingar sveitarfélaga undir sveitarstjórn. Heim-
ildir DV herma að svo hafi ekki verið gert í þessu máli og bera fund-
argerðir bæjarins ekki vott um slíkt.
Fjöldi gjaldþrota
Eigendur Toppsins, innflutnings voru samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2006, bræðurnir Eyjólfur
Kristinn Vilhjálmsson, Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson og móðir þeirra Þórlína Jóna Ólafsdóttir.
Félagið hefur ekki skilað inn ársreikningi frá árinu 2006, en árið 2007 var félagið með 48
vanskilamál á bakinu. Framkvæmdastjórinn, Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, var einnig fram-
kvæmdastjóri félags sem bar heitið Toppurinn verktakar ehf., en það var úrskurðað gjaldþrota
árið 2003. Eigendur Toppsins voru einnig á bak við einkahlutafélagið Iceland MotoPark en
markmið þess var að byggja upp aksturssvæði á landi Hjalla, svæðisins sem var veðsett.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson fór með framkvæmdastjórn í félaginu og með honum í stjórn sat
faðir hans, Vilhjálmur Kristinn Eyjólfsson.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson var einnig í stjórn félagsins Jarðvélar, en stjórnarformaður þess
félags var faðir hans Vilhjálmur Eyjólfsson. Félagið var úrskurðað gjaldþrota 7. febrúar 2008. Í
kjölfar gjaldþrotsins stöðvuðust allar framkvæmdir við Iceland MotoPark-svæðið. Vilhjálmur
Eyjólfsson var einnig stjórnarformaður verktakafyrirtækisins Stapaverks, sem varð gjaldþrota árið
1993, og stofnandi Súlna, sem varð gjaldþrota 1995. Í mars 2010 var Vilhjálmur Eyjólfsson dæmdur
í eins árs skilorðsbundið fangelsi ásamt viðskiptafélaga sínum og til að greiða 104 milljónir króna í
sekt fyrir skattalagabrot sem framin voru í tengslum við rekstur fyrirtækisins á nokkurra mánaða
tímabili árið 2007. Þá tengjast eigendur Toppsins fjölda annara einkahlutafélaga.
MOTOPARK-SKULDIR TIL SKATTBORGARA