Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 20
20 fréttir 27. ágúst 2010 föstudagur
KirKjan KiKnaði
undan davíð
Á þessum tíma var Örn Bárður
fræðslustjóri þjóðkirkjunnar og ritari
kristnihátíðarnefndar. Séra Karl Sig-
urbjörnsson var orðinn biskup yfir Ís-
landi.
Forsætisráðherrann tók birtingu
sögunnar illa sem og myndinni sjálfri.
Skipti engum togum að þegar frá leið
var séra Örn Bárður settur af sem rit-
ari kristnihátíðarnefndar. Málið vakti
umtal og fjallað var um það í fjöl-
miðlum. DV fjallaði meðal annars um
málið nokkru eftir að smásaga Arn-
ar Bárðar birtist og birti meðal ann-
ars athugasemd sem Davíð Oddsson
sendi Karli Sigurbjörnssyni biskupi
vegna hennar. Athugasemd Davíðs
fólst í einni setningu: „Það er athygli-
vert að í kynningu á „smásögu“ þar
sem forsætisráðherranum er lýst
sem landráðamanni (manni sem sel-
ur fjallkonuna) og landsölumanni er
gefið til kynna að sendingin sé á veg-
um fræðslustarfs kirkjunnar. — Davíð
Oddsson.“
Lesbók Morgunblaðsins hafði gert
grein fyrir höfundi sögunnar og nafn
teiknarans kom sömuleiðis fram.
Réttilega var séra Örn Bárður þar titl-
aður fræðslustjóri þjóðkirkjunnar.
Hann er nú prestur í Nesprestakalli í
Reykjavík.
Var það ritskoðun?
Svar biskups var nokkru lengra en
athugasemd forsætisráðherrans.
„Ég lýsi vanþóknun minni á vafa-
samri myndskreytingu með skond-
inni smásögu í Lesbók Morgunblaðs-
ins sl. helgi og get vel skilið gremju
þína hennar vegna. Myndskreytirinn
er mér ókunnur, enda á vegum blaðs-
ins, en höfundur sögunnar vel met-
inn samstarfsmaður. Ég get samt ekki
borið ábyrgð á tómstundagamni hans
né annarra starfsmanna minna. Með
virðingu og vinsemd, — Karl Sigur-
björnsson.“
Jólablað Dags birti viðtal við séra
Örn Bárð þetta sama ár þar sem
hann gerði málið að nokkru leyti upp.
Blaðamaður lýsir viðbrögðum Morg-
unblaðsins vegna málsins og Örn
Bárður leggur út af þeim viðbrögð-
um: „Morgunblaðið baðst afsökun-
ar á myndbirtingunni og Örn Bárður
veltir fyrir sér nú hvort það hafi verið
rétt hjá blaðinu. „Var það ekki ákveð-
in ritskoðun? Er ekki tjáningarfrelsi í
landinu? Var einhver ástæða til þess
að biðjast afsökunar á henni?“ spyr
hann og svarar: „Ég held ekki.““
Blaðamaður spyr þessu næst hvort
málið hafi haft einhverjar afleiðingar
fyrir viðmælandann. Séra Örn Bárð-
ur svarar: „Eins og kunnugt er var
ákveðið að skipta um ritara hjá kristni-
hátíðarnefnd en ég hafði gegnt því
starfi í nokkur ár. Það þótti mér skrít-
in ráðstöfun. [...] Ótrúlegur fjöldi hefur
brugðist við sögunni í mín eyru með
mjög jákvæðum hætti en neikvæðum
í garð ráðherrans. Sama má segja um
ákvörðunina að víkja mér úr kristni-
hátíðarnefnd.“
Kirkjan kiknaði
Ljóst er að hæstráðendur kirkjunnar
létu undan þrýstingi og studdu ekki
málfrelsi séra Arnar Bárðar. Honum
var vikið úr embætti ritara kristni-
hátíðarnefndar. Sjálfur gerði Örn
Bárður margvíslegar athugasemdir
við framvindu mála þótt nú tilheyri
málið fortíðinni í hans augum. Í viðtali
við Fréttablaðið fyrir nokkrum árum
tjáði hann meðal annars efnislega þá
skoðun sína að rétt væri að bregðast
við órétti því annars yrðu menn hluti
af óréttlætinu.
Doktor Svanur Kristjánsson stjórn-
málafræðiprófessor fjallaði stuttlega
um þetta mál í erindi sem hann flutti
á ráðstefnu í Skálholti í fyrra. Erindi
hans, „Kirkjan og lýðræðishefðin“, er
að finna ásamt öðrum erindum frá
ráðstefnunni í bókinni „Þjóðkirkjan
og lýðræðið“ sem út kom í fyrra. Þar
sagði Svanur meðal annars eftirfar-
andi:
„Ég hygg að fólk líti almennt á rík-
iskirkjuna sem úrelt fyrirbæri; hún sé
fyrst og fremst hluti af því valdakerfi
sem þarf að brjóta niður til að byrja
upp á nýtt. Ríkiskirkjan sé stofnun
sem kaus að halda upp á 1000 ára
kristni í landinu með því að fylkja liði
á Þingvöllum í fylgd spilltra verald-
legra valdamanna sem gáfu sér tíma
frá daglegum aðförum sínum að lýð-
ræðinu í landinu til að skreppa á há-
tíð. Þeir höfðu líka borgað brúsann
af tilstandinu öllu og biskup Íslands
hafði að kröfu þeirra flæmt úr starfi
á biskupsstofu einn vandræðaprest,
sr. Örn Bárð Jónsson, fyrir að birta
smásögu sína „Íslensk fjallasala h/f“
í Lesbók Morgunblaðsins 10. apríl
1999. Ekki bætti það hlut prestsins að
hann hafði einn allra presta sýnt þá
ósvífni að gera opinberlega athuga-
semdir við að Alþingi, sem á vera
þjóðþing, gaf flokksgæðingum sam-
eiginlega auðlind, fiskinn í sjónum,
sjálfum sér einum til fénýtingar.“
Svanur segir jafnframt: „Að mínu
mati þarf kirkjan fyrst og síðast að
horfast í augu við sjálfa sig og sína
fortíð. Hún á til dæmis að spyrja sig
um sameiginlega þögn sína á með-
an ráðamenn stálu sameiginlegum
eignum þjóðarinnar. Hún þarf ekki
síður einnig að svara því hvers vegna
enginn prestur kom séra Erni Bárði
til varnar þegar vegið var að málfrels-
inu, helgasta réttinum í siðuðu lýð-
ræðissamfélagi. Máttu þó allir vita
sökum þess að séra Örn Bárður hafði
í blaðaviðtali greint frá öllum mála-
vöxtum, í Degi 23. desember 1999.
Það er nefnilega alveg rétt hjá
Reinhold Niebuhr að án hugrekkis
koðnar líf þjóðar niður í sofandahátt
og andvaraleysi. Úr jarðvegi vald-
beitingar ráðamanna og hugleysis
velviljaðra kennimanna hrundi lýð-
ræðið hér á landi rétt eins og í Þýska-
landi við valdatöku nasista.“
Séra Örn Bárður Jónsson var látinn taka pokann sinn sem ritari kristnihátíðarnefndar árið 1999 eftir að
hann hafði birt smásögu sem þótti sneiða að Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra. Svanur Kristj-
ánsson stjórnmálafræðiprófessor segir að kirkjan verði að svara því hvers vegna enginn prestur kom séra
Erni Bárði til varnar þegar vegið var að málfrelsinu, helgasta réttinum í siðuðu lýðræðissamfélagi.
Jóhann hauKSSOn
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
...í fylgd spilltra verald-legra valdamanna sem
gáfu sér tíma frá daglegum
aðförum sínum að lýðræðinu í
landinu til að skreppa á hátíð.
Brot úr smásögunni „Íslensk fjallasala h/f“ eftir séra Örn Bárð Jónsson:
„MannfjöldinnhorfðiagndofaáEsjunahverfaíAtlantsálaíbeinniútsendingu.
DrottningfjallannaviðSundinblávarhorfinsjónummanna.Ogviðskiptavinurinn
íaustrifékkaldreivörusínaogþvívarðávísuninstórauppámilljarðaevra
verðlausþvíenginnhafðitreystsértilaðtryggjaEsjuna.Húnhafðiveriðtalin
fjalltryggísjálfrisér.[...]
Stéttatorgiðvarðeinsogminnisvarðimistaka,votturumsálarlausaþjóð,sem
seldifegurðinafyrirbaunadisk.Ogþarvildienginnbyggja,enginnbúa.Ásumrin
varþarekkistingandistráogávetrumgnauðuðuvindarogfjúkyfirgráum
ogísköldumbasaltgrunni.TalaðvarumaðgeraStéttatorgiðaðvettvangifyrir
heimsmeistarakeppnihjólabrettakappa,geraþaðaðskautasvelliáveturnaog
kappakstursbrautásumrin.Enenginnhafðiáhuga.Enginngathugsaðsérað
leikaogsyngjaágröfdrottningarfjallanna.Minninginumhanagerðifólkiðdofið.
PéturJökulssonreyndiaðaukahlutaféíÍslenskrifjallasöluhf.ámörkuðum
erlendisenalltkomfyrirekki.Erlendirfjárfestarsemlagthöfðuféífyrirtækið
íbyrjuntöpuðusínuogþjóðintapaðivirðinguogvitiogþarmeðvarðekkert
hugvittilsölulengur,baravitleysa.Oghverersvovitifirrturaðfjárfestaívitleysu
vitlausrarþjóðar?“
Háðsádeila klerksins
hrakinn úr embætti SéraÖrnBárður
Jónssonvarhrakinnúrritaraembætti
hjákirkjunnivegnaþrýstingsfráDavíð
Oddssyni.
Stjórnmálafræðiprófessorinn
„[Kirkjan]þarfeinnigaðsvaraþví
hversvegnaenginnpresturkomséra
ErniBárðitilvarnarþegarvegiðvarað
málfrelsinu,helgastaréttinumísiðuðu
lýðræðissamfélagi.“
Forsætisráðherrann 1999 DavíðOddsson
sendiséraKarliSigurbjörnssynibiskupi
athugasemdogfannaðþvíaðsérværilýstsem
landráðamanniísmásögueftirséraÖrnBárð.
MYnD SigtrYggur ari JóhannSSOn