Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 FRÉTTIR 21 Gaxa Raf - rettan n Sama tilfinning og bragð fyrir þá Sem reykja n án allra eiturefna, engin lykt og má reykja hvar Sem er Pantaðu á netinu, www.gaxa.is - Pöntunarsími: 865-6520 Startpakkinn aðeins 9.995 kr. Þingmannanefnd sem skipuð var til að fjalla um efni rannsóknarskýrslu Alþingis gerir ráð fyrir að skila af sér tillögum sínum 10. september. Þingmannanefnd um efni rann- sóknarskýrslu Alþingis gerir ráð fyr- ir að skila af sér tillögum sínum 10. september. Nefndin hefur komið saman til fundar á hverjum virkum degi frá því 17. ágúst og gerir ráð fyr- ir að koma saman til fundar daglega í næstu viku. Þingmannanefndinni hefur ver- ið skipt upp í starfshópa sem hafa farið yfir hvert og eitt bindi rann- sóknarskýrslunnar og tekið afstöðu til þeirra. Atli Gíslason, formaður nefndarinnar, segir að vinnu sem snýr að afstöðu nefndarinnar til binda skýrslunnar og hugsanlegra lagaúrbóta sé að mestu lokið. „Við tökum útdrátt úr hverju bindi þar sem við drögum fram niðurstöður rannsóknarnefndarinnar og tökum afstöðu til þeirra niðurstaðna. Við erum búin með þessa yfirferð en síðan bíður heilmikil ritstýring og samræmingarvinna eftir helgi,“ seg- ir hann. Atli segir aftur á móti að nefndin hafi ekki komist að nið- urstöðu um neitt enn sem komið er. Hins vegar hafi nefndin tekið undir flest það sem komi fram í skýrslunni um hugsanlegar laga- úrbætur og breytingar á þing- sköpum. Vanræksla þriggja ráðherra Nefndinni var falið að kanna þrjú atriði með hliðsjón af rannsókn- arskýrslunni. Í fyrsta lagi almennt pólitískt uppgjör á efnahagshrun- inu þar sem er dreginn lærdóm- ur af efnahagshruninu. Í öðru lagi er ábendingum rannsóknarnefnd- arinnar fylgt eftir með tillögum að lagabreytingum og reglum. Í þriðja lagi er lagt mat á hugsanleg mistök og vanrækslu stjórnvalda sem þátt áttu í hruninu og hvort kalla þurfi þá fyrir landsdóm sem hugsanlega hafa gerst brotlegir samkvæmt því. Þrír ráðherrar voru vændir um vanrækslu og brot á ráðherraábyrgð í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is. Þetta voru þeir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármála- ráðherra, og Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra. Atli segir að nefndin hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort lands- dómur verði kallaður saman. Hann segir nefndina aftur á móti hafa fjall- að um landsdóm frá því hún kom fyrst saman í janúar. Hann segist eiga von á því að það verði tekið fyr- ir á næstu dögum eða fyrir 10. sept- ember. „Þetta er fordæmalaust mál þannig að við höfum reynt að teikna upp lagareglurnar og skilja þær. Við höfum unnið í þessu stöðugt frá því í janúar en það er ekki komið á það stig að það sé hægt að taka afstöðu til þess,“ segir hann. Trúnaður í nefndinni Fullur trúnaður hefur verið um störf nefndarinnar og hafa þeir nefndarmenn sem DV hefur rætt við ekki viljað tjá sig um afstöðu sína eða um þær umræður sem hafi átt sér stað í nefndinni. Níu sitja í nefndinni en aðeins fjór- ir fyrir hönd stjórnarflokkanna Samfylkingar og Vinstri grænna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokk- urinn þurfa að ákveða hvort flokk- arnir eigi að kalla fyrrverandi ráð- herra sína fyrir landsdóm. Þessir tveir flokkar hafa ekki meirihluta í nefndinni. Áður hefur verið greint frá því að Björn L. Bergsson, settur rík- issaksóknari, hafi ekki talið til- efni til opinberrar rannsóknar á meintri vanrækslu forstöðu- manna Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands í bankahrun- inu. RÓBERT HLYNUR BALDURSSON blaðamaður skrifar: rhb@dv.is Þetta er for-dæmalaust mál þannig að við höfum reynt að teikna upp lagareglurnar og skilja þær. STÓREIGNIR Á CAYMAN VANRÆKSLA RÁÐHERRA Hugsanlega fyrir landsdóm Geir H. Haarde, Björgvin G. Sigurðsson og Árni M. Mathiesen, fyrrverandi ráðherrar, voru vændir um vanrækslu í rannsókn- arskýrslu Alþingis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.