Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 27
„Nei.“
Kristín Dís ÓlafsDÓttir,
18 ára, Námsmaður.
„Nei, ég held að hún sé að hefjast.“
Þröstur Harðarson,
45 ára, matsveiNN.
„Nei.“
sara Jane WinroW,
18 ára, Námsmaður.
„Hún er á undanhaldi.“
fJÓla GuðmunDsDÓttir,
38 ára, starfsmaður Hjá
HaNdverki og HöNNuN.
„Nei, ég vona ekki.“
einar ÞÓr GunnlauGsson,
45 ára, kvikmyNdagerðarmaður.
Telur þú að kreppunni sé að ljúka?
Guðrún ÞÓrsDÓttir
er verkefnastýra akureyrarvöku sem
haldin verður um helgina. sjálf ætlar
guðrún ekki að missa af pönksveitinni
Buxnaskjónum í sundlaug akureyrar á
sunnudaginn. eftir helgi taka önnur
verkefni við hjá guðrúnu og þar á
meðal langþráð uppvaskið.
NáttúraN og fólkið
drífur mig áfram
Þegar ég var yngri tók ég málfrelsinu
sem sjálfsögðum hlut. Mér fannst
það að hver sem er gæti sagt hvað
sem er jafneðlilegt og að anda, jafn-
öruggt og að bankarnir geymdu þá
peninga sem maður lagði inn á þá
eða að vestræn lýðræðisríki stund-
uðu ekki pyntingar á föngum. En
eftir 11. september og bankahrun
er heimurinn allur orðinn mun óör-
uggari. Það er eiginlega vonlaust að
gefa sér nokkurn hlut sem vissan
lengur.
Við og við berast fréttir utan úr
heimi þar sem sótt er að málfrels-
inu, jafnvel í löndum þar sem það á
að vera viðurkennt. Það kemur flest-
um líklega spánskt fyrir sjónir þeg-
ar það spyrst að bannað sé að gera
grín að stjórnmálamönnum í kosn-
ingunum í Brasilíu, enda var þáttur
sem var að mestum hluta tileinkað-
ur gríni á kostnað stjórnmálamanna
vinsælasti þáttur íslensku þjóðar-
innar þar til nýlega.
Rússland er lýðræðisríki að nafn-
inu til, þó líklega eigi það talsvert
lengra í land en Brasilía. Blaða-
menn sem gagnrýnt hafa stefnu
stjórnvalda í Tsjetsjeníu hafa verið
myrtir, en það er sótt að málfrels-
inu úr fleiri áttum. Rússneska rétt-
trúnaðarkirkjan kærði nýlega Sak-
harov-listasafnið fyrir sýningu þar
sem Jesús var meðal annars sýnd-
ur í gervi Leníns og Mikka Músar.
Þegar dómur féll í málinu í lok júlí
var safnið dæmt til að greiða hátt í
eina og hálfa milljón króna í sektir
fyrir að hafa sært tilfinningar með-
lima rétttrúnaðarkirkjunnar. Dóm-
urinn þykir réttilega vera áfall fyrir
málfrelsi þar í landi. Slíkt gæti aldrei
gerst hér? Eða hvað?
svo fyndin að hún er bönnuð í
noregi
Ekki er ýkja langt síðan íslenska
þjóðkirkjan varð sér til skammar
með því að kæra Spaugstofuna fyrir
gamansemi á kostnað almættisins,
en reyndar var fótur fyrir ákærunni
í lögum sem banna guðlast. Vissu-
lega voru flestir þá á því að það hlyti
að mega gera grín að trúarbrögðum
eins og öðrum skoðunum, og lítið
varð úr eftirmála. Ef til vill er það
ekki tilviljun að þessar áhyggjur af
gríni komu upp á svipuðum tíma og
mál Ólafs biskups Skúlasonar voru í
hámæli.
Sumir kirkjunnar manna reyndu
nokkrum áratugum áður að banna
gamanmyndina Life of Brian, sem
gerði stólpagrín að Biblíusögun-
um. Var hún bönnuð í 39 sveitarfé-
lögum í Bretlandi, sem og á Írlandi
og í Noregi. Í New York mótmæltu
margir, þar á meðal fólk frá öðrum
trúfélögum, svosem rabbínar. Þetta
gerði þó lítið til að koma í veg fyr-
ir vinsældir myndarinnar. Hún var
jafnvel auglýst í Svíþjóð með orðun-
um: „Svo fyndin að hún er bönnuð
í Noregi.“
leitað að björtu hliðunum
Síðasta banninu á Life of Brian var
aflétt árið 2009 í smábæ í Wales.
Þó koma enn reglulega upp mál
þar sem vegið er að rétti manna til
að gera grín að trúarbrögðum, eins
og dæmið frá Rússlandi sýnir. Árið
2005 birti danska blaðið Jyllands-
posten skopmyndir af Múhameð
spámanni. Myndbirtingin var kærð,
en þótti ekki stangast á við dönsk
lög. Þrátt fyrir að það séu til klausur
í dönskum lögum sem banna guð-
last var málfrelsið talið mikilvægara.
Hvort myndirnar þykja smekklaus-
ar eða ekki skiptir ekki máli í þessu
samhengi, en svo undarlega vildi til
að menntamenn margir, sem löng-
um höfðu gert grín að tilraunum til
að banna Life of Brian, snérust nú
gegn málfrelsinu.
Hugmyndin um málfrelsi er ekki
ný af nálinni, en var einna fyrst í há-
vegum höfð í íslömskum háskólum
á 6. öld, þaðan sem hún breiddist
hægt og rólega út til Vesturlanda.
Þróunin hefur þó ekki verið ein-
göngu á einn veg, heldur koma
reglulega tímabil þar sem að mál-
frelsinu er vegið. Líklega má full-
yrða að málfrelsi í Bandaríkjunum
hafi verið í vörn eftir 11. septemb-
er, 2001. Nú síðast hafa verið gerð-
ar tilraunir til að banna byggingu
mosku á ákveðnum stað í New York-
borg, og þó að það falli frekar undir
hugmyndir um trúarbragðafrelsi en
málfrelsi eru þessir tveir hlutir ná-
tengdir. Annar þrífst varla án hins.
Því er nauðsynlegt að hlúa að þeim
báðum.
Hvenær má gera grín?
myndin
Hver er konan? „guðrún Þórsdóttir.
verkefnastýra akureyrarvöku, móðir,
myndlistarnemi og talskona aflsins.“
Hvað drífur þig áfram? „Náttúran og
fólkið.“
Hvar ertu uppalin? „skriðuklaustri í
fljótsdal.“
afrek vikunnar? „að ná að komast í
bað í morgun.“
Hvar líður þér best?„uppi á hálendi
Íslands og á tónleikum.“
Hver er uppáhaldskvikmyndin þín?
„Blade runner.“
Hvert stefnirðu? „að einföldun.“
Hvaða atburði ætlar þú ekki að
missa af á akureyrarvöku? „Pönk-
hljómsveitinni Buxnaskjónum í sundlaug
akureyrar á sunnudeginum.“
Átt þú þér fyrirmyndir? „mömmu og
pabba.“
uppáhaldsmaturinn þinn? „Bauna-
gojl – baunaréttur sem maðurinn minn
býr til.“
Hvað tekur við hjá þér eftir
akureyrarvöku? „myndlistaskólinn
á akureyri og ýmislegt ógert fyrir aflið
sem hefur þurft að bíða. og svo langþráð
uppvaskið.“
maður dagsins
dómstóll götunnar
kjallari
föstudagur 27. ágúst 2010 umræða 27
„Síðasta banninu á Life
of Brian var aflétt
árið 2009 í smábæ í
Wales.“
valur Gunnarsson
rithöfundur skrifar
Borgarfjörður í fullum skrúða við Húsafell er blómlegt um að litast. Nú líður hinsvegar senn að hausti og má búast við því að gróðurinn taki stakkaskiptum von bráðar.
mynD siGtryGGur ari JÓHannsson