Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 30
ADHD og Nils WogrAm á JAzzHátíð Á miðri Jazzhátíð Reykjavík- ur 2009 léku meðlimir ADHD inn á sína fyrstu hljómplötu sem í kjölfarið hlaut íslensku tón- listarverðlaunin sem djassplata ársins. Þeir hreinlega slógu í gegn og Davíð Þór Jónsson, einn forsprakka sveitarinnar, bætti svo um betur og var valinn tónlistarflytjandi árins á hátíðinni. ADHD spilar í kvöld á þýsk-íslenskri kvöldstund í Hafnarhúsi á Jazzhátíð Reykjavíkur ásamt básúnuundrinu Nils Wogram og Nostalgiu-tríói hans. ADHD gefur út sína aðra plötu á næstunni svo það er um að gera að missa ekki af þessum frábæru tónlistarmönnum að störfum enda eru þeir líklegir til frekari afreka. Miðaverð er 2.500 krónur og tónleikarnir hefjast klukkan 20.00. ÞAr sem krAkkAr megA klifrA Á sunnu- dögum leita barnafjölskyldur sér oft að einhverju skemmtilegu og uppbyggilegu til að hafa fyrir stafni. Á sunnudaginn klukkan 14.00 er því upplagt fyrir fjölskylduna að skoða sýninguna Ég kýs blómlegar konur og endurgerð af vinnustofu Ásmundar Sveinssonar í fylgd með Klöru Þórhallsdóttur, myndlistarmanni og kennara. Leiðsögnin tekur um 30–45 mínútur. Börnum finnst sérstaklega gaman að heimsækja Ásmundarsafn við Sigtún því þar er hægt að spóka sig í fallegum garði með styttum sem jafnvel má klifra í. Vegir liggja til allra átta hjá Vesturporti: Broadway eða Hollywood? „Ég hef ekki tilfinningu fyrir Broad- way en átta mig samt á því að það væri merkileg upplifun og góð við- urkenning að koma sýningu upp á Broadway,“ segir Gísli Örn Garð- arsson, en Vesturport ferðast með Hamskiptin til New York í nóvem- ber og setur sýninguna upp í BAM- leikhúsinu þar í borg. Fái sýningin góðan dóm í hinu virta dagblaði The New York Times aukast líkur á því að Vesturport geti hafið innreið sína á Broadway. „Góður dómur skiptir miklu máli,“ staðfestir Gísli. „Við höfum áður sýnt í BAM-leik- húsinu og settum þá upp Woyzeck. Sú sýning er vön því að fá misjafna dóma, enda var Woyzeck óklárað þegar höfundurinn féll frá og því kallar það á mismunandi túlkanir leikstjóra. Woyzeck féll ekkert sér- staklega í góðan jarðveg hjá gagn- rýnendum The New York Times. En það skipti svo sem litlu máli þar sem Woyzeck myndi seint rata inn í markaðsleikhús Broadway. En það verður forvitnilegt að sjá hvað þeir segja um Hamskiptin, því það er verið að sækjast eftir henni á Broadway. Þó að það sé fáránlegt að einn gagnrýnandi hjá einu blaði skuli hafa svona mikil völd.“ Það var frammistaða Gísla í Rómeó og Júlíu sem færði hon- um hlutverkið í Hollywood-kvik- myndinni Prince of Persia sem var frumsýnd í fyrravor svo ljóst er að útrásin til London og New York gæti skilað honum og samleikur- um hans góðum tækifærum. Hvort tækifærin bjóðast á Broadway eða í Hollywood verður tíminn að leiða í ljós. Aðspurður um gang mála og uppákomur tengdar Hollywood segir Gísli: „Ég reyni mitt besta þegar kallið kemur. Stundum flýg ég út til þess að fara í prufu en ég fæ stundum að senda leikið efni út. Þetta er svona hjá mér og öðr- um íslenskum leikurum með um- boðsmenn erlendis. Mér er sér- staklega minnisstætt þegar ég fór í prufu fyrir einn „casting director“ og lék fyrir hann senu þar sem ég notaðist við amerískan hreim. Þeg- ar ég hafði lokið máli mínu sagði leikstjórinn: „Flott, geturðu nú tekið hana aftur með amerískum hreim!“ Ég náði ekki að landa því hlutverki.“ kristjana@dv.is 30 fókus 27. ágúst 2010 föstudagur BreikmeistArAr á leið til lANDsiNs Freestyle Phanatix er stærsti og þekktasti breikdanshópur á Norðurlöndum og hefur aðset- ur í Danmörku og Svíþjóð. Yfir 500.000 manns á öllum aldri hafa séð sýningar þeirra á Norður- löndunum og í Evrópu. Í hópnum eru færustu og þekktustu hipp- hopp-dansarar á Norðurlöndum. Freestyle Phanatix-hópurinn var stofnaður árið 1993 og hefur því langa reynslu af dansinum. Dansstíll þeirra hefur þróast frá hipp-hopp-dansi á götum úti til stærri sýninga fyrir leikhús. Hópurinn hefur tekið þátt í gerð margra tónlistarmyndbanda og hefur unnið til fjölda verðlauna, þeir eru til að mynda tvöfaldir Norðurlandameistarar og sigur- vegarar í keppnum sem hafa farið fram í Svíþjóð og Eystrasaltslönd- unum. Námskeiðið fer fram í sýning- arsal í kjallara Norræna húss- ins 15. september og stendur í 90 mínútur. Námskeiðið skiptist í fyrirlestur og sýningu en síð- an tekur við klukkustundarlöng verkleg kennsla. Tekið er á móti skráningum í Norræna húsinu til 8. september. töðugJölD í Viðey Sumaráætlun til Viðeyjar með daglegum siglingum lýkur í ágúst en frá og með 1. september eru áætlunarferðir einungis um helgar. Í Viðey er haustinu tekið opnum örmum með viðeigandi hátíðahöldum og uppskerufagnaði. Töðugjöld í Viðey eru að þessu sinni haldin sunnudaginn 29. ágúst og mikið um að vera. Siglt verður til Viðeyjar frá kl. 11:15. Brot af dagskrá á Töðugjöldum: 11:30–17:00 Viðeyjarstofa opin 11:30  Grænmetismarkaðurinn verður opnaður. Á boðstólum nýuppteknar rófur, kartöflur, kál og alls kyns góðgæti. Fyrstur kemur, fyrstur fær. 13:15 Þórir Stephensen leiðir staðar- skoðun í nágrenni Viðeyjarstofu. Gangan hefst á bryggjunni í Viðey. 13:00 Skátafélagið Landnemar stjórnar víðavangsleikjum á leiksvæðinu fyrir aftan Viðeyjarstofu. 15:00 Dómnefnd kynnir úrslit og verðlaunar sigurvegarann. 15:30 Örlygur Hálfdanarson leiðir göngu um Stöðina, þorpið í Viðey. Gangan hefst við skólann í þorpinu. ÆrslAgANgur í HAfNArfirði Í kvöld klukkan 20.00 verður opn-uð í Hafnarborg sýningin Að elta fólk og drekka mjólk þar sem sýnd verða verk sem þrátt fyrir að vera ólík eiga það öll sameigin- legt að innihalda ýmis tilbrigði húm- ors. Meðal þeirra listamanna sem taka þátt í sýningunni eru Snorri Ás- mundsson og Ásmundur Ásmunds- son. Snorri opnar Snorrastofu sem er yfirlit yfir verk hans síðustu árin og Ásmundur afhjúpar skúlptúr á Strandgötu í Hafnarfirði á grunni gamla Hafnarfjarðarbíós. Listamaðurinn Snorri Ásmunds- son bauð sig fram í borgarstjórnar- kosningunum árið 2002 og stofnaði þá stjórnmálaflokkinn Vinstri-hægri- snú og fór síðan í forsetaframboð í miðju góðærinu árið 2004. Í báðum tilfellum voru aðferðir Snorra keim- líkar þeim sem Jón Gnarr notaði í upphafi framboðs síns í vor. Kímni- gáfunni var beitt í ádeiluskyni með það að markmiði að sýna fram á fá- ránleika hefðbundins valdakerfis og stjórnmála. „Ég vakti ekki jafn- mikla lukku og Jón Gnarr og Besti flokkurinn þegar ég bauð mig fram til borgar stjórnar. Í raun finnst mér afskaplega skemmtilegt að fylgjast með því hversu sáttir og glaðir sjálf- stæðismenn eru núna með framboð Besta flokksins, þeir höfðu nefnilega engan húmor árið 2002 og brugðust hinir verstu og fúlustu við klofnings- framboði mínu úr flokknum.“ Björgólfur ósáttur við forseta- framboðið „Eins upplifði ég mikinn mótbyr við forsetaframboð mitt árið 2004. Þá starfaði ég mikið með listagalleríinu Kling og Bang sem naut stuðnings Björgólfs Guðmundssonar. Björ- gólfi fannst framboð mitt óþægilegt og vildi ekki tengjast því á nokkurn máta. Þegar afstaða Björgólfs var ljós þá missti ég einnig stuðning margra listamanna sem hræddust ef til vill að fæla frá fjármagnseigendurna. Forsetaframboðið breyttist þannig úr því að vera skemmtileg og vekjandi uppákoma í langdregin leiðindi. Eft- ir hrunið eru viðbrögð við uppák- omum sem þessum allt önnur. Það hefur orðið vakning, tímarnir eru breyttir og viðhorfin allt önnur. Nú þykir sömu listamönnum og þótti forsetaframboðið ekki fínt á sínum tíma framboð Besta flokksins alveg meiriháttar viðburður." Minjar frá sérstöku tímabili Snorri segir línuna milli raunveru- leikans og fáránleikans vera afar fína. „Þegar ég bauð mig fram til forseta vandaði ég mig mikið. Ég áttaði mig á því að orðspor mitt þótti ekki fínt eft- ir góð sukkár og dugði líklega ekki til frekari framgangs. Þess vegna sank- aði ég að mér nokkrum heiðursborg- aratitlum og gerðist heiðursborgari New York-borgar, Akureyrarbæjar og Seyðisfjarðar. Myndir þar sem þetta ferli er skrásett eru meðal þeirra sem finna má í Snorrastofu. Mér finnst skemmtilegt að rifja þetta allt sam- an upp því þetta eru minjar frá mjög sérstöku tímabili.“ kristjana@dv.is íhaldinu óx húmor Innlit í Snorrastofu Minjar um merkilegt tímabil Mynd SIgTryggur ArI JóhAnSSon heiðursborgari new york-borgar Ef grannt er skoðað er lykillinn að New York-borg um háls styttunnar. Í raun finnst mér afskaplega skemmtilegt að fylgjast með því hversu sáttir og glaðir sjálfstæðismenn eru núna með framboð Besta flokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.