Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 31
...geisladiskn-
um Skrýtin
veröld með
Bjartmari og
bergrisunum.
Veisla fyrir heilann.
...kvikmyndinni
Inception
Lagskipt
snilld sem
talar til
manns á ótal
sviðum.
...kvikmyndinni
The Expendables
Það er
einfaldlega
upplifun að
sjá þessa
mynd.
...kvik-
myndinni
Karate
Kid
Ekkert
nýtt undir
sólinni.
föSTudagur
n Lay Low í eyfirskri stemningu
Lay Low flytur norðlenska tónlist í bland
við sína eigin. Lögð verður áhersla á
eyfirsk skáld og fluttar verða nokkrar
gamlar perlur í nýjum búningi. Tónlist-
armenn á svæðinu spreyta sig síðan á
lögum söngkonunnar. Stórskemmtilegur
viðburður á opnunarhátíð menningar-
hússins Hofs á Akureyri. Meðal þeirra
fjölmörgu sem troða upp með Lay Low
eru Kammerkórinn, Kór Hrafnagilsskóla,
Rokksveitin Malignant Mist og Helena
Eyjólfsdóttir. Öllum 20 ára og yngri
verður boðið frítt á tónleikana.
n Hamskiptin — síðustu sýningar
Nokkrar sýningar verða í Þjóðleikhúsinu
á Hamskiptunum í lok ágúst og í byrjun
september áður en við tekur sýningar-
tímabil í BAM-leikhúsinu í New York. Sýnt
á stóra sviðinu kl 20.00.
laugardagur
n Teknótryllingur á Nasa
Fjöldi plötusnúða flytur tónlist á Nasa
á laugardagskvöld. Meðal þeirra sem
koma fram eru: Plastician, Bones,
Klose-1, Illaman, Kid Mistik, Ghozt,
Bensol og Exos. Bæði stóri salurinn og
efri hæð Nasa verða nýtt í tryllinginn og
ekkert til sparað. Í stóra salnum verður
áherslan lögð á harðkjarnateknóstemn-
ingu en á efri hæðinni verður klúbbas-
temning ríkjandi.
n Sniglabandið 25 ára
Sniglabandið fagnar stórafmæli sínu
með tónleikum á stóra sviði Borgar-
leikhússins. Víst er að bandið á eftir að
taka upp á ýmsu og leggja mikið upp úr
sjónrænni upplifun á þessum tónleikum.
Gestum er einnig lofað því að bragðlauk-
arnir verði kitlaðir. Sniglabandsveislan
góða hefst kl. 20.00 og er aðgangseyrir
2.900 kr.
Sunnudagur
n Langþráðir tónleikar fyrir norðan
Hátíðartónleikar Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands verða í Hofi á sunnudaginn
kl. 16.00. Þetta verða fyrstu tónleikar
sveitarinnar í nýja húsnæðinu og marka
tímamót í sögu hennar þar sem hún
fær nú langþráða aðstöðu til æfinga- og
tónleikahalds. Meðal flytjenda verða
Víkingur Heiðar Ólafsson sem flytur á
tónleikunum píanókonsert op. 16 eftir
Edvard Grieg.
n Þynnkubíó á Prikinu
Kvikmyndasýning á Prikinu og popp í
boði. Sýnd verður myndin Escape from
New York.
Hvað er að
GERAST?
Glæsileg opnunardagskrá með fjölda listamanna:
Menningarhúsið Hof vígt
„Það verður eitthvað um að vera
fyrir alla,“ segir Heiðrún Grétars-
dóttir, markaðsfulltrúi Menning-
arhússins Hofs. Heiðrún segir
Norðlendinga spennta og að lista-
menn og allir aðrir sem koma að
dagskrá opnunarhátíðar hafi æft
stíft alla síðustu viku. „Það var
svo mikil eftirspurn vegna tón-
leika Lay Low í Hofi að við bætt-
um við öðrum tónleikum seinna
um kvöldið,“ segir Heiðrún frá og
bendir áhugasömum sem ekki
komast á tónleikana að þeir verði
sendir út í beinni útsendingu á
Rás 2. Tónleikarnir hefjast í kvöld
klukkan 19.30. „Á morgun klukk-
an 16.00 verður svo húsið vígt með
formlegum hætti. Akureyring-
um gefst kostur á að fylgjast með
vígsluathöfninni í beinni útsend-
ingu á sjónvarpsstöðinni N4. Svo
opnum við Hof upp á gátt klukkan
21.00 og bjóðum alla velkomna.
Ég hvet Akureyringa til að líta við
og kynna sér starfsemi hússins,“
bætir Heiðrún við og segir að um
23.30 mæti svo byltingarhetjan
Kingimar og taki yfir húsið með
gestum Akureyrarvöku sem hald-
in er um helgina.
kristjana@dv.is
...leikritinu
Hallveig
ehf.
Skemmtilegt
og fræðandi
leikrit í
öðruvísi
rými.
...heimild-
armyndinni
Babies
Stór-
skemmtileg
heimildar-
mynd hér á
ferð.
föstudagur 27. ágúst 2010 fókus 31
ÆrSlagangur í HafnarfIrðI
grín fyrir gaflarana
Á smundur Ásmundsson afhjúpar útilistaverk með formlegri athöfn og tilheyrandi ræðuhöld-
um í kvöld. Verkið stendur á gamla
grunni Hafnarfjarðarbíós sem var
rifið fyrir nokkrum árum. Hafn-
arfjarðarbíó er eitt af elstu kvik-
myndahúsum landsins og þykir
framkvæmdin umdeild.
Þegar Ásmundur er beðinn að
lýsa verkinu og innblæstrinum að
því segist hann ómögulega geta
lýst því þótt hann gjarnan vildi. „Í
þessum töluðum orðum er verk-
ið ekki tilbúið og því er ómögulegt
að lýsa því þótt ég gjarnan vildi.
Óvissuþættirnir eru mjög marg-
ir og það væri mjög leiðinlegt að
afhjúpa verkið fyrirfram á síðum
DV og eyðileggja þannig yndislega
stund á opnunarhátíðinni. Að auki
mætti setja sig í heimspekilegar
stellingar og segja að verkið verði
ekki tilbúið fyrr en búið er að af-
hjúpa það í kvöld. Ég get samt sagt
frá því að verkið er búið til úr stein-
steypu og verður steypt sérstak-
lega inn í bæ Hafnfirðinga. Og ef ég
þekki Gaflarann rétt á hann eftir að
hafa mjög gaman af þessu af því að
hann er svo mikill húmoristi.“
Lókal delar
En af hverju skyldi staðsetning-
in vera umdeild? „Ég hef ekk-
ert kynnt mér það sérstaklega af
hverju staðsetningin er umdeild
en býst við að til hafi staðið að
byggja einhvern óskapnað þarna
og verktakarnir farið á hausinn
áður en það tókst en þó ekki fyrr
en eftir að þeir eyðilögðu það sem
fyrir var. Sennilega hafa það verið
einhverjir lókal delar úr íþrótta-
hreyfingunni og allt löðrandi í
spillingu og heimsku ef einhver
nennir að rannsaka það. En ég
nenni ekki að setja mig inn í það
sérstaklega. Staðsetningin er fyrst
og fremst áhugaverð frá fagur-
fræðilegu sjónarhorni; af blettin-
um sést vel út fjörðinn, það er að
segja verslunarmiðstöðin Fjörður-
inn nýtur sín mjög vel ef staðið er
uppi á skúlptúrnum enda alveg í
hjarta bæjarins. Skúlptúrinn mun
sjálfur sóma sér vel, ég lofa því.“
Auk þeirra Snorra og Ásmund-
ar eiga verk á sýningunni þau Ásta
Ólafsdóttir, Darri Lorenzen, Er-
ling T.V. Klingenberg, Eva Ísleifs-
dóttir, Geirþrúður Finnbogadótt-
ir Hjörvar, Gjörningaklúbburinn,
Hallgrímur Helgason, Ilmur Stef-
ánsdóttir, Sara Björnsdóttir, Sig-
urður Guðmundsson, Sigtryggur
Berg Sigmarsson, Stefán Jónsson,
Magnús Pálsson, Steingrímur Ey-
fjörð, Egill Sæbjörnsson, Unn-
dór Egill Jónsson og Þórður Ben
Sveinsson. Sýningarstjóri er Krist-
ín Dagmar Jóhannesdóttir.
kristjana@dv.is
Steypubíllinn mættur Verkið í
mótun og Gaflarar bíða spenntir
... býst við að til hafi stað-
ið að byggja einhvern
óskapnað þarna og
verktakarnir farið á
hausinn áður en það
tókst ...
Glæsilegt menningarhús
Hof verður opnað formlega
um helgina.