Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 36
36 úttekt 27. ágúst 2010 föstudagur Önnur kona varð fyrir barðinu á Ólafi árið 1973, 28 ára gömul. Hún lá á spítala vegna veikinda þegar móðir hennar kall- aði Ólaf til hjálpar. Hann leitaði tvisvar sinnum á hana. Konan sagði móður sinni og sambýl- ismanni frá þessu. Hún gaf lögreglunni skýrslu þegar Ólafur kærði þær Sigrúnu Pálínu Ingvars- dóttur og Stefaníu Þor- grímsdóttur. Hún segir sögu sína nú í fyrsta skipti í fjölmiðlum. Mamma þaggaði niður í mér ,,Ég hef aldrei áður tjáð mig opinberlega um þetta mál,“ segir konan. Hún býr ein og treyst- ir sér ekki til þess að koma fram undir nafni og mynd. „Ég veit ekki hvað maður er að kalla yfir sig með því að gera það.“ Fyrrverandi eiginmaður hennar þekkti Ólaf sem gifti þau hjónin og skírði dætur þeirra. „Árið 1973 fæddist dóttir mín og ég lenti í veikindum í kjölfarið. Ég missti mikið blóð og blóðhlutfallið fór niður í 45%. Ég stóð ekki undir sjálfri mér þannig að við fórum báðar inn á spítala, ég og nýfædd dóttir mín. Móður minni þótti ástandið slæmt, kallaði Ólaf til og bað hann um að koma að tala við mig. Mér leið svo illa. Þetta var erfiðasti tími sem ég hef upplifað.“ Fækkaði fötum í aftursætinu Ólafur kom upp á spítala og hitti þessa konu. Í kjölfarið fór hann að hringja heim til henn- ar. Einn daginn bauð hann henni í bíltúr. „Við fórum upp í Hafnarfjarðarhraun. Þetta var að vori og það var gott veður. Hann fór að fækka fötum og settist í aftursætið á bílnum og bað mig að setjast hjá sér. Ég gerði það en þá tók hann utan um mig. Ólafur renndi síðan nið- ur buxnaklaufinni og gerði sig líklegan í ein- hvers konar ástarleik. Ég sá í hvað stefndi og sagðist þá vilja komast heim og fór út úr bíln- um. Hann gerði það þá einnig, klæddi sig og ók af stað. Við ræddum ekkert um þetta á heimleiðinni en hann talaði mikið um það að hann hafi oft farið út í hraun þegar hann var að læra að verða prestur.“ „Hann var hátt stemmdur og æstur“ Nokkrum dögum síðar hringdi Ólafur í hana og bað hana um að hitta sig í kirkjunni. „Ég hélt að hann ætlaði að ræða við mig. Hann var að klára athöfn og leiðir mig um kirkjuna. Hann fer með mig inn í þetta fræga glugga- lausa herbergi. Seinna hef ég oft hugsað með mér að hann hlýtur að hafa verið í góðri æf- ingu því hann hvolfdi hempunni af sér með einu handtaki og henti henni út í horn. Hann lét hempuna bara fljúga. Þetta var ótrúlegt. Ég man ekki hvort hann fækkaði fötum frek- ar. Hann tók mig í fangið og reyndi eitthvert kelerí. Hann gaf skýr merki um að hann vildi ganga lengra. Hann var hátt stemmdur og æstur. Ég hörfaði undan honum og fór út í miklu uppnámi. Mér var brugðið. Ég hvorki hitti eða ræddi við Ólaf Skúlason eftir þetta.“ Neitaði að ræða trú Ég vildi byggja mig upp og leita stuðnings í gegnum trúna. Áður en þetta atvik átti sér stað í Bústaðakirkju reyndi hún að spyrja Ólaf út í trúna. Þá sagði hann að trú væri ekki þess eðlis að það væri hægt að geyma hana ofan í skúffu og opna skúffuna þegar á þyrfti að halda. Það væri bara alls ekki þannig. Trú þyrfti að stunda með allt öðrum hætti. Þar með eyddi hann þeim hugmyndum að blanda trúnni eitthvað inn í þetta. Ég þyrfti að tala við hann og þá færi mér að líða betur. Svo var hann bara að ræða það sem hann var að gera í daglegu lífi.“ Það stóð enginn með mér Konan fór í uppnámi heim til móður sinnar og sagði henni frá þessu. „Ég hugsaði með mér að ég yrði að láta einhvern vita af þessu, einhvern ábyrgðaraðila en mamma þagg- aði alveg niður í mér. Mamma bar voðalega mikla virðingu fyrir honum. Aðallega vegna viðbragða móður minnar gerði ég ekkert frekar í málunum og hélt að enginn myndi trúa mér. Tíðarandinn var þannig þá. Auðvit- að upplifði ég höfnun. Það stóð enginn með mér. Ég var bara ein. Mér leið mjög illa, bæði varðandi þetta og heilsuna. Þegar ég heyrði að Ólafur sóttist eftir því að verða biskup hugsaði ég með mér að ég ætti að láta gamla biskupinn vita af þessu en ég kom mér ekki að því, því miður.“ Særós Guðnadóttir varð fyrir kynferðisáreitni af hálfu Ólafs Skúlasonar árið 1972, sautján ára gömul. Móðir hennar vildi leggja fram kæru en Særós stopp- aði hana af. Hún óttaðist viðbrögð annarra enda vissi hún af stelpu sem var úthrópuð dræsa í skólanum fyrir að segja skólameistara frá álíka reynslu af Ólafi fjórum árum áður. Hún var ung og skammaðist sín. Þar að auki kannaðist hún við dóttur Ólafs og vildi ekki særa hana með þessari vitneskju. framferði Ólafs altalað í skólanum Særós Guðnadóttir sendi Sigrúnu Pálínu Ingvars- dóttur bréf árið 2009 þar sem hún þakkaði henni fyrir að hafa stigið fram á sínum tíma og vakið at- hygli þjóðarinnar á framferði Ólafs Skúlasonar. Sjálf var hún nemandi í Réttarholtsskóla þar sem Ólafur var umsjónar- og enskukennarinn henn- ar. Vegna veikinda varð hún að taka sjúkrapróf í lokaprófinu í ensku. „Þegar að prófinu kom vildi Ólafur að það yrði tekið í kirkju því hann ætlaði að vinna að ræðu á meðan. Þegar ég svo tók próf- ið kom hann og nuddaði axlirnar á mér, sagði mér að reyna að vera ekki stressuð og slappa af. Ég kláraði prófið og hann leit yfir það með mér og áður en ég gat áttað mig fór hann að káfa á mér og skyndilega henti hann sér á mig og byrjaði að kyssa. Ég varð skelfingu lostin og stökk á fætur og hljóp hljóðandi að dyrunum sem hann hafði læst, hann kom á eftir en ég barði á dyrnar og öskraði. Þá greip hann höndunum fyrir andlitið og sagði: „Guð, fyrirgefðu, hvað hef ég gert?“ Síð- an opnaði hann dyrnar fyrir mér og ég hljóp út.“ Vildi ekki særa dóttur hans Særós steig síðan fram og sagði þjóðinni sögu sína þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sagði sína í þættinum Sjálfstætt fólk árið 2009. „Ég var ekki að koma fram með þrjátíu ára gamlar ásakanir á hendur Ólafi til þess að ráðast á hann. Ætlunin var að styðja þessar konur til þess að fá uppreisn æru sinnar eftir meðferðina sem þær fengu, ekki bara innan kirkjunnar heldur einnig í fjölmiðlum og á meðal almennings. Ég held að við þurfum öll að líta í okkar eigin barm.“ Sjálf sagði hún foreldrum sínum, kærasta, tengdaforeldrum, vinum og skólafélögum frá þessu á sínum tíma þó að hún hafi ekki treyst sér til þess að koma fram opinberlega áður. „Ég sagði mömmu frá þessu og hún vildi að sjálfsögðu kæra hann en ég skammaðist mín og fannst að ég hlyti að hafa sent honum röng skilaboð, ég væri búin í skólanum og þyrfti ekki að hitta hann aftur, dótt- ir hans var með mér í skólanum og ég vildi ekki særa hana, ég var líka hrædd um að Ólafur myndi fella mig og mér tókst að sannfæra mömmu um að fylgja þessu ekki eftir. Maður heldur alltaf að maður sé afmarkað tilvik,“ sagði Særós í bréfinu til Sigrúnar Pálínu. Taldi mig örugga „Auðvitað hafði þetta áhrif á sjálfsmynd mína,“ segir Særós í samtali við DV. „En ég varð reið. Það hjálpaði mér. Þetta var líka minna sálaráfall fyr- ir mig en fyrir Sigrúnu Pálínu og þær konur sem litu á hann sem sálusorgara sinn. Hann var bara kennarinn minn. Ég hef alveg getað sofið á nótt- unni vegna þessa en þetta kenndi mér að treysta ekki fólki. Ég taldi mig örugga í þessu skjóli en lærði það af þessu að það er aldrei hægt að treysta því. Ég lærði af reynslunni.“ Hún hafði aldrei samband við Ólaf eftir þetta. „Flestir mínir skólafélagar höfðu heyrt sögur af Ólafi. Frænka mín sagði mér líka frá einni sem lenti í honum fjórum árum áður og leitaði til skólameistarans. Hann sýndi ekki fagleg vinnu- brögð og stelpan var úthrópuð dræsa. Ég hélt að Ólafur væri bara perri en ég vissi ekki að hann væri líka barnaníðingur. Það kom í ljós seinna.“ Sorgleg viðbrögð biskups Særós hefur fylgst með fjölmiðlaumfjöllun um málið síðustu daga og hefur sínar skoðanir á því. „Mér þykja viðbrögð biskups sorgleg. Ég hefði viljað sjá sterkari og ákveðnari yfirlýsingu um að hann tryði frásögnum okkar. Að hann myndi lýsa því strax yfir að hann tryði okkur og að nú ætti að stofna rannsóknarnefnd. En kirkjan hefur brugð- ist. Karl tók við drullupytti frá Ólafi. En það er klaufalegt hvernig þeir hafa meðhöndlað þetta mál. Karl talar um að það sé ekki hægt að fella dóm yfir Ólafi fyrst hann var aldrei sakfelldur fyrir dómstólum. Það er ekki það sem fólk er að biðja um. Fólk vill vita hvað kirkjan ætlar að gera núna. Hvernig ætlar hún að taka á móti konum sem leita til hennar síðar? Hverju getur það átt von á? Vantrú? Ég vil að kirkjan dragi lærdóm af þessu máli og styðji konur í því að stíga fram og leita sér aðstoðar eða huggunar.“ Karl Sigurbjörnsson Særós segir viðbrögð núverandi biskups sorgleg 2008 2009 2010 sigrún pálína á fund biskups n Sigrún Pálína sat fund með Karli Sigurbjörnssyni biskup og hann biður hana afsökunar á því ef eitthvað í hans framkomu hafi orðið til þess að særa hana. Hann hafði þó ekki sama skilning og hún á samskiptum þeirra árið 1996. Guðrún Ebba fór líka á fund biskups og sagði sögu af misnotkun föður síns um leið og hún lýsti yfir stuðningi við Sigrúnu Pálínu. bréfin til biskups n Birgir Ás Guðmundsson organisti brást við frásögn Sigrúnar með því að senda kirkjuráði bréf um atvik sem hann varð vitni að og um andlegt ástand Ólafs. Í bréfinu sagði Birgir: „Þegar ég kem inn sé hvar liggur ung og falleg stúlka milli tvítugs og þrítugs á bedda, sem þar, var og Ólafur ofan á henni...“ og „Eitt get ég þó sagt hann að hann var haldinn mikilli kynferðislegri þrá eða löngun sem kom fram í óeðli.“ Karl biskup sat í kirkjuráði og sinnti ekki bréfi organistans allt árið 2009. Í fyrstu þóttist hann, aðspurður af DV í ágúst 2010, ekkert kannast við vitnisburð organistans. Guðrún Ebba sendir honum einnig bréf og óskar eftir áheyrn kirkjuráðs. karl vísar til saksóknara n Karl biskup sagði að Sigrún Pálína hefði kært til saksóknara sem ekki hefði séð ástæðu til að bregðast við. Sigrún Pálína Ingv- arsdóttir svaraði Karli um hæl og sagðist aldrei hafa kært Ólaf. Biskupinn hefði kært hana. Í tilkynningu, sem Sigrún sendi frá sér, sagði hún það með ólíkindum að Karl umgengist sannleikann ekki með meiri virðingu. Hann snéri öllu á haus svo það liti betur út fyrir sig og Ólaf. harmþrunginn biskup n Karl biskup viðurkenndi „pennaglöp“ þegar hann hélt því fram að Sigrún Pálína hefði kært. Hann harmaði eigin málflutning. Hundruð manns hafa sagt sig úr þjóðkirkjunni frá því mál Guðrúnar Ebbu kom upp. Kirkjuráð leggur til að stofnuð verði sannleiksnefnd innan kirkjunnar til að fara ofan í þessi mál. Kröfur eru uppi um að Karl axli ábyrgð og víki. sannleiksnefnd n Kirkjan bregst við reiði almennings með því að leggja drög að rannsóknar- og sannleiksnefnd. Sig- rún Pálína ákveður að leita réttar síns og sendi málið til lögmannsstofunnar Lögrök. Á þar sérstaklega að skoða þátt Karls og Hjálmars.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.