Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 38
38 viðtal 27. ágúst 2010 föstudagur Þetta er búið að vera hrikalega erfitt og hrein martröð í átta ár og verst hefur þetta komið niður á strákunum henn-ar,“ segir Arna Ósk Geirsdóttir, starfs- maður á leikskóla á Akureyri, en hún missti dóttur sína, Sigrúnu Kristbjörgu Tryggvadóttur, í febrúar eftir langa og erfiða baráttu við fíkni- efni. Hröð leið niður Arna lýsir Sigrúnu sem rólyndisbarni og ungl- ingi sem aldrei hafi verið nein vandræði með. „Það hefði enginn getað trúað því að þessi stelpa ætti eftir að nota eiturlyf og enda á götunni. Í tí- unda bekk hafði hún aldrei farið á djammið og hún var heima fram eftir öllum aldri. En eftir að eldri strákurinn fæddist gerðist eitthvað. Fyrsta eina og hálfa árið hugsaði hún mjög vel um hann en svo var eins og henni væri farið að líða illa og svo stakk hún bara af,“ segir Arna og bætir við að eftir það hafi leiðin verið hröð niður á við. „Strákurinn var tæplega tveggja ára þegar hún fór og það skildi þetta enginn. Við gerðum allt sem við gátum en hún kom ekki til baka,“ segir hún og bætir við að fjölskyldan hafi flutt suður á þessum tíma. „Við vorum alltaf í sambandi við hana en hún bjó ekki hjá okkur. Hún var bara á götunni en gat komið til okkar þegar hún var edrú. Við tókum alltaf við henni enda vonuð- um við í hvert skipti að nú myndi þetta takast hjá henni.“ Óttinn alltaf til staðar Í byrjun árs 2006 varð Sigrún aftur barnshaf- andi og tókst í kjölfarið að halda sér edrú í þrjú ár. „Um leið og hún varð ófrísk hætti hún. Þarna hafði hún verið í Kvennafangelsinu og á Hlaðgerðarkoti og hafði kynnst góðum manni sem var edrú. Hún kom norður og við redduð- um henni íbúð nálægt okkur og allt gekk vel í tvö ár og ég vonaði að hún væri komin á græna grein. Samt var óttinn alltaf til staðar inni mér,“ segir Arna og bætir við að dóttir hennar hafi varla farið út á meðal fólks í þessi tvö ár sem hún hafi verið heima. „Hún var mest hér hjá mér, kom daglega og borðaði alltaf með okk- ur kvöldmat og mætti á AA-fundi. Hún var svo undarleg hún Sigrún. Hún átti vinkonur en það var eins og hún vildi bara vera með okkur fjölskyldunni. Hún var orðinn svo mikill ein- fari. Ef ég gat ekki verið með henni alla daga fékk ég samviskubit en ég varð líka að lifa mínu lífi,“ segir Arna. Arna segir að sambandið milli Sigrúnar og eldri sonarins hafi aldrei slitnað þótt drengurinn hafi búið hjá afa sínum og ömmu frá tveggja ára aldri. „Tengingin á milli þeirra var alltaf mjög sterk og þótt hann vildi ekki flytja til hennar þá vildi hann geta farið til hennar þegar hann vildi. Hann hefur átt mjög erfitt og hefur aldrei getað gist annars staðar en hjá mér en það var ekki málið fyrir hann að fara til mömmu sinnar og gista með henni á einhverju áfangaheimili.“ Yfirgaf Yngri soninn Sigrún átti tvö góð ár eftir að yngri strákur- inn fæddist en síðan fór mamma hennar að taka eftir breytingum. „Ég var farin að trúa því að hún væri að komast yfir þetta og hélt virkilega að sá litli hefði bjargað henni en í maí horfði ég á hana breytast og hún var far- in í ágúst. Ég þekkti hana svo vel og sá hversu illa henni leið en ég trúði ekki að fíknin væri svona sterk – að hún myndi yfirgefa litla strákinn sinn líka. Sigrún var svo góð mann- eskja og það hefði enginn getað trúað því að hún gæti yfirgefið börnin sín. Hún hugsaði alltaf vel um þau þegar hún var í lagi og ég held að ég hafi aldrei passað þann yngri fyrir hana nema rétt þegar hún fór á AA-fundi,“ segir Arna og bætir við að dóttir hennar hafi alltaf átt erfitt með að fyrirgefa sér að hafa yfirgefið eldri soninn. „Það sat í henni. Þess vegna trúði ég ekki að hún myndi gera þetta aftur. Það var ótrúlegt að fylgjast með þeim mæðginum saman og alveg óskiljanlegt hvernig hún gat bara farið.“ Eftir nokkra erf- iða mánuði féll Sigrún eitt kvöldið en kom til baka daginn eftir. „Þá hugsaði ég með mér að þetta hefði verið það sem ég hafði verið að taka eftir. Þetta hlyti að vera eðlilegt eft- ir svona langan góðan tíma. Hins vegar var þetta bara byrjunin. Næstu helgi var hún al- farin,“ segir mamma hennar þegar hún rifjar upp þennan erfiða tíma. saknar ömmustráksins „Þetta var svo skrítið. Um kvöldið fór ég með henni með yngri strákinn upp á sjúkrahús því hann var með sýkingu. Hún hafði svo miklar áhyggjur af honum og við komum ekki heim fyrr en klukkan 11 um kvöldið. Um nóttina fæ ég hringingu frá Barnavernd. Hún hafði hringt þangað og látið vita að hún væri farin og börn- in væru ein. Maður fékk bara taugaáfall. Þótt mig hafi grunað að eitthvað væri að gerast vildi ég ekki trúa því. Ég lét hana heyra það og sagði henni að ég gæti ekki alið upp annað barn fyr- ir hana. Sá litli var bara tveggja ára og ég vissi ekki hvað ég átti að gera. Pabbi hans hafði þá samband en hann hafði aldrei áður verið inni í myndinni. Hann tók barnið og það var hrika- lega erfitt fyrir okkur öll. Sá litli hafði aldrei hitt pabba sinn áður og grét bara ef hann kom í heimsókn til okkar. Hér átti hann rætur og hér vildi hann vera.“ Arna saknar ömmustráksins en huggar sig við að í dag líði honum vel hjá pabba sínum og fósturmömmu. „Þau hugsa mjög vel um hann en ég vildi að ég gæti hitt hann oftar. Þegar hann var að kynnast þeim gat ég ekki gert honum og okkur hér heima að hitta hann reglulega því það var svo erfitt þegar hann þurfti að kveðja. Sér- staklega fyrir eldri bróður hans. Hann saknar hans gífurlega. Hann missti bæði mömmu sína og bróður. Það var allt rifið frá honum.“ fíknin sterkari en allt Arna segir Sigrúnu hafa fara enn dýpra í þetta skiptið. „Sem betur fer höfðum við fjölskyld- an farið saman til sólarlanda um sumarið sem var ómetanlegt. En úti fann ég að eitthvað væri að gerast. Hún var farin að gráta og henni leið skelfilega. Hún reyndi að útskýra fyrir mér hvað fíknin væri sterk og hversu erfitt þetta væri en ég trúði ekki að fíknin væri sterkari en móður- ástin. Í dag skil ég þetta betur. Hún vildi ekki lifa svona. Ég veit að hún lenti í alls konar viðbjóði á götunni. Hún reyndi að vera hreinskilin við mig arna Ósk geirsdóttir missti dóttur sína sigrúnu kristbjörgu tryggvadóttur í febrúar eftir langa og erfiða baráttu við fíkniefni. Sigrún hafði barist við fíkn sína í átta ár. Þegar yngri sonur hennar fæddist hélt Arna að Sigrúnu tækist að koma lífi sínu á rétt ról en eftir þrjú góð ár lét Sigrún sig hverfa eina nóttina. Arna segir dóttur sína hafa verið rólegt barn og ungling og góða móður þegar hún var í lagi. Saga hennar sýni að enginn sé óhultur þegar kemur að eiturlyfjum. Fíknin öllu yFirster ari mikill missir Arna segist ekki vita hvernig foreldri komist yfir að missa barn. Hún verði hins vegar að halda áfram ef hún ætli að halda heilsu og einnig fyrir ömmustrákana og hin börnin sín. mYnd Bjarni eiríksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.