Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 52
52 tækni umsjón: aðalsteinn kjartansson adalsteinn@dv.is 27. ágúst 2010 föstudagur Google-tölvufyrirtækið hóf á fimmtudag að bjóða upp á símaþjónustuna Google Voice sem býður upp á ókeypis símtöl til Bandaríkj- anna og Kanada. Google Voice svip- ar til Skype en hægt er að hringja úr tölvunni í fastlínusíma og farsíma. Google Voice byggir á VoIP-tækninni (Voice over Internet Protocol) sem tengir símanúmer saman í gegnum netþjón. auknir möguleikar GrandCentral var undanfari Google Voice en nafninu var breytt í mars árið 2009. Þegar GrandCentral varð að Google Voice bættust við nýir möguleikar sem áður voru ekki í boði. Google tók yfir GrandCentral árið 2007 og borgaði fyrir það fjöru- tíu og fimm milljónir dollara, tæp- lega fimm og hálfan milljarð króna á núvirði. Með Google-símanúmeri getur maður látið beina símhringingum í nær hvaða fastlínu eða farsíma sem er. Hægt er að flytja símtöl í marga síma í einu og skiptir þá máli í hvaða síma fyrst er svarað. Einnig er hægt að stilla það í hvaða síma símtöl flytj- ast eftir því hver er að hringja, hvaða tími dagsins er svo dæmi séu tekin. Með Google Voice er boðið upp á símsvaraþjónustu en hægt er að nálgast skilaboð úr símsvaranum bæði með venjulegum síma og í gegnum tölvu. Google Voice bætir í rauninni annarri vídd við símaþjón- ustu þótt tæknin sé enn ekki sam- bærileg við venjuleg símtöl að mörgu leyti. tæknin ófullkomin VoIP-tæknin er þó ekki fullkomin. Gæði símtala eru mjög mismunandi eftir því hvaða tenging næst hverju sinni. Því eru hljóðgæði venjulegra fastlínusímtala og farsímasímtala mun áreiðanlegri en það sem unnt er að ná fram með VoIP-tækninni. Lausn á því gæti þó verið í sjónmáli því Google er að reyna að ná samn- ingum við stærstu dreifingaraðila internetsins í Bandaríkjunum um að fá sérstakan aðgang að ákveðn- um tengingum. Það myndi þýða að Google gæti boðið upp á áreiðan- legri símaþjónustu en önnur VoIP- símafyrirtæki. Það er heldur ekki hægt að hringja neyðarsímtöl með VoIP-símatækn- inni. Vandamálið sem hefur ekki enn verið leyst með fullnægjandi hætti er að símtöl sem fara í gegnum net- ið hafa enga landfræðilega stað- setningu. Því er nær ómögulegt að ákvarða hvaðan er verið að hringja og ekki hægt að beina símtalinu á réttan stað. Neyðarsímtölum í Bandaríkj- unum er nefnilega beint á viðeigandi staði eftir því hvaðan hringt er. Google í samkeppni við skype Google býður ekki endilega upp á hagstæðara verð en Skype á stærstu markaðssvæðunum. Google Voice býður þó upp á mun hagstæðari sím- töl til margra svæða. Til að mynda kostar 2,41 krónur að hringja í fast- línusíma á Íslandi úr Google Voice og 14,49 krónur að hringja í íslenskt farsímanúmer. Það kostar hins vegar 4,34 krónur að hringja í fastlínusíma á Íslandi úr Skype og 40,54 krónur í íslenskt farsímanúmer. Skype er leiðandi þegar kemur að VoIP-þjónustu en Google er eini raunverulegi keppinauturinn sem Skype hefur þurft að eiga við. Google hefur nú þegar milljónir notenda og á eftir að njóta greiðari aðgangs að fólki til að kynna þjónustuna. Google hefur þó ekki alltaf tek- ist ætlunarverk sitt og hefur til að mynda gengið brösuglega fyrir fyrir- tækið að standa í raunverulegri sam- keppni við Facebook. Tíminn verður að leiða í ljós hvort Google Voice á eftir að hasla sér völl. Frítt að hringja úr skólum Þjónustan er enn sem komið er ein- ungis í boði í Bandaríkjunum en stefnt er að því að bjóða upp á hana sem víðast. Google vinnur nú að því að setja upp símaklefa sem eru tengdir við Google Voice í nokkrum bandarískum háskólum og á flug- völlum í Bandaríkjunum. Jason Toff, sá sem sér um mark- aðssetningu Google Voice, segir í samtali við TechCrunch að Google hafi nú þegar látið smíða fimm síma- klefa í breskum stíl sem koma eigi fyrir í háskólum á næstu mánuðum. Úr símaklefunum gefst hverjum sem er kostur á að hringja frítt. Símaklefinn er búinn sólarsellum og því mjög umhverfisvænn. Toff vildi ekki gefa upp hversu marga símaklefa Google hyggst láta gera eða hversu lengi þeir eiga að standa. Fyrsti klefinn verður settur upp í há- skólanum í Arizona, Arizona State University, en Google hefur áður ver- ið í samstarfi við þann skóla. Með Google Voice er boðið upp á bæði venjuleg símtöl og myndsím- töl. Hægt verður að nota viðbótina á iGoogle, upphafssíðu Google og á Gmail, póstþjónustu Google. Símtöl- in verða almennt á hagstæðu verði en óformlegur samanburður á verð- skrá Google Voice og Skype sýnir að það getur munað töluvert miklu eftir því hvert hringt er. Dell kaupir 3par Dell-tölvufyrirtækið hefur keypt gagnageymslufyrirtækið 3PAR fyrir 1,6 milljarða dollara. Fyrirtækið gerði yfirtökutilboð í 3PAR fyrr í ár með fyr- irvara um að ef annað tilboð bærist myndi Dell jafna boðið. Tölvufyrir- tækið Hewlett-Packard, eða HP, gerði þeim tilboð nú á dögunum sem var sex dollurum hærra á hlut en upp- haflegt boð Dell hljóðaði upp á. Dell bætti þá þrjátíu sentum á hlut ofan á tilboð HP og eignaðist fyrirtækið. 3PAR sérhæfir sig í að geyma gögn á netþjónum en aukin eftirspurn hefur verið undanfarin ár eftir geymslu- plássi fyrir tölvugögn. Chatroul- ette fyr- ir fólk í vímu Margir þekkja Chatroulette en þar getur fólk átt myndsamtöl við blá- ókunnugt fólk um allan heim sem valið er af handahófi. Það hefur verið til mikilla vandræða á síðunni að karlmenn beri á sér kynfærin. Síðunni hefur nú verið lokað en til- kynnt hefur verið um að ný og betri útfærsla af Chatroulette verði í boði innan skamms. Í millitíðinni getur fólk skemmt sér á öðrum sambæri- legum síðum sem hingað til hafa ekki notið jafnmikilla vinsælda. Til að mynda er hægt að kíkja við á HighStranger.com en á þeirri vefsíðu er boðið upp á myndsamtöl líkt og á Chatroulette en með þeirri áherslu að menn geti talað við netverja sem eru undir áhrifum vímuefna. GooGle Voice risastór ipaD Apple hefur sótt um einkaleyfi á tölvu sem er einhvers konar millivegur á milli iMac-borðtölvu og iPad-töflu- tölvu. Tölvan er búin snertiskjá og er hægt að stilla hana þannig að hún standi upprétt líkt og iMac-tölva en einnig hægt að leggja hana niður þannig að hún sé eins og risastór iPad-tölva. Það var Apple-bloggsíð- an Apple Patent sem sagði frá þessu. Vefsíðan fylgist grannt með þeim hugmyndum sem Apple sækir um einkaleyfi á. Google er stærsta tölvufyrirtæki í heimi og þar með eitt af stærstu fyrirtækjum heims. Google var upphaflega einföld leitarvél en hefur vaxið hratt síðan. Á fimmtu- dag kynnti Google nýjustu afurð sína, Google Voice, sem svipar til Skype-netsímans og gefur mönnum kost á að hringja frítt til Bandaríkjanna og Kanada. Myndir af Internet Explorer 9-vafran- um láku á netið í vikunni. Myndirnar birtust á heimasíðu Microsoft í Rúss- landi en auk myndanna birtust upp- lýsingar um vafrann sem hafa ekki birst opinberlega áður. Hönnunin er í meiri naumhyggjustíl en áður og gefur vefsíðum meira rými en áður á kostnað valmótaviðbóta. Talsmaður Microsoft vildi ekki staðfesta við erlenda fjölmiðla í vik- unni að upplýsingarnar og mynd- irnar sem birtust á rússnesku vef- síðunni væru réttar. Þær eru þó í samræmi við það sem einn af hönn- uðum vafrans, Ryan Gavin, sagði um fyrirhugaða útgáfu vafrans í samtali við CNET fyrr í ár. Hingað til hefur Microsoft birt mjög takmarkaðar upplýsingar um vafrann. Internet Explorer 9-vafrinn: Klúður hjá Microsoft í Rússlandi internet explorer 9 myndir af og upplýsingar um næstu útgáfu af Internet Explorer-vafranum frá microsoft láku á netið. VoIP-tæknin er ekki fullkom- in en gæði símtala eru mjög mismunandi. Höfuðstöðvar Google símaþjónusta Google verður einungis í boði í Bandaríkj- unum fyrst um sinn. Tæknin var upphaflega þróuð af fyrirtækinu GrandCentral sem Google keypti árið 2007.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.