Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Blaðsíða 55
Það verður enginn skortur á stjörnum í La Liga á Spáni þetta tímabilið frekar en þau fyrri. Stjörnurnar safnast þó
einna helst á stórliðin tvö, Barcelona
og Real Madrid, sem hafa eytt háum
fjárhæðum í að styrkja leikmannahóp
sinn fyrir tímabilið. Barcelona á titil að
verja og andstæðinga þeirra í deildinni
bíður það erfiða verkefni að velta Spán-
armeisturum síðastliðinna tveggja ára
úr sessi. Það er erfitt að sjá að einokun
Barcelona í deildinni ljúki á komandi
tímabili enda hefur liðið fengið til liðs
við sig David Villa, markaskorara af guðs
náð frá Valencia. En eigi það að takast
horfa menn einna helst til Real Madrid
í þeim efnum enda liðið komið með
Jose Mourinho við stjórnvölinn og hann
þekkir ekki annað en sigur. DV Sport
rýnir í möguleika stórliðanna í La Liga.
föstudagur 27. ágúst 2010 sport 55
spænski boltinn
rúllar af stað
Spænska deildin hefst um helgina. sem fyrr verður La Liga stjörnum prýdd
og líkt og svo oft áður hafa það einna helst verið Barcelona og Real Madrid
sem barist hafa um stóru bitana á leikmannamarkaði. real hefur eytt 75
milljónum evra í nýja leikmenn en Barcelona tæplega 50. dV sport spáir í
stórlið deildarinnar sem margir telja eina þá allra skemmtilegustu í Evrópu.
Barcelona Pep Guardiola hefur látið lítið fyrir
sér fara á leikmannamarkaðinum í sumar. Gæði umfram magn virðist vera línan
hjá Barcelona. Aðeins tveir leikmenn hafa komið til liðsins fyrir tímabilið en þeir
kostuðu sitt. Framherjinn frábæri David Villa var keyptur á 40 milljónir evra frá
Valencia og er gríðarlegur fengur fyrir vel mannað lið Barca. Nú virðist Zlatan
Ibrahimovic vera á leið til AC Milan enda sér hann ekki fram á að eiga fast sæti í
liðinu á leiktíðinni eftir komu Villa. Auk hans var bakvörðurinn og kantmaðurinn
Adriano Correia keyptur frá Sevilla á 9,5 milljónir evra. Það voru ekki margar
stöður sem Spánarmeistararnir þurftu að fylla enda heimsklassaleikmenn í öllum
stöðum og hefur Guardiola að auki verið óhræddur við að gefa ungu leikmönnun-
um tækifæri þar sem þeir hafa blómstrað, samanber Pedro Rodríguez og Sergio
Busquets í fyrra. Barcelona hefur líka sýnt ráðdeild í fjármálum sínum ólíkt Real
og selt leikmenn til að fjármagna kaup sín. Yaya Toure fór til Manchester City fyrir
34 milljónir evra og Dmytro Chygrynskiy til Shakhtar Donetsk á 15 milljónir evra.
Sala þessara tveggja leikmanna fjármagnaði innkaup Barca í sumar. Þá losaði liðið
talsvert pláss á launaskrá sinni þegar Thierry Henry fór til Bandaríkjanna í
sumar. Barcelona byrjar tímabilið með aðra hönd á spænska
meistaratitlinum. Liðið er ógnarsterkt og ef Lionel Messi
verður í sama stuði og í fyrra ásamt öðrum lykilmönnum
eins og Xavi, Andrés Iniesta og Villa er erfitt að sjá nokkurt lið
stöðva sóknarleik liðsins. Haldist þessir leikmenn sæmilega heilir
er spænski titillinn öruggur á Camp Nou.
atletico
Madrid
Quique Sánchez Flores og hans
menn þurfa að bæta stuðnings-
mönnum sínum upp vonbrigðin í
deildinni í fyrra þar sem liðið hafnaði
í 9. sæti La Liga og var í bölvuðu basli
allt tímabilið þrátt fyrir að vera vel
mannað. Liðið vann þó Evrópudeild-
ina í fyrra sem var mikil lyftistöng fyrir
liðið. Diego Forlán skoraði 18 mörk í
deildinni í fyrra og verður sem fyrr í
lykilhlutverki hjá liðinu. Hann átti
frábært mót á HM í sumar þar
sem hann var valinn maður
mótsins. En hann verður að
fá aðstoð frá mönnum eins
og Sergio Agüero, Simão Sa-
brosa og Jose Antonio Reyes.
Búist er við miklu frá Agüero
og ættu hann og Forlán að
hafa alla burði til að mynda
eitt skæðasta sóknarpar La
Liga. Brasilíski bakvörð-
urinn og miðjumaðurinn
Filipe Luis Kasmirksi var
keyptur frá Deportivo
í sumar á 12 milljónir
evra og varnarmaðurinn
Diego Godín fenginn
frá Villarreal á 8. Vert er
að fylgjast með spænska
undrabarninu Fran Merida sem
kom frítt frá Arsenal og hvort hann
fái tækifæri. Flores fékk sömuleiðis
hinn reynslumikla Tiago aftur að láni
frá Juventus. Gangi hlutirnir eftir hjá
Atletico gæti það gert harða atlögu
að fjórum efstu sætum deildarinnar.
Liðið hefur mannskapinn til þess.
Fylgist
Með...
DaviD villa
Skoraði 129 mörk í 212 leikjum með Valencia.
Með Barcelona-liðið að baki sér ætti ekkert
að koma í veg fyrir að hann skori.
Mezut Özil
Sló í gegn á HM í sumar með Þýskalandi. Kaup Real
á honum gætu reynst kaup sumarsins fái hann
tækifæri enda þykir Real hafa fengið hann ódýrt.
angel Di Maria
Á honum hvílir pressa um að standa sig enda var
hann dýr. Nái hann sér á strik eins og með
Benfica verður hann unun á að horfa.
Diego Forlán
Maður HM og markaskorari eins og þeir gerast
bestir. Óstöðvandi ógn fram á við og fullur
sjálfstrausts. Frábær leikmaður.
luis Fabiano
Verði hann í náðinni hjá Antonio Álvarez stjóra
Sevilla gerir hann atlögu að markakóngstitlinum.
Cristiano ronalDo
Þarf að sanna sig sem leiðtogi Real á komandi
tímabili. Skoraði 26 mörk á síðasta tímabili í
29 leikjum. Er hann mennskur?
lionel Messi
Það eru einfaldlega forréttindi að vera sam-
tíðarmaður Messi. Það á alltaf að fylgjast með
lang besta leikmanni heims sem hyggst bæta
fyrir dapurt gengi á HM.
PeDro roDriguez
Ótrúlega hæfileikaríkur kantmaður sem skoraði
12 mörk í deildinni í fyrra (19 í öllum keppnum)
og getur gert enn betur í ár.