Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2010, Síða 62
Dansarinn Lovísa Ósk Gunnarsdótt-
ir á von á sínu fyrsta barni í desember.
Barnið verður án efa hæfileikaríkt því
pabbinn er enginn annar en leikarinn
Ólafur Darri Ólafsson, einn af stofn-
endum Vesturports. Sjálf hefur Lovísa
Ósk leikið í sjónvarpsþáttunum Kalla-
kaffi og söngleikjum auk þess sem hún
hefur verið hluti af Íslenska dansflokkn-
um um árabil. Annað stjörnupar sem
á von á erfingja er fjölmiðlamaðurinn
Helgi Seljan og kærastan hans Katrín
Rut Bessadóttir. Parið á fyrir dótturina
Indíönu Karitas sem verður þriggja ára
í haust en von er á nýja erfingjan-
um á næstu dögum.
Eins og kunnugt er varð
barnasprengja á RÚV á dögun-
um þegar þáverandi þulur urðu
ófrískar hver á fætur ann-
arri. Katrín Brynja Her-
mannsdóttir reið á
vaðið og eignaðist son
í febrúar og svo komu
þær Anna Rún Frí-
mannsdóttir og Matt-
hildur Magnúsdóttir
með erfingja í sumar.
Þá eru ótaldar fjölmiðlakonurn-
ar og vinkonurnar Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir í Kastljós-
inu og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
í Íslandi í dag en þær stöllur eign-
uðust báðar sín fyrstu börn á
árinu.
Þá eignaðist söng-
konan Emilíana Torrini
sitt fyrsta barn í vikunni
með kærasta sínum en
söngkonan, sem er bú-
sett í Bretlandi, eignað-
ist dreng.
LOVÍSA ÓSK OG ÓLAFUR DARRI EIGA VON Á SÍNU FYRSTA BARNI:
62 FÓLKIÐ 10. september 2010 FÖSTUDAGUR
STJÖRNURNAR FJÖLGA SÉR
JÓHANNES Í BÓNUS OG FRÚ:
Jóhannes Jónsson kaupmaður, oftast kenndur við Bónus, gifti sig á afmælinu sínu nýverið. Hann kvæntist Guðrúnu Þórs-
dóttur og voru einungis börn
þeirra viðstödd athöfnina, sem fór
fram heima í stofu, segir Jóhannes.
„Þetta var mjög „low-profile“,“ seg-
ir hann í samtali við DV. Guðrún og
Jóhannes hafa búið saman síðastlið-
in átta ár.
Þau munu ekki fara í neina brúð-
kaupsferð. „Ég er nú í þessu ferli að
ná heilsunni aftur. Ætli maður láti
ekki duga þá vegferð,“ segir hann. Jó-
hannes hefur barist við krabbamein
síðustu mánuði en hann er í nú í
lyfjameðferð við því.
Jóhannes kynntist Ásu Karen
Jónsdóttur, fyrrverandi eiginkonu
sinni og barnsmóður, fyrir tvítugt.
Saman eiga þau börnin Jón Ásgeir
og Kristínu. Jón Ásgeir á þrjú börn og
Kristín tvö þannig að barnabörn Jó-
hannesar eru orðin fimm talsins. Eft-
ir skilnaðinn átti hann í stuttu sam-
bandi við Jónínu Benediktsdóttur.
„Það hafa ekki verið margar ást-
ir í mínu lífi. Í raun get ég nokkurn
veginn sagt að þessar þrjár konur
hafi verið ástirnar í mínu lífi. Ég hef
átt barnaláni og barnabarnaláni að
fagna og lít hamingjusamur til baka.
Ég hef sannarlega verið heppinn,“
sagði Jóhannes í samtali við DV í
febrúar á þessu ári.
Jóhannes keypti nýverið nokkr-
ar tískuvöruverslanir af Arion
banka sem tók yfir Haga fyrr á ár-
inu. Haga-samsteypan hélt utan
um eign Jóhannesar og fjölskyldu
hans í mörgum af stærstu versl-
unum á Íslandi. Jóhannes reiddi
fram tólf hundruð milljónir króna
í kaupunum. Þrátt fyrir að eiga
peninga hefur Jóhannes vægast
sagt gengið í gegnum bæði súrt og
sætt.
Guðrún hefur gengið í gegn-
um erfiðleikana með Jóhannesi
en hún hefur staðið við hlið hans
í nær áratug. Á þeim áratug missti
Jóhannes bæði heilsuna og fyrir-
tækið sem gerði hann að einum
auðugasta manni landsins. Það er
því alveg á hreinu að Jóhannes er
vel kvæntur maður.
adalsteinn@dv.is
Jóhannes Jónsson kaupmaður, oftast
kenndur við Bónus, gekk nýlega í það
heilaga. Hann kvæntist sambýliskonu
sinni til átta ára, Guðrúnu Þórsdóttur, á
heimili þeirra við látlausa athöfn þar sem
einu gestirnir voru börnin þeirra. Guðrún
hefur staðið við hlið Jóhannesar í gegnum
súrt og sætt í hartnær áratug.
GIFTU SIG
heima í stofu
Látlaust Brúð-
kaup Jóhannesar
og Guðrúnar fór
fram í stofunni
heima hjá þeim.
Silfurdrengurinn, gelframleið-
andinn og sprelligosinn Logi
Geirsson situr fyrir svörum í
Lokaprófinu, léttum dagskrárlið
í vikublaðinu Monitor sem fylgir
Morgunblaðinu á fimmtudögum.
Í prófinu þarf hann að klára setn-
inguna: „Það besta við Hafnafjörð
er... “ Logi svarar því á einfaldan
hátt: „... fólkið.“ Í framhaldinu
þarf hann að klára setninguna:
„En það versta er... “ Skrifar þá
hinn lauflétti Logi: „... að það er
ekki komin stytta af mér.“ Einnig
kemur fram í þessu prófi að Logi
vildi helst berja Phoebe af öllum
karakterunum úr Friends vegna
þess hversu léleg hún er á gítar.
VILL
STYTTU
AF SÉR
Internetstjarnan Maggi Mix er
hvergi nærri hættur og hlær að
öllu tali um að hans fimmtán
mínútur séu uppurnar. Hann hef-
ur verið afskaplega duglegur að
rappa á Facebook að undanförnu
en þar „frístælar“ hann yfir þekkt
lög á borð við Love the Way You
Lie með Eminem og Rihönnu.
Hann er búinn að búa til sérstaka
Facebook-síðu fyrir rappið og
aðra þar sem hann safnar saman
YouTube-myndböndum. Um
daginn var hann einnig með
magnað bíóhorn þar sem hann
gaf tíu bíómyndum einkunnir.
Það myndband vakti mikla at-
hygli en var snögglega kippt út.
Hvers vegna var ekki útskýrt.
ALLS
EKKI
BÚINN