Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2010, Side 14
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 193,6 kr. verð á lítra 194,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 194,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 194,9 kr. verð á lítra 195,7 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 193,3 kr. verð á lítra 194,3 kr.
Melabraut verð á lítra 193,4 kr. verð á lítra 194,4 kr.
Algengt verð verð á lítra 193,6 kr. verð á lítra 194,6 kr.
GAGnrýnA
GAGnrýni
DV barst póstur frá lögmannsstof-
unni JÁS-lögmenn þar sem þeir
óskuðu eftir því að sjónarmiði þeirra
yrði komið á framfæri, vegna þeirrar
gagnrýni sem Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda, hafði uppi vegna
málflutnings Jóhannesar Árnason-
ar lögmanns í málinu um mynt-
körfulánin. Gísli sagði við DV og
fleiri miðla að fleiri varakröfur hefði
vantað upp á og vanda hefði mátt
betur málflutninginn fyrir dómstól-
um. „Þetta var útskýrt mjög rækilega
fyrir Hæstarétti og þessum kröfum
komið á framfæri. Þess má geta að
við áttum ágætt samstarf við Gísla og
ýmsa fleiri við undirbúning málsins
og það kom mér svolítið á óvart að
heyra þessa gagnrýni eftir á. Það er
augljóst á niðurstöðu Hæstaréttar að
dómurinn taldi vaxtalögin eiga við
og hafnaði sjónarmiðum um að ann-
ars konar vaxtaútreikningar ættu að
gilda,“ sagði Jóhannes í samtali við
Pressuna í vikunni.
SnickerS á 270
krónur
n „Það er með ólíkindum að verð-
leggja lítið súkkulaðistykki á 270
krónur. Það er bara rán,“ sagði óða-
mála viðskiptavinur Sambíóanna.
Honum blöskraði verðlagning og
hætti við að kaupa sér
lítið Snickers. „Ekki
nóg með að bíómið-
inn kosti ríflega 1.000
krónur heldur á að
selja manni Snickers
á næstum 300 kall. Það
kaupi ég ekki,“ sagði hann
ósáttur.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
BeSt á ÍSlAnDi
n „Ég verð að lofa Kaffi Kidda Rót. Ég
fékk þar besta hamborgara sem ég
hef smakkað á Íslandi,“ sagði ánægð-
ur viðskiptavinur fyrirtækisins.
Hann sagðist mikill hamborgara-
maður og hefði víða fengið
sér borgara. Þarna væru þeir
allra bestu. „Ég get varla beð-
ið eftir að fara þangað aftur,“
sagði viðskiptavinur-
inn, sem er búsettur á
landsbyggðinni. (Ath.
myndin er ekki af þeim
borgara)
LOF&LAST
14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 27. september 2010 mánudagur
SkipTir engu hvAr þú verSLAr Það skiptir nánast
engu máli hvort þú kaupir eldsneyti af Olís, Atlantsolíu, Skeljungi, óB eða N1.
Verðið er alls staðar á sama reiki. Sá sem kaupir 40 lítra af bensíni greiðir 7.796
krónur ef hann verslar við Skeljung en 7.732 krónur ef hann verslar við Orkuna.
Bæði verð reiknast án afsláttar. munurinn á ódýrasta bensíninu og því dýrasta er
1,6 krónur á lítra. Ef Skeljungur er undanskilinn er munurinn 30 aurar á hæsta og
lægsta verðinu. Annars má geta þess að bensínlítrinn hækkaði að jafnaði um eina
krónu í verði um helgina. Lítrinn á dísilolíu hækkaði hins vegar að jafnaði um fjór-
ar krónur í verði. Litlu sem engu munar einnig á verði á dísilolíu, eftir olíufélögum.e
L
d
S
n
e
y
T
i
Ef þú ætlar að selja bílinn þinn skaltu
gera það strax. Höfuðstólslækkanir 40
þúsund myntkörfulána getur haft þær af-
leiðingar að gangverð á notuðum bílum
lækkar.
„Ég hygg að það verði meiri umsvif á
markaði og þetta liðki fyrir kaupum og
sölum. Það eru góðar líkur á því að fram-
boðið á notuðum bílum aukist og verð-
ið muni lækka,“ segir Ragnar Árnason,
prófessor við hagfræðideild Háskóla Ís-
lands, spurður hvað það geti þýtt fyrir
bílamarkaðinn að tugþúsundir bíla losni
úr viðjum yfirveðsetningar.
Ef þú ætlar að selja bílinn þinn
skaltu gera það strax. Höfuðstóls-
lækkanir 40 þúsund myntkörfulána
getur haft þær afleiðingar að gang-
verð á notuðum bílum lækkar.
„Ég hygg að það verði meiri um-
svif á markaði og þetta liðki fyrir
kaupum og sölum. Það eru góðar
líkur á því að framboðið á notuð-
um bílum aukist og verðið muni
lækka,“ segir Ragnar Árnason, próf-
essor við hagfræðideild Háskóla Ís-
lands, spurður hvað það geti þýtt
fyrir bílamarkaðinn að tugþúsund-
ir bíla losni úr viðjum yfirveðsetn-
ingar.
Þeir sem vilja fá gott verð fyrir
notaðan bíl gætu því hagnast á því
að selja hann áður en lánastofn-
anir ljúka við að endurreikna lán-
in og færa niður höfuðstól þeirra.
Það er þó auðvitað erfitt að full-
yrða hvort og þá hversu mikið
verðið lækkar.
mikil höfuðstólslækkun
Eftir að dómur Hæstaréttar um að
ólögleg myntkörfulán skuli aftur-
virkt bera hagstæðustu ótryggðu
vexti Seðlabankans féll fyrr í mán-
uðinum er ljóst að höfuðstóll ríflega
40 þúsund lána mun lækka veru-
lega. Útreikningar Nordik Finance
fyrir DV á dögunum sýna að höfuð-
stóll hefðbundins tveggja milljóna
króna bílaláns til sjö ára, sem tekið
var í janúar 2007, lækkar um allt að
þrjá fjórðu – miðað við að eigand-
inn hafi staðið í skilum.
Engin sprenging
Þetta þýðir að stór hluti þeirra bif-
reiða sem voru yfirveðsettar verði
það ekki lengur. Spurður hvaða
áhrif það hafi á markaðinn segir
Ragnar að þau ráðist af því hversu
margir hafi verið í þeirri stöðu að
vilja selja bíla sína án þess að geta
það. Verðlækkun notaðra bíla muni
ráðast af því hversu margir muni
reyna að selja bílinn sinn. „Ég tel þó
langsótt að það verði sprenging á
þessum markaði því fólk hefur ekki
endilega meiri pening á milli hand-
anna,“ segir hann.
Ragnar segir hins vegar að margt
geti haft áhrif. Sé verð á nýjum bíl-
um hátt miðað við notaða bíla þá sé
erfitt að sjá fram á mikla verðlækk-
un notaðra bíla. Enn fremur muni
einhverjir hætta við eða fresta sölu
ef þeir sjá að verðið lækki. Þannig
gæti framboðið minnkað aftur.
„Þetta er svolítið flókið dæmi og ég
hef ekki kynnt mér þennan mark-
að sérstaklega en við fyrstu sýn gæti
dómurinn haft nokkur áhrif á mark-
aðinn án þess að þau verði veruleg,“
segir hann og bætir við að sumir
kunni að halda að sér höndum og
finnist þeir fátækari en áður vegna
þess að þeir hafi reiknað með meiri
niðurfellingu. „Þetta fer svolítið eft-
ir því með hverju menn reiknuðu. Ef
þeir reiknuðu
með að borga
nafnvirði
skuldanna þá eru þeir „ríkari“
núna; eyða meiru og ýta undir veltu
í hagkerfinu.
misjafnir samningar
Þeir bílasalar sem DV hefur rætt við
segja erfitt að spá fyrir um hvaða
áhrif þetta muni hafa á markaðinn.
Margir séu brenndir af samskipt-
um sínum við lánastofnair og muni
hika við að taka ný lán. Bílasalarn-
ir eru almennt ekki á því að verðið
á notuðum bílum muni lækka, ólíkt
því sem hagfræðingurinn Ragnar
telur. Þeir telja þó allir að verslun
með bíla muni vafalítið aukast.
Dagur Jónasson, sölustjóri not-
aðra bíla hjá Ingvari Helgasyni,
telur að niðurfelling skulda á er-
lendum bílalánum muni vafalít-
ið hafa einhver áhrif á markaðinn
með notaða bíla. Fólk muni allt í
einu eiga eitthvað í bílunum sín-
um – þó samningarnir séu mjög
misjafnir og staða þeirra eftir lækk-
un einnig æði misjöfn. „Það verður
mun meiri hreyfing en verið hef-
ur. Nú opnast kannski möguleikar
fyrir fólk að gera eitthvað en það
er mjög erfitt að spá fyrir um það.
Nýskráningar bíla hafa á þessu ári
og því síðasta verið í sögulegu lág-
marki og markaður fyrir nýlega
bíla er því mjög slappur. Bílaleig-
urnar eiga mikið af eins til tveggja
ára gömlum bílum sem búið er að
keyra eins og um fimm til sex ára
bíla sé að ræða,“ segir Dagur. Hann
segir að þörf hafi myndast fyrir
nýjum bílum enda sé stór hluti
flotans fjögurra til sjö ára gamlir
bílar. Því sé þörf fyrir endur-
nýjun en framboðið af nýrri
bílum sé lítið.
Fæstir eiga pening á lager
Rögnvaldur Jóhannesson, eigandi
Bílasölu Selfoss, tekur í svipaðan
streng. „Ég er þeirrar skoðunar að
þetta lagist heilmikið en dugi þó
ekki til að setja markaðinn fyrir al-
vöru í gang,“ segir Rögnvaldur og
bætir því við að þeir sem hafi tek-
ið 90 til 100 prósent lán fyrir nýj-
um bílum séu í mestum vandræð-
um. Lánin þeirra hafi, eins og önnur
hækkað um meira en 100 prósent
en eftir niðurfellingar sé veðsetn-
ingin enn um 100 prósent.
Rögnvaldur efast um að fólk,
sem hafi streðað við að greiða af bíl-
Ég er þeirrar skoðunar að
þetta lagist heilmikið
en dugi þó ekki til að
setja markaðinn fyrir
alvöru í gang.
S du bílinn Strax
baldur guðmundsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Á næstu vikum mun höfuðstóll rúmlega 40 þúsund bílasamn-
inga lækka. Það þýðir að þúsundir bíla verði ekki lengur yf-
irveðsetti . ragnar Árnason hagfræðiprófessor telur að þetta
geti haft þær afleiðingar að verð á notuðum bílum lækki. Þeir
sem hyggjast selja bílana sína ættu því að gera það strax. Bíla-
salar eru ekki sama sinnis en segja að lækkun lána muni hafa
já væð áhrif á markað með notaða bíla.
„Verðlagning í dag er nokkuð
raunhæf“ Dagur hjá Heklu á ekki von á
því að verðið á notuðum bílum lækki.
Erfitt þrátt fyrir dóminn Rögnvaldur
segir þá sem tóku 90 til 100 prósent lán í
slæmum málum.
Engir nýir bílar Í fyrra voru
aðeins um 2.400 nýir fólksbílar
skráðir á Íslandi.