Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 4
4 fréttir 1. október 2010 föstudagur Vesturvör 30c, Sími 575-1500 Auðvitað máttu borga meira. Þó það nú væri! En þá verðurðu bara að fara annað. Ferð á Kársnesið borgar sig! www.kvikkfix.issko ðaðu! Svona gerum við - fyrir minna ósáttir við vegagerðina: Krefjast milljóna Þau Aðalheiður Auðunsdóttir, Hákon Örn Halldórsson og Ragnar Jóhann Halldórsson, landeigendur í Ísafjarð- ardjúpi, krefjast milljóna í skaða- bætur vegna lagningar nýs vegar við Djúpavog. Vegagerðinni er stefnt og krafist eignabóta og var málið tek- ið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Þremenningarnir eiga jarðirn- ar Eyri og Bjarnastaði, sem eru í nágrenni við Ísafjörð, og fóru þau í mál við Vegagerðina þar sem þau töldu sig ekki hafa hlotið þær bætur sem þeim voru ætlaðar. Áður hafði Matsnefnd eignanámsbóta úrskurð- að þeim bætur upp á tæpar 13 millj- ónir króna en þeim úrskurði fylgdi Vegagerðin ekki. Þess í stað greiddi hún landeigendunum þremur átta milljónir. Karl Axelsson hæstaréttalögmað- ur sækir málið fyrir landeigendurna og segir hann málið snúast um að fá þær bætur sem úrskurðaðar voru af Matsnefnd eignanámsbóta. Hann bendir á að í þessu tilviki hafi sveita- vegur breyst í aðalveg á þessu svæði. „Matsnefndinni er einmitt ætlað að ákvarða bætur í svona málum en af einhverjum sökum hefur Vega- gerðin síðustu ár hafnað þeim bótum sem stjórnvaldið ákvarðar og hugsað þess í stað um eigin hag,“ segir Karl og bætir við að það veki nokkra undr- un. „Þetta eru afar fagrar jarðir og um þessar jarðir var gengið eins og af skepnum. Mitt fólk krefst einfaldlega þeirra bóta sem ákveðnar voru og ég treysti því að landráðendum verði sýnd meiri virðing en þetta,“ segir Karl að lokum. trausti@dv.is Lestur á DV hefur aukist um 120 prósent á rúmu ári: Dv í stórsókn Frá því júní 2009 til september 2010 hefur lestur DV aukist um 120 pró- sent. Þetta er samkvæmt nýrri könn- un Markaðs- og miðlarannsókna, MMR, á notkun á vef- og prentmiðl- um. Frá því í júní 2009 hefur lestur á DV og DV.is fari ört vaxandi. Í júní 2009 mældist lestur DV 12,7%, í apríl 2010 mældist hann 23,7% og í sept- ember 2010 mældist lesturinn 27,9%. Að sama skapi hefur lestur á DV.is aukist jafnt og þétt. Þannig var hann 23,5% í júní 2009, 43,5% í apríl 2010 og 45,4% í september 2010. Heldur fleiri karlar en konur lesa DV samkvæmt könnuninni; 32,1% karla sem spurðir voru sögðust lesa DV samanborið við 23,6% kvenna. Á sama tíma og lestur DV og DV.is hefur aukist hefur lestur á Morgun- blaði Davíðs Oddssonar og mbl.is minnkað. Lesturinn á Morgunblað- inu mælist nú 42,5% en í júní 2009 mældist hann 45,2%. Lesturinn á mbl.is mælist nú 80,1% en mældist 83,2% í júní 2009 og 86 prósent í apr- íl 2010. Fréttablaðið bætir við sig lestri frá síðustu tveimur könnunum og mælist hann nú 63,1% en var í tveim- ur könnunum þar á undan liðlega 60%. Lestur á vísir.is hefur sveiflast nokkuð í síðustu könnunum. Hann mælist nú 73,7% en mældist í apríl síðastliðnum 77,9%. Þetta er engu að síður aukning frá könnuninni 2009 þegar lesturinn mældist 66,5%. Könnun MMR var framkvæmd dagana 14. til 16. september síðast- liðinn og fór hún fram á netinu. 854 einstaklingar á aldrinum 18 til 67 ára svöruðu könnuninni og var úrtakið valið af handahófi úr hópi álitsgjafa MMR. Lestur á DV n Júní 2009: 12,7% n Apríl 2010: 23,7% n September 2010: 27,9% *Heimild: MMR Lestur á DV.is n Júní 2009: 23,5% n Apríl 2010: 43,2% n September 2010: 45,4% *Heimild: MMR 250 plöntur fundust Tvö hundruð og fimmtíu kanna- bisplöntur á ýmsum stigum ræktunar fundust við húsleit í Kópavogi fyrr í vikunni. Á sama stað var lagt hald á 2,5 kíló af marijúana sem var í þurrkun. Tveir karlar og ein kona, öll um þrítugt, voru yfirheyrð í tengsl- um við málið. Aðgerðin er liður í að hamla gegn sölu og dreif- ingu fíkniefna. Lögreglan minnir enn sem fyrr á fíkniefnasímann 800-5005, en í hann má hringja, án þess að gefa upp nafn, til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Pálmi Haraldsson hefur lagt fram greinargerð sína í máli skilanefndar Glitnis gegn honum sem höfðað er fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Pálmi vill meina að hann hafi ekki borið neina lagalega ábyrgð á starfsemi Glitnis og geti þar af leiðandi ekki verið skaðabótaskyldur út af starfsemi bankans. PÁLMI BER VIÐ AÐILDARSKORTI Pálmi Haraldsson, fjárfestir kennd- ur við Fons, ber við aðildarskorti í máli skilanefnndar Glitnis gegn hon- um sem höfðað er fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Í þessari málsvörn felst að Pálmi hafi ekki borið neina ábyrgð á þeim ákvörðunum sem stjórnend- ur og starfsmenn Glitnis tóku meðan hann var óbeinn hluthafi í bankan- um í gegnum FL Group, stærsta hlut- hafa Glitnis, og að þess vegna beri að sýkna hann. Þetta er rætt í greinargerð lögmanns Pálma, Gísla Hall, sem lögð var fram í héraðsdómi 30. september. Málið snýst um 6 milljarða lán sem eignarhaldsfélaginu FS38 ehf., sem einnig var í eigu Pálma, var veitt til að kaupa 25,7 prósent hlut Fons í bresku skartgripakeðjunni Aurum Holdings Ltd. fyrir sex milljarða króna vor- ið 2008. Í stefnu skilanefndar Glitnis gegn Pálma, Jóni Ásgeiri Jóhannes- syni, Lárusi Welding og þremur öðr- um kom fram að á þessum tíma hafi verðmatið á hlutabréfunum í Aur- um verið 1,4 milljarðar króna. Samt hafi Glitnir átt að kaupa bréfin á sex milljarða króna. Í stefnunni kemur fram að eftir flókna viðskiptafléttu með bréfin hafi lendingin orðið sú að Pálmi og Jón Ásgeir Jóhanneson, viðskiptafélagi hans og ráðandi aðili í stærsta hluthafa Glitnis, hafi misnot- að aðstöðu sína sem óbeinir hluthaf- ar í Glitnis til að hagnast persónulega um tvo milljarða króna. Farið er fram á að sexmenningarnir sem hefur ver- ið stefnt greiði sex milljarðana aftur til Glitnis ásamt vöxtum frá árinu 2008. Pálmi afneitar Jóni ásgeiri og glitni Líkt og gera má ráð fyrir í slíku máli fer Pálmi fram á það að hann verði sýknaður af skaðabótakröfu bankans og til vara að upphæðin sem hann er krafinn um verði lækkuð verulega. Eitt af grundvallaratriðunum í máls- vörn Pálma er að hann segist ekki hafa hagnast um einn milljarð króna í Aurum-viðskiptunum líkt og haldið er fram í stefnu skilanefndar Glitnis. Lykilatriðið í málsvörn Pálma í stefnunni er að hann segir ekki rétt að hann sé spyrtur við Jón Ásgeir Jó- hannesson og að látið sé í það skína að þeir beri ábyrgð á gjörðum hvors annars. Jafnframt sver Pálmi það af sér að hann hafi borið ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar voru af starfsmönnum Glitnis banka: Spyrja þurfi þá um þessar ákvarð- anir. Í greinargerðinni segir með- al annars: „[Pálmi telur að, innskot blaðamanns] Ekki hafi verið staðið óeðlilega að viðskiptunum og að þau hafi verið gerð að undirlagi bankans. Hann sem framkvæmdastjóri Fons hafi viljað selja hlutabréfin og Glitn- ir banki hf. kaupa þau, allt í þeim til- gangi að bankinn yrði betur settur. Það er ekki hlutverk stefnda Pálma að færa rök fyrir ákvörðun Glitnis banka hf. um að kaupa hlutabréfin.“ Pálmi vill því ekki meina að þeir Jón Ásgeir hafi lagt á ráðin um við- skiptafléttuna með Aurum-bréfin og að þeir hafi nýtt sér aðstöðu sína sem hluthafar í stærsta hluthafa Glitnis til að keyra viðskiptin í gegn og hagnast á þeim persónulega. Aurum-viðskipt- in hafi verið á viðskiptalegum for- sendum. Ber við aðildarskorti Helsta ástæðan sem Pálmi nefnir því fyrir þeirri skoðun að sýkna eigi hann í málinu er aðildarskortur, líkt og áður hefur komið fram: Að Pálmi hafi ekki haft skyldum að gegna gagnvart Glitni og verði því ekki dreginn til ábyrgðar vegna viðskipta bankans. Hann seg- ist í stefnunni ekki hafa verið í þeirri stöðu að geta gefið starfsmönnum Glitnis bindandi fyrirmæli um ein- stök viðskipti og að eftir því sem hann hafi talið hafi Glitnis gengið frjáls til Aurum-viðskiptanna. Í þessi sambandi ber að geta að í stefnu Glitnis gegn Pálma og hin- um fimm eru tilvitnanir í tölvupósta þar sem svo virðist sem Jón Ásgeir og Pálmi hafi lagt línurnar í viðskiptun- um og gefið starfsmönnum Glitnis skýr fyrirmæli um hvernig þau ættu að vera. Meðal annars sagði Pálmi í einum póstinum til starfsmanna Glitnis: „Ég ítreka að ég legg mikla áherslu á að við gerum þetta með þeim hætti sem rætt var um,“ og vísaði þar til Aurum-viðskiptanna. Svar Ein- ars Arnar Ólafssonar, framkvæmda- stjóra fyrirtækjaráðgjafar Glitnis, til Lárusar Weldings hefur einnig orð- ið sérstaklega þekkt í þessu sam- hengi. „Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki af hverju við við lánum ekki bara palma 2. ma.kr. til að koma fyrir á cayman, áður en hann fer á hausinn, I stað thess að fara I alla þess goldsmith aefingu [Aurum-viðskiptin, innskot blaðamanns].“ Lögmaður Pálma útskýrir að ekki sé óalgengt að menn í viðskiptalíf- inu gangi hart fram í viðskiptum sín- um við bankamenn, og er hann þá væntanlega að vísa óbeint til tölvu- póstsamskiptanna sem koma fram í stefnunni: „Í þessu sambandi er rétt að hafa hugfast að ekki er óalgengt að fulltrúar viðskiptamanna banka gangi hart fram í samskiptum við bankamenn, t.d. með því að sann- færa þá um ágæti eigin viðskiptahug- mynda og að banki hafi af þeim hags- muni.“ Inntakið í vörn Pálma er því að hann hafi ekki borið neina lögform- lega ábyrgð á starfsemi Glitnis og að hlutverk hans hafi ekki verið að gæta hagsmuna Glitnis heldur hagsmuna eigin félags, Fons. Mál skilanefnd- arinnar gegn Pálma mun því vænt- anlega snúast um það á endanum hvort hann og Jón Ásgeir Jóhannes- son hafi í reynd borið ábyrgð á Glitni sem óbeinir hluthafar í bankanum og hvort þátttaka þeirra í Aurum-við- skiptunum baki þeim skaðabóta- ábyrgð gagnvart bankanum. Pálmi vill að minnsta kosti meina að svo sé ekki. ingi f. vilhJálmsson fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Í þessu sambandi er rétt að hafa hugfast að ekki er óal- gengt að fulltrúar við- skiptamanna banka gangi hart fram í sam- skiptum við bankamenn. segist ekki hafa borið ábyrgð á glitni Pálmi skýlir sér á bak við það í greinargerðinni að hann hafi ekki borið neina ábyrgð á starfsemi Glitnis og geti þar af leiðandi ekki verið skaðabóta- skyldur vegna starfsemi bankans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.