Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Page 18
18 nærmynd 1. október 2010 föstudagur
SAT ATHAFNALAUS Á STÓRU LEYNDARMÁLI
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð-
herra, mun setjast á sakamannabekk fyrir
athafnaleysi sitt í aðdraganda hrunsins.
Honum er gefið að sök að hafa sofið á verð-
inum og ekki brugðist nægilega vel við
í krafti embættis síns. Hann segist vera
saklaus og skýtur á bankana, endurskoð-
endur þeirra, Davíð Oddsson og fleiri.
Geir H. Haarde verður fyrsti Íslend-
ingurinn sem þarf að svara til saka
fyrir landsdómi, eftir að alþingis-
menn komust að þeirri niðurstöðu
að hann væri sá eini úr þeirra ranni
sem hefði gerst nægilega sekur um
vanrækslu í starfi sínu, en hann
var forsætisráðherra í aðdraganda
hrunsins haustið 2008. Hann hefur
sjálfur sagt að hann sé ekki hræddur,
þrátt fyrir að rannsóknarnefnd Al-
þingis hafi farið hörðum orðum um
athafnir og þá sérstaklega athafna-
leysi hans árin og mánuðina áður en
bankarnir hrundu.
Heldur fram sakleysi sínu
Geir Haarde ætlar hins vegar að
halda uppi vörnum fyrir landsdómi
og ætlar að sýna fram á sakleysi sitt.
Í bréfi sínu til þingmannanefndar-
innar sem hafði rannsóknarskýrslu
Alþingis til meðferðar, segir Geir
meðal annars að forsvarsmenn
bankanna hefðu vísvitandi sagt sér
ósatt. „Ég hef varið mörgum árum
í störf á vettvangi stjórnmála og
kynnst þar mörgu fólki. En ég hef
ekki átt því að venjast að mér sé vís-
vitandi sagt ósatt um mikilvæg mál
hvað þá að málsmetandi ábyrgðar-
menn stórra fyrirtækja geri sig seka
um slíkt gagnvart forsætisráðherra.“
Gögn um athafnaleysi hans í að-
draganda hrunsins eru þó mörg.
Sjálfur skellir hann skuldinni á
bankana, endurskoðendur þeirra
og aðra sem komu að rekstri bank-
anna. Í bréfi sínu til Atla Gíslasonar,
formanns þingmannanefndar um
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is, ver Geir sig af krafti. Hann seg-
ir veikingu bankanna innan frá ekki
hafa verið minna vandamál en stærð
þeirra í hlutfalli við efnahag þjóðar-
innar. Geir skýtur á endurskoðend-
ur bankanna og segir: „Ennfrem-
ur blasir við að ábyrgð þeirra sem
gengu frá og endurskoðuðu reikn-
inga bankanna síðustu ár og árs-
fjórðunga fyrir fall þeirra er mikil
því á hinu endurskoðaða uppgjöri
byggðist mat fjölmargra á stöðu
bankanna.“
Líkt og aðrir sem sakaðir eru um
að hafa verið orsakavaldar að hrun-
inu, vill Geir ekki gangast við því.
Hann segir að orsaka bankahruns-
ins sé ekki að leita í því sem gerðist
á vettvangi íslenskra stjórnvalda síð-
ustu mánuðina fyrir hrunið. Hann
segir að unnið hafi verið af „heilind-
um og einurð“ í stjórnkerfinu þótt
margir hlutir hefðu mátt betur fara.
Hann segir að allt árið 2008 hafi það
verið meginverkefni hans sem for-
sætisráðherra að reyna með öllum
tiltækum ráðum að afstýra hrun-
inu. Hann viðurkenndi hins vegar
að hafa vanmetið stöðuna. Enginn
hefði átt von á því að svo illa færi.
„Eftir á að hyggja er ljóst að ég van-
mat þá hættu sem var fyrir hendi.“
Gagnrýnir Davíð
Í bréfi sínu til þingmannanefndar-
innar gagnrýnir Geir Davíð Oddsson
einnig fyrir aðgerðaleysi í Seðlabank-
anum. Varnir seðlabankastjóranna
um að þeir hafi varað við stöðunni
dugi ekki, því bankinn hefði átt að
bregðast við með aðgerðum. „Hafi
verið meiri alvara í augum banka-
stjórnar Seðlabankans hlaut hún
að fylgja því eftir með formleg-
um hætti,“ skrifar Geir. Hann vitnar
einnig til ræðu Davíðs sem forsæt-
isráðherra árið 2004, þar sem hann
sagði að það leysti ekki Seðlabank-
ann undan ábyrgð að koma varnað-
arorðum á framfæri.
Geir setur það í samhengi við að-
gerðaleysi Davíðs í Seðlabankanum,
en hann hafi ekki fylgt eftir tillögum
eða hugmyndum um viðbrögð við
vandanum. Bankinn hafi fram á vor
2008 sagt íslenska fjármálakerfið í
meginatriðum vera traust.
Vissi ekki að Davíð
afþakkaði hjálp
Sem fyrr segir er það miklu frekar
athafnaleysi Geirs en athafnir hans
á stóli forsætisráðherra sem veldur
því að hann verður nú dreginn fyr-
ir landsdóm og látinn svara til saka.
Af skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis má ráða að Geir hafi skort yf-
irsýn í starfi, þrátt fyrir að hafa haft
aðgang að öllum þeim upplýsingum
sem hann þurfti til þess að öðlast þá
yfirsýn.
Dæmi um athafnaleysi Geirs birt-
ist í sjónvarpsviðtali sem hann veitti
Bloomberg á miðvikudaginn. Þar var
hann spurður hvort hann hefði ekki
átt að taka boði Mervyns King, seðla-
bankastjóra Bretlands, um aðstoð
við að minnka íslenska bankakerf-
ið. „Ég er viss um að það hefði verið
frábær hugmynd að tala við Seðla-
banka Bretlands um aðstoð,“ svaraði
Geir fréttamanni Bloomberg.
Fréttamaðurinn benti Geir á
að vitað væri að King hefði boðið
fram aðstoð við að minnka banka-
kerfið, en Geir svaraði því til að að
hann vissi ekki hversu formlegt til-
boð seðlabankastjórans hefði verið.
Geir sagðist hins vegar vita að Dav-
íð Oddsson hefði rætt við Mervyn. Af
svörum Geirs að dæma, voru sam-
skipti hans og Davíðs annaðhvort
mjög léleg eða hann hefur ekki kynnt
sér atburðarásina eins og henni er
lýst í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis. Þar kemur fram að hinn 15.
apríl 2008 hafi Davíð sent formlega
beiðni um gjaldmiðlaskiptasamning
til Seðlabanka Bretlands. King svar-
aði bréfi Davíðs 23. apríl og hafn-
aði beiðninni. Hann lýsti því hins
vegar yfir að erlendir seðlabankar
gætu hjálpað Íslendingum að finna
leið til að minnka bankakerfi sitt. Í
skýrslunni segir: „Að hans mati væri
það eina raunhæfa leiðin til að tak-
ast á við vandann. King sagði loks
að hann byði fram alla aðstoð sem
hann gæti veitt við að takast á við
þetta verkefni. Seðlabanki Íslands
þekktist ekki þetta boð. Í staðinn var
sent svar þar sem þess var vinsam-
legast óskað að breski seðlabankinn
endurskoðaði afstöðu sína til um-
beðins skiptasamnings. Því bréfi var
ekki svarað.“
Ljóst er því að tilboð Breta um
hjálp barst í formlegu bréfi frá seðla-
bankastjóra, jafnvel þó Geir segi að
hann hafi ekki vitað hversu formlegt
það var.
Vissi allt og bar höfuðábyrgð
Ákæran gegn Geir er að öllu leyti
byggð á gögnum sem rannsóknar-
nefnd Alþingis aflaði í 15 mánaða
langri rannsókn sinni. Nefndin hafði
meðal annars til grundvallar tölvu-
pósta og dagbækur forsætisráðherra.
Óhætt er að segja að nefndin fari
hörðum orðum um stjórnartíð Geirs
síðustu mánuðina fyrir bankahrun.
Nefndin átelur Geir fyrir að hafa
brugðist í starfi með aðgerðaleysi
sínu. Bent er á að hann sem forsæt-
isráðherra hafi borið meginábyrgð á
því að tryggja efnahagslegan stöð-
ugleika. Hann bar jafnframt ábyrgð
vegna fyrirsvars og almennrar verk-
stjórnar í störfum ríkisstjórnarinn-
ar. Undir Geir heyrðu einnig mál-
efni Seðlabanka Íslands, samkvæmt
lögum sem þá voru í gildi. Það var
því á höndum Geirs að hafa sam-
ráð og miðla til ríkisstjórnarinnar
upplýsingagjöf Seðlabankans um
ValGeir örn raGnarssOn
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
1 27. september 2008„Nei,nei,nei,nei,égvaraðkomafráBandaríkjunumímorgun
einsogþiðvitið,búinnaðveranokkra
dagaíburtuogákvaðaðnotadaginn
íaðsetjamiginníþaðsemerbúið
aðveraaðgerastámeðanégvar
fjarverandi.“
Geirvarspurðurhvortfundurhans
meðseðlabankastjórunumþremurí
Stjórnarráðinuhefðiveriðkrísufundur.
GrafalvarlegstaðaGlitnisvarrædd,en
Geirgerðilítiðúrþví.
228. september 2008„Nei,égáekkertsérstaklegavonáþví,þaðnáttúrlegakemur
fjárlagafrumvarpiðámiðvikudaginn
ogégverðmeðstefnuræðuíAlþingi
áfimmtudaginn.Þaðeralltsamaná
barahefðbundnuróli.“
Geirsvaraðiþvíhvorthannætlaði
aðgefaútyfirlýsingueðahvortrík-
isstjórninætlaðiaðgrípatilaðgerða
íefnahagsmálumeftirfundmeð
fulltrúumallraflokka.Áfundinumvar
hrikalegstaðaíefnahagsmálumrædd.
328. september 2008 „Ja,égmyndinúekkertlesaneittsérstaktíþað,viðvinnumoft
umhelgar[...]maðurþarfstundumað
finnatímaþarsemmenngetatalað
samaníróognæðiánþessaðveraí
eilífritímapressu.“
Geirvildiekkikannastviðaðeitthvað
óvenjulegtættisérstaðhelginaáður
enGlitnirhrundi.
429. september 2008:„Þaðvarekkertsérstaktsemgekká,égtalamikiðviðþessa
mennogviðákváðumaðhittastí
gærkvöldi.Égnotagjarnantækifærið
ogspjallaviðBjörgólfThorþegar
hannerálandinuogmérfinnstég
hafagagnafþvíogþaðerekkert
óeðlilegtviðþaðaðviðhittumsteftir
þessarbreytingarsemorðiðhafaá
markaðinum.“
Geirvildilítiðtjásigumhvaðhefði
fariðframáfundinum,ensagðiað
ekkihefðiveriðfariðframásamein-
inguGlitnisogLandsbankansmeð
formlegumhætti.Framhefurkomiðað
forsvarsmennLandsbankanslögðutil
aðGlitnir,LandsbankinnogStraumur
yrðusameinaðir.
55. Október 2008„Nei,nei.Égmyndiekkisegjaaðviðværumneittsérstaklegaverr
stödd.“
GeirvildiekkimeinaaðÍslandværi
verrstattenaðrarþjóðir.Daginn
eftirvoruneyðarlöginsettþarsem
Fjármálaeftirlitinuvargefinheimildtil
aðtakayfirreksturbankanna.
Fimm ósannindi Geirs
Að hans mati væri það eina
raunhæfa leiðin til að
takast á við vandann.
King sagði loks að hann
byði fram alla aðstoð
sem hann gæti veitt við
að takast á við þetta
verkefni.