Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Qupperneq 21
föstudagur 1. október 2010 fréttir 21 sé að brjóta gegn henni þegar hann framkvæmir þetta. Það er ekki nægj- anlegt til sakfellingar að viðhafa al- gjört passívitet. Slíkt er ekki skil- greint sem mótmæli.“ Vildi Jón Steinar frá Varðandi sönnunarbyrðina og óbein sönnunargögn. Valtýr seg- ir frá öðru máli þar sem stúlka lýsti kynferðisbrotum af hálfu stjúpföð- ur síns frá 9-14 ára aldri. Hún lýsti nákvæmlega umhverfi og atburð- um. Maðurinn neitaði sakargiftum. Staðfest var að stjúpi hennar hefði farið með hana í þungunarpróf í öðru bæjarfélagi án vitneskju móður hennar. Hálfsystir hennar bar vitni og sagðist hafa séð manninn ölvað- an og nærbuxnalausan í eða við rúm stúlkunnar. Tvö önnur vitni sögðu að stúlkan hefði sagt þeim frá mál- inu mörgum árum en það fór fyrir dóm. Sérfræðingar mátu það einn- ig svo að hún hefði einkenni sem bentu til kynferðisofbeldis. Hann var sakfelldur í hæstarétti. Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttardómari og Eiríkur Tómasson deildu um óbein sönnunargögn í tímaritsgreinum og þar vísaði Jón Steinar meðal annars til þessa máls og sagði sönnunarfærsluna hafa ver- ið afar veika, svo ekki sé meira sagt. Í kjölfarið ritaði Valtýr forseta hæstaréttar bréf árið 2008 og fór fram á að Jón Steinar viki sæti í kynferðisbrotamálum. Hann taldi þessa skoðun Jóns Steinars varðandi óbein sönnunargögn óásættanlega og grafalvarlegt mál. „Enda myndi hún, ef á hana væri fallist, leiða til þess að það yrði óhjákvæmilega að sýkna í langflestum og jafnvel öllum nauðgunarmálum ef ákærðu neit- uðu staðfastlega sök. Sú niðurstaða væri óásættanleg fyrir ákæruvaldið í landinu, brotaþola kynferðisbrota og yrði beinlínis atlaga að réttar- ríkinu. En ekki var orðið við þeirri kröfu. Síðan hefur Jón Steinar dæmt í máli þar sem sýkna var byggð á óbeinum sönnunargögnum án þess að skila sératkvæði.“ AfmæliSboð endAr illA Árið 2009 frásögn hennar: 17 ára stelpa hélt teiti í tilefni af afmælinu. Þar drakk hún 12-14 stóra bjóra og varð mjög drukkin. Hún hitti þar strák og þau náðu vel saman, spjölluðu og létu vel að hvert öðru. Hún sagð- ist þó ekki getað gengið lengra með honum þar sem hún væri að deyja áfengisdauða. Hann samþykkti það. Hún vaknaði síðan upp með buxurn- ar á hælunum og hann var að hafa samfarir við hana. Hún sagði að fé- lagi hennar hefði rifið strákinn ofan af henni og vinkona hennar hefði hjálpað henni í fötin. frásögn hans: Strákurinn neit- aði og sagði þau hafa látið vel að hvort öðru og káfað á kynfærum hvors annars, en ekki haft samfarir Önnur gögn: Dyravörður kom að þeim og sagðist hafa séð þau liggja í sófanum og kyssast en hún hefði verið fullklædd og þegar hún dó áfengisdauða þá hefði hann tek- ið hann af henni. Vinkona hennar sagði að hún hefði séð þau kyssast og hjálpað henni að laga sokkabux- urnar. Stelpan hefði sagt henni að strákurinn hefði reynt að nauðga sér. Annað vitni staðfesti að stelpan hefði hringt í sig um nóttina og þá í uppnámi af því að henni hefði verið nauðgað. Á Neyðarmóttöku var ótti hennar og uppnám staðfest en ekkert annað athugavert kom fram. niðurstaða: Málið var fellt nið- ur hjá ríkissaksóknara þar sem vitni staðfestu ekki frásögn stúlkunnar og verulegur vafi var á því hvort ástand hennar hafi verið þannig að hún ekki spornað við verknaðinum og honum ætti að vera það ljóst. Það var því tal- ið ólíklegt til sakfellingar. Áfengisdrykkja hefur áhrif á trúverðugleika Valtýr segir að áfengismagn geti haft áhrif á mat málsins. „Gildi fram- burðar hefur stundum ekki mikla vigt miðað við aðstæður. Sérstaklega þegar fólk er undir miklum áhrif- um áfengis eða fíkniefna. Það getur haft áhrif á trúverðugleika kvenna að þær séu drukknar. Ef þær eru mjög drukknar er það oftast þannig að þær muna verr hvað gerðist og þá er minna að marka það sem þær segj- ast hafa sagt og gert. Það er eðlilegt. Að sjálfsögðu skiptir það máli hversu drukknar þær eru. Þannig að við rannsókn málsins er reynt að spyrja mjög ítarlega um áfengisneyslu.“ „Þú Verður mín í kVÖld“ Árið 2009 frásögn hennar: Ungt fólk var statt í teiti. Þar gerði ungur maður tilraun til þess að merkja sér stúlku með frösum eins og „þú verður mín í kvöld“ og „ég á þig.“ Þau fóru á bar- inn og þar vildi hann gefa henni áfengi í skiptum fyrir koss. Hún neit- aði að kyssa hann en drakk mikið og man óljóst eftir kvöldinu. Man hún þó eftir sér í húsnæðinu þar sem teit- ið var haldið, þar sem hún er alls- nakin á meðan hann hristir hana og slær. Næst man hún eftir sér á meðan hann er að hafa samfarir við hana en þá rankaði við sér við ópin í hon- um. Síðan man hún heftir sér þar sem hún er greinilega búin að kasta upp og komin í náttföt. Fötin henn- ar fundust hvergi þegar hún yfirgaf húsnæðið. frásögn hans: Eftir rannsókn lögreglunnar var ljóst var að hún var undir miklum áhrifum áfengis og hafði óljósa minningu um hvað gerðist þetta kvöld. Vitni sáu unga fólkið kyssast auk þess sem hún fór sjálfviljug heim með mannin- um. Þar sem hún var svo ölvuð bar hann hana upp tröppurnar í stiga- ganginum en nokkrum tímum síðar taldi hann að hún væri komin í betra ástand. Sagði hann að hann hefði þá látið undan stöðugum þrýstingi hennar en hún hefði gengið hart að því að þau myndu hafa samfarir. Hann sagðist einnig hafa verið mjög drukkinn sjálfur. Önnur gögn: Vinkona stúlkunn- ar sagði lögreglu að stúlkan hefði sagt sér frá því að henni hefði verið nauðgað og í fyrstu hafi hún trúað því. Henni hafi síðan snúist hugur þegar hún varð vitni að orðaskipt- um á milli fólksins, þar sem stúlkan sagði við manninn að þótt hún hefði viljað þetta hefði hann samt ekki átt að gera þetta. Annað vitni sagði að hún hefði haft miklar áhyggjur af því að kærasti hennar kæmist að þessu. Sama vitni sagði að hún væri afar ósátt við atburðinn, ekki síst vegna þess að hún laðist ekki að kærða og hefði ekki viljað sofa hjá honum. Við læknisskoðun fannst ekkert athuga- vert. niðurstaða: Það var því mat rík- issaksóknara að málið væri ekki lík- legt til sakfellingar. Þá mat ríkissak- sóknari málið þannig að verulegur vafi léki á því að svo hafi verið ástatt fyrir henni að hún hefði ekki get- að spornað við verknaðinum vegna „Hann verður að Hafa ásetning“ framhald á næstu síðu Þarna játaði hann verknað- inn, en játaði ekki að hafa ætlað að nauðga manneskjunni. Það er heljarinnar munur þar á. Er mælikvarðinn endi-lega sá að hún sé ekki virk í rúminu með honum, taki ekki þátt? Það held ég að sé nú bara mismunandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.