Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Page 30
BARNALEIÐSÖGN Í ÞJÓÐMINJASAFNI
ÍSLANDS Sunnudaginn 3. október kl. 14.00 verður boðið upp
á barnaleiðsögn í Þjóðminjasafni Íslands. Leiðsögnin er að þessu
sinni ætluð börnum á aldrinum 5–8 ára. Ferðalagið hefst á slóðum
landnámsmanna á 9. öld. Þaðan liggur leiðin gegnum sýninguna
og 1.200 ára sögu þjóðarinnar fram til nútímans. Ýmsir spennandi
munir á safninu verða skoðaðir, meðal annars beinagrindur, 1.000
ára gömul sverð og dularfullur álfapottur. Leiðsögnin tekur um 45
mínútur og er ókeypis aðgangur fyrir börn yngri en 18 ára.
GALLERÍ Í HEIMAHÚSI Birgir Sigurðsson, myndlistarmaður og rafvirki, opnar
laugardaginn 2.október myndlistargallerí í íbúð sinni, 002, að Þúfubarði 17 í Hafnarfirði.
Klukkan 14.00 mun Marín Hrafnsdóttir, menningar- og ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðar,
klippa á borða og opna þar með galleríið formlega. Listamennirnir sem taka þátt í fyrstu
sýningunni eru Þorvaldur Þorsteinsson, Helena Jónsdóttir, Bjarni Þór Sigurbjörnsson, Eygló
Harðardóttir, Sara Björnsdóttir, Hlynur Hallson, Anna Sigríður, Elín Anna Þórisdóttir, Helena
Hans, Hjördís Frímann og Unnur Óttarsdóttir. Sýningin stendur aðeins þessa einu helgi og
er opin frá kl. 14.00 til 17.00 á laugardag og sunnudag. Sumir listamennirnir munu gera verk
beint á veggina og þannig verður íbúðin að listaverki sem tekur stöðugum breytingum.
Pablo Francisco og Funkin‘ Off The Wall á Broadway:
Endar á Íslandi
Bandaríski grínistinn Pablo Fran-
cisco verður með uppistand á
Broadway á sunnudag. Um er að
ræða síðasta lið grínistans í Evr-
óputúr, en hann hefur á undan-
förnum vikum og mánuðum ferð-
ast um Evrópu með nýja atriðið sitt
sem kallast Funkin‘ Off The Wall.
Hann hefur meðal annars troðið
upp á hinum Norðurlöndunum við
góðar undirtektir.
Hinn 36 ára gamli Pablo er fædd-
ur og uppalinn í Bandaríkjunum en
ættaður frá Chile. Á undanförnum
árum hefur hann verið á meðal
vinsælustu uppistandara heims og
milljónir manns hafa horft á mynd-
brot með honum á YouTube. Pablo
er þekktur fyrir að geta hermt eftir
ótrúlegum fjölda frægra einstakl-
inga og má þar til dæmis nefna
Jackie Chan, Arnold Schwarzen-
egger, Keanu Reeves, Michael
J. Fox, Jerry Springer, Celine
Dion, William Hung, Danny Glover
og Gary Busey.
Þetta er í þriðja skipti sem Pablo
kemur hingað til lands Hann tróð
upp á Hótel Nordica árið 2004 og
aftur í Háskólabíói árið 2007. Sýn-
ingin á sunnudag hefst klukkan
20.00 og verður líkt og fyrr segir á
Broadway. Miðar eru seldir á þrjú
mismunandi svæði, A, B og C. Miði
á svæði A kostar 5.000 krónur, miði
á svæði B 4.000 krónur og miði á
svæði C 3.000 krónur. Þegar er upp-
selt á svæði A og B en bætt verður
við miðum um helgina. Hægt er að
kaupa miða á midi.is
30 FÓKUS 1. október 2010 FÖSTUDAGUR
OPIÐ HÚS HJÁ ÍS-
LENSKRI GRAFÍK
Á laugardaginn verður dagur
myndlistar haldinn hátíðlegur
hér á landi. Af því tilefni ætlar
Íslensk Grafík að vera með opið
hús á milli klukkan 11.00 og 14.00
á verkstæði sínu. Unnið verður á
verkstæði félagsins með nokkuð
hefðbundnum hætti til að gefa
innsýn í starf myndlistarmanns-
ins. Fullbright-styrkþeginn Nicole
Pietrantoni mun vera á verkstæð-
inu að vinna þennan dag.
NÝTT SÝNINGARÁR
ÍSLENSKA DANS-
FLOKKSINS
Sýningarár Íslenska dansflokksins
hefst 7. október með frumsýningu á
Transaquania – Into Thin Air. Höf-
undar verksins hafa allir skapað sér
nafn sem listamenn á alþjóðlegum
vettvangi en þeir eru dansararnir
Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet
ásamt listakonunni Gabríelu Frið-
riksdóttur. Tónlistin er í höndum
Valdimars Jóhannssonar og Bens
Frost. Þessi fjölhæfi hópur listafólks
hefur unnið náið saman í gegnum
tíðina og náð einstökum samruna
dans-, tón- og myndlistar.Trans-
aquania – Into Thin Air er sjálfstætt
framhald af hinu óvenjulega verki
Transaquania – Out of the Blue sem
Íslenski dansflokkurinn sýndi í Bláa
lóninu í apríl 2009 og var valið sýn-
ing ársins af gagnrýnendum Morg-
unblaðsins.
KVIKMYND
RIFF: DEALER
Afskaplega vel
gerð mynd um
einn dag í lífi
eiturlyfjasala.
Lágstemmd en
en næm á hið
hamingjulausa
umhverfi sem
myndin gerist í.
HEIMILDARMYND
RIFF: WHEN THE
DRAGON SWALLO-
WED THE SUN
Þessi magnaða
heimildarmynd
segir langa og
flókna sögu
Tíbet á skýran og
spennandi hátt.
TÖLVULEIKUR
SPORTS CHAMPIONS
PS MOVE
Vel heppnaður íþróttaleikur sem notast
við PlayStation Move-tæknina. Ótrúlega
raunverulegar hreyfingar og skemmti-
legur leikur.
mælir með...
mælir ekki með...
TÖLVULEIKUR
KUNG FU RIDER
Gjörsamlega glataður leikur sem
PlayStation Move mun fljótt gleyma.
Rúllustóla-, hindrana-, spark-leikur.
Glataður.
Pablo Francisco Endar
Evróputúrinn á Íslandi.
Á rið 2004 frumsýndi leik-hópurinn Vesturport leik-ritið Brim en á laugardag-inn verður kvikmynd eftir
Árna Ólaf Ásgeirsson sem er byggð
á leikritinu frumsýnd á kvikmynda-
hátíðinni RIFF. Leikarar Vesturports
leika sjálfir í myndinni en hún skart-
ar stjörnum á borð við Ingvar E. Sig-
urðsson, Björn Hlyn Haraldsson,
Nínu Dögg Filippusdóttur og Ólaf
Darra Ólafsson. Kvikmyndahandrit-
ið skrifaði Óttó Geir Borg.
Skáldaleyfi frá Jóni Atla
„Myndin er meira byggð á persón-
unum en sögunni,“ segir leikstjór-
inn Árni Ólafur Ásgeirsson en hann
hefur áður leikstýrt myndinni Blóð-
bönd. „Við erum samt trúir stemn-
ingunni og karakterunum en þeir
sem hafa séð leikritið munu reka
upp stór augu. Þetta er samt hluti af
því að segja þessa sögu í öðru formi.
Leikritið sjálft gerist allt inni í messa
þar sem persónurnar koma inn og út
og segja sínar sögur. Það var erfiðara
að myndgera það í handritinu,“ seg-
ir Árni.
Árni segir að myndin sé töluvert
breytt frá leikritinu og því hafi þurft
að beygja út af hér og þar við gerð
kvikmyndahandritsins. „Við gáfum
okkur skáldaleyfi og Jón Atli gaf okk-
ur alveg lausan tauminn með það.
Við vildum reyna að gera þetta að
eins mikilli kvikmynd og hægt er.
Hún er samt byggð upp á samtölum
og við reynum að vera með í stemn-
ingunni.“
Heilmikið púsl
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég hef
gert þetta og þetta var heilmik-
Kvikmyndin Brim, byggð á handriti Jóns Atla Jónassonar fyrir
Vesturport, verður lokamyndin á kvikmyndahátíðinni RIFF í ár.
Árni Ólafur Ásgeirsson leikstýrði myndinni sem var öll tekin
úti á sjó til að gera upplifunina sem raunverulegasta.
migu í saltan sjó
30 LISTASPÍRUR
Á sjó Árni Ólafur skaut
Brim alla úti á sjó.
MYND EGGERT JÓHANNESSON