Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Page 36
36 úttekt 1. október 2010 föstudagur
Aldur: 27 ára.
Búseta: Reykjavík.
Iðja: Bréfberi.
Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft á líf
þitt og þinna nánustu? „Það hefur í sjálfu
sér ekki haft mikil áhrif á mig enda tel ég mig
ekki hafa gert neitt glæpsamlegt og kvíði
því ekki niðurstöðu. Staðan væri kannski
öðruvísi ef ég hefði fjölskyldu sem ég þyrfti
að framfleyta. Foreldrar mínir hafa held ég í
raun meiri áhyggjur af þessu en ég, þó svo
að þau í sjálfu sér kvíði engu. Allir þeir sem
þekkja mig standa með mér og trúa því ekki
að þetta fari alla leið.“
Hver er þín skoðun á dómsmálinu?
„Yfirvaldið dæmir sig bara sjálft ef það telur
sig þurfa að taka okkur úr umferð eða hræða okkur. Þetta mál styrkir í raun þær hug-
myndir sem ég hafði áður um valdið. Gagnrýni á ríkjandi kerfi er talin ógn við ríkjandi
vald. Ef við hefðum verið ungliðahreyfing frá einhverjum af stjórnmálaflokkunum tel
ég að málið hefði aldrei farið fyrir dóm.“
Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöll-
un um dómsmálið gegn ykkur? „Skondin. Fyndið að þeir sem hafa hvað mest
verið á móti því að dæma ráðherrana séu þeir sömu og vilja hvað mest stinga okkur í
grjótið. En annars er þetta landsdómsrugl bara enn einn skrípaleikurinn. Persónulega
er mér nákvæmlega sama hvort þessir ráðherrar verði dæmdir meðan ekkert hefur
verið gert til að hrófla við ríkjandi meingölluðu kerfi.“
Ert þú sekur? „Nei, eins saklaus og ég gæti verið.“
Fyrir hvern er réttarríkið? „Ríkjandi vald og kerfi.“
TEITur Ársælsson:
Annað ef við værum
ungliðahreyfing
stjórnmálaflokks
sTEInunn GunnlAuGsdóTTIr:
sakleysi ekki nóg í
réttarríkinu
Aldur: 27 ára.
Búseta: Reykjavík.
Iðja: Listamaður.
Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft
á líf þitt og þinna nánustu? „Það er
auðséð að pólitískar ofsóknir og hótanir
um frelsisskerðingu hafa vond áhrif á þá
sem fyrir þeim verða og þeirra nánustu.
Í umfjöllunum um sakamál á hendur
peningahausunum og stjórnmálarassgöt-
unum er síendurtekið að þessar ásakanir
hafi alvarlegan mannorðshnekki í för með
sér auk tilfinningalegs álags fyrir þá og
fjölskyldur þeirra. Brýnt er fyrir fjölmiðlum
að sýna aðgát í nærveru sálar. Hrikalegt sé
fyrir aðstandendur að sjá til dæmis auglýst
eftir fjölskyldumeðlimi hjá Interpol eða þegar birtar eru myndir af þessu fólki í
lögreglufylgd jafnvel handjárnuðu. Ritstjórar stóru blaðanna halda uppi frösum
um að fólk sé saklaust uns sekt þess sé sönnuð og þannig er umfjöllunin í tilfelli
þeirra fyrrnefdu. Á sama tíma hikar enginn við að birta myndir af okkur þar sem
við erum dregin í handjárnum út úr alþingishúsinu. Sömu miðlar titla okkur ávallt
„Fólkið sem réðst á Alþingi“ þegar þeir fjalla um málið. Við höfum fyrir löngu verið
dæmd sek. Ýmsar aðrar rangfærslur fjölmiðla haldast svo lifandi í umræðunni
þrátt fyrir að þeim hafi verið bent á að þeir fari með rangfærslur. Við, vinir okkar,
stuðningsmenn og fjölskyldur höfum sætt ofbeldi eða þurft að horfa upp á slíkt
af hálfu lögreglunnar í nánast hvert skipti sem við mætum upp í héraðsdóm. Það
myndi aldrei líðast að Jón Ásgeir eða Geir H. Haarde væru lamdir af löggunni á
leið í sitt eigið dómsmál. Munurinn er sá að við erum lágstéttar-, millistéttar- og
utanstéttarpakk.“
Hver er þín skoðun á dómsmálinu? „Ég gef skít í þetta dómsmál. Það er bara enn
ein birtingarmynd valdsins sem þarf að berjast gegn.“
Hvernig finnst þér umfjöllun um landsdóm vera í samanburði við umfjöll-
un um dómsmálið gegn ykkur? „Mér finnst samanburðurinn kómískur. Það sem
um landsdóminn er sagt má algjörlega heimfæra á okkar mál og önnur en fólkið sem
er móðursjúkt vegna óréttlætis landsdómsins myndi aldrei geta séð eigin hræsni. Þau
líta á sig og sína sem aðra tegund, yfir alla aðra hafna.“
Ert þú sek? „Ég er sek í augum þeirra sem vilja að fólk sé þægir þegnar, sem hugsa í
frösum sem þeim hafi verið kenndir. Fyrir það á að refsa okkur.“
Fyrir hvern er réttarríkið? „Réttarríkið er refsiarmur valdsins gegn þeim valdalausu
ef þeir haga sér ekki. Réttlætisþvaðrið um að séum við saklaus þá þurfum við ekkert
að óttast, er yfirborðsleg hugsun og algjört skilningsleysi á tilgangi réttarríkisins og
bákninu í heild sinni.“
Aldur: 26 ára.
Búseta: Reykjavík.
Iðja: Listamaður.
Hvaða áhrif hefur dómsmálið haft
á líf þitt og þinna nánustu? „Er Geir
Haarde ekki búinn að svara því ágæt-
lega?“
Hver er þín skoðun á dómsmálinu?
„Ísland væri nú varla gott og siðmenntað
land með löndum ef það gæti ekki boðið
upp á pólitískar ofsóknir svona við og við.
Það er ein hlið allra vestrænna lýðræð-
isríkja, ekki síður en alræðisríkja annarra
heimshluta. Ákærurnar eru auðvitað
út í hött og sönnunargögnin lítil sem
engin. En það er ekki síður vert að spyrja:
„Hvað ef við hefðum ógnað Alþingi með
einhverjum hætti? Hvers konar samfélag
er það sem gefur nokkrum einstaklingum
svo mikið vald yfir öðrum, að verja þurfi
það með ofbeldi?“ Siðmenntað lýðræði
stendur og fellur með lögregluvaldi. Að
sjá ekki lógíkina í því þegar þessu valdi er
ögrað, er firring á hæsta stigi.“
Hvernig finnst þér umfjöllun um
landsdóm vera í samanburði við um-
fjöllun um dómsmálið gegn ykkur?
„Fjölmiðlar eru fjórða valdið. Það má vera
að einhvejrir þeirra séu skárri en aðrir
en á heildina litið er hlutverk þeirra að
viðhalda gildum samfélagsins, óháð því á
hvaða stoðum þau byggja. Það má bera
landsdómsmálið saman við margt fleira
en málið gegn okkur. Ótrúlegur fjöldi
dómsmála fer fram á degi hverjum um
alla veröld og fjölmiðlar virðast almennt
ganga út frá þeirri hugmynd að réttmæti
þeirra sé algjört. Aðeins þegar ákærurnar
fara upp stigveldið er spurningarmerki
sett við réttmætið. Og það sem verra er,
móðursýkin er keyrð á fullt.“
Ert þú sekur? „Ég er sekur um að hugsa
öðruvísi en samfélagið reyndi að kenna
mér. Ég er sekur um öfgafullar skoðanir
í augum þeirra sem halda því ekki bara
fram að hlutleysi og meðalmennska séu
möguleiki, heldur einnig dyggðir allra
dyggða.“
Fyrir hvern er réttarríkið? „Réttarríkið
er skjaldborg utan um alla ónáttúru
mannsins og er ætlað að temja það sem
enn er ótamið.“
snorrI pÁll Jónsson úlFHIldArson:
Sekur um að hugsa öðruvísi
GREIN: InGIBJörG döGG kJArTAnsdóTTIr ingibjorg@dv.is
VIðtöL: ÁsGEIr Jónsson asgeir@dv.is, HAnnA ólAFsdóTTIr hanna@dv.is, Jón BJArkI mAGnússon jonbjarki@dv.is
hafði dómarinn kallað lögreglu í
hús þegar réttarhöld fóru fram. Til
að byrja með vissu hvorki hann né
skjólstæðingar hans af því en það
kom síðar á daginn. Þá var gestum
meinaður aðgangur að réttarsaln-
um. Taldi Ragnar að þessi ákvörðun
dómarans fæli í sér fyrirframgefna
afstöðu dómarans, sem liti á þetta
fólk sem vafasamt. Því var hafnað.
Aðalflutningur málsins hefst því
29. nóvember. Ríkissaksóknari hef-
ur boðað 20–30 vitni máli sínu til
stuðnings, þingverði, lögreglu og
aðra. Lögmaður sakborninga er að
skoða hvort ástæða sé til þess að
leiða alla þingmenn til vitnis. Pét-
ur Blöndal lýsti í útvarpinu í gær
hvernig það var að vera á þingi þeg-
ar uppþotið varð: „Ég var inni á Al-
þingi og upplifði ógnina sem þetta
var. Ég upplifði baráttuna. Ég upp-
lifði það að mínir ættingjar voru
hræddir.“ Ef þeir hafa verið á staðn-
um og upplifað sömu ógn og Pétur
telur Ragnar það líklegt að það hafi
haft áhrif á afstöðu þeirra í málinu.
Björn Valur Gíslason þingmaður
VG lagði fram þingsályktunartillögu
á Alþingi um að skrifstofustjóra Al-
þingis yrði falið að fara þess á leit
við ríkissaksóknara að hann drægi
til ákæruna til baka. Það fékkst ekki
í gegn.
össur mótmælti á
þingpöllunum
Þó að engin fordæmi séu fyrir þess-
um viðbrögðum Alþingis er mál-
ið sjálft ekkert einsdæmi. Þekkt er
orðið þegar Össur Skarphéðinsson
utanríkisráðherra fór sem ungur
maður á þingpalla og hélt þar langa
ræðu. Í öðru tilviki þyrptust stúd-
entar á þingpallana með þykjustu-
vélbyssur og í ógnandi búningum.
Össur og stúdentarnir sluppu allir
við ákærur.
Það er líka erfitt að átta sig á
því af hverju þessir níumenning-
ar voru valdir úr ekki bara þrjátíu
manna hópi sem var þarna á þing-
pöllunum heldur einnig úr þúsund
manna hópi sem mótmælti daga
og nætur á þessu tímabili. Þessi at-
burður var þar að auki frekar lág-
stemmdur miðað við margt annað
sem gekk á á þessum mánuðum.
En fyrir utan Geir H. Haarde er
þetta eina fólkið sem er dregið fyrir
dóm vegna gjörða sinna í hruninu.
ráðamenn sleppa
Fólkið sem var í ábyrgðarstöðum
á þessum tíma sleppur. Atli Gísla-
son leiddi vinnuhóp sem mánuð-
um saman fjallaði um ráðherraá-
byrgð áður en nefndin komst að
þeirri niðurstöðu að ákæra ætti
fjóra ráðherra, þau Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur, Árna Mathiesen,
Björgvin Sigurðsson og Geir H.
Haarde. Fjölmörgum þingmönn-
um misbauð þessi niðurstaða og
sjálfur forsætisráðherra fordæmdi
hana.
Þegar þingið greiddi atkvæði
um landsdóm á dögunum var það
almennt viðkvæði þingmanna að
það væri það erfiðasta sem þeir
hefðu gert á ferlinum. Að lokum
sluppu þrír af fjórum ráðherrum
við ákæru. Þeir nutu stuðnings fé-
laga sinna sem töldu mikið órétt-
læti felast í því að kæra þetta fólk.
Alþingi þótti það mun greini-
lega mun léttbærara að kæra níu
þjóðfélagsþegna sem ofbauð mis-
réttið og mótmæltu ranglætinu.
Egill Helgason benti réttilega á orð
Evu Joly í þessu samhengi. Hún
hefur oft talað um það hvað fólki
þyki óþægilegt að sjá prúða menn
í jakkafötum, úr efri stéttum þjóð-
félagsstigans, dregna fyrir dóm. Þá
fer í gang einhver ógurleg með-
virkni sem fólk ræður ekki við.
Það er mun þægilegra að senda
ungmenni, sem sum hver eru illa
klædd og jafnvel anarkistar, fyrir
dóm. ingibjorg@dv.is