Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Síða 45
FÖSTUDAGUR 1. október 2010 UMSJÓN: HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON helgihrafn@dv.is SKRÝTIÐ 45
Hundrað ára gamlar litmyndir rússneska ljósmyndarans Sergeis Mikhailovich Prokudin-Gorskii sýna á
ótrúlegan hátt lífið í rússneska keisaradæminu í upphafi tuttugustu aldarinnar. Þær eru ómetanleg heimild
um lífið á jaðarsvæðum hins víðfeðma ríkis en á þessum tíma hafði iðnbyltingin ekki sett mark sitt á sam-
félögin þar.
100 ÁRA GAMLIR
DÝRGRIPIR Í LIT
Myndirnar tók Prokudin-Gorskii með því að taka margar ljósmyndir í röð með bláum, grænum og rauðum
litsíum. Síðan sameinaði hann afraksturinn úr tökunum í litmyndir.
Á árunum 1909 til 1915 ferðaðist
rússneskur ljósmyndari um hið gríð-
arstóra rússneska keisaradæmi, ráð-
inn af Niku lási II Rússakeisara til að
ljósmynda hið margbrotna ríki hans.
Ljósmyndarinn Sergei Mikhailovich
Prokudin-Gorskii (1863-1944) not-
aði sérsmíðaða myndavél til að fanga
myndefnið í lit. Afraksturinn eru
ótrúlegar myndir af veröld sem var.
Það er harla erfitt fyrir okkur nútíma-
mennina að trúa því að ljósmynd-
irnar séu hundrað ára gamlar. Þegar
ljósmyndirnar voru festar á filmu var
hvorki rússneska byltingin né fyrri
heimsstyrjöldin hafin. Nútíminn átti
ekki eftir að hefja innreið sína til óra-
vídda rússneska keisaradæmisins
fyrr en löngu síðar.
Verðmæt heimild
Ljósmyndarinn ferðaðist um Rúss-
land og Mið-Asíu í sérhönnuðum
lestarvagni þar sem hann hafði kom-
ið fyrir myrkraherbergi til að fram-
kalla myndirnar. Myndirnar tók
Prokudin-Gorskii með því að taka
margar ljósmyndir í röð með bláum,
grænum og rauðum litsíum. Síðan
sameinaði hann afraksturinn úr tök-
unum í litmyndir.
Ljósmyndirnar eru gífurlega verð-
mætar því þær sýna með ótrúleg-
um hætti veröldina sem var áður en
iðnbyltingin gjörbreytti lífinu á jað-
arsvæðum keisaraveldisins. Sagn-
fræðingar telja að sumar þessara
ljósmynda séu þær einu sem fyrir-
finnast af svæðunum sem þær sýna,
borgum og bæjum og jafnvel heilu
menningarsvæðunum, og íbúum
þeirra. Líf hirðingjanna frá Mið-Asíu
breyttist til að mynda gífurlega fáum
áratugum eftir að myndirnar voru
teknar þegar kommúnistar nútíma-
væddu samfélög þeirra með miklum
hraði, sem neyddi þjóðirnar oftar en
ekki til að hætta að lifa því lífi sem
þær höfðu lifað um aldir til þess að
taka upp nútímalegri lífshætti sem
þær höfðu í mörgum tilfellum ekki
forsendur til að skilja.
Dagestan Maður og kona sitja fyrir í
Dagestan í Kákasusfjöllum.
Þrjár stúlkur Sveitastúlkur, dætur kotbænda í Úralfjöllum.
Litsíur Dæmi um þrílitaaðferð Prokudin-Gorskii: Rauður, grænn og blár. Myndunum er blandað saman til að mynda litmynd.
Georgía Tblisí höfuðborg Georgíu fyrir hundrað árum síðan.
Khorezm Isfandiyar Jurji Bahadur, Khan
rússneska verndarsvæðisins Khorezm
(hérað í Úsbekistan nútímans).
Samarkand Börn af gyðingaættum
hópast í kringum kennara sinn í Samark-
and (Úsbekistan nútímans).
Fæddur 1825 Pinkhus Karlinskii, fædd-
ur árið 1825, flóðgáttarstjóri í Chernigov
í norðurhluta Úkraínu.