Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Síða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.2010, Síða 48
48 útlit umsjón: indíana ása hreinsdóttir indiana@dv.is 1. október 2010 föstudagur Birkiland.com er síða sem sel- ur allt það helsta og nýjasta í ís- lenskri hönnun, sem og vörur eftir gömlu meistarana. Á meðal þess sem hægt er að kaupa á síð- unni eru herðatré, hankar, hattar, húfur og hárskraut, föt, vefnað- ur, bækur, grafík, töskur og margt fleira eftir marga af eftirtektarverðustu ungu hönnuðum landsins. Má þar nefna Hildi Yeoman, Eygló Mar- gréti Lárusdóttur, Vík Prjónsdótt- ur, REY, og Hidden Goods. Einnig er þar haldið úti skemmtilegu bloggi um allt frá byggingarlist til tískustrauma. Birkiland segist hafa það að mark- miði að kynna, selja og styðja við íslenska hönnun með það að leiðarljósi að stuðla að áfram- haldandi þróun hennar, bæði á Íslandi og úti í hinum stóra heimi. Birkiland með flotta hönnun Nude Magazine í Kringlunni Nude Mag- azine er raf- rænt tíma- rit sem fjallar um tísku og hönnun og senn kemur októ berblaðið í netheima. Í blaðinu er fjallað á metnaðarfull- an hátt um allt það sem er að gerast í heimi tískunnar bæði hér heima og erlendis. Aðstandendur blaðs- ins brugðu á það ráð á dögunum að kynna októberheftið í Kringlunni og um leið leita að forsíðuandliti fyrir næsta blað. Ritstjórinn hvatti ung- ar stúlkur til að mæta á svæðið og sagðist ekki bíta heldur nyti hún að sjá og spjalla við fallegar stúlkur. Það verður spennandi að sjá hvaða stúlka varð fyrir valinu. Nýir litir frá ChaNel Nú eru komnir nýir litir á Chanel Le Vernis naglalökk- in sem eru dás- amlegir. Burstinn er stór og góður þannig að það er auðvelt að þekja neglurnar með fallegum litum í þessum hausttón- um. Þau eru dýr en peninganna virði. Stundum er bara gaman að dekra við sig. Gott ráð til þess að liturinn endist lengur á nögl- unum er að pússa neglurnar og bera svo undirlakk á þær áður en lakkið er borið á. Trendið „natural goddess“ sem ég valdi að vinna með upplifi ég sem tímalaust. Það er alveg sama hvort um fortíð eða nútíð er að ræða, hárið og manneskjan sem ber það eru alltaf flott sama hvert tímabilið er, enda klassískt trend,“ segir Katrín Ósk Guðlaugsdóttir hárgreiðslumeistari sem vann Wella Trend Vision-hár- keppnina sem fram fór um síðustu helgi. Katrín Ósk, sem er sjálfstætt starf- andi á hárgreiðslustofunni Hár Expo, keppti með módelið Evu Katrínu Baldvinsdóttur og hafa þær stöll- ur unnið sér inn þátttökurétt í stóru keppninni sem fram fer í París í nóv- ember. „Svona keppni snýst um samspil módels og fagmanns og ég var ofsa- lega heppin að næla í Evu Katrínu. Hún kann þetta og þar að auki fer skæri rauði liturinn henni mjög vel því hún er með þetta rauðhærða út- lit,“ segir Katrín Ósk og bætir við: „Ég hef oft séð þessari stelpu bregða fyr- ir og hafði ákveðið að næst þegar ég þyrfti á módeli að halda þá myndi ég ræða við hana og mér til mikillar lukku var hún til í þetta.“ Katrín Ósk bíður spennt eftir stóru keppninni. „Ég hef einu sinni áður tekið þátt í alþjóðlegri keppni og var þá svo heppin að koma heim með silfrið. Þessi keppni er enn stærri og meiri umfangs svo þetta er algjör draumur, svona mekka hár- greiðslunördsins,“ segir Katrín Ósk brosandi og bætir við að hún fari út bjartsýn og vongóð. „Það þýðir ekk- ert annað en að vera með jákvætt hugarfar. Að mínu mati standa ís- lenskir fagmenn upp úr og ég hef heyrt að við séum mjög fær á okk- ar sviði. Þarna verða þeir bestu frá hverju landi að keppa svo þetta verð- ur frábær reynsla og upplifun.“ Ásgeir Sveinsson er fram- kvæmdastjóri Halldórs Jónssonar, umboðsaðila Wella á Íslandi, en fyr- irtækið heldur Trend Vision-keppn- ina á Íslandi. „Í tilefni af 50 ára af- mæli Wella á Íslandi ákváðum við að taka þátt en þessi keppni hefur verið valin hárviðburður ársins tvö undan- farin ár,“ segir Ásgeir og bætir við að honum lítist vel á sigurgreiðsluna og fyrirsætuna. „Það verður spennandi að fara út með svona náttúrulegt út- lit í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt. Miðað við þau vinnubrögð sem Katr- ín Ósk sýndi hér heima þá efast ég ekki um að við eigum eftir að verða stolt af henni. Ég hef farið á nokkra mjög stóra og flotta viðburði en þessi keppni er eitt af því stærsta sem ger- ist í hárheiminum. Yfir 50 keppendur munu keppa frá jafnmörgum lönd- um og þarna verða blaðamenn frá öllum helstu tískutímaritum heims svo um frábæran vettvang fyrir ungt hárgreiðslufólk er að ræða sem spennandi verður að fylgjast með.“ indiana@dv.is Katrín ósk Guðlaugsdóttir hárgreiðslumeistari vann Wella Trend Vision-hárkeppnina hér heima og mun fara út og keppa í stóru keppninni sem haldin verður í París í nóvember. Um einn stærsta viðburð í hárgreiðsluheiminum er að ræða og Katrín Ósk stefnir langt. Hárgreiðslu- keppni ársins Klassískt útlit Katrín ósk vann út frá þemanu „natural goddess“ og segist sjálf upplifa greiðsluna sem tímalausa, það skipti ekki máli hvort um fortíð eða framtíð sé að ræða. Þarna verða þeir bestu frá hverju landi að keppa svo þetta verður frábær reynsla og upplifun. Fyrsta sætið Hárgreiðslumaðurinn sigur- jón Helgason var einn af dómurunum og skoðar hér verk Katrínar vel og vandlega. Þrjú efstu sætin Katrín ósk vann en í öðru sæti var Heiða Rún Pálsdóttir frá Crinis hárstofu í mjódd með módelið Ts. ómó og jóhanna stefnisdóttir frá hárgreiðslustof- unni Fagfólki með módelið Eddu sif var í því þriðja. hæfileikaríkur hópur Allir keppendur ásamt fyrirsætum. samkvæmt Katrínu ósk og Ásgeiri sveinssyni er standardinn hár á Íslandi og þess vegna verður spennandi að fylgjast með gengi Katrínar í stóru keppninni í París. sigurvegararnir Katrín ósk, sem starfar sjálfstætt á hárgreiðslustofunni Hár Expo, og fyrirsætan Eva Katrín Baldvinsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.