Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 29. október 2010 föstudagur Fimleikastúlkurnar í Gerplu, sem urðu Evrópumeistarar í fimleikum á dögunum, þurftu að fjármagna ferð sína á nýafstaðið Evrópumót með því að safna dósum og selja klósettpapp- ír í ágústmánuði. Förin kostaði hverja þeirra 200 þúsund krónur. Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri Gerplu, segir stúlkurn- ar ítrekað hafa sótt um styrk í afreks- sjóð ÍSÍ og verið hafnað. Þær njóti ekki fjárstuðnings frá Fimleikasam- bandi Íslands því þar sé fjármagn of lítið. Þá hafi þær einnig sótt um styrki til afrekssjóða fyrirtækja og fengið neikvætt svar. „Þær hafa til að mynda sótt um styrk úr afrekskvennasjóði Íslandsbanka þrjú síðustu ár og ver- ið hafnað í hvert skipti,“ segir Auður Inga. Standa saman allar sem ein Íris Mist Magnúsdóttir, einn kepp- enda, segir mikið á stúlkurnar lagt og að þær sem eigi ekki efnaða foreldra hafi oft áhyggjur og þurfi að hafa sig allar við að safna fé. Þær standi þó allar saman sem ein svo þær kom- ist sem lið á mót. „Við seljum klósett- pappír, höldum ýmsa atburði svo sem bingó og fleira. En þetta eru háar fjár- hæðir fyrir hvert mót svo við þurfum að leggja hart að okkur. Evrópumótið kostaði hverja og eina okkar um 200 þúsund krónur.“ Á Facebook hefur verið stofnuð síða til styrktar kvennaliði Gerplu. Mælst er til þess að þeir sem vilja styrkja framgang Evrópumeistaranna styrki þær um 1000 krónur. Með því losni þær við fjárhagsáhyggjur og geti einbeitt sér að sínu næsta takmarki sem er að næla sér í Norðurlanda- meistaratitilinn. Eru slæmu vön „Fimleikafólk er slæmu vant, það borgar allt úr eigin vasa. Þetta veldur ungu afreksfólki álagi og áhyggjum og hefur valdið því að það tekur ekki þátt í mótum og keppnum,“ segir Auður Inga. Hún nefnir sem dæmi að helsti af- reksmaður þeirra í fimleikum hafi ekki komist með á síðasta heims- meistaramót vegna þess að hann átti ekki fyrir því. „Fyrir afreksíþrótta- menn sem standa fremst í sinni íþrótt er það skelfileg upplifun. Það hefur eytt öllum sínum tíma frá barnæsku í að ná fullkomnun í sinni íþrótt og æfir af krafti fyrir mót. Að komast ekki með vegna þess að það er ekki til peningur er þessu fólki áfall.“ Hún segir Fimleikasamband Ís- lands ekki hafa nægt fjármagn til þess að styrkja stúlkurnar. „Fimleikasam- bandið fékk 500 þúsund króna styrk frá ÍSÍ vegna Evrópumótsins,“ útskýr- ir hún. „Sambandið getur því greitt ferðakostnað á mótið fyrir dómara og fararstjóra. En það er ekkert fé eft- ir til handa stúlkunum sjálfum. Hver þeirra fékk 10 þúsund króna styrk frá Kópavogsbæ og 15 þúsund frá UMSK upp í 200 þúsund króna ferðakostn- að. Þær söfnuðu síðan upp á sitt eins- dæmi hátt í þremur milljónum.“ Ekki smæðinni um að kenna Þorgerður Diðriksdóttir, formaður Fimleikasambands Íslands, tekur undir með Auði Ingu. „Fjármagnið sem sambandið hefur er bara of lít- ið til þess að styrkja afreksfólk okk- ar,“ segir hún og bætir því við að sam- bandið kjósi þess vegna að láta það ganga fyrir að greiða fyrir þjálfara, dómara og fararstjóra því keppendur fái ekki að taka þátt nema þessir fylgd- armenn séu með. „Eins og staðan er núna höfum við af veikum mætti get- að komið til móts við keppendur með því að greiða fyrir fylgdarmenn,“ seg- ir hún. Þorgerður bendir á að Fimleika- sambandið sé fjórða stærsta sam- bandið innan ÍSÍ svo ekki sé hægt að kenna smæð þess um. Ríkið sker niður Samkvæmt upplýsingum frá ÍSÍ er þetta mjög misjafnt eftir samböndum en í allmörgum íþróttagreinum þurfi iðkendur að bera kostnað af keppnis- ferðum þar sem samböndin séu mis- stöndug. Þær upplýsingar fengust hjá Ein- ari Þorvarðarsyni, framkvæmda- stjóra HSÍ, að öll A-landslið í hand- bolta væru rekin af sambandinu, jafnt kvenna- og karlalandslið. Unglingalandsliðin þurfa hins vegar að safna styrkjum og taka þátt í kostnaði sjálf en HSÍ leggur þó allt- af eitthvað til. „Við spilum hátt í 80– 100 landsleiki á ári og umfangið er því mikið. Við þurfum að hafa mjög mikið fyrir þessu og passa vel upp á að þetta geti gengið,“ segir hann að lokum. Hjá KSÍ er ferðakostnaður allra kepp- enda greiddur af sambandinu. Líney Rut Halldórsdóttir, fram- kvæmdastjóri ÍSÍ, segir samband- ið fara eftir reglugerðum þegar kem- ur að úthlutunum úr afrekssjóði og bendir á að fjárframlög frá ríkinu til sjóðsins hafi dregist saman og séu nú aðeins um 24,7 milljónir. Fimleikafólk nýtur lítils fjárstuðnings. Evrópumeistarar í fimleikum þurftu að fjármagna förina á Evrópumótið með því að safna dósum og selja klósettpapp- ír í ágústmánuði. Förin kostaði hverja þeirra 200 þúsund krónur. Formaður Fimleikasambands Íslands segir fjár- magn sambandsins of lítið til þess að styrkja afreksfólk. EVRÓPUMEISTARAR SAFNA DÓSUM kRiStjana guðbRandSdóttiR og gunnhilduR gEiRSdóttiR blaðamenn skrifa:kristjana@dv.is og gunnhildur@dv.is allar sem ein ÍrisMistMagnúsdóttirt.h,segirstúlkurnarstandasamanallarsemeintil þessaðfjármagnakeppnisferðirliðsins. kvennalið gerplu safnar fé Evrópumeistararí fimleikumþurfaaðsafnadósumogseljainnábingó tilaðstandaundirferðakostnaði.myndiR SigtRygguR aRi Fimleikafólk er slæmu vant, það borgar allt úr eigin vasa. Þetta veldur ungu af- reksfólki álagi og áhyggjum. „Hún grípur um hálsinn á mér og læsir nöglunum í mig,“ segir Esther Erludóttir, þriggja barna móðir, sem varð fyrir líkamsárás í biðröð eftir matarúthlutun hjá Fjölskylduhjálp Íslands á miðvikudaginn. Esther hef- ur kært árásina en segist hafa mætt fálæti hjá lögreglunni. Vitni segja andrúmsloftið hafa verið þrúgandi í biðröðinni á mið- vikudag. Hundruð áhyggjufullra einstaklinga í neyð stóðu í röð eftir matar aðstoð frá því snemma morg- uns á miðvikudaginn. Matarúthlut- un Fjölskylduhjálparinnar hefst ekki fyrr en klukkan tvö og höfðu því margir staðið í röð í sex klukkustund- ir. Hópurinn var órólegur að sögn vitna sem DV hefur rætt við en upp úr sauð þegar fólk fór að troðast fram fyrir í röðinni. Esther segir að konan sem réðst á sig hafi verið meðal þeirra ein- staklinga sem mætt hafi seint. Önn- ur kona fyrir framan Esther í röð- inni mun hafa „tekið frá“ stæði í biðröðinni fyrir allt að fimm manns, þar á meðal konuna sem veittist að henni. Esther kveðst hafa gert athuga- semd við troðninginn en þá hafi konan veist að henni með ofbeldi sem fyrr segir. Svo vildi til að lög- reglumenn voru skammt undan til að hafa afskipti af ölvuðum manni í röðinni og komu á vettvang. Áhuga- leysi þeirra á árásinni var algjört að sögn Estherar. „Var þetta ekki bara þér að kenna sagði lögreglumaður- inn“. Hún fór eftir lokun lögreglu- stöðvarinnar og gaf skýrslu í málinu og segir hún þann lögreglumann hafa verið afar hjálplegan. Esther gerði sér síðan aðra ferð upp á lög- reglustöð í Kópavogi í gær til að kæra árásina. „Þeir sögðu blákalt við mig að ekkert yrði gert í þessu máli,“ segir Esther í samtali við DV og furðar sig á áhugaleysi lögregl- unnar. Hún segir að manni sem fylgdi henni á lögreglustöðina sem vitni hafi verið vísað á dyr. „Þeir segja þetta orð gegn orði en það er ég sem ber áverka árásarinnar og hef vottorð til að sanna það auk fjölda vitna. Ef þetta er ekki líkams- árásarmál þá veit maður eiginlega ekki hvað er það,“ segir Esther sem kveðst hafa þurft að leita til Fjöl- skylduhjálpar í þrjú ár í neyð sinni. mikael@dv.is Ráðist á þriggja barna móður í biðröð eftir aðstoð Fjölskylduhjálpar. með áverka vegna árásar í biðröð Slæmt ástand Esther ermeðáverkaíandliti eftirárásinaogaugljóst aðhúnhefurverið klóruðillaíandlitið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.