Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 29
KVIKMYNDASAFNIÐ Í HAFNARFIRÐI SÝNIR VERTIGO
Á laugardaginn kl. 16.00 mun kvikmyndasafnið í Hafnarfirði sýna hina klassísku
kvikmynd Vertigo eftir „meistara óvissunnar“ Alfred Hitchcock. Með Vertigo, eða
Lofthræðslu, er Hitchcock af sumum talinn hafa náð hápunkti ferils síns. Sagan
segir frá lofthræddu rannsóknarlöggunni Scottie Ferguson (James Stewart) sem
fenginn er til að rannsaka dularfulla hegðun Madeleine Elster (Kim Novak) sem gæti
átt sér yfirskilvitlegar skýringar. Sýningar eru í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði,
þriðjudaga kl. 20:00 og laugardaga kl. 16:00 og er miðaverð einungis 500 krónur.
MENNINGARHÁTÍÐ Á AKRANESI Í gær hóst menningar- og
listahátíðin Vökudagar á Akranesi og mun hún standa yfir í 10 daga en henni lýkur
sunnudaginn 7. nóvember. Koma fjölmargir að hátíðinni, allt frá leikskólabörnum
til nafntogaðra listamanna. Meðal viðburða má nefna þrjár sýningar á Safnasvæð-
inu; sýningu Björns Lúðvíkssonar í Garðakaffi, ljósmyndasýningu „Vitans“, félags
áhugaljósmyndara, í Fróðá og sýningu á listaverkasafni Akraneskaupstaðar í nýju
sýningarrými í Safnaskálanum, auk fastra sýninga. Rétt er að nefna að í gangi er
samkeppni um nafn á hinum nýja sýningarsal í Safnaskálanum en úrslit keppninn-
ar verða kynnt í lok Vökudaga. Frekari upplýsingar er hægt að fá á akranes.is.
FÖSTUDAGUR
n Ríó Tríó í Salnum
Hið fornfræga Ríó Tríó verður með þrenna
tónleika um helgina. Þeir munu spila í
Salnum í Kópavogi föstudag, laugardag
og sunnudag. Á tónleikunum munu þeir
spila sín þekktustu lög sem þjóðin hefur
hlustað á í áratugi. Helgi Pétursson, Ágúst
Atlason og Ólafur Þórðarson eru á sínum
stað auk þess sem Björn Thoroddsen
og Gunnar Þórðarson spila á gítar. Allir
tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 en
miðinn kostar 3.300 krónur.
n Sirkus Sóley
Þeir sem eru að leita að skemmtun
fyrir alla fjölskylduna ættu að skella
sér á leiksýninguna Sirkus Sóley. Fimm
sýningar verða í Hamraborg. „Spennandi
sirkussýning þar sem fjör og dirfska ráða
för í jafnvægislistum, gripli, húlahringj-
um, loftfimleikum og auðvitað sprella
trúðarnir. Frábær fjölskylduskemmtun þar
sem búast má við krassandi sirkusat-
riðum, áhættuatriðum og snjöllum
brögðum sem aldrei hafa sést áður á
Íslandi,“ segir í kynningu á midi.is. Þar má
nálgast miða – þeir kosta 1.700 krónur.
LAUGARDAGUR
n Skítamórall í Stapanum
Strákarnir í Skítamóral eru enn í fullu
fjöri og leika fyrir dansi í Stapanum í
Keflavík á laugardag. Skítamórall verður
á aðalsviðinu og leikur fram eftir kvöldi
en plötusnúðurinn Óli Geir mun einnig
bjóða upp á nýja og ferska tóna í hliðar-
sal. Forsala miða fer fram í Gallerí Keflavík
og miðaverð er 1.500 krónur.
n Hrekkjavökupartí á Nasa
Hrekkjavöku verður fagnað víða um land
á laugardag en hún hefst formlega eftir
miðnætti. Á Nasa kemur fram fjölbreyttur
hópur listamanna og verður klæðnaður-
inn eflaust skrautlegur. Fram koma Haffi
Haff, Bloodgroup, Mammút og Dj Maggi
Legó. Haffi er kynnir og sýningarstjóri.
Forsala fer fram í Spútnik og er miðaverð
2.000 krónur.
n Hrekkjavökupartí á Broadway
Af þú vilt fagna hrekkjavökunni með
ögrandi danstónlist í eyrunum þá er
Broadway málið á laugardag. Dj Dolls frá
Rússlandi spila saman fyrir gesti Broad-
way en þær spila það besta og vinsælasta
í popptónlistinni í bland við danstónlist
sem allir kannast við. Einnig koma fram
Plugg‘d, Frigore og fleiri. Forsala fer fram í
Kiss og miðaverð er 1.990 krónur.
Listin að borða þannig að hver máltíð veiti bæði hamingju og heilsu:
Njóttu þess að borða
Hvað á ég að borða? Hvers konar
mat á ég að borða? Hvernig á ég að
borða? Þetta eru þær spurningar
sem velt er upp í bókinni Mataræði
– Handbók um hollustu. Svörin eru
einföld: Borðaðu mat, mestmegnis
grænmeti og ekki of mikið. Í bókinni
er þessum sjö orðum raðað niður í
64 reglur sem eiga að hjálpa fólki að
borða alvöru mat í hóflegu magni og
forðast með því vestræna mataræð-
ið. Hvernig hægt er að forðast mat-
arlíki, mikið unninn mat sem pakk-
að er í plast. Því þjóðir sem borða
samkvæmt þessu vestræna mat-
aræði þjást í miklum mæli af vest-
rænum sjúkdómum: offitu, sykur-
sýki 2, hjarta- og æðasjúkdómum
og krabbameini. Næstum alla offit-
una, sykursýki tilfellin, 80 prósent af
hjarta- og æðasjúkdómum og meira
en þriðjung af krabbameinum má
rekja til mataræðis. Fjögur af tíu al-
gengustu banameinum Bandaríkj-
anna eru tengd þessu mataræði. Það
er einstakt afrek samfélags að hafa
þróað mataræði sem gerir þegn-
ana veika. Aftur á mótu þjást þjóð-
ir sem borða fjölbreytt fæði ekki af
þessum sjúkdómum. Samt lifa ín-
úítar á Grænlandi að mestu á sel-
spiki og fitu, indíánar í Mið-Amer-
íku innbyrða kolvetni í stórum stíl
með maís og baunum og masai-fólk
neytir sérlega prótínríkrar fæðu með
öllu þessu nautgripablóði, kjöti og
mjólk.
Margar reglur í bókinni eiga sér
engan einn höfund en eru brot úr
matarmenningu, oft fornri. Þá lagði
fjöldi fólks hönd á plóginn við að
finna þessar reglur, þannig að
segja má að reglurnar séu rödd
kórs sem þylur upp almenna
visku um mat.
Á meðal þess sem tekið er
fram í bókinni er að það er
ekki matur ef það kemur inn
um gluggann á bílnum þínum,
það er ekki matur ef það heitir
það sama á öllum tungumál-
um eins og Big Mac, Pringles og
fleira, ekki borða morgunkorn
sem breytir litnum á mjólk-
inni, borðaðu ekkert sem lang-
amma hefði ekki kannast við
sem mat og eldaðu. Þetta er
bók um listina að borða ham-
ingjusamlega og heilsusam-
lega. Að njóta þess.
FÖSTUDAGUR 29. október 2010 FÓKUS 29
Hvað er að
GERAST?
Skylda að ÁTVR
selji plötuna
syni, umboðsmannin-
um okkar. Hann er ný-
búinn að endurútgefa
disk með mér og var að
dreifa Gylfa. Við erum
allir búnir að prófa stóru
útgefundurna einhvern
tímann, sem heppnaðist
misjafnlega, og því mjög
gott að gefa út með Ása.“
Megas: „Þessir stóru út-
gefendur ættu nú bara
allir að vera á Tjörninni eins og hinar
endurnar.“
Er þetta þá brot af því besta frá ykk-
ur öllum á plötunni?
Megas: „Það besta sem fólk álítur alla
vega.“
Gylfi: „Þetta eru sennilega mest spil-
uðu lögin okkar.“
Megas: „Ég veit nú ekki hvort þetta
séu samkvæmt STEF-skýrslum mest
spiluðu lögin. Því mest spiluðu lög-
in okkar allra eru þau sem eru spiluð
við eitthvert annað tækifæri en í partí-
um.“
Rúnar: „Ég segi nú eins og Megas að
þetta eru kannski ekki bestu lögin að
mínu mati en þetta er það sem fólk
velur. Það er alltaf þannig að fólk vel-
ur lögin og gerir þau vinsæl með því
að biðja um þau.“
Hefur það komið á óvart hvaða lög
slá í gegn þegar þið gefið út plötu?
Megas: „Já.“
Gylfi: „Maður getur aldrei vitað það.“
Rúnar: „Maður getur aldrei verið viss
en það er líka hvernig þetta heppnast
í stúdíói. Maður fer kannski með tíu
lög en svo heppnast eitt þeirra bara
miklu betur en öll hin. Maður hittir
á réttan hraða og þetta smellur ein-
hvern veginn.“
Syngið þið saman á plötunni eða
hver í sínu lagi?
Megas: „Við syngjum þetta mikið
saman.“
Gylfi: „Þetta er bara krydd af okkur
öllum.“
Ætlið þið svo að fara á túr núna?
Rúnar: „Við verðum með tónleika í
Austurbæ 4. nóvember og vonumst til
að fylla það hús...“
Gylfi: „Það er eins gott að það sé ekki
kona í hópnum: Eruð þið að fara á
túr?“
Rúnar: „Já, við vonumst til að fylla
kofann því að svo verður tekið af stað
út á land. Meðal annars verðum við
með stórtónleika í hinu nýja og glæsi-
lega menningarhúsi Hofi á Akureyri.“
Ætlið þið ekki að fylla kofann þar
eins og í Austurbæ?
Gylfi: „Jú, biddu fyrir þér.“
Rúnar: „Ég er frá Ísa-
firði og hef verið að
spila mikið út á landi
og þróunin hefur
verið breytast mik-
ið síðustu ár. Fólk er
hætt að nenna á böll
og fer frekar á tón-
leika. Fólk nennir
ekki lengur að fara
á skrall og eyða tíu
til fimmtán þús-
und kalli á barn-
um. Heldur frekar
fer þetta fólk, pör,
hjón, á tónleika og
er komið heim til
sín um ellefu.
Megas: „Eru svona
fáir einhleypir?“
Gylfi: „Ha, ha, ha!“
Rúnar: „Það eru svo fáir eftir sem
tíma að eyða í bardrykkju.“
Megas: „En það eru meiri líkur á því
að ná sér í „one night stand“ eða „for-
ever“ á balli.“
Rúnar: „Þetta er mín tilfinning. Tón-
leikar trekkja meira að en böllin eftir
að kreppan skall á. Fólk sækir meira í
að fara saman en að kallinn fari bara
einn á fyllerí.“
Nú hafið þið þekkst lengi. Hvernig
kynntust þið?
Gylfi: „Ég passaði Rúnar hérna í
gamla daga þegar ég var í drykkjunni.
Þá var hann bara ungur strákur.“
Rúnar: „Þegar ég var á Ísafirði í kring-
um 1970 áttu þessir karlar vinsælustu
lögin. Í sól og sumaryl, Spáðu í mig og
Minning um mann. Maður hélt því
mikið upp á þá. Svo þegar ég flutti til
Reykjavíkur tvítugur urðu þetta vin-
ir mínir. Þeir eru náttúrulega aðeins
eldri en ég, sjö til tíu árum. Þetta voru
svona fyrstu vinir mínir og við þvæld-
umst mikið saman.“
Megas: „Áttum ævina göfuga.“
Rúnar: „Við gengum líka í gegnum
erfiða tíma saman. Restina á fyllerí-
um saman.“
Gylfi: „Þynnkuna.“
Rúnar: „Við Megas fórum í gegnum
þetta saman og enduðum í meðferð
saman og við Gylfi líka. Vorum við
ekki saman á Silungapolli, Megas?“
Megas: „Er ekki verið að gera ein-
hverja rannsókn á Silungapolli?“
Rúnar: „Við Megas eyddum allir
meðferðinni í að spá fyrir vistmönn-
um. Við hræddum þá svo mikið að
það fór helmingurinn út.“
Gylfi: „Við Rúnar vorum saman á
Tíunni. Ég ákvað strjúka.“
Rúnar: „Við ætluðum að strjúka sam-
an. Þú sveikst það.“
Gylfi: „Ég setti gítartöskuna undir
sængina og setti glerflöskur í sokka
til fóta. Svo kom vörðurinn að athuga
með mig og þá klingdi bara í flöskun-
um þegar hann ætlaði að taka í fæt-
urna á mér. Ég var löngu farinn.“
Gætuð þið hugsað ykkur að gera
aðra plötu saman?
Gylfi: „Ef hún fer í platínu, þá tökum
við strax upp aðra.“
Rúnar: „Okkur líkar öllum að starfa
saman og það er hægt að gera svo
margt þegar við eigum svona mörg
lög. Kannski setjum við þetta í kántrí-
búning næst.“
Hvenær kemur diskurinn út og hvar
er hægt að fá hann?
Rúnar: „Opinberi útgáfudagurinn er
1. nóvember en diskurinn er kominn
til landsins þannig að það getur vel
verið að honum verði dreift aðeins
fyrr. Hann verður fáanlegur í þessum
helstu plötubúðum og hugsanlega
Hagkaup og einhverju svona.“
Gylfi: „Það er nú skylda að Áfengis-
verslunin selji þennan disk.“
(Þeir hlæja allir í dágóða stund.)
Megas: „Já, diskur og peli.“
Gylfi: „Eftir að ég hætti var tveimur
verslunum lokað.“
Rúnar, Gylfi og Megas
Hafa marga fjöruna sopið.
Bókin Mataræði
Á meðal þess sem
tekið er fram í
bókinni er að það
er ekki matur ef
það kemur inn
um gluggann á
bílnum þínum.