Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 38
38 ÆTTFRÆÐI UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kjartan@dv.is 29. október 2010 FÖSTUDAGUR Úlfar Guðmundsson FYRRV. PRÓFASTUR ÁRNESPRÓFASTSDÆMIS Úlfar fæddist í Reykjavík. Hann lauk verslunarskólaprófi frá VÍ 1959, stúd- entsprófi 1961, lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1972 og kennaraprófi frá KHÍ 1992. Hann lærði á píanó hjá Árna Björns- syni, Katrínu Viðar og Mána Sigur- jónssyni, lærði á pípuorgel hjá Sigurði Ísólfssyni og tónfræði hjá dr. Róbert Abraham Ottóssyni og hafði kirkju- tónlist að sérefni til embættisprófs í guðfræði. Úlfar var í sveit á sumrin að Stóra- Saurbæ í Ölfusi 1952–55, vann hjá Hitaveitu Reykjavíkur, við byggingu Steingrímsstöðvar, við húsgagnasmíði og við reknetaveiðar, var lögreglu- þjónn í Reykjavík 1965–70, og stund- aði trilluútgerð á handfæraveiðar á Gulltoppi ÓF 33 1974–80. Úlfar var sóknarprestur í Ólafs- fjarðarprestakalli 1972–76 og 1976– 80, skipaður biskupsritari um hríð 1976, þjónaði jafnframt í Dalvíkur- prestakalli 1978 og 1979 og í afleysing- um á Siglufirði 1972–80, var skipaður sóknarprestur í Eyrarbakkaprestakalli 1980–2008, settur fangaprestur á Litla- Hrauni 1983–84, þjónaði jafnframt í afleysingum í Þorlákshöfn til 1997 og Selfossprestakalli frá 1998 og var próf- astur í Árnesprófastsdæmi 1997–2008. Úlfar var kennari við Barna- og gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar 1972–80, við Barnaskólann á Eyrarbakka 1981– 96 og kennari þar i hálfu starfi 1996– 97, kennari við Iðnskóla Selfoss 1981, á Litla-Hrauni 1981 og við Grunnskól- ann á Stokkseyri og Grunnskólann á Eyrarbakka 1984–97. Úlfar starfaði í KFUM og var Skóg- armaður á æskuárunum, starfaði með skátafélögunum Jómsvíkingum og Skjöldungum á unglingsárunum og síðan með Hjálparsveit skáta í Reykja- vík og Félagi ungra guðspekinema, var formaður Málfundafélags VÍ 1958–59, sat í stjórn Vöku 1963–64, í stjórn LÍN 1968–69, í Stúdentaráði 1967–69, í Há- skólaráði 1968–69, formaður skóla- nefndar Húsmæðraskólans á Löngu- mýri 1976–77, sat í framkvæmdastjórn byggingarnefndar elliheimilis og heilsugæslustöðvar í Ólafsfirði 1972– 80, í kjörstjórn Ólafsfjarðarkjördeild- ar 1974–80, í skólanefnd Ólafsfjarðar 1978–80, forseti Rotaryklúbbs Ólafs- fjarðar 1979–80, í félagsmálanefnd eldri borgara og öryrkja á Eyrarbakka 1982–86, skoðunarmaður hrepps- reikninga Eyrarbakkahrepps 1982– 98, skoðunarmaður Selfossveitna frá 1992–2002, í sáttanefnd Eyrarbakka 1982–86, í áfengisvarnarnefnd Eyrar- bakka 1988–94, formaður Bridsfélags Selfoss 1985–86, í Kjaranefnd Presta- félags Íslands 1985–87, í stjórn Hjálp- arstofnunar kirkjunnar 1987–92, gjald- keri Prestafélags Suðurlands 1987, ritari Prestafélags Suðurlands 1989– 92, fyrsti formaður siðanefndar Presta- félags Íslands 1994–2004, í stjórn Fjöl- skylduþjónustu kirkjunnar 1995–2000, í Héraðsnefnd Árnesprófastsdæmis 1995–2007, í stjórn Prestssetrasjóðs 1998–99, sat í stjórn Prófastafélags Ís- lands 1999–2007, í Strandakirkjunefnd 2002–2007 og er gjaldkeri í stjórn Fé- lags fyrrverandi presta frá 2010. Úlfar situr í æðsta ráði Frímúrara- reglunnar frá 2009, sat í stjórn Brids- félags Hveragerðis 1998–2002, hefur spilað keppnisbrids í áratugi, hefur sungið með fjölda blandaðra kóra og karlakóra og oft leikið einleik á orgel við kirkjulegar athafnir svo sem skírn eða kistulagningu. Fjölskylda Úlfar kvæntist 26.7. 1969 Gunnþóru Freyju Jóhannsdóttir, f. 13.11. 1944, sérkennara. Þau skildu 1990. Börn Úlfars og Gunnþóru Freyju eru Guðmundur Freyr, f. 18.10.1970, doktor og prófessor í samgöngu- verkfræði við HÍ; Anna Kristín, f. 28.7.1974, lögfræðingur, fiðluleik- ari og umboðsmaður íbúa sveitarfé- lagsins Nittedal við Osló, gift Sigmari Jack, beinaskurðlækni í Osló og eru börn þeirra Hilmir Davíð Jack, f. 8.10. 2001, Brynjar Axel Jack, f. 14.9. 2003, og Freyja Ísabella Jack, f. 24.8. 2008. Úlfar kvæntist 2.7. 1994, Her- borgu Pálsdóttur, f. 21.1. 1960, hjúkr- unarkonu og ljósmóður við Heil- brigðisstofnun Suðurlands. Dætur Herborgar: Herdís Sigur- grímsdóttir, f. 29.8. 1980, fréttamað- ur í Osló; Hildur Sigurgrímsdóttir f. 12.1. 1986, búfræðingur og leggur stund á nám í lífeindafræði. Dóttir Úlfars og Herborgar er Guðrún, f. 14.8. 1996. Systir Úlfars er Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 10.3. 1945, kaupmað- ur í Reykjavík, gift Erni Sigurðssyni, húsgagnasmið og myndskera. Foreldrar Úlfars: Guðmundur Einar Páll Grímsson, f. í Gröf í Laug- ardal 15.12. 1905, d. 4.4. 1979, hús- gagnasmíðameistari í Reykjavík, og Ingveldur Stefanía Runólfsdóttir, f. í Reykjavík 9.1. 1912, d. 1.10. 2006, kaupmaður í Reykjavík. 70 ÁRA Á LAUGARDAG Páll fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamra- hlíð 1980, BA-prófi í íslensku og almennri bókmenntafræði frá Heimspekideild Háskóla Íslands 1984 og cand.mag.-prófi í íslensk- um bókmenntum frá sama há- skóla. Páll var stundakennari við Menntaskólann við Hamrahlíð með hléum 1987–92, og stunda- kennari við Háskóla Íslands 1988–92. Hann vann við útgáfu- störf fyrir bókaforlagið Svart á hvítu 1987–88 og Mál og menn- ingu frá 1989, var lektor í íslensku við Uppsalaháskóla í Svíþjóð 1992–97, var ritstjóri og útgáfu- stjóri hjá Máli og menningu og Eddu – Útgáfu 2001–2007 og hef- ur verið sjálfstætt starfandi bók- menntafræðingur og rithöfundur frá 2007. Helstu ritverk Páls eru Þögnin er eins og þaninn strengur – þró- un og samfella í skáldskap Snorra Hjartarsonar, útg. 1990; kaflarnir Íslensk endurreisn og Tími þjóð- skáldanna í Íslenskri bókmennta- sögu Máls og menningar, III., útg. 1996; Jónas Hallgrímsson – ævisaga, útg. 1999, en fyrir hana fékk höfundurinn Íslensku bók- menntaverðlaunin; Vigdís – Kona verður forseti, útg. 2009. Þá hef- ur Páll skrifað formála að ýms- um ritum, ritdóma og greinar um skáld og bókmenntir. Páll sat í úthlutunarnefnd Launasjóðs rithöfunda 1987–89. Fjölskylda Eiginkona Páls er Halla Kjartans- dóttir, f. 15.8. 1959, framhalds- skólakennari. Dætur Páls og Höllu eru Álf- rún, f. 1983, háskólanemi í sam- búð með Viktori Bjarka Arn- arssyni og er dóttir þeirra Halla Elísabet, f. 2008; Védís, f. 1990, nýstúdent; Steinunn Vala, f. 1992, framhaldsskólanemi. Bræður Páls eru Karl Steinar Valsson, f. 1963, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, búsettur í Reykjavík; Hermann Valsson, f. 1965, íþrótta- kennari, búsettur í Reykjavík; Sig- urður Valur Valsson, f. 1973, bú- settur í Reykjavík. Foreldrar Páls eru Valur Páls- son, f. 1932, viðskiptafræðingur í Reykjavík, og Erna Maríusdóttir, f. 1941, húsmóðir. Páll Valsson BÓKMENNTAFRÆÐINGUR OG RITHÖFUNDUR Kristín fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk stúdents- prófum frá Menntaskólanum í Reykjavík 1981 og stundar nú nám í stjórnmálafræði við HÍ. Kristín starfaði við upptöku- stjórn hjá ríkissjónvarpinu, og síðan við kvikmyndagerð sem upptökustjóri, framkvæmda- stjóri eða aðstoðarleikstjóri frá 1986. Hún var með eigin rekstur á sviði ferðaþjónustu á sumrin á árunum 1995–2004 og var einn af stofnendum og eigendum Foss- búans ehf. á Skógum undir Eyja- fjöllum en hún starfaði við það fyrirtæki til 2004. Kristín hefur verið kosn- ingastjóri Samfylkingarinnar í Reykjavík frá 2007. Kristín Erna stýrði fram- kvæmd og undirbúningi Þjóð- fundar 2009 og hefur um árabil stýrt stórum og litlumkvik- mynda- og sjónvarpsverkefn- um. Hún var framkvæmdastjóri áramótaskaups RÚV í nokkur ár, hefur komið að fjölmörgum Eur- ovision-keppnum og sinnt fram- leiðslustýringu fyrir DR1 hér á landi, m.a. við upptökur á Ern- inum. Kristín er formaður Félags einstæðra foreldra og býður sig nú fram til Stjórnlagaþings. Fjölskylda Börn Kristínar Ernu eru Helgi Hrafn Gunnarsson, f. 22.10. 1980, forritari; Arndís Anna Kristínar- og Gunnarsdóttir, f. 3.2. 1982, lög- fræðingur í Reykjavík en sonur hennar er Styrmir Gunnar Sveins- son, f. 13.7. 2007; Ólöf Una Bárð- ardóttir, f. 29.7. 2001, grunnskóla- nemi. Alsystkini Kristínar Ernu eru Baldvin Örn Arnarson, f. 10.6. 1965, húsamálari í Reykjanesbæ; Helga Þórunn Arnardóttir, f. 10.2. 1972, félagsráðgjafi í Reykjavík. Hálfsystkini Kristínar Ernu, samfeðra: Þórdís Birna Arnardótt- ir, f. 25.5. 1977, skrifstofumaður, búsett í Noregi; Vilhjálmur Arnar- son, f. 6.5. 1980, vélstjóri á togaran- um Hrafni frá Grindavík. Hálfbróðir Kristínar Ernu, sam- mæðra: Ragnar Heiðar Ragnars- son, f. 30.12. 1982, grafískur hönn- uður, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Kristínar Ernu eru Örn Björnsson, f. 9.4. 1943, fyrrv. útibússtjóri Íslandsbanka á Húsa- vík, og Hrafnhildur Baldvinsdóttir, f. 31.8. 1942, fyrrv. bókari hjá Húsa- smiðjunni í Reykjavík. Kristín Erna verður með opið hús og garðpartí að heimili sínu laugardaginn 30.10. milli kl. 16.00 og 19.00. Kristín Erna Arnardóttir VERKEFNASTJÓRI Í REYKJAVÍK Pétur Einarsson LEIKARI OG LEIKSTJÓRI Pétur fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hann lauk stúdentspróf- um frá MA 1961, lauk prófum frá Leik- listarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1964 og MA-prófi í leiklist frá Háskólanum í Georgíu í Bandaríkjunum 1966. Pétur var leikari og leikstjóri hjá LR 1966–75, skólastjóri Leiklistarskóla Ís- lands 1975–83, leikari hjá Þjóðleik- húsinu og LR 1983–86, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar 1986–88, leikari og leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu 1988– 89, kennari við Leiklistarskóla Íslands 1988–97 og leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur frá 1989. Pétur var formaður Félags leik- stjóra á Íslandi frá 1994–2002, for- maður Sambands félags leikstjóra á Norður löndunum 1999–2002, sat í stjórn Bandalags íslenskra listamanna 1994–2002, í stjórn Listaháskóla Ís- lands frá 1998, í stjórn Kvikmynda- sjóðs frá 2000–2004 og var fulltrúi Ís- lands í Norrænu leiklistarnefndinni 1982–88. Pétur hefur hjálpað fólki til að hætta að reykja með aðferð Allens Carrs, Easyway To Stop Smoking frá 1998. Pétur var búsettur í Vestmannaeyj- um til 1961, í Reykjavík 1961–86, á Ak- ureyri 1986–88 og í Reykjavík frá 1988. Fjölskylda Eiginkona Péturs er Birgitte Heide, f. 17.4. 1959, listdansari og ballettkenn- ari hjá Íslenska dansflokknum og List- dansskóla Íslands. Hún er dóttir Pauls E. Heide, úrsmiðs í Kópavogi f. 1925 d. 2003, og Guðrúnar Ágústsdóttur hús- móður f. 1929 d. 2008. Börn Péturs eru Margrét Krist- ín Pétursdóttir, f. 9.3. 1962, leikari og á hún eitt barn; Sólveig Pétursdóttir, f. 17.8. 1970, starfsmaður Bókasafns Kópavogs og á hún eitt barn; Þórunn Elín Pétursdóttir, f. 3.8. 1972, söngkona og kennari og á hún tvö börn og maður hennar er Þorsteinn Arnalds; Guðrún Lára Pétursdóttir, f. 9.2. 1976, nemi, en maður hennar er Einar Þór Þórar- insson og eiga þau þrjú börn, þau eru búsett í Svíþjóð; Elís Pétursson, f. 13.4. 1980, tónlistamaður; Pétur Heide Pét- ursson, f. 3.10. 1990, nemi. Systkini Péturs eru Páll J. Einars- son, f. 22.1. 1937 d. 2.8. 2008, flug- maður í Reykjavík; Guttormur P. Ein- arsson, f. 15.3. 1938, kerfisfræðingur í Reykjavík; Sólveig Fríða Einarsdóttir, f. 21.8. 1945, ljósmóðir í Garðabæ; Sigfús Einarsson, f. 11.8. 1951, Phd. í líffræði, búsettur í Svíþjóð. Foreldrar Péturs voru Einar Gutt- ormsson, f. 15.12. 1901, d. 12.2. 1985, sjúkrahúslæknir í Vestmannaeyj- um, og Margrét Kristín Pétursdóttir, f. 29.12. 1914, húsmóðir. Ætt Einar var sonur Guttorms, b. í Geita- gerði í Fljótsdal Einarssonar, b. í Fjallseli Guttormssonar, stúdents á Arnheiðarstöðum Vigfússonar, pr. á Valþjófsstað Ormssonar, föður Mar- grétar, langömmu Guttorms, föð- ur Hjörleifs, fyrrv. alþm. og ráðherra. Móðir Einars í Fjallseli var Halldóra Jónsdóttir, vefara á Kórreksstöðum Þorsteinssonar, ættföður Vefaraættar. Móðir Einars læknis var Oddbjörg Sigfúsdóttir, b. á Fljótsbakka Oddsson- ar. Móðir Sigfúsar var Þuríður Halls- dóttir, b. á Sleðbrjóti Sigurðssonar, bróður Björns, langafa Önnu, móður Björns Tryggvasonar, fyrrv. aðstoðar- bankastjóra Seðlabankans. Margrét var dóttir Péturs, sjó- manns á Akureyri Jónatanssonar, b. á Þúfum í Skagafirði Magnússonar. Móðir Margrétar var Jóhanna spák- ona Benediktsdóttir, b. í Höfðahverfi Ólafssonar og Jóhönnu Rakelar Jóns- dóttur. 70 ÁRA Á SUNNUDAG 50 ÁRA Á SUNNUDAG 50 ÁRA Á LAUGARDAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.