Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 29. október 2010 föstudagur m ag gi @ 12 og 3. is 4 11 .0 08 Batik • Bíldshöfða 16 • 110 Reykjavík • Sími 557 2200 • sala@batik.is • www.batik.is Dugnaður Sæunn Inga tók sig til í fæðingarorlofinu og hrinti af stað smákökusöfnun fyrir Fjölskyldu- hjálp Íslands. Nauðstaddir sem þangað leita fyrir jólin geta því átt von á því að fá jólasmákökur með sér heim. MynD Sigtryggur Ari Eftir að hafa séð frétt um konu frá Sandgerði sem bakaði 160 banana- brauð fyrir Fjölskylduhjálp Íslands langaði Sæunni Ingu Margeirsdótt- ur frá Vogum að láta gott af sér leiða líka. Þessi nýbakaða móðir situr ekki auðum höndum í fæðingarorlofi sínu því hún hefur nú hrint af stað átaki á Face book þar sem hún hyggst safna liði til að baka gnægð smákaka fyrir jólaúthlutun Fjölskylduhjálparinnar. Ef allt fer að óskum ættu Sæunn Inga og þátttakendur í átaki hennar að geta fært Fjölskylduhjálpinni nokkur þús- und smákökur fyrir jólin. Þar munu þær eflaust koma að góðum notum enda aldrei fleiri sótt í neyðaraðstoð hjálparstofnana en um þessar mundir. Langaði að hjálpa „Það er skelfilegt að vita til þess hvern- ig þetta er orðið hérna,“ segir Sæunn Inga sem á þriggja ára dóttur og eina tveggja mánaða. „Ég held að maður ætti nú að finna sér tíma til að baka einhverjar hundrað smákökur. Þetta þarf ekkert að vera mikið en ég held að þetta hjálpi mörgum,“ segir hin kraft- mikla móðir. „Hér er fólk sem hefur ekki einu sinni efni á að baka smákök- ur, þannig að mann langaði einhvern vegin að hjálpa til fyrir jólin.“ Upphaflega hafði Sæunn Inga sett sér markmið um að fá til liðs við sig tíu fjölskyldur þar sem hvert heimili myndi baka hundrað smákökur. Þá væri hún komin með þúsund kökur hið minnsta. „Ég veit að fjölskylda og vinir ætla pottþétt að vera með þannig að þetta verður einhver brjálaður jóla- bakstur,“ segir Sæunn og hlær. „Þetta er ekkert mál og þú ert enga stund að þessu. Hundrað kökur af einhverju og það nýtur einhver góðs af þessu, það er hundrað prósent.“ Margir eiga bágt Sæunn kveðst hafa sett sig í samband við Fjölskylduhjálp Íslands við upp- haf þessa smákökuævintýris. „Þeim fannst þetta bara æðislegt og sögðu að okkur væri meira en velkomið að leggja þeim lið. Jólaúthlutunin verður aðra vikuna í desember og þá verðum við búin að safna þessu öllu saman og koma til þeirra. Þetta verður ekkert mál.“ Sem fyrr segir hefur hún stofn- að Facebook-hóp undir yfirskriftinn „Hjálp fyrir Fjölskylduhjálp“ sem allir eru hvattir til að kynna sér. Nú þegar hafa á þriðja hundrað notendur sleg- ist í hópinn og vonast Sæunn til að sem flestir sjái sér fært að leggja þessu góða málefni lið. Hún viti þó alla- vega um 15 til 20 sem ætli sér pottþétt að vera með. Hún kveðst hafa feng- ið góðar viðtökur við verkefninu sem og skilaboð frá fólki á Facebook sem sum hver séu átakanleg. „Frá fólki sem segir: „Ég vildi að ég gæti hjálpað en ég er sjálf í þessari stöðu.“ Þá gerir maður sér grein fyrir því hvað margir eiga bágt,“ segir Sæunn Inga, nýbökuð móðir sem ætlar að baka fyrir þá sem minna mega sín um jólin. Hér er fólk sem hefur ekki einu sinni efni á að baka smákökur, þannig að mann langaði einhver nvegin að hjálpa til fyrir jólin. „held að þetta hjálpi mörgum“ Sæunn inga Margeirsdóttir fylltist andagift í barneignarfríi sínu við að lesa um góðverk konu sem bakaði 160 banana- brauð fyrir Fjölskylduhjálp Íslands. Hún ákvað að láta einnig gott af sér leiða og hefur nú ýtt úr vör söfnun. Hún og fjöl- skylda hennar ætla að baka smákökur og afhenda Fjölskylduhjálpinni fyrir jólin og vonast hún til að fá fleiri til liðs við sig. Sigurður MikAeL jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is með haglabyssu og dóp Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á miðvikudag karlmann á þrítugsaldri eftir að nokkuð magn þýfis og fíkniefna fannst í hans vörslu. Má þar meðal annars nefna afsagaða haglabyssu, fimm mótorhjól og rúm- lega 250 grömm af amfetamíni. Mað- urinn er enn í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins Að loknu góðu dagsverki ákváðu lögreglumennirnir að verðlauna sig með smá skyndibita. Vildi þá ekki betur til en svo að inni á staðn- um varð lögreglan vitni að hegðun sem henni fannst ansi grunsamleg. Reyndist grunur þeirra á rökum reist- ur því fljótlega lét parið sig hverfa án þess að greiða reikninginn. Lögreglan missti hins vegar ekki sjónar á parinu og var það handtekið í kjölfarið. ríkissjóður greiddi mest Ríkissjóður Íslands greiddi tæplega 7 milljarða króna í opinber gjöld, mest allra lögaðila hér á landi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra fyrir árið 2010. Íslandsbanki greiðir tæp- lega 4 milljarða og Reykjavíkurborg rúmlega 1,8 milljarða. Alls nemur álagning á félög og aðra lögaðila 78,4 milljörðum króna en árið 2009 nam hún 83,4 milljörð- um.Er það fyrsta álagning ríkisskatt- stjóra á lögaðila eftir sameiningu skattumdæma sem varð um síðustu áramót. Fjöldi lögaðila á skatt- grunnskrá á landinu öllu er 35.500. Alls sættu 12.461 lögaðili áætlunum eða 35,10 prósent af skattgrunnskrá. Rannsaka lífeyrissjóðina Landssamtök lífeyrissjóða hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar ummæla Guðna Ágústssonar og Guðrúnar Johnsen, um að rann- saka þurfi starfsemi lífeyrissjóð- anna. Í yfirlýsingunni kemur fram að nú sé unnið að því að skoða fjárfestingastefnu, ákvarðanir og lagalegt umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins. Sérstaklega er tekið fram að hin þriggja manna nefnd sé skip- uð óháðum, óvilhöllum og hæfum einstaklingum sem skipaðir voru af ríkissáttasemjara að ósk Lands- sambands lífeyrissjóða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.