Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Blaðsíða 32
32 | Minning Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
Þorvarður Guðjónsson
Fyrrv. framkvæmdastjóri Norðurleiða f. 28.1. 1929, d. 24.1. 2011
Jónas Helgason
Bóndi í Æðey f. 18.11. 1947, d. 20.1. 2011
Jón Auðuns
Dómprófastur og forseti Sálarrannsóknarf. Íslands f. 5.2. 1905, d. 10.7. 1981
Þorvarður fæddist að Efstabóli í Önundarfirði en fluttist með for-eldrum sínum að Hesti í Ön-
undarfirði er hann var eins árs og ólst
þar upp. Hann flutti til Reykjavíkur
1947, hóf nám í bifvélavirkjun, lauk
sveinsprófi hjá SVR 1951 og starfaði
hjá Áætlunarleiðum póststjórnarinnar
og SVR til 1955. Þorvarður starfaði hjá
Landleiðum til 1957. Hann hóf störf hjá
Norðurleið hf. 1958, fyrst sem bifvéla-
virki og bifreiðarstjóri en var ráðinn
framkvæmdastjóri fyrirtækisins 1971
og sinnti því starfi til 2001 er fyrirtæk-
ið var selt.
Þorvarður sat í stjórn Félags sérleyf-
ishafa og var formaður þess um skeið,
sat í stjórn Bifreiðastöðvar Íslands, var
stofnfélagi í Kiwanisklúbbnum Eldey
í Kópavogi 1972 og forseti klúbbsins
1979-80.
Fjölskylda
Þorvarður kvæntist 30.12. 1954 Sigríði
Katrínu Halldórsdóttur, f. 21.3. 1932, d.
9.5. 1984, frá Svarthamri við Álftafjörð,
iðnverkakonu og húsmóður. Hún var
dóttir Halldórs Ásgeirssonar, sjómanns
á Ísafirði, og Rannveigar Benedikts-
dóttur húsmóður.
Börn Þorvarðs og Sigríðar Katr-
ínar eru Ásgeir Hinrik Þorvarðarson,
f. 16.11. 1952, en kona hans er Sól-
veig Hrafnsdóttir, f. 8.3. 1957, og eru
börn þeirra Kolbrún Silja, f. 17.6. 1974;
Hinrik Már, f. 22.8. 1978, en sambýl-
iskona hans er Sigrún Kristinsdótt-
ir og eru börn þeirra Ásgeir Kristinn
og Halla Sigrún; Þorvarður Hrafn, f.
22.3. 1986; Sigríður Dagbjört, f. 15.1.
1991, auk þess sem Ásgeir átti son frá
því fyrir hjónaband, Guðmund Val-
geir, f. 16.3. 1971, en kona hans er Ingi-
björg Ósk Hannesdóttir, f. 8.9. 1973,
og eru börn þeirra Baldur Freyr, Ágúst
Logi, og Alma Rún. Sveinfríður Guðný
Þorvarðardóttir, f. 10.12. 1954, en mað-
ur hennar er Herluf Melsen, f. 10.5.
1951, og eru börn þeirra Henríetta Ósk,
f. 2.2. 1976, en sambýlismaður hennar
er Stuart Fraser, f. 1975; Katrín Mörk, f.
3.6. 1985, en maður hennar er Egill Örn
Sigurðsson, f. 1984 og eru börn þeirra
Erika Rakel og Óliver Viktor; Viktor
Már, f. 4.3. 1987, en sambýliskona hans
er Sigríður Ragna Hilmarsdóttir, f. 1980
og er dóttir þeirra Elektra Hera en synir
Sigríðar Rögnu eru Alexander og Trist-
an.
Rannveig Svanhvít Þorvarðardóttir,
f. 9.4. 1957, en sambýlismaður hennar
er Arnar Már Ingólfsson, f. 1957 og er
sonur Rannveigar Svanhvítar og Ólafs
Guðmundssonar Matthías Ólafsson, f.
10.3. 1992.
Seinni kona Þorvarðar er Marta
Bíbí Guðmundsdóttir, f. 9.11. 1932.
Dætur Mörtu eru Hjördís Erlings-
dóttir, f. 1959, en dóttir hennar er
Andrea; Jóhanna Erlingsdóttir, f. 1962
en maður hennar er Sigurður Hjálm-
arsson, f. 1961, og eru synir þeirra
Tómas, Hjálmar og Marteinn; Geir-
ný Ósk Geirsdóttir, f. 1970, en maður
hennar er Erik Stöhle, og er dóttir Geir-
nýjar, Friðrikka.
Systkini Þorvarðar eru Sigurbjörg
Hervör Guðjónsdóttir, f. 27.1. 1931;
María Guðrún, f. 19.3. 1932, Helga
Jóna, f. 27.4. 1933, Svava, f. 19.5. 1934,
Ingólfur Hafsteinn, f. 16.7. 1935, d.
25.7. 1985, Sveinbjörn Guðjón, f. 16.6.
1940. d. 20.7. 2007.
Foreldrar Þorvarðar voru Guðjón
Gísli Guðjónsson, f. 28.10. 1897, d.
29.3. 1980, bóndi á Hesti í Önundar-
firði og síðar smiður í Reykjavík, og
k.h., Guðbjörg Sveinfríður Sigurðar-
dóttir, f. 22.8. 1901, d. 25.3. 1980, hús-
freyja að Hesti og síðar verkakona í
Reykjavík.
Útför Þorvarðar fór fram frá Kópa-
vogskirkju sl. mánudag.
Jónas fæddist í Reykjavík og ólst þar upp til 1961 er fjölskyldan flutti í Æðey við Ísafjarðardjúp. Hann
stundaði nám við Bændaskólann á
Hvanneyri og lauk þaðan búfræðiprófi
1966 og lauk gagnfræðaprófi frá Hér-
aðsskólanum í Reykjanesi 1970.
Jónas sinnti öllum almennum bú-
störfum í Æðey á unglingsárunum, hóf
búskap á móti foreldrum sínum þar
um 1970 og tók alfarið við búreksti þar
og æðarrækt árið 1979 er faðir hans féll
frá.
Samhliða búskapnum hóf Jónas
hin síðari ár að ferja ferðamenn um
Djúpið, í Jökulfirðina og norður á
Hornstrandir.
Jónas var fulltrúi Æðarræktarfélags
Íslands á Búnaðarþingi frá 1995, sat í
stjórn Æðarræktarfélags Íslands sem
aðalmaður 1984–85, sem varamað-
ur 1993–94 og aftur sem aðalmaður
frá 1994 og var formaður félagsins frá
1999 og til dánardags.
Jónas sat í hreppsnefnd Snæfjalla-
hrepps, tók þátt í endurvakningu ung-
mennafélags sveitarinnar og var félagi
í Kiwanishreyfingunni.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 20.3. 1982, Katrínu Al-
exíusdóttur, f. 13.4. 1954, húsfreyju í
Æðey. Hún er dóttir Alexíusar Lúth-
erssonar, f. 28.9. 1921, d. 11.9. 1996,
myndlistarmanns í Reykjavík, og k.h.,
Ingibjargar Magnúsdóttur, f. 10.7.
1926, húsmóður.
Synir Jónasar og Katrínar eru Alex-
íus Jónasson, f. 31.8. 1982, vélvirki, bú-
settur í Kópavogi, í sambúð með Eddu
Maríu Hagalín og eiga þau eina dóttur,
Katrínu Fjólu; Magnús Helgi Jónasson,
f. 16.7. 1984, rafmagnstæknifræðing-
ur, búsettur í Kópavogi og á hann einn
son, óskírðan; Jónas Kristján, f. 1.6.
1990, stúdent í Reykjavík.
Systkin Jónasar eru Þórarinn
Helgason, f. 20.3. 1950, hamskeri og
starfsmaður Spalar, búsettur á Akra-
nesi, kvæntur Margréti Báru Jósefs-
dóttur, ljósmóður, höfuðbeina- og
spjaldhryggsjafnara og bowentækni,
og er sonur þeirra Helgi; Guðmundur
Lárus Helgason, f. 26.3. 1953, starfs-
maður VÍS, búsettur á Akureyri en
kona hans er Hrefna Brynhildur Júlí-
usdóttir, starfsmaður hjá Intrum og
eru börn þeirra Ragnar Veigar, Víð-
ir, Guðrún og Atli; Einar Helgason, f.
25.2. 1957, húsasmíðameistari, bú-
settur í Reykjavík, var kvæntur Svövu
Þóru Þórðardóttur hjúkrunarfræðingi
en þau skildu og eru börn þeirra Ing-
unn Guðrún, Þórður og Helgi en sonur
Einars eru auk þess Fannar Þór; Guð-
jón Helgason, f. 28.8. 1959, sölumað-
ur, búsettur í Mosfellsbæ en kona hans
er Guðrún Alexíusdóttir og eru börn
þeirra Gunnar Helgi, Ingibjörg Alexía
og Gísli Már; Kristín Guðrún Helga-
dóttir, f. 1.4. 1962, starfsmaður hjá
Húsasmiðjunni, búsett í Mosfellsbæ
en sonur hennar er Heiðar Smári.
Foreldrar Jónasar voru Helgi J. Þór-
arinsson, f. 15.4. 1920, d. 1.8. 1979,
bóndi í Æðey, og k.h. Guðrún Lárus-
dóttir, f. 11.9. 1918, d. 27.4. 2001, hús-
freyja í Æðey.
Ætt
Helgi var sonur Þórarins, b. á Látrum
Helgasonar, b. á Borg í Skötufirði
Einarssonar. Móðir Helga á Borg var
Guðrún Einarsdóttir frá Arngerðar-
eyri. Móðir Þórarins var Þóra Jóhann-
esdóttir, b. á Blámýrum Jónssonar.
Móðir Helga var Kristín Guðrún, dóttir
Runólfs, b. í Heydal í Mjóafirði, bróður
Baldvins, föður Jóns, alþm. og forseta
ASÍ, og langafa Níelsar P. Sigurðssonar
sendiherra. Systir Runólfs var Sigríður,
móðir Jóns Auðuns alþm., föður Jóns
dómprófasts og Auðar, borgarstjóra og
ráðherra. Runólfur var sonur Jóns, b. á
Eyri í Ísafirði Auðunssonar, b. á Stóru-
völlum Jónssonar, bróður Arnórs,
langafa Hannibals Valdimarssonar
ráðherra, föður Arnórs heimspekings
og Jóns Baldvins, fyrrv. alþm., ráðherra
og sendiherra. Móðir Kristínar Guð-
rúnar var Guðrún Guðmundsdóttir,
hreppstjóra á Eyri Guðmundssonar.
Móðir Guðmundar var Salvör, syst-
ir Þorbjargar, langömmu Bertels, föð-
ur Þráins, alþm. Salvör var dóttir Þor-
varðs í Eyrardal Sigurðssonar, ættföður
Eyrardalsættar Þorvarðssonar.
Guðrún var dóttir Lárusar, sjó-
manns á Ísafirði Guðnasonar, úr Þing-
eyjarsýslu.
Móðir Guðrúnar var Guðjóna, syst-
ir Jakobs trésmiðs, afa Kristjáns Ragn-
arssonar, fyrrv. framkvæmdastjóra
LÍÚ. Guðjóna var dóttir Guðmundar,
hreppstjóra í Æðey Rósinkarssonar,
b. í Æðey Árnasonar, umboðsmanns
í Vatnsfirði Jónssonar, sýslumanns í
Reykjarfirði Arnórssonar. Systir Jóns
í Reykjarfirði var Sigríður, móðir Arn-
órs, langafa Hannibals Valdimarsson-
ar, og Auðuns, pr. á Stóru-Völlum á
Landi, föður Jóns á Eyri, afa Jóns Bald-
vinssonar. Jón á Eyri var einnig langafi
Auðar Auðuns, fyrrv. ráðherra. Móðir
Guðmundar í Æðey var Elísabet Rós-
inkar Guðmundsdóttir, b. og hrepp-
stjóra í Arnardal í Ísafjarðardjúpi,
Bárðarsonar, b. í Arnardal og ættföður
Arnardalsættar Illugasonar.
Útför Jónasar fór fram frá Grafar-
vogskirkju sl. föstudag, 28.1.
Jón Jóhann Jónsson Auð-uns fæddist á Ísafirði. Foreldrar hans voru
Jón Auðunn Jónsson,
framkvæmdastjóri og
alþm. á Ísafirði, og
k.h., Margrét Guð-
rún Jónsdóttir, pr. á
Stað á Reykjanesi
Jónssonar. Bróð-
ir Margrétar var
Magnús, pr. á Stað.
Systir Jóns dómpróf-
asts var Auður Auð-
uns alþm. en hún var
fyrsta konan í embætti
borgarstjóra í Reykjavík
og jafnframt fyrsta íslenska
konan sem varð ráðherra.
Jón lauk stúdentsprófi í Reykjavík
1924, guðfræðiprófi við Háskóla Ís-
lands 1929 og stundaði framhalds-
nám í samanburðarguðfræði og
helgisiðafræði í Marburg og í París.
Jón var kosinn forstöðumaður
Fríkirkjusafnaðarins í Hafnar-
firði 1930, var jafnframt
forstöðumaður Frjáls-
lynda safnaðarins í
Reykjavík frá 1941,
var skipaður prest-
ur við Dómkirkjuna
í Reykjavík 1945,
var skipaður dóm-
prófastur í Reykja-
víkurprófastsdæmi
1951 og gegndi þeim
embættum til 1973
er hann lét af störfum
af heilsufarsástæðum.
Jón var forstöðumað-
ur Listasafns Einars Jóns-
sonar frá 1970. Hann var
frjálslyndur í guðfræðilegum efn-
um, var einlægur spíritisti og for-
seti Sálarrannsóknarfélags Íslands
1939–63. Þá gegndi hann ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum, sat m.a.
í Barnaverndar- og Safnaðarráði
Reykjavíkur.
Andlát
Andlát
Merkir Íslendingar
Björn Þórðarson
Forsætisráðherra f. 6.2. 1879, d. 25.10. 1963
Dr. Björn fæddist í Móum á Kjalarnesi, sonur Þórðar Runólfs-
sonar hreppstjóra og
Ástríðar Jochums-
dóttur. Sonur Björns
og k.h., Ingibjarg-
ar Ó. Briem Þórð-
arson, var Þórð-
ur ríkissaksóknari.
Ástríður var syst-
ir Matthíasar Joch-
umssonar skálds
en Guðrún, kona
Matthíasar, var syst-
ir Þórðar. Önnur systir
Þórðar var Karitas í Mýrar-
húsum, langamma Sigrúnar,
móður Árna Mathiesen, fyrrv. ráð-
herra.
Björn lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1902, embættisprófi i
lögfræði frá Hafnarháskóla 1908, og
varði doktorsritgerð 1926.
Björn gegndi ýmsum störfum
við Stjórnarráðið í Reykjavík, var
sýslumaður í Vestmannaeyj-
um, Húnavatnssýslu og
Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu en skamma
hríð á hverjum stað.
Þá var hann hæsta-
réttarritari 1919–28
og forsætisráðherra
1942–44, í einu ut-
anþingsstjórninni
sem hér hefur ver-
ið skipuð. Það gerði
Sveinn Björnsson, þá
ríkisstjóri, eftir langa
stjórnarkreppu sem
helgaðist helst af því að
Ólafur Thors, formaður
Sjálfstæðisflokksins, og Her-
mann Jónasson, leiðtogi Fram-
sóknarflokksins (Jónas frá Hriflu
var formaður Framsóknar), töluð-
ust varla við. Utanþingsstjórnin
lagði upp laupana fyrir stríðsverð-
bólgu og fremur andsnúnu Alþingi.
Björn var stilltur maður og gæt-
inn.
Merkir Íslendingar
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 8284 / 551 3485
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947