Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Blaðsíða 42
42 | Lífsstíll 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
A
ð hnýta bindishnúta og slauf-
ur er eitthvað sem flestir karl-
menn þurfa að læra og að
kunna leiðir til að hnýta trefla
getur komið sér vel. Margir karlmenn
virðast þó forðast það eins og heitan
eldinn að koma sér af stað í að læra
þessa hluti. Það getur hins vegar ver-
ið mjög einfalt. Margar mismunandi
leiðir eru til þess að hnýta bindis-
hnúta, slaufur og trefla en DV hefur
tekið saman nokkrar algengar og ein-
faldar leiðir sem auðvelt ætti að vera
að læra.
Bindi
Flestir karlmenn þurfa einhvern tím-
ann á lífsleiðinni að læra að hnýta
bindishnút. Margir hverjir eru með
bindi í vinnunni á hverjum degi á
meðan aðrir nota bindin einungis til
hátíðarbrigða. Til eru nokkrir mis-
munandi bindishnútar sem henta við
mismunandi tækifæri.
Einn einfaldasti bindishnútur sem
um getur er fjórir-í-hendi hnúturinn.
Legðu bindið yfir hálsinn á þér þannig
að breiði endinn sé um 30 sentímetr-
um síðari en stutti endinn. Kross-
aðu breiða endann yfir þann mjóa
og snúðu svo breiða endanum undir
þann mjóa. Farðu með breiða endann
nú yfir mjóa endann og upp í gegn-
um hringinn sem bindið hefur mynd-
að við hálsinn og þaðan niður í gegn-
um hnútinn sem er að myndast. Síðan
þarf bara að herða hnútinn og þrengja
aðeins að hálsinum með því að toga í
lausa endann á bindinu.
Annar hnútur sem er líka mjög vin-
sæll er einfaldur Windsor-hnútur. Til
að hnýta hann er byrjað eins og með
fjórir-í-hendi hnútinn, með bindið á
hálsinum með breiðari endann þrjátíu
sentímetrum neðar en þann mjóa. Þú
færir breiða endann í kringum mjóa
endann og þaðan upp og yfir hringinn
sem bindið hefur myndað við háls-
inn og þaðan niður hægra megin við
hnútinn sem er að myndast. Svo ferðu
yfir hnútinn sem er að myndast með
breiða endanum og upp vinstra meg-
in í gegnum hringinn sem bindið hef-
ur myndað við hálsinn, þaðan sem þú
ferð svo með breiða endann í gegnum
hnútinn og herðir að.
Þverslaufur
Það er ekki oft sem karlmenn hnýta
sína eigin þverslaufu og margir virð-
ast ekki leggja í það að hnýta slíka
slaufu. Það er þó ekki mikið flóknara
en að hnýta reimar á skóm, bara tals-
vert svalara.
Settu slaufuna utan um hálsinn líkt
og venjulegt bindi með annan end-
ann um 5 sentímetrum síðari en hinn.
Krossaðu lengri endann yfir styttri
endann og kræktu honum svo upp í
gegnum hringinn sem slaufan hef-
ur myndað utan um hálsinn. Brjóttu
styttri endann saman þannig að hann
verði tvöfaldur, þessi endi verður fram-
hluti slaufunnar. Farðu með lengri
endann í hring um styttri endann, sem
nú ætti að vera tvöfaldur. Brjóttu þann
enda svo saman og stingdu honum öf-
ugum í gegnum hringinn sem þú varst
að gera. Núna þarf bara að herða á
slaufunni til að hún passi þér.
Það tekur nokkra æfingu að ná
þessu vel en þegar þú nærð því gleym-
irðu aldrei hvernig þú átt að hnýta
þverslaufu.
Treflar
Á veturna er eins gott að klæða sig
vel og þrátt fyrir að sólin sé farin að
hækka á lofti er enn kuldi í kortunum.
Treflar eru tilvaldir til að halda á sér
hita í kuldanum. En hvernig ætlarðu
að binda trefilinn um hálsinn? Það
eru til nokkrar leiðir sem virka flestar
jafnvel gegn kuldanum en eru mjög
mismundandi að stíl.
Parísarhnúturinn er líklegast vin-
sælasti treflahnúturinn. Til að binda
trefil í parísarhnútinn þarftu að taka
trefilinn með báðum höndum og
brjóta hann saman á lengdina, leggja
hann svo yfir hálsinn á þér og setja
lausu endana í gegnum gatið á sem
myndast hinum megin á saman-
brotna treflinum. Þú getur leikið þér
með þykktina á hnútnum með því að
brjóta trefilinn tvisvar saman áður en
þú bindir hann um hálsinn.
Eins hrings hnúturinn er aðeins
lausari en parísarhnúturinn og gefur
þar af leiðandi ekki alveg jafn mikla
hlýju og sá persneski án þess þó að
láta þig standa algjörlega óvarinn
gagnvart kuldanum. Flestir karlmenn
nota þennan hnút þegar þeir eru að
flýta sér eða eru að fara stutta vega-
lengd með trefil. Til að binda eins
hrings hnútinn þarftu einfaldlega að
leggja hann yfir hálsinn á þér með
annan endann lengri en hinn. Taktu
svo lengri endann og vefðu honum
einn hring utan um hálsinn og láttu
hann svo hanga niður á bringu, kross-
ar svo lausu endana hvorn um annan.
Lausi eins hrings hnúturinn er, eins
og nafnið gefur til kynna, aðeins af-
slappaðri útgáfa af eins hrings hnútn-
um. Ef kuldinn er ekki þeim mun meiri
og þú vilt að fá smá loft að hálsinum
notarðu þennan hnút. Hnúturinn er
aðallega notaður ef þú ert bara með
trefilinn upp á stíl. Þú bindur lausan
eins hrings hnút svipað og þú gerð-
ir með venjulega eins hrings hnútinn,
en sleppir því að krossa lausu endana
eftir að þú ert búin að vefja honum um
hálsinn. adalsteinn@dv.is
Hreindýr upp
á vegginn
Það eru ekki allir á því að hengja upp
dýrshaus heima sér. Núna er ekkert mál að
ná sama stíl án þess að hengja upp alvörudýr
á vegginn. Cardboard safari er fyrirtæki sem
hannar og framleiðir dýrshausa úr pappa
sem hægt er að hengja upp á vegg. Naut,
hreindýr, fílar og elgir eru meðal þeirra dýra
sem þú getur keypt hjá fyrirtækinu. Þó að
höfuðin séu úr pappa eru þau virkilega vel
hönnuð og er formið á þeim sambærilegt
alvöru dýrum. Hægt er að fá dýrin úr brúnum
pappa eða hvítum sem er svo auðvitað hægt
að mála.
Þrívíddar-
vefmyndavél
Á vefsíðunni ThinkGeek geturðu fjárfest
í þrívíddarvefmyndavél. Með myndavél-
inni fylgja hefðbundin
þrívíddargleraugu
til að geta séð
aðra í þrívídd. Með
þrívíddarmynda-
vélinni færðu nýja
dýpt í mynd-
samtöl yfir netið.
Þrívíddartæknin er
ekki ný af nálinni en undanfarið
hefur hún náð talsverðum vinsældum
í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
en tískutímarit eins og Vogue og fleiri
hafa sent frá sér þrívíddarefni. Vertu
með í þrívíddarbrjálæðinu og fáðu þér
þrívíddarmyndavél.
Vasaþjófa-
varið veski
Vasaþjófar heimsins, varið ykkur!
Nýja Dunhill Biometroc-veskið mun
útrýma starfsgrein ykkar. Með því að nota
líffræðiskanna nemur veskið hver reynir að
opna hólf sem ætlað er kreditkortum. Þannig
kemst engin að kortinu en sá sem á veskið.
Skannann geturðu tengt við farsíma með
Bluetooth-tækni þannig að síminn þinn pípir
ef veskið fer í meira en fimm metra fjarlægð
frá símanum. Önnur einkenni veskisins eru
stálpeningaklemma og leðurhólf fyrir kort –
sem enginn kemst í nema þú.
n Lærðu að hnýta bindishnúta, þverslaufu og trefla n Einfalt að læra
en alltof fáir kunna n Mismunandi aðferðir fyrir mismunandi stíl
Að hnýta bindi,
slaufur eða trefla
Stíll Mismunandi aðferðir við að hnýta bindi snúast um stíl.
1 2 3 4
1 2 3 4 5„Það er ekki oft sem karlmenn hnýta sína eigin
þverslaufu og margir virðast ekki leggja í það
að hnýta slíka slaufu.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn og þriðjudaginn
7. og 8. febrúar, kl. 18 báða dagana
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Karólína Lárusdóttir
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
í dag föstud. 10–18, laugard. 11–17, sunnud. 12–17, mánud. 10–17 (öll verk)
þriðjud. kl. 10–17 (verkin sem ekki eru boðin upp á mánudag)
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is