Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Side 34
34 Brúðkaup 23.–25. mars 2012 Helgarblað
Kjóllinn speglar
persónuleikann
Þ
egar kirkja og prestur
hafa verið pöntuð fyrir
stóra daginn er ekki
seinna vænna að huga að
brúðarkjólnum. Hér á landi
er hægt að leigja kjóla á hinum
ýmsu brúðarkjólaleigum en margar
konur kjósa að láta sauma á sig kjól
fyrir þennan stóra dag.
Steinunn Sigurðardóttir
fatahönnuður hefur saumað
marga brúðarkjóla í gegnum tíðina
og segir mikilvægt að brúðinni
líði vel í kjólnum. Við skoðum
nokkrar mismunandi gerðir
kjóla eftir tímabilum og frægum
tískufyrirmyndum og spjöllum við
Steinunni um hvað sé farsælast
þegar kemur að því að klæða sig upp
fyrir stóra daginn en sjálf gifti hún
sig í svartri, fínlegri móhárpeysu,
svörtu pilsi með svartan hatt úr
eigin smiðju.
Persónulegt ferli
„Mikilvægast er að brúðinni líði vel
í kjólnum eða því sem hún velur
að klæðast á brúðkaupsdaginn.
Þegar ég sauma brúðarkjól þá
sný ég svolítið við ferlinu, mín
fagurfræði skiptir ekki máli
heldur brúðarinnar. Ég er bara til
aðstoðar. Ég spjalla við brúðina
um hvað henni finnst fallegast og
hjartnæmast í lífinu, hvernig snið
hún kýs helst og hvernig fatnaður
henni finnst best lýsa sér, ég fæ
stundum alls konar myndir sem ég
vinn með og þetta er skemmtilegt
og persónulegt ferli.“
Steinunn segist finnast margar
konur eiga sér draum um hvernig
þær vilja vera á brúðkaupsdaginn,
sá draumur hafi fengið að þróast
með þeim árum saman.
„Kjóllinn endurspeglar þeirra
eigin fagurfræði, persónuleika og
hvað þeim finnst þær standa fyrir.“
Í svörtu með hatt
Steinunn hannaði sjálf eigin
brúðarfatnað og hann var með
óhefðbundnu sniði. Svartur og úr
ull og satíni. Brúðarklæðin urðu
jú að vera hlý því hún gifti sig í 18
stiga frosti á Þingvöllum. „Þetta
var viðamikið og svolítið rússneskt
þema, ég gifti mig í peysu, með
sérsaumuðu satínpilsi, með svarta
hanska og stóran svartan hatt sem
stóð beint upp í loftið. Ég prjónaði
móhárpeysuna og bjó til í hana
fallegt blúndumynstur og svo var
ég meira að segja í prjónuðum
ullarnærfötum frá Prada undir og
háum sokkum upp á mið læri. Þetta
var mín aðferðarfræði. Þetta var ég
og mín fagurfræði fyrir sjálfa mig.
Þannig á það að vera.“
kristjana@dv.is
Tískusveiflur skipta engu máli, konur velja sér kjóla
frá öllum tímabilum tískunnar eftir eigin persónulega
stíl. Steinunn Sigurðardóttir gifti sig sjálf í svartri ull
frá toppi til táar og segir mikilvægast að konan velji
sér kjól eftir hjartans lyst.
Rókókódrama Blúndur og drama þar sem áhersla er lögð á mjaðmir og brjóst. Minnir á glæsta kjóla úr hirð Marie Antoinette. Hentar konum með perulaga vöxt. Ines Di Santo-kjóll: Lola.
Art Deco Skásniðinn satínkjóll,
einfaldur og glæsilegur í anda grískra
gyðja. Hentar vel grönnum konum með
mjótt mitti. Kjóll frá Peter Langner
Tjútt í anda þriðja áratugar Glimmer og lágt mitti, í anda þriðja
áratugarins. Létt efni og glamúr sem er gerður til þess að tjútta í. Kjóll frá
Caroline Herrera
Hollywood-glamúr
Dömuleg snið – þröngir
í mittið. Brúðarkjólar
í anda Grace Kelly þar
sem glæsileikinn er
hátíðlegur og jafnvel
ríkmannlegur. Kjóll:
Oscar de la Renta
Mod-tímabilið og sjötti áratugurinn Langar
ermar og kjólar í einföldum sniðum fyrir ofan hné. Stutt
og sætt. Aspen frá Simple Silhouettes
Diskó Þessi kjólsamfesting
ur
minnir á Bee Gees,
hvítt og flegið og í anda
diskótímabilsins. Donna
Karan
Tjullað pönk Á níunda áratugnum var tjullið
allsráðandi. Hvort sem það flæddi marga metra í
anda Díönu prinsessu eða var pönkað og stelpulegt og
jafnvel í skærum litum.
Fallegar
greiðslur
Hárgreiðslan á
brúðkaupsdeginum vefst fyrir
mörgum. Afbragðsráð er að
leita á náðir hugmyndasíðunnar
pinterest.com. Þar er hægt að leita
eftir leitarorðum og fjölmargar
íðilfagrar greiðslur að finna sem
henta stóra deginum.
Hattaþema
Það lífgar strax upp á veisluna sé
gestum gert að mæta með hatt.
Ungum sem öldnum finnst gaman
að skreyta sig á óhefðbundinn hátt
og myndatökur af veisluhaldinu
verða í fjörlegra og litríkara lagi.
Góðar kveðjur
á skóna
Brúðarskóna geyma flestir og
halda upp á. Góð hugmynd er að
leyfa vel völdum gestum að skrifa
fallegar kveðjur til brúðhjónanna
á sóla skónna ef þeir eru til þess
fallnir. Þá má hengja þá upp til
heilla.