Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2012, Page 42
42 Brúðkaup 23.–25. mars 2012 Helgarblað
Verstu brúðarkjólarnir
n Þessar brúðir voru alls ekki smart
S
umar konur sjá
brúðkaupsdaginn
í hillingum og hafa
jafnvel planað hann
í huganum allt frá því þær
voru litlar stelpur. Stundum
er tilgangurinn að toppa allar
brúðir sem nokkurn tímann
hafa gengið inn kirkjugólfið.
Stundum hefur verið farið
langt yfir strikið og útkoman
er oft æði skrautleg.
Þ
egar kemur að brúðar
förðun er mikilvægt að
velja tímalausa förðun
og vörur sem endast all
an daginn. Brúðarförðun
breytist ekki mikið á milli ára, tísk
an í brúðarförðun er því eitthvað
sem flestar brúðir ættu að geta lært.
Mjúkir litir, kremaðir, gylltir og ljós
bleikir, eru klassískir litir sem brúð
ir hafa valið sér.
Augun skipta öllu
Hver og ein brúður þarf að velja sér
stíl sem henni líður vel með, hvort
sem það er fallegur „eyeliner“ og
maskari eða dökk augnförðun.
Augun eru lykilatriði í allri brúðar
förðun og verður hver og ein brúð
ur að finna út hversu sterka liti hún
er tilbúin að fara út í. Það er frábær
lausn að prófa sig vel áfram á með
an beðið er eftir stóra deginum.
Einföld augnhár geta gert mikið
fyrir augun og þurfa þau ekki að vera
umfangsmikil til að áhrifin skili sér
á öftustu bekki í kirkjunni eða hvar
svo sem athöfnin kann að fara fram.
Gerviaugnhár fást í öllum förðunar
vöruverslunum og apótekum og í
raun miklu víðar. Þau eru til í miklu
úrvali og getur því hver og ein brúður
fundið gerviaugnhár sem henta eig
in stíl.
Raki grundvallaratriði
Byrjaðu á því að undirbúa húðina
með góðu rakakremi áður en þú
setur á þig farða. Leyfðu rakakrem
inu að hvíla á húðinni þangað til
hún er búin að draga í sig allan rak
ann. Þegar húðin er vel rakanærð
þá endist farðinn mun betur á húð
inni því þá dregur húðin ekki í sig
rakann úr farðanum. Ef þú leyfir
rakakreminu að vera á húðinni í um
það bil tíu mínútur ætti hún að hafa
dregið í sig allan rakann.
Ekki taka neina áhættu fyrir stóra
daginn eins og að byrja að nota ný
krem eða bera á þig á maska sem
þú hefur ekki notað áður. Þú veist
aldrei hvernig húðin gæti brugð
ist við. Í raun er mál að undirbúa
förðunina og húðina vel vikurnar og
jafnvel mánuðina fyrir stóra daginn.
Passaðu þig líka á því að bera ekki
á þig brúnkukrem daginn áður því
það getur reynst virkilega erfitt að
laga misfellur sem geta myndast í
litnum.
Leitaðu ráða ef þú þarft
Þú þarft ekkert að skammast þín
eða vera feimin við að leita ráða
hjá vinkonum þínum eða jafnvel
fagmönnum þegar kemur að förð
uninni. Förðunarfræðingar bjóða
margir hverjir upp á prufuförð
un og ráðgjöf. Það getur líka verið
skemmtileg kvöldstund fyrir þig og
vinkonur þínar að hittast og fara yfir
hugmyndir, leita jafnvel að þeim á
netinu og í tískublöðum, skiptast á
ráðum og hjálpa til við að finna rétta
stílinn.
Augun skipta
öllu máli
n Taktu þér góðan tíma í að undirbúa förðunina fyrir stóra daginn
Undirbúðu þig vel
Ekki taka neina áhættu
fyrir stóra daginn eins og
að byrja að nota ný krem
eða bera á þig á maska
sem þú hefur ekki notað
áður. Mynd PHotos
„Einföld augnhár
geta gert mikið
fyrir augun
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Brúðkaupsveislur
fyrir þá sem þora
Brúðkaupsveislan þarf ekki
að krefjast margra mánaða
undirbúnings. Ef ástin kallar
óvænt á brúðkaup er hægt að
framkalla rómantíska stemningu
á örskotsstundu. Ekki eyða
tíma í áhyggjur af því hver eigi
að sitja hvar. Láttu gesti draga
númer úr skál þegar þeir mæta.
Númerið mun vísa á sætið. Þær
ævintýragjörnu geta svo fjarlægt
alla stóla og undirbúið lautarferð
innandyra. Settu teppi og kodda
á gólfið í kringum lág kaffiborð
og skapaðu afslappaða og
skemmtilega stemningu.
Ævintýralegt
útibrúðkaup
Útibrúðkaup eru hin allra
skemmtilegustu þótt veður sé
oft með óblíðara móti. Víða má
leigja sérstök veislutjöld sem
skýla gestum fyrir veðrum og
vindum og útkoman getur orðið
hin glæstasta. Festa má útiljós
sem prýða garðinn þegar skyggja
tekur og þá er ágætis hugmynd að
taka ljósmyndir í fallega skreyttum
garðinum.
Heidi Klum og fyrrverandi eigin-
maður hennar, Seal, endurnýjuðu
heitin í hyskis-þema. Heidi var
klædd í þröngan blúndukjól og með
fléttur í hárinu og Seal var með sítt
að aftan. Allt í gríni gert.
Jordan giftist söngvaranum
Peter André með mikilli við-
höfn. Hún var klædd í bleikan
prinsessukjól með kórónu og
þótti helst minna á Barbie-
dúkku.
Christina Aguilera giftist fyrrverandi eiginmanni sínum, Jordan Bratman, árið 2005. Athöfnin var mikilfengleg og kjóllinn var það líka. Slör kjólsins var gríðarlangt og þótti kjóllinn ekkert sérlega smart.
Mariah Carey var 23 ára þegar hún giftist
Tommy Mottola 43 ára plötuútgefanda.
Kjóllinn var í anda þess áratugar og ekkert
til sparað. Þetta er dæmi um kjól sem eldist
ekki vel á myndum en það gerir líklega ekki
mikið til þar sem að hjónabandið gerði það
ekki heldur.
Celine dion og Re
ne Angelil
giftu sig með pom
pi og prakt
í desember 1994.
Ekkert
var til sparað og k
jóll Celine
ásamt höfuðskra
uti stal allri
athyglinni. Sitt sý
nist hverjum
um kjólinn sem va
r í hálfgerðum
miðaldastíl með
gríðarstóru pilsi
og síðum skyrtue
rmum.